Leita í fréttum mbl.is

Öngstræti borgarstjórnarflokka

Í pólitík kemur það fyrir að flokkar uppskera eins og þeir sá.

Á síðasta kjörtímabili brugðust borgarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar kjósendum sínum. Myndaðar voru vanburðugir meiri hlutar þar sem meiri hlutinn valt á því hvort einn borgarfulltrúinn var veikur eða ekki. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins toppaði ábyrgðarleysið með myndun meirihluta með Ólaf F. Magnússon sem borgarstjóra. 

Í kjölfar þessa ákvað þriðjungur kjósenda að kjósa landsþekktan skemmtikraft sem stóð ekki fyrir neitt sérstakt í pólitík. Þáverandi borgarstjóri boðaði þá líka að öll dýrin í borgarmálapólitíkinni væru skoðanasystkin. Slík hugmyndafræðileg uppgjöf gaf skemmtikraftinum háspilin á hendurnar.

Nú rúmum þrem árum síðar mælist flokkur skemmtikraftsins með mest fylgi í Reykjavík. Samfylkingin sem hélt áfram þeim hráskinnaleik sem hún stóð fyrir næsta kjörtímabil á undan ákvað að sýna fullkomið ábyrgðarleysi og hugmynda- og hugsjónasneyð þegar flokkurinn valdi að koma skemmtikraftinum í borgarstjórastól.  Fylgi Samfylkingarinnar er að vonum í samræmi við það ábyrgðarleysi.

Þrátt fyrir fjögurra ára óstjórn skemmtikraftsins og Samfylkingarinnar í borginni, sem kemur til að kosta Reykvíkinga mikið, þá hefur borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins ekki tekist að marka sér vígstöðu sem virkt og viðurkennt stjórnarandstöðuafl. Fjórir af hverjum tíu stuðningsmönnum flokksins í borgarstjórnarkosningum hafa horfið frá honum, samkvæmt nýjustu skoðanakönnun, frá  því sem að best lét.  

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins þarf að skoða hvort hann er að uppskera eins og hann á skilið miðað við störf sín í borgarstjórn. Sé svo ekki þá hafa kjósendur greinilega ekki orðið varir við það. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvernig á öðruvísi að fara þegar skemmtikrafturinn í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins fylgir stefnu Gnarrssins og Dagsins í skipulagsmálum í einu og öllu? Geta menn fylgt svona flokki?

Halldór Jónsson, 22.9.2013 kl. 13:48

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Manstu eftir einhverju stórvægilegu sem borgastjórnarflokkur (D) hefur komið í framkvæmd síðustu þrjú ár eða einhverjar hugmyndir, annað en styðja það að loka flugvellinum og samþykkja mosku lóðina, ef svo er þá kanski minnir þú mig á það?

Þetta lið sem er í borgarstjórn fyrir (D) í dag hefur ekki sjéns á að leiða flokkinn til sigurs í borgarsjtórnarkosningunum næsta vor.

Eini möguleikinn er ef það finnst nál í heystakknum í forkosningum (D), en hver er möguleikinn á því? Slim to none.

Hugsa sér; það eru 73% reykvíkinga sem vilja hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrini og sá sem vill vera forystumaður (D) í kosningunum næsta vor getur ekki tekið sjálfstæða ákvörðun um flugvallarmálið. Vill láta kjósa um það í kosningunum næsta vor.

Hverskonar forystuhæfileikar eru þetta? Eins og ég segi með svona forystu fer (D) ekki langt.

Kveðja frá Medína Sádi Arabíu.

Jóhann Kristinsson, 22.9.2013 kl. 14:01

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Vissulega bágt ástandið á Sjálfstæðisbænum.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 22.9.2013 kl. 14:28

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Stefnuleysi hefur ríkt, en eini sem vinnur að ákveðnu marki er Gísli Marteinn sem fjandskapast við okkur bíleigendur og sóar fé í leikaraskap fyrir hjólreiða - og cafélatte fólkið sem ekki hefur stíft prógram frá morgni til kvölds.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 22.9.2013 kl. 22:37

5 identicon

Og að hugsa sér mótsagnirnar í þessu. Reykvíkingar vilja halda flugvellinum en Gnarrinn ekki, sem gerir lítið úr þeim stuðningi með hrokafullum yfirlýsingum. Samt fær skrípóinn og hans flokkur mesta fylgið í skoðanakönnunum.???

Aðalbjörn Þór Kjartansson (IP-tala skráð) 23.9.2013 kl. 03:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.3.): 62
  • Sl. sólarhring: 352
  • Sl. viku: 1549
  • Frá upphafi: 2504196

Annað

  • Innlit í dag: 55
  • Innlit sl. viku: 1446
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 54

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband