Leita í fréttum mbl.is

Fagnaðarboðskapur fáráða.

Jóna Hrönn Bolladóttir sóknarprestur ætlar að gangast fyrir fyrirlestrum um Íslam í Vídalínskirkju á næstunni. Það er gert til þess að styðja við fjölmenningu, sem sagt er vera hlutverk hinnar íslensku þjóðkirkju að gera. Þá veit fólk hvað er efst á verkefnalista þjóðkirkjunnar.

Svo virðist, sem það hafi farið framhjá forustufólki hinnar íslensku þjóðkirkju, að fjölmenningin svokallaða hefur mistekist hrapalega hvar sem hún hefur verið reynd. Nægir að benda á, að forsætisráðherrar m.a. Bretlands og Þýskalands hafa tekið af skarið hvað það varðar og sagt að fjölmenningarstefnan svokölluð væri alger mistök. Í sama streng tók forsætisráðherra Danmerkur fyrir nokkrum dögum og vill ekki taka við fleiri svonefndu flóttafólki. 

Fjölmenningarstefna Vesturlanda hefur falist í því að við gefum eftir af okkar gildum og samþykkjum eða látum viðgangast hluti sem eru andstæðir siðum og reglum okkar þjóðfélaga. Þannig hefur þjóðkirkjan aldrei fjallað um kvennakúgun í Íslam, aftökur kvenna fyrir að vanvirða fjölskylduna t.d. með því að giftast kristnum mönnum eða klæða sig eins og ungar stúlkur á Vesturlöndum gera. Ekki hefur verið fjallað um ofsóknir á hendur kristnu fólki í löndum Íslam og aldrei rætt um hvort kirkjan geti rétt kristnum söfnuðum sem eru ofsóttir í löndum Íslam hjálparhönd. Það fellur ekki undir hinn "Guðdómlega gleðileik" þeirrar fjölmenningarstefnu sem íslenska þjóðkirkja ætlar nú að boða. 

Þá vill kirkjan ekki viðurkenna eða horfast í augu við að Íslam er einmenningarstefna og þar gefa menn ekkert eftir og fjölmenningin svokallaða er alltaf einhliða. Vesturlandabúar gefa eftir af gildum sínum til að þóknast fornaldarhyggju flestra trúfélaga nútíma Íslamstrúar.

Nauðsynlegt er að reyna að vekja athygli  þeirra strúta innan íslensku þjóðkirkjunnar og annarsstaðar í samfélagin,  sem hafa stungið höfðum sínum hvað dýpst í sandinn varðandi ógnina sem kristnu fólki stafar í íslömskum löndum á því sem er að gerast einmitt núna. Sama sagan hefur raunar verið að gerast  ógnarlengi:

14.janúar 2021: Íslamskir stríðsmenn píndu 58 ára gamla Armenska konu í þorpinu Karintak Arstsakh, með því að skera af henni eyrun og síðan fæturna áður en þeir tóku hana af lífi. sbr. tilvísun í Kóraninn súra 5.33 og ("þeir sem heyja stríð gegn Allah og sendiboða hans og kynda undir óöld í landinu, skulu af lífi teknir, krossfestir eða handhöggnir og fóthöggnir báðum megin" Þessir vígamenn voru komnir þangað fyrir tilstilli Erdogan Tyrklandsforseta til að stríða gegn kristnu villutrúarmönnunum.

3.12.2020 Íslamskir vígamenn réðust á þorp í Kongó einum manni tókst að flýja og gat falið sig og horfði á vígamennina taka konuna hans og þrjú börn af lífi. 

29.12.2020 Íslamskir vígamenn í Níberíu drápu 5 kristna, sem þeir höfðu handtekið. Færðu þá í appelsínugula búninga og lýstu því yfir, að þeir yrðu teknir af lífi vegna þess að þeir væru kristnir og Þetta væri viðvörun til kristins fólks hvar sem væri í heiminum. Að þessu loknu voru þessir kristnu menn skotnir í höfuðið hver á fætur öðrum. 

Þetta eru bara 3 dæmi af fjölmörgum á rúmum síðasta mánuði. Á hverri viku drepa íslamistar fjölda kristins fólks, en það ratar sjaldnast eða aldrei í fréttir og íslenska þjóðkirkjan gerir ekkert til að aðstoða trúarsystkini okkar. Ekki neitt. Þessir feitu prelátar þjóðkirkjunnar ómaka sig ekki eða óhreinka á því og láta sem þeir sjái þetta ekki. Það gæti komið kuski á fagnaðarboðskapinn um fjölmenninguna.

Þjóðkirkjan íslenska hefur öðrum verkefnum að sinna. Boða fagnaðarerindi Fjölmenningar og hvað Íslam séu frábær trúarbrögð og lautinant Magnús Bernharðsson svonefndur sérfræðingur í málum Mið-Austurlanda mun síðan blessa samkomuna með erindi og mun þá væntanlega gera þeim kirkjugestum sem koma til að höndla fagnaðarboðskapinn um Íslam hvernig á því stóð, að hann, "fræðimaðurinn" hafið rangt fyrir sér í öllum atriðum sem varðaði svonefnt "Arabískt vor." og þróunina í Íslamska heiminum, fyrir tíu árum síðan.

Á kristið fólk samleið með þjóðkirkjunni lengur?  

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Á sunnudaginn var 24.jan. var sýnd mynd sem heitir: Eyðimerkurblómið (Desert flower) á RÚV. Það ættu allir sem vilja sjá hvernig farið er með konur og börn hjá múslimum að sjá þessa mynd þó ekki væri nema endirinn á henni. Sá viðbjóður sem þar er sýndur viðgengst enn. Og þessi mynd er byggð á sönnum heimildum.

Sigurður I B Guðmundsson, 27.1.2021 kl. 13:42

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég fékk yfrið nóg eftir að hafa sótt skemmtilega kvöldstundir í Lindakirkju,einn vetur og eftir það tekið langt hlé. Ung kona sem starfað hafði þar lengi skyldi vígjast til prests og ég vildi vera viðstödd athöfnina. Stólræðan gekk mikið til út á að þeir sem búið höfðu alla sína tíð í þessu landi, ættu ekki að vera hræddir við aðkomu menn sem fengju hæli eða vernd hér til frambúðar.Auðheyrt að blessuð stúlkan hafði fengið kennslu í þessum áherslu þáttum til kirkjugesta,sem voru jú flestir innfæddir.Mikill munur er á ótta við hælisleitendur og skynsamlega metnar afleiðingar sem höfundur þessa pistils bendir réttilega á.

Helga Kristjánsdóttir, 27.1.2021 kl. 14:44

3 Smámynd: Gunnlaugur Baldvin Ólafsson

Nei, kristið fólk á ekki samleið með þjóðkirkjunni lengur, þess vegna sagði ég mig úr henni, sem kristinn maður.

Gunnlaugur Baldvin Ólafsson, 27.1.2021 kl. 16:02

4 identicon

Víða í Evrópu er innflutningur fólks frá múslimalöndum orðð stórpólitískt mál.

Meðal innflytjenda frá þessum löndum eru menn sem hafa látið allmikið að sér kveða. Má þar t.d. nefna Egyptann, Hamed Abdel-Samad, og ísraelska Arabann, Ahmad Mansour sem er sálfræðingur að mennt. Báðir þessir menn hafa sterkar skoðanir sem þeir hafa víða látið í ljós, t.d. sjónvarpi, auk þess að hafa gefið út bækur sem fjalla um Islam og vandamál múslima.

Varla hef ég heyrt minnst á þessa menn í umræðum hér á Íslandi.

Hér tekur Ahmad Mansour þátt í umræðu austurrísku sjónvarpi:                                      Talk im Hangar-7 – Radikaler Islam: Sind wir zu tolerant? | Kurzfassung           

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 27.1.2021 kl. 17:33

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Burt með Islam úr þóðfélaginu, það á  emga samleið með okkur.

Halldór Jónsson, 27.1.2021 kl. 20:38

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Ef ástæða er til þess að hafna fjölmenningarþáttum eins og boðun fasisma og kommúnisma á að hafna allri boðun íslam og starfsemi tengdri iðkun þeirrar humyndafræði. Þetta eru allt náskyld hugmyndafræði en þar er íslam þó andstyggilegust. Að liðka fyrir því að íslam festi hér rætur jafngildir tilræði við framtíð Íslands og ætti að líta á sem glæp jafnvel þó að forsenda fyrir því sé botnlaust dómgreindarleysi eins og þetta fólk er bert að. Það er vægast sagt ógnvænlegt til þess að hugsa að þetta fólk vill leiða okkur inn í sömu hörmungar og flest lönd Evrópu mega nú þola fyrir sambærilegt dómgreindarleysi undanfarna 3-4 áratugi. Það er alveg ástæðulaust að hlífa fólki eins og Magnúsi sem ávalt bregst dómgreindin og Jónu Hrönn.

Valdimar H Jóhannesson, 27.1.2021 kl. 21:44

7 identicon

Sæll Jón.

Þakka þér þennan ágæta pistil þinn.

Þú vitnar í Kóran, súru 5:33 að gefnu tilefni:

"Þeir sem heyja stríð gegn Allah
og Sendiboða hans og kynda undir óöld í landinu,skulu
að launum af lífi teknir, krossfestir eða handhöggnir
og fóthöggnir sitt hvoru megin..."

Að skaðlausu hefði verið í viðeigandi samhengi að
benda á hvað gert er við "heiðingja" að öðru leyti
og ef til vill rétt að spyrja hælisleitendur
við hingaðkomu hvort þeir séu samþykkir að þannig skuli að verki staðið og vitni þeir í lofgjörð um náð Allah
og svari játandi þá segir sig sjálft að slíkum skal snúið við á punktinum.

Þannig er framhald í Kóran (greinir óþarfi og pjatt),
sbr. súru 5:33:"...ellegar reknir úr landi.

(íslensk þýðing Kórans, 2. útgáfa, endurskoðuð 2003;
þýðandi H.H) 

Húsari. (IP-tala skráð) 28.1.2021 kl. 07:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 94
  • Sl. sólarhring: 1207
  • Sl. viku: 5838
  • Frá upphafi: 2277589

Annað

  • Innlit í dag: 92
  • Innlit sl. viku: 5398
  • Gestir í dag: 91
  • IP-tölur í dag: 90

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband