20.11.2011 | 20:26
Höfuðstólar húsnæðislána færðir niður.
Við andstæðingar verðtryggingarinnar sem settum fram kröfur um niðurfærslu höfuðstóla verðtryggðra og gengistryggðra lána og afnám verðtryggingar af neytendalánum höfðum fullan sigur á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Mikill meiri hluti þeirra sem þátt tóku í starfi nefndarinnar sem vann drög að ályktun um fjármál heimilanna voru eindregið á móti verðtryggingunni og kröfðust niðurfærslu stökkbreyttu höfuðstólanna. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður stjórnaði nefndinni af hóflegri hörku og af mikilli prýði.
Ég óttaðist að þegar málið kæmi til afgreiðslu á Landsfundinum mundu andstæðingarnir koma fram af fullri hörku, en það gerðist ekki. Þeir einu sem tóku til máls voru stuðningsmenn ályktunarinnar. Þegar ég flutti mína ræðu og gerði grein fyrir þeim réttlætiskröfum sem við vorum með þá sá ég að yfirgnæfandi meiri hluti fólksins var þessu fylgjandi og við atkvæðagreiðsluna um málið var tillagan samþykkt nánast samhljóða.
Það sem máli skiptir í þessu sambandi er þetta: 110% leiðinni, sem þingflokkurinn hafði samþykkt var vikið brott en samþykkt mun víðtækari aðgerðir með niðurfærslu höfuðstóla verðtryggðu lánanna. Í því sambandi var talað um að miða við vísitölu 1.10.2008. Einnig voru nefndar aðar víðmiðanir sem mundi þýða enn meiri niðurfærslu.
Samþykktirnar eru svohlóðandi m.a:
"Sjálfstæðisflokkurinn vill færa niður höfuðstól verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána."
´"Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að fólki standi til boða hagkvæm lán til húsnæðiskaupa."
"Enn sem fyrr byggir Sjálfstæðisflokkurinn á þeirri meginstefnu að eintaklingar eigi þes kost að rísa frá fátækt til velmegunar á grundvelli framtakssemi og dugnaðar. Framlag samfélagsins til þess á m.a. að vera með þeim hætti að sjá til þess að hagkvæm húsnæðislán séu jafnan í boði fyrir neytendur."
Landsfundur er æðsta vald í málefnum Sjálfstæðisflokksins og nú ríður á að þingmenn flokksins og aðrir trúnaðarmenn taki myndarlega á málum og fylgi þessum samþykktum eftir og beri þær fram til sigurs.
Réttlætið verður að ná fram að ganga að öllu leyti ekki bara á Landsfundinum.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjármál, Mannréttindi, Viðskipti og fjármál | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 217
- Sl. sólarhring: 504
- Sl. viku: 4433
- Frá upphafi: 2450131
Annað
- Innlit í dag: 198
- Innlit sl. viku: 4127
- Gestir í dag: 194
- IP-tölur í dag: 192
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Var að bíða eftir að heyra frá þér eftir fundinn. Þetta er vissulega góðar fréttir og uppörvandi. Þakkir fyrir þitt framlag, þið Guðlaugur Þór standið ykkur með prýði.
Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 20:30
Glæsilegt, til hamingju með þetta Jón. Þetta er áfangasigur í baráttunni fyrir því að koma á réttlæti á Íslandi.
Þórður Áskell Magnússon (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 20:47
Til hamigju með þennan áfangasigur, og vonandi tekst að vinna þetta til enda.
Það mætti nú aðeins fara að líta á Seðlabankann, stýrivextir 4.75% og verðbólga ca.5%
í Englandi er verðbólga ca.5% og stýrivextir þar eru 0.5-1%. Þetta er náttúrlega gjörsamlega galið,og það verður að fara í að vinna nýja peningamálastefnu fyrir Seðlabankann, því þetta rugl gengur ekki svona lengur.
Jón Ólafs (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 20:49
Gott væri að fá að vita meira. Nú veit ég að lögð var fram tillaga um að fjármálafyrirtæki væru hvött til að hlíta ákvæðum laga nr. 107/2009. Hvernig fór fyrir henni? Sama með að trappa niður verðtrygginguna?
Marinó G. Njálsson, 20.11.2011 kl. 20:50
Flott hjá þér!
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 20.11.2011 kl. 20:57
,,110% leiðinni, sem þingflokkurinn hafði samþykkt var vikið brott en samþykkt mun víðtækari aðgerðir með niðurfærslu höfuðstóla verðtryggðu lánanna. Í því sambandi var talað um að miða við vísitölu 1.10.2008."
Þetta gerir sjálfstæðisflokkurinn aldrei !!!
Aldrei !!!
Settu þetta í minni og flettu upp, ef og þegar sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur að stjórnarborðinu !!!
JR (IP-tala skráð) 20.11.2011 kl. 21:05
Þakka þér fyrir það Guðjón. Ég vona að það sér rétt hjá þér að við stöndum okkur vel.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 23:03
Ég er sammála þér Þórður það er áfangasigur en alla vega áfangasigur. Það sem mér fannst skemmtilegast að sjá hvað eindreginn meirihluti var gegn verðtryggingunni og niðurfærslu stökkbreyttu höfuðstólanna. Haði ekki búist við jafn eindreginni afstöðu. Nú er komið að þingmönnunum að standa sig.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 23:05
Marinó ég er ekki alveg viss um hvernig fór fyrir þeirri tillögu vil ekki segja það sem ég held. Það er ekki verið að tala um að trappa verðtrygginguna niður það er beinlínis sagt að hún sé ekki valkostur í neytendalánum.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 23:06
Þakka þér fyrir Sigurbjörg.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 23:06
JR þetta er það sem æðsta vald í flokknum hefur ályktað um og kjörnum fulltrúum flokksins ber að fara eftir því.
Jón Magnússon, 20.11.2011 kl. 23:07
Hugmyndin sem ég er að tala umgekk líka út á það, þ.e. verðtrygging væri bara fyrir þá sem hafa verðtryggðra tekjur.
Marinó G. Njálsson, 20.11.2011 kl. 23:18
Jón er kominn heim, því Jón er kominn heim.
Mikið óska ég þér og Sjálfstæðisflokknum til hamingju góði vinur með þessa ályktun sem þið náðuð saman. Ætli þetta verði ekki meira til gagns fyrir þjóðina heldur en þegar þú varst að fýlupokast þarna úti í eyðimörkinni með einhverju nóboddífélagi.
Þetta sannar það sem ég hef ávallt sagt að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki annað en fólkið sem er í honum. Flokkurinn með þig innanborð er betri en flokkurinn með þig utanborðs.Það finnst mér aðminnsta kosti.
Halldór Jónsson, 21.11.2011 kl. 00:06
Fyrirsögn þín og umfjöllun lítur út eins og þetta sé bara "done deal", málið dautt. Frá mínum bæjardyrum séð, er þetta bara í orði kveðnu. Eitthvert innanhúss samþykkt hjá Sjálfstæðisflokknum. Kemur engum öðrum við. Ég meina, þið er ekkert á leið í ríkisstjórn og vonandi verður þjóðin ekki það aðframkominn við næstu kosningar að þeir kjósi FLokkinn. Svo ég velti því fyrir mér hvað þetta hefur að segja fyrir almenning. Niðustaða mín: Nákvæmlega ekki neitt. Punktur. Útblásin blaðra sem verður búinn að missa allt loft á þriðjudaginn, Púff, búið.
Dexter Morgan, 21.11.2011 kl. 00:32
Góðar fréttir.Hægri hönd réttlætisins mun hafa sigur.
Örn Ægir (IP-tala skráð) 21.11.2011 kl. 00:46
Ég er ekki skráður Sjálfstæðisflokksmaður og geri það líklega ekki. En eftir að hafa lesið ályktunina um ESB umsóknarferlið.Sem er hreint frábærlega orðuð. Og nú um lagfæringu á lánum og afnám verðtryggingar á húsnæðislánum. Þá verð ég að segja. Mér líður strax betur í sálartetrinu.
Nú vantar að skerpa á lögum um hvað má og hvað ekki í fjármálagjörningum,kennitöluflakk, fikt fyrirtækja á virði hlutafjár og svolítið Þýska stefnu í verðbólgumáluml. Þá er bara að taka sveifina og snúa þjóðinni í gang aftur.
Snorri Hansson, 21.11.2011 kl. 04:41
"Sjálfstæðisflokkurinn vill færa niður höfuðstól verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána."
"Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að fólki standi til boða hagkvæm lán til húsnæðiskaupa."
mér finnast þessar samþykktir hafa svipaðan þunga og undirskriftarlisti gegn einelti eða ísland án eiturlyfja f. 2000 o.þ.h.
enginn á móti, ALLIR sammála og ALLIR vita að þetta er bara loft
ég er líka andstæðingur verðtryggingarinnar
Rafn Guðmundsson, 21.11.2011 kl. 09:06
þá vitum við það að landsfundurinn var ekki á því að afnema verðtrygginguna þrátt fyrir að 80 % landsmanna vilji hana af skv skoðannakönnun.Stöðug umhyggja fyrir lífeyrissjóðum og fjármálafyrirtækjum. Og alltaf vísað í það sama; Það er ekki verðtryggingin sem er vandamálið heldur verðbólgan.Þetta er tóm vitleysa. Verðbólgan er öryggisventill fyrir óráðsíu og agavöntun í hagstjórn. Hún bitnar á almenningi í formi okurlána en fjármagnseigendur halda sínu. En bestu þakkir til ykkar í nefndinni sem urðu þó undir.
Sigurður Ingólfsson, 21.11.2011 kl. 11:03
Sæll vertu og takk fyrir fundinn + tillögurnar -
þetta var góð útkoma - ég er þeirrar skoðunar að bæði í þessu máli sem og t.d. evrópumálum sé flokkurinn að þétta raðirnar - þjappa sér saman - hörðustu esb sinnar ( sem eru reyndar fáir ) hafa dregið i land - látið skynsemina ráða. Fundurinn sem anstæðingarnir töldu að myndi kljúfa flokkinn reyndist þegar upp er staðið fundurinn þar sem Sjálfstæðismenn tóku höndum saman og gengu sameinaðir til áframhaldandi starfs.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 21.11.2011 kl. 11:07
Jón, ertu að segja mér að ef Sjálfstæðisflokkurinn komist til valda þá verði höfuðstóll lána færður aftur til 2008?
Halla Rut , 21.11.2011 kl. 12:56
Það má kannski bæta við athugasemdina að vissulega kemur ríkið á móts við skuldara með vaxtabótum af íbúðalánum en eins og hefur sýnt sig, geta fyrirtækin ekki staðið undir svona vöxtum. Það væri hægt að "trappa" verðtrygginguna niður á þremur árum þannig að í fyrsta árið væri 1 / 3 af t.d. 5 % verðbólgu óverðtryggður. Þetta myndi skapa mikið aðhald.
Sigurður Ingólfsson, 21.11.2011 kl. 13:38
Hverjir eru það sem hafa verðtryggðar tekjur Marinó? Í ályktuninni er verið að tala um að verðtryggingin sé ekki valkostur hvað varðar húsnæðislán til neytenda. Það á við allan almenning í landinu. En þetta er á réttri leið.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:20
Þakka þér fyrir Halldór en gleymdu því ekki að menn hafa iðulega þurft að vera í eyðimörkinni til að leita sannleikans eða ná til fyrirheitna landsins. Svo þakka ég þér hjartanlega fyrir hólið að flokkurinn sé betri með mig innanborðs. Mikið fannst mér gaman að fá þetta hrós.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:22
Dexter þetta er stefnumörkun stærsta stjórnmálaflokksins í landinu í því máli sem skiptir heimilin í landinu mestu máli. Með þessari samþykkt er m.a. samþykkt þingflokksins um 110 prósent leiðina vikið burt og sagt það verður að gera miklu meira þetta gengur ekki og verðtryggð lán eru ekki lengur valkostur í neytendalánum. Þetta er stefnumörkun og það er alveg sama hvaða stefnumörkun það er það er aldrei frá gengið fyrr en hluturinn gerist. En það er eins og þegar þú ætlar í ferðalag þá skiptir máli að þú vitir hvert þú ætlar og ert að fara síðan er að leggja á stað.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:25
Þakka þér fyrir Örn Ægir það vona ég svo sannarlega.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:25
Sammála þér Snorri
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:26
Það er nú ekki þannig það það sé engin á móti það var tekist á um þetta heldur betur og þetta var niðurstaðan sem yfirgnæfandi meiri hluti studdi. Þetta náði fólkið ekki fram átakalaust og nær ekki fram átakalaust. Þetta var hins vegar mikilvægt á vegferðinni í átt til réttlætis Rafn.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:28
Þetta er ekki rétt Sigurður við urðum ofan á og orðalagið er skírt verðtryggingin burt. Sambærilegt lánaumhverfi og á hinum Norðurlöndunum þýðir burt með verðtrygginguna. Ekki verðtrygging á húsnæðislánum til neytenda. Þýðir ekki verðtrygging. Þara að tala skírar?
Síðan er talað um niðurfærslu höfuðstóla verðtryggðu lánanna. Ekki 110 prósend leiðin heldur almenn niðurfærsla höfuðstóla. Það hefði verið hægt að tala skírar þ.e. nefna viðmiðun það er það eina sem ég hefði viljað ná fram til viðbótar Sigurður.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:30
Ég er sammála þér Ólafur og mér finnast tillögurnar í skuldavanda heimilanna miklu merkilegri og mikilvægari en samþykktirnar í utanríkismálum. Ég er sammála þér að flokkurinn komi sterkari út úr þessum fundi en hann var áður.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:33
Nei ég er ekki að segja þér það. En það var samþykkt að það ætti að færa niður höfuðstólana og það voru tvær tillögur sem voru til staðar annars vegar frá mér þar sem miðað er við 1.10.2008 og önnur tillaga sem vildi miða við dagsetningu árið 2006. Það er ekki nefnt við hvað á að miða heldur talað um almenna niðurfærslu höfuðstóla og ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi þegar í stað að setja vinnu í að útfæra þá hugmynd og er búinn að ræða það við formann Flokksins.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:35
Þetta er ákveðin hugmynd Sigurður allt í lagi að skoða hana.
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 17:36
Talandi um verðtrygginguna.
Það virðist engin raunveruleg umræða fara fram um útreikninga hennar. Hvernig reikna aðrar þjóðir þetta út?. Vörur/þjónusta/skattar/gengi breytast í öðrum löndum ekki satt.
Af hverju hækka lán okkar ef tannstönglar hækka í verði?. Það hlýtur að vera ástæða til að kíkja á þetta.
Við að reikna okkur til andskotans?
itg (IP-tala skráð) 21.11.2011 kl. 22:42
Nei hún er allt of lítil og það er alveg með ólíkindum að neysluskattar skuli fara inn í vísitölu til verðtryggingar og færa fjármagnseigendum aukinn hagnað. Af hverju skyldi ASÍ ekki gera athugasemd við það?
Jón Magnússon, 21.11.2011 kl. 23:39
Of lítil?
Af hverju hafa yfirvöld landsins ( t.d. núverandi ) ekki skoðað þetta. Tækifærið var sannanlega til staðar í upphafi 2009.
Enginn stjórnmálaflokkur landsins hefur ljáð máls á að skoða þessi mál.
Þetta er ljótasti blettur 4-flokksins og er af nógu að taka.
itg (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 00:06
Það er vegna þess að ASI er beggja vegna borðsins.
Snorri Hansson, 22.11.2011 kl. 00:30
Þó að maður sleppi því að velta fyrir sér hvort það standist lög að breyta vísitölunni. Þá langar mig að benda á eitt. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um ca. 35% frá 1.1. 2008. Ef visitalan yrði færð aftur til 1.1. 2008 þá yrði ríkið að leggja Íbúðalánasjóði til um. 300 miljarða.
Er ekki komin tími til að hætta þessu bulli?
Jónas Kr. (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 01:04
"Sjálfstæðisflokkurinn vill færa niður höfuðstól verðtryggðra og gengistryggðra húsnæðislána."
´"Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að fólki standi til boða hagkvæm lán til húsnæðiskaupa."
"Enn sem fyrr byggir Sjálfstæðisflokkurinn á þeirri meginstefnu að eintaklingar eigi þes kost að rísa frá fátækt til velmegunar á grundvelli framtakssemi og dugnaðar. Framlag samfélagsins til þess á m.a. að vera með þeim hætti að sjá til þess að hagkvæm húsnæðislán séu jafnan í boði fyrir neytendur."
gvuð hvað þetta er sætt. merkir það eitthvað meira en froðuna sem þetta snakk augljóslega er?
Jóhann (IP-tala skráð) 23.11.2011 kl. 00:18
ITG þetta er að sjálfsögðu ljótur blettur á stjórnvöldum að hafa ekki áttað sig á skyldu sinni að fylgja réttlætinu í stað þess að vinna fyrir sérhagsmuni.
Jón Magnússon, 24.11.2011 kl. 09:32
Já en aðallega þeim megin borðsins þar sem fjármagnseigendur eru Snorri.
Jón Magnússon, 24.11.2011 kl. 09:33
Ég er að tala um vísitöluna frá 1.10.2008. Það er lækkun um 200 milljarða gróft reiknað. En af þeim er ákveðinn hluti sem er ekki innheimtanlegur. Ég hef talið að raunkostnaðurinn gæti verið um 120-150 milljarðar. En á sama tíma mundi það þýða verulega uppsveiflu í hagkerfinu sem mundi hafa verulega jákvæða þýðingu og skapa m.a. tekjur fyrir ríkissjóð á móti.
Jón Magnússon, 24.11.2011 kl. 09:35
Jóhann þetta er góð stefnumörkun það er alveg rétt hjá þér. Nú er það okkar að fylgja henni eftir og láta hana verða að veruleika.
Jón Magnússon, 24.11.2011 kl. 09:36
Jón. Getur þú útskýrt fyrir mér hvernig húsnæðiskaupendur með 30 til 50% ráðstöfunartekna í greiðslubyrði af húsnæðislánum eru betur settir með óverðtryggð lán með breytlilegum vöxtum heldur en verðtryggðum lánum miðað við sömu raunávöxtunarkröfu?
Það er ekki nóg að segja að það sé sanngirnismál að íslenskir húsnæðiskaupendur fái lán á sömu kjörum og í nágrannalöndunum. Það þarf líka að finna fjárfesta sem eru tilbúnir að kaupa þannig skuldalbréf í íslenskum krónum. Lagasetning sem rýrir kjör lánveigtenda á húsnæðislánamarkaði getur einfaldlega leitt til þess að þeir fari af þeim markaði og fjárfesti bara í einhverju öðru.
Þessi stefnumörkun á landsfundi Sjálfstæðísflokksins hefur því ekkert gildi meðan þeir koma ekki fram með svarið við því hvernig á að fjármagna lán með þeim kjörum sem þeir vilja að húsnæðiskaupendur fái. Það vilja allir stjórnmálaflokkar að lánakjör húsnæðislána verð eins hagstæð lántökum og kostur er.
Sigurður M Grétarsson, 24.11.2011 kl. 13:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.