Leita í fréttum mbl.is

Ólíkt höfumst viđ ađ

Upp komst um símhleranamál í Bretlandi 2005-2007. Blađa-og fréttamenn ákveđinna miđla stunduđu símhleranir og ólöglegt niđurhal og birtu af ţví fréttir  einkum í News of the World. Blađamennirnir sem og forstjóri, ritstjórar o.fl. voru látnir hćtta strax og rannsóknin fór af stađ. Breskir fjölmiđlar fordćmdu ţessa ólöglegu framgöngu kollega sinna innan Murdoch fjölmiđlasamsteypunnar. 

Hér hefur veriđ til rannsóknar stuldur á farsíma ákveđins manns međan hann lá međvitundarlaus, ólöglegt niđurhal og  birting frétta í ákveđnum fjölmiđlum af ţessu ólögmćta niđurhali,sem m.a. RÚV tengist og nokkrir ađrir miđlar. 

En hér segir engin af sér og fjölmiđlar ţegja allir ţunnu hljóđi um efnisatriđi málisins. Samsćri ţagnarinnar ríkir.  Páll Vilhjálmsson bloggari hefur ţó veriđ iđinn viđ ađ segja frá ţeirri meintu glćpastarfsemi, sem ađ tengist m.a. starfsfólki RÚV og fleiri miđla.

Ţrátt fyrir ađ nokkrir blađa- og fréttamenn liggi undir grun um ólöglegan stuld á síma og ólöglegt niđurhald úr honum ţegar eigandinn lá milli heims og helju á sjúkrahúsi, ţá hefur umrćđan hér veriđ međ öđrum hćtti en í símaskandalnum í Bretlandi.

Hér fara ţeir sem liggja undir grun ítrekađ fram međ ţeim hćtti ađ halda ţví fram, ađ stöđu sinnar vegna eigi ţeir ađ vera undanţegnir ábyrgđ á meintum lögbrotum. Málsstađurinn sé auk ţess góđur. En ţađ eru fleiri sem taka ţátt í ţessari ömurlegu ómálefnalegu vörn sakborninga. 

Leiđari Fréttablađsins í gćr sló raunar allt út í fáránleika í umfjöllun um sakamál ţegar reynt var ađ afsaka meinta brotastarfsemi fjölmiđlafólks á RÚV og viđar.

Leiđarahöfundur heldur eftirfarandi fram:

1. Rannsókn sem beinist ađ blađa- og fréttamönnum vegna farsímastulds o.fl. er smjörklípu afsprengi ljóts spillingarmáls í Namibíu. 

2. Lögreglustjórinn á Norđurlandi eystra liggur undir ámćli fyrir ađ vera ekki faglegur og hann gangi erinda Samherja.

Hvađ svo sem líđur Samherja og meintum brotum ţess fyrirtćkis, ţá hefur ţađ ekkert međ ađ gera rannsókn á farsímaţjófnađi frá einstaklingi og ólöglegu niđurhali úr símanum. Engu skiptir í ţví máli ţó ađ viđkomandi einstaklingur hafi veriđ starfsmađur Samherja. En viđ lestur leiđarans ţá verđur ekki annađ séđ, en ađ leiđarahöfundur telji ađ meint brot kollega hennar skipti í raun ekki máli ţar sem ađ hinn illi Samherji sé vinnuveitandi ţess, sem varđ fyrir barđinu á meintu afbroti.

Svo er spurning undir hvađa ámćli liggur lögreglustjórinn á Norđurlandi eystra fyrir utan hina grunuđu í málinu og ţeirra sem ţeim tengjast? Ekki nokkurs.

Ţá lágmarskröfu verđur ađ gera til leiđarahöfunda ađ ţeir geri sér grein fyrir orsökum og afleiđingum og greini á milli ađalatriđa og gjörsamlega ótengdra atriđa. Ţađ gerir leiđarahöfundur Fréttablađsins ekki í fáránlegri vörn sinni fyrir ţađ athćfi kollega hennar, sem nú er til rannsóknar.

Ţađ er dapurlegt ađ verđa ítrekađ vitni ađ ţví ađ blađa- og fjölmiđlamenn átti sig ekki á ţeim lagalegu grunnstođum sem viđ byggjum á m.a. ađ hver skuli talinn saklaus ţangađ til sekt er sönnuđ og allir séu jafnir fyrir lögunum.   

 

 


Bloggfćrslur 28. september 2022

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 263
  • Sl. viku: 5957
  • Frá upphafi: 2313962

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 5527
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband