Leita í fréttum mbl.is

Mótmæli við setningu Alþingis

Eðlilega er venjulegu fólki misboðið vegna getu- og aðgerðarleysis stjórnvalda. Misboðið vegna skemmdaverka þingmanna Vinstri Grænna vegna haturs þeirra á frjálsu athafnalífi.

Eðlilega er fólki misboðið að horfa upp á það að einstaklingar skuli sviptir eignum sínum þúsundum saman og bornir út úr húsum sínum, vegna þess að höfuðstólar lána þeirra stökkbreyttust vegna þeirra sérleiða með verðtryggingu  og gengislánum.

Eðlilega er fólki misboðið vegna þess að það er ekkert gert til að leiðrétta stökkbreytta höfuðstóla lána. Það getur engin skuldari borgað stökkbreyttu lánin.

Eðlilega er fólki misboðið að ekki skuli koma fram raunhæfar tillögur um  lausn á Alþingi.

Sjálfstæðisflokkurinn mótaði þá stefnu fyrir meir en hálfri öld, að gera fólk að eignafólki með því að auðvelda því að eignast sína eigin íbúð og tryggja fólkið aðgang að hagkvæmum húsnæðislánum. Athugið hagkvæmum húsnæðislánum. Ekki okurlánum.  Vilji Sjálfstæðisflokkurinn verða marktækur valkostur verður hann að leggja fram tilllögur nú þegar á Alþingi um lausn á skuldavanda venjulegs fólks og fyrirtækja. Það verður engin sátt í þjóðfélaginu ef venjulegt fólk verður svipt eignum sínum og einkafyrirtækin eyðilögð á altari ruglaðs lánakerfis. 

Sá er munur á þeim mótmælum sem nú voru fyrir utan Alþingishúsið og þeim sem voru upphafsmánuði 2009, að nú safnast saman venjulegt fólk sem er misboðið, en að hluta til voru í hinum fyrri mótmælum skipulagður óeirðarhópur Vinstri grænna kallaður til að grafa undan þáverandi ríkisstjórn.  Sá er líka munurinn að þá var lögreglan ekki tilbúin til að beita táragasi eða kylfum á mótmælendur. En nú undir Steingrími J. til að verja hann þá voru kylfur hafnar strax á lofti og táragassprengjum hótað.

Óneitanlega var það spaugilegt að sjá þessa varðsveit byltingarforingjanna Steingríms J. og Össurar  í búningum lögregluþjóna beina kylfum að hópi friðsamra kvenna á miðjum aldri á Austurvelli,  sem greinilega höfðu ekkert misjafnt í hyggju. En það gefur e.t.v. vísbendingu um að annar bragur sé á löggæslunni þegar varðstöðu þarf um félaga Steingrím.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Tek undir þetta flest og sýnist því miður að nú sé kominn sá tími að ekkert annað en harkan gildi.

Sorglegt að horfa upp á öll þessi óheilindi og hugleysi, skilur þetta fólk ekki að sannleikurinn gerir menn frjálsa.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 1.10.2010 kl. 21:46

2 identicon

Sjálfstæðisflokkurinn verður aldrei marktækur, sama hverju hann lýgur.

Og þú Jón Magnússon misstir töluverðan trúverðugleika eftir að þú gekkst í flokkinn. Þvílíkur furðugerningur.

Þórarinn Einarsson (IP-tala skráð) 2.10.2010 kl. 10:37

3 Smámynd: Einar Karl

"Sá er munur á þeim mótmælum sem nú voru fyrir utan Alþingishúsið og þeim sem voru upphafsmánuði 2009, að nú safnast saman venjulegt fólk sem er misboðið, en að hluta til voru í hinum fyrri mótmælum skipulagður óeirðarhópur Vinstri grænna"

Sæll Jón.

Er þér alvara með þessum orðum? Var þetta sem sé "venjulegt fólk" sem dúndraði hundruðum eggja í þingmenn, Forseta og presta?

Mér finnst aumingjalegar þessar söguskýringar þínar og ýmissa samflokksmanna þinna. En ég leggst ekki jafnlágt og ætla ekki að kenna "óeirðahóp Sjálfstæðisflokksins" um ofbeldi gærdagsins.

Einar Karl, 2.10.2010 kl. 10:58

4 identicon

Góð grein hjá þér Jón en ert þú einn af þessu "venjulega fólki" ,, sá ykkur feðga ekki á mótmælunum, mér gæti samt hafa yfirsést,,eða voruð þið þar, fróðlegt væri að vita

Kristinn M (IP-tala skráð) 2.10.2010 kl. 11:07

5 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Þorsteinn, en ég er ekki sammála þér með hörkuna. Það er hins vegar óskiljanlegt að svokölluð vinstri stjórn skuli láta það viðgangast að milljarðaskuldir á svokallaða auðmenn séu afskrifaðar á meðan fólk er borið út úr húsunum sínum fyrir tuga milljóna skuldir eða þaðan af minna.

Jón Magnússon, 2.10.2010 kl. 12:01

6 Smámynd: Jón Magnússon

Það verður hver að meta það Þórarinn í lýðræðisríki. Ég sá hvað var í aðsigi í framhaldi af myndun vinstri stjórnarinnar og fannst og finnst enn að lýðræðissinnar eins og við erum vonandi báðir verði að sameina krafta sína til að berjast gegn óeirðaröflunum. Öflunum sem nú sitja í ríkisstjórn og eru að stofna landsfriðnum og eðlilegum reglum í hættu.

Jón Magnússon, 2.10.2010 kl. 12:03

7 Smámynd: Jón Magnússon

Ne Einar það voru að því er mér sýndist sömu mótmælendur og í janúar 2008 sem stóðu í eggjakastinu, lítill hópur sem hefur helst kennt sig við samstöðu með vinstri grænum en tengja sig annars stjórnleysi.  En meginhluti þess fólks sem þarna var komið var komið ekki að áeggjan stjórnmálaflokka eða fréttastofu Ríkistúvarpsins og Bylgunnar eins og í janúar 2008. Þar er stór munur. Þá höfðu æstustu mótmælendurnir núna ekki bækistöðvar á flokksskrifstofu Vinstri Grænna eins og þá og þá veit ég ekki til að einstakir þingmenn hafi verið með eina eða neina stýringu á öfgafyllstu mótmælendunum eins og Álfheiður Ingadóttir var þá.  Í þessu fellst munurinn aðallega.´

Loks skal það tekið fram Einar Karl að það er engin óeirðarhópur innan Sjálfstæðisflokksins ef þú hefur ekki vitað það.

Jón Magnússon, 2.10.2010 kl. 12:08

8 Smámynd: Jón Magnússon

Kristinn ég tel mig vera venjulegt fólk og ekkert öðruvísi en annað fólk í þessu landi.  Ég gerði mér grein fyrir því fyrir meir en tveim áratugum að sérleiðir okkar í lánamálum gengju ekki. Þess vegna hef ég mótmælt þeim og andæft og lagt fram tillögur á Alþingi gegn þeim og barist fyrir breytingum hvar sem ég hef getað komið því við. 

Það er síðan engin furða að þú hafir ekki séð mig í mótmælunum Kristinn því þar var ég ekki heldur bundinn við vinnu mína. Af sjálfu leiðir að ég gat því ekki dregið syni mína með mér á þann stað þar sem ég var ekki.

Jón Magnússon, 2.10.2010 kl. 12:13

9 Smámynd: Einar Karl

Jón Magnússon var sem sagt ekki viðstaddur mótmælin á föstudag. Varla hefur hann tekið þátt í mótmælunum í janúar 2009 heldur.

Samt getur hann fullyrt að á föstudag hafi að mestu "venjulegt" fólk mótmælt, en ekki í janúar 2009.

Jón vill ímynda sér að eitthvert "óvenjulegt" fólk hafi mótmælt, þegar hans flokkur var í stjórn, en að nú mótmæli "venjulegt" fólk, þegar aðrir flokkar sitja við stjórnvölinn.

Ég var á þó nokkrum mótmælafundum haustið 2008 og í janúar 2009, m.a. þegar ALþingi kom saman eftir jólaleyfi. Svo ég þekki þetta einfaldlega betur en þú, Jón.

Það var líka venjulegt fólk að mótmæla í janúar 2009.

Einar Karl, 3.10.2010 kl. 10:25

10 Smámynd: Jón Magnússon

Það er alveg furðulegt Einar Karl að halda svona fram. Að sjálfsögðu geta menn gert sér grein fyrir hvað er á seyði þegar menn horfa framan í mótmælendur á myndavélum og gera sér iðulega betur grein fyrir heildarmyndinni en með því að vera á staðnum eins og iðulega hefur verið sýnt fram á. Ég sá hverjir það voru sem leiddu mótmælin 2009 og ég sé að þeir sem nú standa fremstir í fylkingu eru ekki grímu- eða hettuklæddir nafnleysingjar heldur fólk sem kemur fram og segir til sín og vegna hvers það er að mótmæla.  Það er annar hópur en lausingjalýðurinn sem Vinstri grænir kölluðu til fyrstu mánuði ársins 2009. Ég veit ekki hvað þú þekkir Einar Karl en ég efast um að þú þekkir það betur en ég en þú verður þá að hafa það fyrir þig. En vissulega var það venjulegt fólk sem var líka að mótmæla árið 2009 um það er ekki verið að deila. 

Jón Magnússon, 3.10.2010 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 851
  • Sl. viku: 2669
  • Frá upphafi: 2298194

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 2499
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband