Leita í fréttum mbl.is

Helvíti á jörðu

Marxistinn Davíð Þór Jónsson prestur hefur dæmt fólk í heilum stjórnmálaflokki VG til helvítisvistar að loknu þessu jarðlífi og annar prestur þjóðkirkjunar Sindri Geir Óskarsson á Akureyri tekur undir og segir ríkisstjórnina vera að senda fólk í lifanda lífi til helvítis, sem sýnir takmarkaða sýn hans á raunveruleikanum en það er annað mál.

Þessir kennimenn þjóðkirkjunar hefðu átt að skoða ritninguna örlítið  áður en þeir kváðu upp sína dóma og þá er ekki úr vegi að skoða orð Jesú sem eiga við í þessu tilviki:

"Dæmið ekki svo að þér verðið ekki dæmd. Því með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmd verða og með þeim mæli sem þér mælið mun yður mælt verða. Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu.(Matt.7.1-3)

Marxistinn Davíð Þór hefur lengi fylgt stefnu í þjóðmálum,sem hefur búið fólki helvíti á jörðu í lifanda lífi og kostað tugi milljóna fólks lífið hvar svo sem er í veröldinni, sbr í Sovétríkjunum sálugu og Kína hvað þá í Kambódíu. 

Ef til vill væri betra fyrir Davíð Þór og Sindra Glerárprest að huga betur að sálarheill sinni lifandi og láta vera að dæma aðra til eilífrar helvítisvistar og huga að því að fyrirgefningin er megininntakið  í fagnaðarboðskap kristninnar. 

Við erum sem betur fer ekki lengur á slóðum miðaldakirkjunnar með sinn rannsóknarrétt og galdrabrennur og vonandi dagar Davíð Þór ekki þar uppi mikið lengur þó  ekki væri nema vegna eigin sálarheillar. 


Bloggfærslur 26. maí 2022

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 371
  • Sl. sólarhring: 1009
  • Sl. viku: 7586
  • Frá upphafi: 2313234

Annað

  • Innlit í dag: 334
  • Innlit sl. viku: 7011
  • Gestir í dag: 329
  • IP-tölur í dag: 318

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband