Leita í fréttum mbl.is

Vald án ábyrgđar

Á sama tíma og forráđamenn ýmissa ríkisstofnana krefjast ţess a fá aukin völd í samskiptum sínum viđ borgarana, er ţess krafist, ađ ţeir skuli vera ábyrgđarlausir í stöfum sínum. 

Seđlabankastjóri og Gylfi Magnússon fyrrum ráđherra og formađur bankaráđs Seđlabankans telja, ađ ţrátt fyrir ađ starfsmenn Seđlabankans brjóti lög í störfum sínum og níđist á borgurunum, ţá skuli ţeir samt vera ábyrgđarlausir. 

Hvađ ţýđir ţađ?

Ţađ ţýđir ađ ţeir sem verđa fyrir óréttmćtum afskiptum starfsfólks hins opinbera skuli liggja óbćttir hjá garđi og bera harm sinn í hljóđi ţví ađ réttur ţeirra var tekinn út fyrir sviga af ţví ađ hinum opinbera valdsmanni sé allt heimilt í samskiptum sínum viđ einstaklinginn jafnvel ađ gera gróf mistök og jafnvel fara gegn viđkomandi sökum óvildar í hans garđ.

Ţađ er međ miklum ólíkindum ađ endurómur hugmyndafrćđi einvaldskonunga átjándu aldar skuli settur fram međ ţeim hćtti sem nú er gert af stjórnendum Seđlabanka Íslands. Mér er nćr ađ halda ađ Seđlabankastjóri,sem er gjörhugull mađur hafi ekki hugsađ ţessa hugsun til enda.

Hvar er ţá vernd laganna fyrir einstaklinginn, sem má ţola ađför og jafnvel ofsóknir af hálfu valdsherranna? Samkvćmt hugmyndafrćđi valdsherranna í Seđlabankanum skal almenningur bera harm sinn í hjóđi og láta svipuhögg valdsins yfir sig ganga.

Ţá er spurningin gildir eitthvađ annađ fyrir starfsfólk Seđlabankans en ađra opinbera valdsmenn eins og t.d. saksóknara, lögeglu og ráđherra. Já og hvađ međ starfsfólk heilbrigđiskerfisins međ sömu rökum má halda ţví fram, ađ ţessir ađilar allir eigi aldrei ađ bera neina ábyrgđ á mistökum sínum eđa jafnvel ađför ađ rétti borgaranna. 

Fyrir nokkrum árum fór gjaldeyriseftirlit Seđlabanka Íslands offari í ađför ađ einstaklingum og fyrirtćkjum. Í einu tilviki voru fimm einstaklingar, sem ráku fyrirtćki erlendis sviptir lífsviđurvćri sínu, ćru og möguleikum til tekjuöflunar. Ţađ var vegna ţess m.a. ađ forstöđumađur gjaleyriseftirlits Seđlabankans gerđi meiri háttar mistök og sakfelldi viđkomandi einstaklinga fyrirfram vegna brots á lögum, sem  voru ekki til. Ţessir einstaklingar, sem ţannig voru sóttir til saka og sviptir aflahćfi sínu og ćru um margra ára skeiđ voru á endanum sýknađir og ţeim dćmdar óverulegar bćtur vegna ţessara gríđarlegu og óafsakanlegu mistaka starfsfólks gjaldeyriseftirlits Seđlabanka Íslands. 

Hvađ varđ svo um valdsmanninn í Seđlabankanum, sem var vegna vanhćfni og vankunnáttu valdur ađ ţví ađ fjöldi fólks missti fótanna í lífinu? Seđlabankastjórinn fyrrverandi sá til ţess ađ viđkomandi vćri komiđ fyrir í merkri stofnun erlendis og leyst út međ 30 miljón króna gjöf frá bankanum. 

Ţađ er međ ólíkindum  ađ ţeim miđaldakenningum skuli í dag, haldiđ á lofti af málsmetandi mönnum og einum ćđsta embćttismanni ţjóđarinnar, ađ hiđ opinbera vald skuli hafa heimild til ađ fara fram gegn fólki og fyrirtćkjum ađ vild, án ţess nokkru sinni ađ bera ábyrgđ á gjörđum sínum. 

Jafnvel ţó ađ valdsmennirnir í Seđlabankanum telji nú vera lag ađ opinbera myrka miđaldahyggju óskeikulleika hins opinbera valds og nauđsyn ţess ađ einstaklingar í ţjónustu hins opinbera valds beri aldrei ábyrgđ á gjörđum sínum, ţá er ţađ ekki svo í lýđfrjálsu ríki og má aldrei verđa.  

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jón, ţessi greining á međferđ valds er afskaplega vel rökstudd. - Vćntanlega ţyrfti ađ m.a. ađ breyta hegningarlögum og stjórnarskrá til ađ gera starfsfólk Seđlabankans ţannig friđheilagt.

EINAR S HALFDANARSON (IP-tala skráđ) 30.4.2021 kl. 15:12

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Ágúst 2025
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.8.): 32
  • Sl. sólarhring: 899
  • Sl. viku: 3521
  • Frá upphafi: 2578143

Annađ

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 3264
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband