Leita í fréttum mbl.is

Hvernig væri að treysta fólkinu í landinu?

Það er með eindæmum að horfa upp á það hvernig sóttvarnarlæknir hrekst úr einu víginu í annað til að reyna að réttlæta frelsisskerðingu borgaranna vegna ráðstafana sem hann mælir fyrir um, en heilbrigðisráðherra ber stjórnskipulega ábyrgð á. 

Þessar frelsisskerðingar kosta þjóðfélagið milljarða. Er ekki kominn tími til að taka mark á þeim læknum, sem sjá að Þórólfur er eins og keisarinn í nýju fötunum forðum.

Heilbrigðisráðherra er ekki kominn tími til að þú farir að stjórna þínum málalfokki?

 


mbl.is Orð Ragnars koma á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er mál að linni

Fjármálaráðherra, fyrrum dómsmálaráðherra Sigríður Andersen og Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður segja, sóttvarnarráðstafanir vegna Kóvíd ólögmætar. Þórólfur sóttvarnarlæknir er ósammála en tekur fram, að hann sé ólöglærður ólíkt hinum þremur.

Fyrrum yfirmaður Kóvíd göngudeildar Landspíalans Ragnar Freyr Ingvarsson læknir segir einkenni Ómíkron hafi jafnan verið væg þá  tvo mánuði sem tekist hafi verið á við það og spyr hvenær hættir sjúkdómur að vera hættulegur. Ekki furða að spurt sé þar sem Ómíkrónið virðist skárra en vond inflúensa. Séu það rétt sem læknirinn segir þá er ljóst, að forsendur frelsisskerðinga sóttvarnarlæknis og heilbrigðisráðherra standast ekki. Um er að ræða ólögmætar frelsisskerðingar. 

Heilbrigðisráðherra tekur ákvarðanir um sóttvarnir og ber stjórnskipulega ábyrgð á þeim. Sé um ólögmæta beitingu sóttvarnarlaga að ræða, þá er  um alvarlega valdníðslu ráðherrans að ræða, sem hann ber einn ábyrgð á en ekki Þórólfur Guðnason eða Katrín Jakobsdóttir. Vill heilbrigðisráðherra sitja uppi með þennan Svarta Pétur?

Ólögmætar frelsisskerðingar viljum við engar hafa Willum Þór.

 


Bloggfærslur 31. janúar 2022

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 866
  • Sl. sólarhring: 884
  • Sl. viku: 2553
  • Frá upphafi: 2297113

Annað

  • Innlit í dag: 823
  • Innlit sl. viku: 2383
  • Gestir í dag: 802
  • IP-tölur í dag: 770

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband