18.11.2011 | 22:31
Skuldir heimilanna. Tillögur á Landsfundi.
Ég hef borið fram eftirfarandi breytingartillögur í nefndinni um Skuldavanda heimilanna á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins:
"Tillaga 1. UpphafSjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á séreignastefnu í húsnæðismálum. Sjálfstæðisflokkurinn leggur í því sambandi áherslu á að ungt fólk eigi kost á hagkvæmum lánum til húsnæðiskaupa. Séreignastefnan á húsnæði á að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði einstaklingana og betri lífskjör. Skattstefnu og gjaldtöku ríkis og sveitarfélaga vegna bygginga eigin húsnæðis verður að stilla mjög í hóf til að auðvelda einstaklingunum að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Tillaga 2. Fjármögnun íbúðarhúsnæðisLandsfundur Sjálfstæðisflokksins krefst þess að skipan húsnæðislána og lána til neytenda verði komið í svipað horf og það er á hinum Norðurlöndunum, Bretlandi og Þýskalandi. Þannig verði verðtrygging af húsnæðis- og neytendalánum afnumin og samkeppni á lánamarkaði fyrir neytendur tryggð. Þess verði gætt að gjald- og vaxtataka lánastofnana verði svipuð og í nágrannalöndum okkar. Þá telur Landsfundur Sjálfstæðisflokksins brýnt að fram fari skoðun á orsökum þess að lánakjör eru önnur og verri á Íslandi en um ræðir annars staðar í okkar heimshluta. Tillaga 3 Úrvinnsla skulda heimilannaLandsfundur Sjálfstæðisflokksins telur réttlátt að höfuðstóll verðtryggðra lána verði færður til þeirrar viðmiðunarvísitölu sem var í gildi 1.10.2008. Frá 1.10.2008 hefur íbúðarverð lækkað gríðarlega í verði. Á sama tíma hefur verið samdráttur í þjóðarframleiðslu og veruleg rauntekjulækkun. Taka verður tillit til þessara staðreynda og gæta þess að réttlæti ráði ferðinni við úrvinnslu skuldavanda einstaklinga og fyrirtækja. Þannig verði miðað við almennar aðgerðir til að leysa skuldavandann en ekki sértækar. Með sértækum aðgerðum hefur verið og verður búið til ójafnræði milli borgaranna. Með þeirri niðurfærslu höfuðstóls verðtryggðra lána sem hér er lagt til er ekki lengur um forsendubrest að ræða og tryggt er eðlilegt jafnræði fjármagnseigenda og skuldara."
Þetta eru tillögur um almennar aðgerðir varðandi skuldavanda fólksins í landinu í stað þeirra sértæku aðgerða sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir hefur gripið til. Tillögur sem leysa ekki vandann, en mismuna hins vegar fólki. Þannig á það ekki að vera og þess vegna verða tillögur til lausnar skuldavandans vegna efnahagshrunsins að vera almennar- mismunun borgaranna gengur ekki.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjármál, Mannréttindi, Viðskipti og fjármál | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 39
- Sl. sólarhring: 863
- Sl. viku: 5893
- Frá upphafi: 2474192
Annað
- Innlit í dag: 34
- Innlit sl. viku: 5372
- Gestir í dag: 32
- IP-tölur í dag: 32
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Góðar og vandaðar tillögur.
Sigurður Þórðarson, 18.11.2011 kl. 22:44
Athyglisverðar tillögur, sem vonandi fá vandaða umræðu í nefndinni. Ef þær næðu fram að ganga þá myndi Sjálfstæðisflokkurinn taka frumkvæðið í umræðunni um úrræði fyrir heimilin. Hér er um réttlætismál að ræða, en jafnframt mál sem myndi m.a. hleypa lífi í frosinn fasteignamarkað. Það verður hins vegar þrautin þyngri að ná svo róttækum tillögum í gegn á þessum landsfundi nema fyrir liggi ýtarleg greinagerð um útfærslu. Voandi er hún fyrir hendi.
Jón Baldur Lorange, 18.11.2011 kl. 22:58
Líst vel á þetta hjá þér, vonandi nær þetta í gegn.
Almenn leiðrétting er nauðsynleg til að lágmarka ósanngirni milli fólks í mismunandi aðstöðu.
svo þurfum við bara að fara að fá kosningar :)
Emil Emilsson (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 23:17
Mikið vildi ég að svona tillögur fengju hljómgrunn hjá ráðamönnum þessarar þjóðar. Ef landsfundurinn samþykkir þessar tillögur er enn von í þessu landi. Nú verða menn að hætta að tala og fara að framkvæma. Við þurfum virkilega á því að halda að óhæft fólk fari frá og nýir taki við. Jón takk fyrir margar góðar tillögur í gegnum tíðina
Sigvaldi K. Jónsson (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 23:26
Þú átt þakkir skilið JM að halda jafnvægi. Worldbank heldur um GDP(PPP) í Alþjóðafjármálaheiminum, raunvirði efnahagskerfa, sem er talið endurspegla fasteignaveð. Tryggja miðað við raunverð er sjálfsagt. Tryggja sölu eldra húsnæðis á raunvirði. Ríkistjórnir eiga gefa upp PPP í upphafi kjörtímabils [útreiknað gengismat Alþjóðagengismarkaðarins] svo kjósendur geti valið ríkistjórnir miðað við hlutlausan mælikvarða. Hætta vaxtatilfærslum milli 80 % Íslenskra heimila. Stilla raunvexti eftir libor millibanka grunnvöxtum í London, er ágætt. Lánsútborganir í félagslega geiranum fylgi alltaf PPP.
Frjálsmarkaður lagar sig að greiðslugetu lántaka ef reglustýring sem tryggir frelsi hans er í lagi. Almenningur: 80% neytenda á Íslandi getur ekki borgað hærri langtíma raunvexti en stærstu bankar í heimi. Hver verður almenn skuldastaða Íslenskra ellilífeyrisþega eftir 20 ár með sama áframhaldi.
Júlíus Björnsson, 19.11.2011 kl. 00:53
Ég sé ekkert um það í þessum tillögum þínum hvernig á að fjármagna þessar fokdýru aðgerðir. Það er eðlismunur milli þess að afskrifa kröfur sem eru að mestu eða öllu leyti tapaðar og þess að afskrifa innheimtanlegar kröfur og lenda síðan líka í að þurfa að afskrifa tapaðar kröfur því hjá því verður ekki komist,
Sigurður M Grétarsson, 19.11.2011 kl. 03:33
Gott mál. En afhverju í ósköpum ert þú að koma með þessar tillögur núna, bara þremur árum of seint ? Það er of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið í hann
Kristinn J (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 08:46
Mestu mistök sem gerð hafa verið í efnahafsmálum, er vafa lítið, að víxitalan hafi ekki verið tekin úr sambandi við Hrunið,allavega tímabundið, og þennan Forsendubrest sem varð á verðtryggðum lánum, við Hrunið verður að lagfæra með einhverjum ráðum, fyrr kemst ekki friður á í þessu þjóðfélagi,vel að merkja var verðbólgumarkmið Seðlabankans 2.5%-4.0% og væri ekki ósangjarnt að þak verði sett á víxitöluna frá 1. jan 2008 og þakið yrði 3.25%farið verði bilbeggja, og þjóðarsátt um það.
Jón Ólafs (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 11:06
Þann Forsendubrest sem varð á verðtryggðum lánum við Hrunið, verður að leiðrétta með einhverjum ráðum.
Haldór Sigurðsson (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 11:40
Þakka þér fyrir Sigurður.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:27
Sammála þér Jón og það reyndist alveg rétt hjá þér að það er þrautin þyngri. Það fór meira og minna allur dagurinn í gær frá því fyrir átta og fram eftir degi í nefndinni að afgreiða málið. En á endanum náðist viðunandi málamiðlun þar sem vinir verðtryggingarinnar urðu að láta undan síga. Spyrjum að leikslokum í dag.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:28
Já Emil ég reyni mitt besta og kosningar eru ekki langt undan.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:29
Sigvaldi ég vona að skilningur fólks aukist á mikilvægi þess að færa niður skuldir með þeim hætti að möguleiki skapist fyrir aukinni þjóðarframleiðslu, hagvexti og meiri atvinnu. Lykillinn að því er m.a. að færa skuldir venjulegs fólks niður en gera ekki bara eitthvað fyrir þá sem eru orðnir algerlega bjargarlausir.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:31
Þakka þér fyrir Júlíus.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:31
Það er alveg rétt Sigurður að það koma ekki fram tillögur um fjármögnun. Þannig er það líka varðandi aðrar tillögur og markmiðssetningu í stjórnmálum. Svo sem tillögur í skólamálum. Málefnum aldraðra. Heilbrigðismálum og ég gæti haldið áfram að telja. Það væri að mörgu leyti heppilegt að gera kröfu til þess að tillögur kæmu fram um heildarfjármögnun alltaf. En ég vil benda þér á að Steingrímur einn hefur kostað okkur með framlögum í VBS, Sögu, Sjóvá, Sp.Kef um 70 milljarða og þá er ótalið ýmislegt annað eins og t.d. Byr. Kostnaðurinn við Steingrím J. einan er tæpur helmingur þess fjár sem þarf til þeirrar sanngjörnu niðurfærslu höfuðstólanna sem ég legg til. Því til viðbótar Sigurður er eðlilegt að þeir sem nutu hagnaðar af hækkunum sem engin forsenda var fyrir þufi að endurgreiða m.a. með því að lagðir yrðu á svipaðir skattar og hafa stundum verið lagðir á í Bretlandi og Bandaríkjunum við svipaðar aðstæður og nefnast "Wind fall taxes"
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:36
Kristinn í þringræðu sem ég flutti þ. 6.10.2008 við umræður um neyðarlögin sagði ég að þetta væru og yrðu vera fyrstu neyðarlögin sem væru sett vegna þess veruleika sem við blasti við hrun bankanna. Það yrðu að koma önnur lög þar sem vísitala verðtryggðra lána væri tekin úr sambandi og höfðustóll gengislána færður aftur til 1.1.2008. Ég hef klifað á þessu síðan og lagt fram svona tillögur. Þannig að þetta er búin að vera meira en 3 ára barátta fyrir þessu réttlæti Kristinn. Flestir viðurkenna það núna að það hefði verið rétt að gera eins og ég lagði til í október 2008. En það er aldrei of seint að fara að gera rétta hluti.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:40
3. liður er eins og ég hef alltaf talið rétta að gera strax. Ég styð þetta
Halldór Jónsson, 20.11.2011 kl. 09:40
Hjartanlega sammála Jón
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:40
Það er einmitt það sem ég er að leggja til að verði gert Halldór.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 09:41
Jú Jón það er alveg rétt að oft koma menn með tillögur sem eru kostnaðarsamar án þess að koma með tillögur um fjármögnun á móti. Þær tillögur kosta hins vegara aðeins brot af þeim hátt í 200 milljörðun króna sem þínar tillögur sem eru reyndar samhljóða tillögum Hagsmunasamtaka heimilanna kosta.
Hvað varðar skelli ríkisins vegna klúðurs þá er versti skellurinn þeir á þriðja hundrað milljarðar sem gjaldþrot Seðlabankans vegna ástarbréfaviðskiptanna kostar ríkissjóð þar sem maðurinn sem klappaður var upp á landsfundi Sjálfstæðiflokksins og formaður flokksins mærði mikið var aðalgerandinn.
En tökum þessar ávirðingar þínar á Steingrím J.
Ef ekki hefði verið farið úr í að bjarga Sjóvá þá hefði fullt af fólki sem átti skaðabótakröfur á tryggingafélagið ekki fengið tjón sitt bætt. Þar hefði þá í mörgum tilfellum verið um að ræða fólk sem orðið hefur fyrir alvarlegu líkamstjóni sem það hefði ekki fengið bætt. Þar hefði til dæmis verið fólk sem hefur orðið fyrir líkamstjóni í bílslysi þar sem bíll tryggður hjá Sjóvá var í órétti. Þar að auki hefði það hækkað endurtryggingaverð allra íslenskra tryggingafélaga enda var klúðrið fólgið í því að láta menn komast upp með að fjárfesta í áhættufjárfestingum með vátryggingasjoðin sem er lögbrot að því er ég best veit en þú lögfræðingurinn veist sennilega betur
Hvað Sparisjóð Keflavíkur áhrærir þá var ákveðið að ábyrgjast bankainnistæður með neyðarlögunum og ef sparisóðurinn hefði veirð látinn fara á hausinn þá hefði reynt á það. Sá kostnaður hefði getað orðið meiri en kostar að endurreisa hann því það tapast alltaf ákveðin verðmæti þegar slíkum fyrirtækjum er lokað. Það sama á við um Byr. Ég þekki ekki nægjanlega til hinna atriðanna sem þú nefnir til að geta tjáð mig um það.
Niðurstaðan er þó sú að þarna er engan vegin um 70 milljarða að ræað sem valið hefur staðið til að setja í eitthvað annað.
Sigurður M Grétarsson, 20.11.2011 kl. 14:04
Jón. Þú verður þá afsaka mig; ég hafði ekki rekið augun í þingræðu þína og því sem þú hefur klifað á. Hafðu þakkir.
En þú segir "En það er aldrei of seint að fara að gera rétta hluti." vildi bara að rétt væri..
Kristinn (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 17:35
Sigurður það hefði ekki verið vandamál að selja Sjóvá til annars vátryggingafélags án kostnaðar fyrir ríkið. Sparisjóður Keflavíkur er dæmi um meiri háttar afglöp þar sem milljarðar brunnu upp á kostnað skattgreiðenda og endanlegur reikningur vegna þess er ekki kominn fram en talað er nú um 30 milljarða bara vegna Sp/Kef.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 20:32
Að sjálfsögðu afsaka ég það Kristinn en þú getur t.d. lesið þetta í ræðu minni þ. 6.10.2008 í umræðum á Alþingi um neyðarlögin.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 20:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.