Leita í fréttum mbl.is

Hægra fólk í Svíþjóð dæmir sig til áhrifaleysis

Sænskir hægri menn hafa ákveðið að dæma sig til áhrifaleysis í sænskri póltík um ófyrirsjálanlegan tíma. Ástæða þess er sú, að þeir neita að ræða við Svíþjóðardemókrata eins og væru þeir eitraðir.

Tveir smáflokkar á hægri væng sænskra stjórnmála, Miðflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn hafa samið við Stefán Lövgren formann Sósíaldemókrata um að hann myndi næstu stjórn með þeim.

Mun greinilegri mörk eru á milli hægri blokkarinnar í Svíþjóð og þeirrar vinstri, en hér á landi, þar sem allir geta starfað með öllum. Þess vegna er þetta skref sem þessir tveir smáflokkar á hægri vængnum eru að stíga mjög sérstakt. Það sem er líka einkar sérstakt í þessu sambandi, að Sósíaldemókratar fengu algjört vantraust frá kjósendum í síðustu kosningum og hafa ekki haft minna fylgi í heila öld. 

Hægra fólk hélt Stefan Lövgren og sósíalistunum hans við völd í þrjú ár þó að stjórnin væri búin að missa meirihluta sinn. Það var gert vegna ótta við fylgisaukningu Svíþjóðardemókrata, sem síðar kom fram í síðustu kosningum. Í stað þess að virða vilja kjósenda og mynda ríkisstjórn á hægri vængnum þá neituðu þessir tveir smáflokkar á hægri vængnum að tala við Svíþjóðardemókratana og töldu þá baneitraða af því, að þeir eru á móti áframhaldandi fjöldainnflutningi fólks til Svíþjóðar, sem meirihluti sænsku þjóðarinnar er líka á móti. 

Væri svo að sænskir hægri menn þekktu til stjórnmálasögu samtímans þá ættu þeir að vera ansi hugsi yfir þessu skrefi sbr. það sem gerðist í Frakklandi, þegar Mitterand þá forseti Frakklands sá það af slóttugheitum sínum, að leiðin til að halda völdum var að útmála frönsku þjóðfylkinguna sem skrímsli og reka fleyg á milli hennar og annarra hægri flokka. Það tókst og hann hélt völdum, en franska hægrið er nú sundrað og áhrifalaust og hafnar enn að tala við frönsku þjóðfylkinguna og dæma þar með sjálfa sig til áframhaldandi pólitísks áhrifaleysis.

Það er dapurlegt að horfa upp á það í landi eins og Svíþjóð, sem einu sinni var talið forustuland varðandi lýðræði og stjórnskipun , að þar skuli vera að myndast meirihluti fyrir því að virða ekki vilja almennings í landinu og halda þeim flokki við völd sem missti mest fylgi í síðustu kosningum til þess eins að halda þeim flokki,sem bætti mestu fylgi við sig frá öllum áhrifum á sænska pólitík. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Hver skildi ráða því hver fer í framboð fyrir hægri menn í Svíþjóð?

Einhver með peninga, olíupeninga?

Þá eru valdir einhverjir sem eru mér háðir, til dæmis fjárhagslega.

Einnig er safnað baktjaldsupplýsingum, og hótað að birta þær, ef aðili er með múður.

Þá voru aðilar fylltir eða sett í kaffibolla, og myndir teknar til dæmis með börnum.

Það er verið að segja okkur þetta í greinum á netinu.

Hér á Íslandi spyrjum við, af hverju gera pólitíkusar, allt til að festa okkur í neti vitleysunar?

Þeim virðist ekki vera sjálfrátt., svo sem persónuverndar lögin, þar er stórfyrirtækjunum hleypt inn í allar tölvur, nota allt efni, sagt að fólkið leifi það en fólkið kemst ekki inn í forritin sín, nema setja kross í ferninginn.

Sama er að segja um orkupakkann og að láta Sameinuðu þjóðirnar stjórna landamærum, undirskrifað í Marakes í Marakó.

Muna að einræðisríki stjórna Sameinuðu Þjóðunum, og Mannréttinda Ráðinu.

 https://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/2223096/

Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 15.1.2019 kl. 13:41

2 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Þetta minnir helst á þegar danskir hægrimenn neituðu að vinna með Framfaraflokknum og Glistrup í Danmörku að því að þeir væru ekki "stueren" eða húsum hæfir. Þá tók meira að segja Morgunblaðið undir þau sjónarmið í leiðurum og ekki laust við það enn þá að íslenskir hægrimenn telji sig  betur fallna til þess að halda sig í stássstofum en þeir flokkar sem taka undir með áhyggjum almennings í Evrópu um innrás skrílsmenningar frá múslímskum löndum inn í Evrópu. Að þessu leyti eru þeir ekkert betri en glórulausir vinstri menn,sem aldrei bregst dómgreindarleysið.

Hvorki Sjálfstæðisflokkurinn svo ekki sé talað um Viðreisnarviðrinin þora að fjalla um þau mál ne´koma til varnar þeim sem þora að láta sig þau mál varða.Hvað þá íslenska þjóðkirkjan sem byggir samt að gildum Luthers sem sagði berum orðum um íslam: Með þessari nýju trú er djöfullinn sjálfur fyrir alvöru lausbeislaður.

Valdimar H Jóhannesson, 15.1.2019 kl. 16:49

3 Smámynd: Örn Einar Hansen

Vel athugað hjá Jónasi, en ég vil einnig benda á að það er best í svona málum að halda sér utan.

Evrópa, er að eyðast út ... Theresa May, er föðurlandssvikar, er að Svíkja Breska fólkið. Angela Merkel, ekki kosinn fulltrúi þjóðarinnar, og búinn að svíkja hana ... Macron, franska makkarónan, hefur ekki fylgi frönsku þjóðarinnar.

Hvað segir þetta? Jú, allar kosningar í Evrópu ... og BNA eru falsaðar. Það hefur aldrei verið lýðræði hér. Þetta sýna viðbrögð bandaríkjanna við kosningu Trump. Hvernig veit fólk vestra, að hanna "geti" eininungis hafa verið kosinn, með svikum ... nema þeir sjálfir hafi staðið fyrir þeim sjálfir?

Örn Einar Hansen, 15.1.2019 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 39
  • Sl. sólarhring: 861
  • Sl. viku: 5893
  • Frá upphafi: 2474192

Annað

  • Innlit í dag: 34
  • Innlit sl. viku: 5372
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband