Leita í fréttum mbl.is

Sumt orkar meira tvímælis en annað.

Sama dag og sóttvarnarlæknir tilkynnti að hætt yrði að skima farþega frá Þýskalandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Færeyjum og Grænlandi fyrir kórónaveirusmiti var tilkynnt, að engin þjóðhátíð yrði í Vestmannaeyjum í ár vegna þess að sami sóttvarnarlæknir bannaði, að fleiri en 500 mættu koma saman til að hafa gaman.

Þessi 500 manna regla er stundum brosleg eins og t.d. á íþróttavöllum, þar sem sett eru ómerkileg bönd á milli nokkurra hólfa, sem fólk fer á milli eftir atvikum og svo hittist fólk í leikhléi og undan og eftir. En hvað sem því líður þá hefur enginn smitast á fótboltaleik við allt þetta "frjálsræði".

Allt orkar tvímælis þá gert er, en sumt orkar meira tvímælis en annað. Nánast engin kórónuveirusmit hafa greinst um allnokkurt skeið meðal íslendinga, en nokkur daglega hjá erlendum gestum sem koma til landsins. Smithættan án erlendu gestanna er svo lítil að hún réttlætir ekki nein eða endurnýjuð boð eða bönn sóttvarnarlæknis.

Þetta sýnir vel að mun auðveldara er að koma á bönnu en að afnema þau. Jafnvel þó engin rök mæli lengur með banninu.

Nú er svo komið í sóttvörnum landsins, að opnað skal á smitgáttina með hindrunarlausari komum fólks erlendis frá, en lokað á að landinn megi eiga sínar smitlausu útiskemmtanir um Verslunarmannahelgina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Í sumum borgum Bandaríkjanna, einkum borgum þar sem Demókratar fara með völd, hafa hópmótmæli eða öllu heldur skrílslæti fengið að vera óáreitt með leyfi borgaryfirvalda án þess að fréttir fari af því að nokkur hafi smitast af kórónuveirunni.

Í þessum sömu borgum, mörgum hverjum, hafa þessi sömu yfirvöld bannað fólki að koma saman til Guðsþjónustu af ótta við hópsmit.

Það er merkilegt hvernig kórónuveiran fer í manngreinarálit, hún lætur uppreisnarseggi óáreitta en leggst hart á fólk sem kemur saman á friðsamar samkomur.

Tómas Ibsen Halldórsson, 15.7.2020 kl. 10:35

2 Smámynd: Emil Þór Emilsson

það hefði kannski verið hægt að loka landinu rétt yfir verslunarmannahelgina? :)

Emil Þór Emilsson, 15.7.2020 kl. 12:09

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það eru líka mjög takmörkuð rök fyrir skimun á landamærunum. Nánast engin smit hafa greinst. 

Þorsteinn Siglaugsson, 15.7.2020 kl. 13:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 195
  • Sl. sólarhring: 803
  • Sl. viku: 2581
  • Frá upphafi: 2294132

Annað

  • Innlit í dag: 183
  • Innlit sl. viku: 2350
  • Gestir í dag: 180
  • IP-tölur í dag: 178

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband