Leita í fréttum mbl.is

Stjórnmálastéttin bregst öldrðum og öryrkjum

Verkefnastjóri hjá umboðsmanni skuldara segir þurfa að bregðast við stöðu öryrkja sem hefur farið versnandi á árinu. Öryrkjar sem leitað hafa til umboðsmanns skuldara í ár eru að meðaltali 3500 krónur í mínus eftir að hafa greitt öll föst útgjöld. Það þýðir, að öryrkjarnir geta ekki keypt föt, læknisþjónustu eða farið í leikhús eða á tónleika svo fátt eitt sé nefnt. 

Sama á við um marga aldraða, sem búa við bág kjör og það er ömurlegt að horfa upp á aldrað fólk, sem hefur ekki efni á því að veita sér neitt, jafnvel ekki nauðsynlega læknisþjónustu. Það er dapurlegt að horfa á aldrað fólk vera í öngum sínum vegna þess að það getur ekki gefið börnum og/eða barnabörnum jóla- eða afmælisgjafir. 

Á aðalfundi eldri Sjálfstæðismanna fyrir viku var borin upp viðamikil ályktun um velferðarmál aldraðra, sem var allra góðra gjalda verð og mundi hafa í för með sér bættan hag aldraðra. 

Ég benti á, að ekki þyrfti svo viðamikla tillögu,en að gera einungis þá kröfu að aldraðir og öryrkjar nytu sömu fyrirgreiðslu og hælisleitendur,sbr. 33.gr. útlendingalaga.

Upphaf hennar hljóðar svo: 

Umsækjanda um alþjóðlega vernd skal standa til boða: a. húsnæði, b. framfærsla, c. nauðsynleg heilbrigðisþjónusta, þar á meðal vegna geðraskana og geðfötlunar. Sérstakt tillit skal tekið til þeirra sem hafa sérþarfir eða þurfa sérstaka aðstoð.

Svona er nú komið í lýðveldinu Íslandi, að á sama tíma og margir öryrkjar og aldraðir geta ekki lifað mannsæmandi lífi eða notið læknisþjónustu og margs annars, þá hafa þingmenn þjóðarinnar búið svo um hnútana vegna "mannúðarsjónarmiða" að þeirra sögn, að fólk sem að meginhluta kemur hingað ólöglega og þarf að vísa brott þrátt fyrir hávær mótmæli fréttastofu Ríkisútvarpsins skuli njóta mannsæmandi lífskjara,en öryrkjum og öldruðum skuli hinsvegar ekki standa til boða slíkur lúxus. 

Þarf ekki að staldra við og gaumgæfa í hverju eðlileg "mannúð" á að vera fólgin í þessu landi. Er hún bara fyrir erlenda hlaupastráka en ekki okkar minnstu bræður í okkar íslenska samfélagi.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Þú ert sterkur í dag Jón, svo undrast þú stundum að yngri menn eins og ég eigi það til að taka ofan húfuna fyrir þér.

Ég vil aðeins bæta við að góða fólkið leiðir aldrei hugann að okkar minni bræðrum, það er ekki kostað til þess.

Forsenda fjölmiðlaathygli þess, sem bæði tryggir frama þess í stjórnmálum sem og sjálftöku á skattpeningum almennings, er að það leggi sig fram um niðurbrot, upplausn, allt það sem getur staðið í vegi fyrir að þjóðin gerist ölmusaþegar hjá Brussel, því þá kemur evran og hinir sjálfkrafa fjármagnsflutningar í skattaskjól Evrópusambandsins og leyfilegra hjálendra sem taka við peningum og láta þá hverfa.

Samhjálpin hjá rosalega góða fólkinu felst síðan í sjálftökunni, hinum gíganísku reikningum sem ríkinu er sent fyrir lögfræðilega góðmennsku þess.

Milljarðar á milljarða ofan fara í þetta góða fólk, hvort sem það er lögfræðingar eða sinnir móttöku flóttamanna hjá Rauða krossinum, en á meðan klípið er af þeirri upphæð sem raunverulegt flóttafólk fær sér til framfærslu og menntunar í flóttamannabúðum heimsins.

Eiginlega er ekki til sjúklegri blóðsugur en þetta meinta góða fólk.

Það lifir góðu lífi á sjálftökunni á meðan milljónir í flóttamannabúðum er þakklát fyrir að geta lifað af daginn, án allra þeirra innviða sem tryggir menntun barna þess, heilsugæslu eða annað sem hægt væri að fjármagna í raunverulega aðstoð, en sjálftökulið flóttamannaiðnaðarins étur upp.

Vildi aðeins benda á það Jón, geislabaugur þessa fólks er rotinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 3.11.2022 kl. 15:44

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Hvað varð um slagorð Sjálfstæðisflokksins "Gjör rétt og hafna órétt".

Mér finnst flokkurinn sem ég fylgdi í áratugi hafa horfið frá þeim gildum sem flokkurinn stóð fyrir áður fyrr og gerði hann að því afli sem hann hafði og veitti ákveðinn stöðugleika í þjóðfélagið.

Nú er hún Snorrabúð stekkur.

Tómas Ibsen Halldórsson, 3.11.2022 kl. 21:53

3 Smámynd: Jón Magnússon

Nú erum við heldur betur sammála Ómar Geirsson. Ég tek húfuna ofan fyrir þér. Kveðja góð.

Jón Magnússon, 4.11.2022 kl. 08:29

4 Smámynd: Jón Magnússon

Gjör rétt, þol ei órétt var vígorðið, sem við ungir Sjálfstæðismenn störfuðum undir. Því miður gleyma allt of margir stjórnmálamenn þessum og öðrum góðum gildum í amstri dagsins. 

Jón Magnússon, 4.11.2022 kl. 08:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 319
  • Sl. sólarhring: 909
  • Sl. viku: 4846
  • Frá upphafi: 2301018

Annað

  • Innlit í dag: 290
  • Innlit sl. viku: 4532
  • Gestir í dag: 288
  • IP-tölur í dag: 280

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband