Leita í fréttum mbl.is

Samhliða þjóðfélög eða þjóðleg heild

Svo virðist, sem engin sé að velta fyrir sér afleiðingum þeirrar miklu fjölgunar útlendinga sem hafa sest hér að á undanförnum nokkrum árum og með hvaða hætti eigi að bregðast við. 

Nú er u.þ.b.einn af hverjum fimm íbúum Íslands af erlendu bergi brotin og fjölgaði á árinu 2023 um 10.000 manns. Þetta er svo mikil fjölgun að þegar af þeirri ástæðu eru komnir brestir í ýmsa almenna þjónustu, sem fólk hefur hingað til gengið að. 

Viljum við að hér verði áfram einsleitt íslenskt þjóðfélag,þar sem íslenska,íslensk menning og siðir séu ráðandi eða er okkur alveg sama um þróuina og þó við týnumst í þjóðahafinu?

Ef við höfum ekki metnað til að leggja rækt við að byggja upp einsleitt þjóðfélag munu verða til mörg samhliða þjóðfélög í landinu, sem tala sitthvert tungumálið hafa ólíka siði og menningu. Þannig yrði eitt þessara þjóðfélaga pólst og æ færri Pólverjar sæju ástæðu til að læra íslensku. Annað yrði Úkraínskt og það þriðja arabískt. 

Hafa íslensk stjórnvöld einhern metnað til að varðveita íslenska tungu,menningu og sem mesta einsleitni þjóðfélagsins. 

Sú þjóð, sem hefur framar öðrum gengið vel að taka við miklum fjölda útlendinga og aðlaga þá að eigin menningu allt fram að þessu eru Bandaríkin, þar sem fólk getur haldið tengslum við uppruna sinn, en lítur samt á sig sem Bandaríkjamenn og votta því þjóðfélagi hollustu umfram upprunaland sitt. Það hefur reynst mun farsælla en samhliða þjóðfélög sem hafa orðið til í mörgum Evrópulöndum með alls konar vandamálum m.a. þeim að lögregla, slökkvilið eða sjúkralið fer ekki inn í sum hverfi nema hafa þungvopnaða lögreglu eða hermenn til að tryggja öryggi sitt.

Hvert vilja íslensk stjórnvöld stefna í þessum málum? Láta reka á reiðanum  og gera ekki neitt eins og hingað til eða sýna þjóðlegan metnað. 

Til hvers var barist fyrir sjálfstæði, íslenska tungu, menningu og fullveldi, ef það á engu máli að skipta? Í mínum huga kemur ekki til greina að gefa eftir öll þessi íslensku gildi baráttulaust, en þá þarf sennilega  að skipta um  stjórnmálastétt í  landinu, sem er mun æskilegra en að skipta um þjóð eins og verið er að gera núna.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón.

Þú ert svo gamall að þú manst tímanna tvenna;

"Viljum við að hér verði áfram einsleitt íslenskt þjóðfélag,þar sem íslenska,íslensk menning og siðir séu ráðandi eða er okkur alveg sama um þróunina og þó við týnumst í þjóðahafinu?",

Svo úreltur, svo gamaldags:

"Til hvers var barist fyrir sjálfstæði, íslenska tungu, menningu og fullveldi, ef það á engu máli að skipta? Í mínum huga kemur ekki til greina að gefa eftir öll þessi íslensku gildi baráttulaust, en þá þarf sennilega  að skipta um  stjórnmálastétt í  landinu, sem er mun æskilegra en að skipta um þjóð eins og verið er að gera núna".

Það er eins og þú fattir ekki að það er þegar búið að taka ákvörðun um að skipta um þjóð í landi okkar.

Vissulega hefur gleymst að tilkynna það, og kannski hefur enginn ákveðið það, en við lesum samt öll fréttir um nýtt hótel og nýtt hótel þar, um fjölgun flugferða, og kröfuna um þjónustu við alla þessa ferðamenn sem heimsækja land okkar.

Eins og það hafi gleymst að við erum aðeins rétt rúmlega, og kannski innan við, þrjú hundruð þúsund.

Gapið er brúað með útlendingum, þaðan kemur þrýstingurinn á húsnæðismarkaðinn í Reykjavík og nærsveitingum, tekjulægra fólk hrökklast af leigumarkaði þegar kommúna erlendra starfsmanna ferðaþjónustunnar yfirbýður leiguverðið.

Svo talar enginn íslensku lengur í þjónustustörfum.

En Jón, það er eins og þú grátir Markaðinn, og lögmál hans, það var ekki eins og þér væri bent á það þegar þú ungur maður stökkst á vagn hans.  Það sem er í dag, var svo augljóst á sínum tíma, og það  var ekki eins og heimspekin eða sagan hefði ekki varað við sérhyggjunni, sjálftökunni, sígræðginni, eða annað sem þú og þínir héldu ekki vatni yfir Frú Thatcher og árásum hennar á samfélagslímið sem hélt siðuðu nútímasamfélagi í skefjum.

Það er eins og þú áttir þig ekki á því Jón að Markaðurinn segir að íslenskan sé history og gen þjóðar okkar séu langt komin að blandast Glóbal heimsþorpsins.

En ef þú ert ekki sáttur, þá er tími til kominn að tengja.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 29.12.2022 kl. 16:56

2 Smámynd: Jón Magnússon

Það er margt til í þessu hjá þér Ómar. Þó er eitt, sem okkur greinir verulega á um. Þú segir að það sé markaðslögmálin, sem ráði í raun ferinni þ.e. kapítalisminn. Það er ekki allskostar rétt. En að hluta. Í fyrsta lagi þá var frjáls för eitt af því sem við skuldbundum okkur til að samþykkja þegar við gengum í EES. Ég varaði við því þá og Jón Baldvin lét í veðri vaka að það hefði verið samið um undanþágur frá því ákvæði með bókun, sem reyndist svo marklaus að hans mati þegar eftir var leitað síðar. 

Í annan stað, þá gætti þáverandi ríkisstjórn ekki að sér, að nýta undanþágu varðandi frjálsa för gömlu austantjaldsríkjanna þegar þau voru tekin inn í Evrópusambandið. 

Í þriðja lagi, þá er það í raun  bandalaga verkalýðsforustu og bisnisforustu í Evrópu, sem knýr á um frjálsa för. 

En það var einn hluti þessa vanda og sá viðráðanlegasti t.d. eru Pólverjar fjölmennasti hópurinn einn af hverjum þremur, sem hafa margir hverjir aðlagast íslensku samfélagi mjög vel og tala margir glimrandi íslensku. 

En við sínum ekki þjóðlegan metnað Ómar og ég tek ekki þátt í því að eyðileggja íslenska þjóð, tungu og  þjóðmenningu, en mun berjast gegn því með öllum löglegum og tiltækum ráðum. 

Ég vona að við getum átt samleið í þeirri baráttu Ómar. 

Með kveðju að sunnan.

Jón Magnússon, 29.12.2022 kl. 17:55

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Það er ekki hægt að segja að þú hafir rangt fyrir þér Jón, en eins og Ómar skrifar hefur nútíminn farið í aðra átt og burt frá sjálfstæði.

Ég vil þó fremur vera úreltur og gamaldags eins og þú Jón, á meðan manni er stætt á því, en að taka undir með þeim sem bæði fórna jörðinni og mannkyninu sjálfu. 

Stundum finnst manni það þó tilgangslaust.

Ef unga fólkið tekur ekki upp þessi baráttumál fyrir sjálfstæði og menningu okkar, þá fer ekki vel. Þú færð virðingu mína fyrir að skrifa fræðandi pistla um þetta.

Ingólfur Sigurðsson, 30.12.2022 kl. 03:02

4 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er líka sammála þér Ingólfur. Ég lít þannig á að baráttunni sé ekki lokið. Næstu árin munu skera úr um það hvert við munum stefna. Svo er það alveg hárrétt hjá þér, að það er unga fólkið sem verður að leiða þessa baráttu. En við gömlu karlarnir getum nú lagt þeim lið með ráð og dáð. 

Jón Magnússon, 30.12.2022 kl. 09:24

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón.

Ekki var ég að hnýta í kapítalismann og með viðskeytinu; borgarlegur- þá er hann málið, ekkert annað kerfi hefur reynst betur en hann í ófullkomnum heimi.

En eins og þú bendir réttilega á þá mistókst að setja skorður á "frelsið" í EES samningnum og því fór sem fór.  Ég er hræddur um að hinir sjálfvirku ferlar verði ekki stöðvaðir héðan af og það sé alveg óhætt að fara undirbúa jarðarför þess Íslands sem var, menn geta svo deilt um hvort það sé söknuður af því, það fóstraði samt vel mína kynslóð.

En núna er sjálf mennskan undir, baráttan fyrir henni mun brenna á næstu kynslóð, alls óvíst hvernig til tekst.

En það er sjálfsagt að hamla á móti.

Kveðja að austan með áramótaívafi og ósk um farsælt nýtt ár.

Ómar Geirsson, 30.12.2022 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 78
  • Sl. sólarhring: 514
  • Sl. viku: 2744
  • Frá upphafi: 2298269

Annað

  • Innlit í dag: 68
  • Innlit sl. viku: 2564
  • Gestir í dag: 66
  • IP-tölur í dag: 64

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband