Leita í fréttum mbl.is

Hverju reiddust goðin?

Fræg eru ummæli Snorra goða, við krisnitökuna á Alþingi árið 1000 þegar tíðindamaður kom flengríðandi á þingstað og sagði að eldgos væri komið upp og stefndi á bæ eins hálfkristins goða. 

Þeir sem vildu hafna hinum nýja sið kristninni höfðu þá uppi hróp og sögðu að þetta sýndi, að hin gömlu goð Óðinn,Þór,Freyr og Njörður væru reiðir yfir þessu tiltæki að ætla að löfesta kristni sem trú í landinu. 

Snorri goði sagði þá að bragði: "Hverju reiddust goðin er hraunið brann, sem nú stöndum við á." Þetta var spaklega mælt og þingheimur áttaði sig á hversu fráleit þessi ætlan Ásatrúarmanna væri þar sem hraun hefðu áður brunnið og runnið víða um land.

Í trúarbrögðum samtímans og umfjöllun, skortir á að menn sjái þau einföldu sannindi sem Snorri goði benti á. 

Í Feneyjum eru mikil flóð þessa dagana og Markúsartorgið er m.a. undir vatni. Borgarstjóri Feneyja kennir loftslagsbreytingum um, þannig að meint hlýnun jarðar valdi flóðunum. Gríðarlegar rigningar hafa verið undanfarið í Feneyjum og vindar blása með þeim hætti, að þeir halda vatninu í borginni. Sjávarborð hefur því hækkað í borginni um 183 sentimetra vegna þessara óvenjulegu aðstæðna. Borgarstjórinn í Feneyjum bregst nú við eins og heiðnir menn á Alþingi forðum, sem nefndu að goðin væru reið.

Staðreyndin er bara sú,að þetta er ekki eindsæmi og sjávarborð hækkaði meira árið 1966 eða um 198 sentimetra fyrir 54 árum. Það var raunar áður en hin svokallaða litla ísöld kom á áttunda áratugnum og löngu áður en þessi nýju trúarbrögð hamfarahlýnunarinnar festu sig í sessi.

En nú dettur engum í hug að segja eins og Snorri goði sagði forðum: Hvað olli þá flóðunum árið 1966. Slík tilvísun er jafnmarkviss röksemd og skýring borgarstjórans, að loftslagsbreytingar valdi flóðunum núna. Snorri goði samtímans veit líka að mælti hann þessi rök skynseminnar þá væri hann annaðhvort settur í poka og honum drekkt eða hann yrði gerður brottrækur úr borginni fyrir loftslagsguðlast.

En það er alltaf von um betri og meiri styrki ef hægt er að tengja hlutinn trúarbrögðum hamfarahlýnunarinnar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Eins og ég benti á í Moggagrein minni 1999 "Úðabrúsar Eldlendinga" er eins líklegt að það hafi verið þeir kristnu, sem töldu heimsendi vera að hefjast með eldgosinu, en kaþólska kirkjan hafði þá boðað heimsendi árið 1000 um nokkurt skeið. Snorri hafi því sagt "Hverju reiddist Guð" ekki goðin. Þetta hafi Ari sagt í fyrri gerð Íslendingabókar, sem hafi svo verið ritstkoðað og því hafi hann talað um "það sem sannara reynist"

Her er greinin, sem fjallar um ósón- endaleysuna: https://vey.blog.is/blog/vey/entry/2166183/

Vilhjálmur Eyþórsson, 14.11.2019 kl. 13:03

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Flóðin 1966 voru fyrirboðar um fæðingu mína í desember 1966 og flóðin núna um fæðingu einhverrar konu í Afríku sem mun sanna að lotslagslýgin er áróður.

Þetta hlýtur að liggja ljóst fyrir.

Guðjón E. Hreinberg, 14.11.2019 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 359
  • Sl. sólarhring: 397
  • Sl. viku: 773
  • Frá upphafi: 2292149

Annað

  • Innlit í dag: 319
  • Innlit sl. viku: 691
  • Gestir í dag: 309
  • IP-tölur í dag: 306

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband