Leita í fréttum mbl.is

Sjónvarpsþáttur í Reykjavík Suður.

Umræðurþáttur efstu manna á framboðslistum flokkana í Reykjavík suður var í dag kl. 14. Þátturinn verður endursýndur að lokinni venjulegri dagskrá á morgun sunnudag. Það er annars merkilegt með Ríkissjónvarpið að það skuli nota hvað ómögulegustu útsendingartíma fyrir þessa umræðuþætti.

Þá er það til viðmiðunar vonandi í næstu þáttum að skipulag þeirra verði vitlegra en það sem var í dag. Í fyrsta lagi er byrjað á að kynna samkvæmisleik fjölmiðlamanna sem heitir skoðanakönnun. Umræður um skoðanakönnunina stóðu síðan um fjórðung þáttarins. Þá var komið að málefnum sem þáttastjórnendur tóku ákvörðun um hver skyldu vera.

Í fyrsta lagi var talað um velferðarmálin sem var mikilvægt að ræða. Þá var rætt um samgöngur í Reykjavík og flugvöll. Flugvöllurinn var raunar mikið á dagskrá í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra en er ekki máli núna.

Því miður komust ekki að brýn mál eins og innlfytjendamál en skv. forsíðu Morgunblaðsins streyma útlendingar inn í landið sem aldrei fyrr.

Það var ekki tími til að ræða um gjafavkótann. Það var ekki tími til að ræða um efnahagsmálin og áfram mætti halda.

Ég geri mér grein fyrir að það er erfitt að koma að mörgum málum þegar 6 svarendur eru en það þarf að hugsa þetta upp á nýtt til þess að skoðanaskiptin verði markvissari og meiri upplýsingar komist til kjósenda. Þá þarf að hafa þessa þætti á útsendingartímum sem eitthvað áhorf er á.

Ég get hins vegar ekki kvartað yfir minni frammistöðu miðað við þau viðbrögð sem ég hef fengið. Raunar má segja að allir oddvitarnir hafi komist vel frá þættinum.

Ríkissjónvarpið hefur meiri skyldur við lýðræðið en þetta. Það verður að gangast fyrir víðtækari kynningu á mönnum og málefnum. Svona kynningar þjóna því miður allt of litlum tilgangi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórir Kjartansson

Þetta skoðanakannanarugl er alveg farið úr böndunum. Ég tel að það ætti að banna þær algerlega eftir að framboðsfrestur rennur út. Þær eru ótrúlega skoðanamyndandi og hjálpa þeim fyrst og fremst sem mest hafa fylgið. Það vilja auðvitað allir vera í vinningsliðinu.

Þórir Kjartansson, 21.4.2007 kl. 21:21

2 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Baldur

vandamálið er að hér hefur orðið vart við félagsleg undirboð, þ.e. atvinnurekendur hafa verið að ráða til sín erlenda starfsmenn á strípuðum taxtalaunum í staðinn fyrir íslenska starfsmenn á markaðslaunum sem eru yfirleitt talsvert hærri en taxtalaunin.

Nú er góðæri og atvinnuleysi nánast ekkert en hvað gerist þegar atvinnuleysið fer af stað?  Þá gætu komið upp alls kyns árekstrar og vandamál eins og þekkist erlendis.  Er það einhver rasismi að benda á þessa hluti?

Ólafur Jóhannsson, 21.4.2007 kl. 21:42

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það má líklega rekja til míns skelfilega innrætis að ég hef lengi haft ofurlitlar efasemdir um þennan skilning fjölmiðla á skyldum við lýðræðið. Mér sýnast nú vinnubrögðin yfirleitt beinast að því að finna þau umræðuefni sem líklegust eru til að valda uppnámi og hasar. Þess er vandlega gætt að grípa inn í umræðuna og stöðva þann sem leyfir sér að gera sig líklegan til að komast að skynsamlegri niðurstöðu. Og þar sýnist mér reyndar einu gilda hvar sú vandræðapersóna er í flokki. 

Árni Gunnarsson, 22.4.2007 kl. 00:27

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Er ekki krafturinn í málflutningi F-listans að dvína og hverfa í loðmulluna sem þið haldið að allir vilji heyra og enga stuði .Segðu okkur hvað þér finnst um innflutninginn á Kólumbíufólkinu

Halldór Jónsson, 22.4.2007 kl. 22:23

5 Smámynd: Halldór Jónsson

 

Já og Jón,

Þú komst ágætlega út í TíVíinu í dag. Og raunar Ómar líka, hann hefur þó vit á flugmálum sem fáir aðrir hafa sem tala mest. Þetta var rétt já þér, það er annaðhvort Reykjavík eða Keflavík, allt annað er bull, Löngusker eða Hólmsheiði. Flugvélar þurfa sömu búsetuskilyrði og mannfólk, þetta veit ég af eigin reynslu sem flugvélafóstri í 30 ár.

Hvað er þessi miðbær í Reykjavík ? Það er allt miðað við einhvern miðbæ sem er bara "Altstadt" í moderne höfuborgarsvæði, það er engir svona miðbæir til lengur. Þarna verðu aldrei neitt nema Reperbahn, allt líf og íbúar eru farnir. Þetta er svo ergilegt að horfa á þessa síðustu rúntkynslóð, sem senn fer að safnast til feðra sinna en hefur völd ennþá, vera að þvæla þetta um miðbæ Reykjavíkur. Hvernig mun hann líta út þegar verður búið að kakka blokkum oní Vatnsmýri

Halldór Jónsson, 21.4.2007 kl. 20:10

19 Smámynd: Halldór Jónsson

Og til hver verður Reykjavíkurtjörn ef þar fljúga bara mávar eftir að varplandið í Vatnsmýrinni hefur verið malbikað ? Er ekki hægt að reikna hana til byggingarlóða eftir að hún hefur verið fyllt ? ég er viss um að Örn arkitekt gæti fengið nokkra milljarða út þannig.

Halldór Jónsson

Halldór Jónsson, 22.4.2007 kl. 22:40

6 Smámynd: Halldór Jónsson

 

Man einhver eftir 60 menningunum með frú Vigdísiframarlega í flokki. Þeir létu skrúfa fyrir kanasjónvarpið af því að spillti tungu og þjóðerni Íslendinga. Nú streyma framandi knstofnar með ólík trúarbrögð og siði til landsins sem aldrei fyrr og undirbjóða Íslendinga á þeirra eigin vinnumarkaði.

Heyrist eitthvað í gömlum þjóðernissinnum ? Hvar er umhyggjan núna ?

Halldór Jónsson, 24.4.2007 kl. 13:14

Halldór Jónsson, 24.4.2007 kl. 13:15

7 Smámynd: Halldór Jónsson

 

Man einhver eftir 60 menningunum með frú Vigdísiframarlega í flokki. Þeir létu skrúfa fyrir kanasjónvarpið af því að spillti tungu og þjóðerni Íslendinga. Nú streyma framandi kynstofnar með ólík trúarbrögð og siði til landsins sem aldrei fyrr og undirbjóða Íslendinga á þeirra eigin vinnumarkaði.

Heyrist eitthvað í gömlum þjóðernissinnum ? Hvar er umhyggjan núna ?

Hvar eru gömlu menningarvitarnir sem réðu svo miklu í gamla daga á dögum Gylfa Þ.Gíslasonar, ég held alltaf uppá sem eins besta kennara sem ég nokkurntíman fékk í lífinu,

Halldór Jónsson, 24.4.2007 kl. 13:14

Halldór Jónsson, 24.4.2007 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1143
  • Sl. sólarhring: 1177
  • Sl. viku: 3553
  • Frá upphafi: 2299526

Annað

  • Innlit í dag: 1077
  • Innlit sl. viku: 3321
  • Gestir í dag: 1043
  • IP-tölur í dag: 1013

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband