11.1.2012 | 23:29
Borgarstjórinn hugumstóri
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr hefur fundið köllun sína. Hann talar ekki illa um fólk.
Í Kastljósi kvöldsins kom fram að tugir fólks liggur beinbrotið heima vegna skorts á hálkuvörnum í Reykjavík. Óneitanlega hlýtur það að lina þrautir og sársauka slasaðra að verða vitni að þessari köllun Jóns Gnarr.
Mitt í aukinni skattheimtu, innilokunar vegna snjóa og hálku og hærri reikninga frá Orkuveitu Reykjavíkur hefur Jón Gnarr þennan gleðiboðskap að flytja Reykvíkingum. En ekkert annað.
Þegar ég hlustaði á viðtalið við borgarstjórann datt mér í hug sagan af Alexandrínu drottningu Dana, þegar hún spurði um sósíalismann í upphafi síðustu aldar og henni var sagt að margt fólk væri óánægt með kjör sín. Þá sagði Alexandrína. Hvílíkt vanþakklæti og við sem höfum gefið fólkinu Tívolí.
Það væri allt í lagi fyrir Jón Gnarr ef tilveran væri eilíft Tívolí. Pólitískur raunveruleiki hans virðist svipaður og dönsku drottningarinnar fyrir einni öld.
Þeir sem kusu Jón Gnarr átta sig á því í dag að pólitík er ekki brandari heldur fúlasta alvara á stundum og þá skiptir máli hver stjórnar.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Heilbrigðismál, Sjónvarp | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 16
- Sl. sólarhring: 70
- Sl. viku: 3693
- Frá upphafi: 2474483
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 3367
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 14
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Vörnin var ákaflega barnaleg. Ef hann er reynslulaus þá hljóta dýru ráðgjafar borgarinar að vera það líka. Þar má spara launakostnað. Kjafta minna.
Júlíus Björnsson, 12.1.2012 kl. 01:06
Ég vona Jón að þú hafir rétt fyrir þér að fyrrum kjósendur Jóns Gnarr sjái að það er algjört einsdæmi að Borgarstjóri virðist ekki hafa hugmynd um hvað er í gangi í Borgarstjórn, hann gat alla vega ekki svarað neinni spurningu efnislega, það var öllu mætt með hálfkæringi og aulafyndni.
Illu heilli treysti ég því ekki og treysti því ekki heldur að kjósendur geri ekki aftur svona gríntilraunir þegar kemur að kosningum til Alþingis. Sennilega verður það eina kosningaloforð "besta" flokksins með Guðmund Steingrímsson í broddi fylkingar að þau tali ekki illa um fólk.
Kjartan Sigurgeirsson, 12.1.2012 kl. 09:26
Hvernig sem við horfum á Jón og Besta flokkinn.. þá er eitt ljóst, Jón og flokkurinn eiga langt í land með að ná því sem sjálfstæðisflokkur gerði íslandi.
Ef þér er annt um ísland, þá segir þú Þig úr sjálfstæðisflokk.. annað er hræsni; Þú getur ekki gagnrýnt neitt á meðan þú ert sjálfur innanborðs í flokk sem rústaði íslandi, rústaði framtíð barna okkar..
Enginn sjálfstæðismaður, frámsóknarmaður, samfylkingarmaður.. 4flokksmaður, hefur efni á að skjóta á Gnarr, því allir hafa fokkað meira en Gnarr, svo miklu miklu meira. Mestu vandræði Gnarr er einmitt að takast á við það sem 4flokkar gerðu..
Auðvitað ráðlegg ég Gnarr að hætta.. ef hann vill eiga einhverja von um að eiga feril sem leikari, stjórnmálamaður verður hann aldrei..
Comon Jón M; Þroskast, segja sig úr flokknum... ágætt að segja sig úr trúarbrögðum líka; Opna augun maður... ég veit að þú getur það, ef þú reynir.
DoctorE (IP-tala skráð) 12.1.2012 kl. 09:58
Já, fólk áttaði sig á því, góði minn, að það þurfti "trúð" til að koma skikki á óráðsíuna sem lá eftir þessa svokölluðu "Pólitíkusa" sem logið höfðu miskunnarlaust að fólki um t.d. stöðu Orkuveitunnar! Hver voru lokaorð ÞÍNS borgarstjóra fyrir kosningar? Allt væri bara í himnalagi. Kom svo í ljós að þetta rottubæli reyndist gjörsamlega á hausnum eftir spillinga-óþverrann sem þar grasseraði! Nei ljúfurinn, stjórnmál í dag verða að breytast. Nú dugar ekki sami viðbjóðurinn og notaður hefur verið, með úthlutunum ábyrgðastaða til vanhæfra flokksfélaga, vina og vandamanna. Ætti að taka mjög grimmilega á þeim sem halda að þeir geti leikið sér með almannafé!
Davíð Þ. Löve, 12.1.2012 kl. 16:01
Sæll Jón: ég var að hlusta á kastljós viðtalið við Jón Gnarr, og ég verð að segja að allt sem Jón sagði var rétt, ég van sem verktaki við snjómokstur hér á árum áður og þekki vel til hvað þetta varðar, viðtalið var á mörkum þess að vera ósvífið gagnvart þeim sem vinna við snjóhreinsun, men fara af stað um 2 til 4 leitið að nóttu til að moka og eru að til um 6 að kveldi, og ef snjóar á meðan verið er að moka í Borg eins og Reykjavík, þá haf men bara einfaldlega ekki undan, fólk fer á illa búnum bílum og situr fast þvers og kurrs um allan bæ, og þið spekingarnir hafið greinilega ekki séð hvert rúmmál snjór hefur, honum þarf að ryðja af götunum svo þið getið keyrt, og vegna þrengsla þá fer hann nánast allur upp á gangstéttir, nú til að ná honum þaðan þarf að ryðja honum út á göturnar aftur???, eða keyra honum á vörubílum í sjóinn og vel á mynnst það kostar stórfé, og er gríðarlega tímafrekt.
Eitt enn Borgarstjórinn var gagnrýndur fyrir hálkuslys sem urðu á fólki, þegar hlánaði skyndilega, meginástæðan fyrir því að ekki voru "(allir settir í þetta" Spurning Sigmars) var men þurfa að sofa stundum það eru lög í landinu, og það eiga allir Íslendingar að vita það, að þú átt að kunna fótum þínum forráð, og fara ekki út ef þú ert ekki búinn til þess.
Magnús Jónsson, 12.1.2012 kl. 21:11
líklega sakna sumir fjórflokksskírteinishafar sirkussins sem var í gangi misserin fyrir síðustu kosningar ;)
En er ekki óþarfi að vera fúll í alvörunni ;) ....
Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 12.1.2012 kl. 23:24
En Jón, heldurðu að kjósendur SjálfstæðisFLokksins og Frjálslyndra hafi áttað sig á því...??
Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 13.1.2012 kl. 08:53
Já og gera meira Júlíus.
Jón Magnússon, 13.1.2012 kl. 13:27
Það er í sjálfu sér gott Kjartan að tala ekki illa um fólk. En hvort að nýr Gnarr verður kosinn til áhrifa í þjóðfélaginu fer mikið eftir því hvort að "hinir ábyrgu" stjórnmálamenn og "hinir ábyrgu" stjórnmálaflokkar taki á hlutunum af meiri ábyrgð en þeir hafa gert og sýni fólki fram á að hagsmunum þeirra sé vel borgið í þeirra höndum og betur en í höndum Gnarra.
Jón Magnússon, 13.1.2012 kl. 13:29
Jæja Doctor E þannig að þú hefur áhuga á fleiru en að andskotast út í kirkju og kristindóm. Til hamingju með það. Síðan er að þora að segja á sér deili í staðinn fyrir að vera á bakvið dulnefni. Ég átta mig á að þú ert einn af vonsviknum stuðningsmönnum Jóns Gnarr sem reynir enn einu sinni að koma vandamálunum á aðra. Fjórflokkur er ekki þinglýst vörumerki eða samheiti sem hefur nokkra pólitíska merkingu. Það ætti nú doktorinn að vita.
Jón Magnússon, 13.1.2012 kl. 13:32
Þakka þér fyrir þetta innlegg. Ég sagði á öðrum stað að vandamálið með Kastljósþáttinn hefði m.a. verið hvað spyrjandinn var illa undirbúinn og hafði ekki kannað mikilvæg atriði áður en borgarstjóri kom í viðtal. Allt sem þú segir er satt og rétt. Ég hef líka unnið við snjómokstur Magnús og veit hvað það er og hvernig þarf að koma snjónum í burtu. Vandamálið var m.a. að Gnarristarnir byrjuðu ekki nógu fljótt að koma málum í horf. Síðan veit ég ekkert um hvar hálkuslysin urðu. Jón sagði ákveðinn hlut og spyrjandinn hafði ekki kannað málið og þar með það.
Ég tók þessa gagnrýni á borgarstjóra ekki sem gagnrýni á þá sem vinna við snjómokstur og hreinsun heldur gagnrýni á ákvarðanir borgarstjóra varðandi þau mál.
Jón Magnússon, 13.1.2012 kl. 13:37
Ég veit það ekkí Ólafur í Hvarfi.
Jón Magnússon, 13.1.2012 kl. 13:37
Á hverju Helgi Rúnar?
Jón Magnússon, 13.1.2012 kl. 13:38
Þú skrifar:
Þeir sem kusu Jón Gnarr átta sig á því í dag að pólitík er ekki brandari heldur fúlasta alvara á stundum og þá skiptir máli hver stjórnar.
Ég spyr:
En Jón, heldurðu að kjósendur SjálfstæðisFLokksins og Frjálslyndra hafi áttað sig á því...??
Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 13.1.2012 kl. 15:54
Já Helgi.
Jón Magnússon, 15.1.2012 kl. 13:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.