17.9.2008 | 00:26
Virði bréfa deCode hefur aldrei verið 50 senta virði.
Þegar markaðsstjóri deCode Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra auglýsti dótturfélag deCode sem eitt merkasta fyrirbrigði vísindasögunnar og fól Kára Stefánssyni forstjóra félagsins að búa til sérstök lög um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði héldu margir sem túðu að Davíð færi ekki með fleipur að deCode væri einhvers virði. Þá voru ríkisbankar látnir kaupa bréf og aðrir bankar fylgdu á eftir og bréfin voru markaðssett sem demantar af forsætisráðherranum, bönkunum og varamarkaðsstjóranum Hannesi Smárasyni og að sjálfsögðu manninum sem sjálfur og sumir aðrir hér á landi töldu mankynsfrelsara, Kára Stefánsson. Íslenskir fjölmiðlar kyrjuðu allir sama söngin um mankynsfrelsarann og þá miklu sigra vísindanna sem væru innan seilingar fyrir tilstillli deCode undir stjórn Kára
Aldrei hefur verið rekinn eins skefjalaus áróður fyrir einu fyrirtæki eins og markaðsstjórarnir, Kári og bankarnir sem voru látnir kaupa bréfin í fyrirtækinu gerðu við að markassetja bréfin á gráa markaðnum. Óskráð bréf. Margir tóku lán og keyptu og keyptu. Þeir trúðu fagurgalanum.
Ný vísindi. Nýtt fyrirtæki. Ný tækni var sagt við þjóðina og líka að hún væri svo sérstök í erfðamenginu að annað eins væri ekki til á jörðinni. Fyrirtækið fékk síðan einkarétt á að gera miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði og markaðssetti sig á þeim grunni til að byrja með. Miðlægi gagnagrunnurinn varð aldrei til. Ef til vill var þetta bara viðskiptabrella. Alla vega er gagnagrunnurinn ekki til og sjálfsagt hefur fyrirtækið hvorki greitt ríkinu fyrir leyfið né verið krafið um greiðslur.
Ég og fleiri sem leyfðum okkur að vera með athugasemdir vorum níddir niður og reynt var að gera okkur hlægilega. Á þeim tíma skrifaði hinn virti bandarísk hagfræðingur Paul Krugmann um fyrirtæki eins og deCode grein sem hét "The Ponsi Paradigm" og fjallaði um fyrirtæki sem voru rétt fyrir aldamótin að skjóta upp kollinum og voru sjálfvirkar seðlaprentanir eins og deCode. Paul Krugmann benti á að yfirleitt stæði ekkert á bak við þessi fyrirtæki en þau fengju svo mikla peninga að efasemdamennirnir yrðu gerðir hlægilegir og endalok þeirra yrði síðan mörgum árum seinna þegar umræðan væri þögnuð. Þannig gæti það orðið með deCode og þeir sem ábyrgðina bera þurfi aldrei að axla hana en fara í burtu forríkir menn og/eða í mektarstöðum hjá ríkinu þökk sé Davíð.
Ég hef alltaf vonað að það væri eitthvað í deCode og því tækist að komast á réttan kjöl rekstrarlega. Því miður hefur það ekki orðið og síendurteknar fullyrðingar Kára Stefánssonar um að eitthvað stórkostlegt væri í farvatninu eru farnar að hljóma hjákátlega.
Eins og fyrirtækið hefur þróast þann áratug sem það hefur verið til þá virðist sem að það hafi í raun aldrei verið nokkurs virði fyrir utan væntingarnar sem aldrei hafa orðið að veruleika. Samkvæmt hálfsársuppgjöri deCode á fyrirtækið 110.617.000 Bandaríkjadali en skuldar 297.446.000 Bandaríkjadali. Fyrirtækið skuldar því 186.829.000 Bandaríkjadali umfram eignir. Heitir það eitthvað annað en að vera rækilega á hausnum að skulda rúma 186 milljónir Bandaríkjadala umfram eignir?
Í lögum um gjaldþrotaskipti nr. 21/1991 segir í 64 grein:
64. gr. Skuldari getur krafist að bú sitt verði tekið til gjaldþrotaskipta ef hann getur ekki staðið í fullum skilum við lánardrottna sína þegar kröfur þeirra falla í gjalddaga og ekki verður talið sennilegt að greiðsluörðugleikar hans muni líða hjá innan skamms tíma.
Skuldara, sem er bókhaldsskyldur, er skylt að gefa bú sitt upp til gjaldþrotaskipta þegar svo er orðið ástatt fyrir honum sem segir í 1. mgr.
Vafalaust er deCode komið í þess stöðu fyrir löngu en fyrirtækið er með sveitfesti í Delaware fylki í Bandaríkjunum. Ef til vill gilda aðrar reglur þar.
Vonandi tekst að selja fyrirtækið og koma upp vitrænni starfsemi þannig að starfsfólkið haldi vinnunni. Það breytir hins vegar ekki því að ábyrgð Kára, Hannesar, Davíðs og fleiri er mikil. Þeir bera ábyrgð á fjárhagslegu skipbroti og gjaldþrotum fjölda fólks.
Því má svo ekki gleyma að maðurnn sem taldi sig vera markaðssinna Davíð Oddsson vildi að ríkið, skattgreiðendur ábyrgðust 200 milljón Bandaríkjadala lán fyrir fyrirtækið. Geir Haarde var fenginn til að flytja málið á Alþingi og biðja eftirlitsstofnun Efta um að leyfa þetta en sem betur fer leyfðu EES reglurnar þetta ekki og þess vegna eru skattgreiðendur 200 milljón Bandaríkjadölum ríkari í dag en þeir væru ef Davíð og Geir hefðu komist upp með þennan glórulausa pilsfaldakapítalisma eða eigum við að kalla það sósíalisma í þágu þeirra ríku?
Gengi bréfa deCODE aðeins 50 sent | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 00:27 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 696
- Sl. sólarhring: 722
- Sl. viku: 5635
- Frá upphafi: 2426269
Annað
- Innlit í dag: 647
- Innlit sl. viku: 5201
- Gestir í dag: 599
- IP-tölur í dag: 568
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Svona fyrirtæki fer aldrei að skila arði fyrir en eftir 10 - 15 ár, rannsókna og þróunnarvinna á bakvið það sem þetta fyrirtæki er að gera er gríðarlega kostnaðarsöm. Ég er segi það og skrifa og stend við það að Decode á eftir að mala gull eftir nokkur ár ef Kári fær styrki til þess frá lyfjarisum. Svo man ég ekki betur en Decode sé ennþá með ríkisáburgð í fullu gildi.
Sævar Einarsson, 17.9.2008 kl. 01:20
Það er ekki spurning um hvort...heldur hvenær deCode finnur eitthvað stórt....ef skuldurum brestur ekki þolinmæðin þ.e.a.s
Ekkert skrýtið að fyrirtækið skuldi 2x á við eignir.... Held að skuldir Eimskip séu yfir 10x meiri en eignir og það á við um fleiri fyrirtæki og íbúa þessa lands.
Kári hefur aldrei verið með neina "Hannesar skákir" maðurinn greinilega trúir á það sem hann er að gera...og þó að deCode fari á hausinn þá hefur þetta ekki verið til einskis...allar þessar rannsóknir eru mikilvægar....það þarf einhver að gera mistökin til að ná að gera þetta rétt.
Magnús Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 02:06
Ég er sammála Sævarnum. Svona fyrirtæki á eftir að mala gull, en ekki fyrir þá sem tóku lán á verðbótum til að kaupa í því.
Og ég er sammála Jóni að fólk var blekkt af Stjórnmálamönnum, Fjármálastofnunum og Fréttamiðlum til að trúa því að ÍE væri skammtímafjárfesting.
Kveðja, Káta
Káta (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 02:08
deCode á eftir að mala gull í uppfyllingu tímans.
Það er bjánaskapur að halda það að þetta væri skammtímafjárfesting.
Ég hef fulla trú á Kára.
50 sent eru jú 45 krónur.
Hluturinn í Eimskipafélaginu er núna 6 krónur.
Jens Sigurjónsson, 17.9.2008 kl. 02:28
Jón Magnússon, frábær grein!! þar sem sérhvert orð er satt. Allt í einu spurði ég sjálfan mig, hvort það geti verið að þú hrökklaðist úr Sjálfstæðisflokknum vegna vantrúar þinnar á DeCode ævintýrinu?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 17.9.2008 kl. 06:45
Það er nákvæmlega ekkert sem bendir til að DeCode eigi nokkurn tímann eftir að skila hluthöfum sínum arði. Um það snýst kjarni málsins í viðskiptum. Annars hefði allt eins verið hægt að halda landsöfnun fyrir þetta fyrirbæri alveg eins og hver önnur góðgerðasamtök. Kaupendur voru hafðir að fíflum.
Johnny Utah (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 09:57
Ef DeCode nær þó ekki nema einni merkri uppgötvun sem gagnast mönnum, þá er markaðurinn stór og peningarnir fljótir að streyma í kassann. Spurningin er hvort kemur fyrst uppgötvunin eða gjaldþrotið.
Hitt er náttúrlega alveg rétt að markaðssetningin var alveg brillíant að því leyti að fjárfestar (þjóðin) voru hafðir að fíflum.
Þorsteinn Úlfar Björnsson (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 14:53
What Sucks:
#1 Davíð Oddsson...
#2 Kári Stefánsson...
#3 DeCode...
#4 Hannes Smárason...
#5 Gagnagrunnur á heilbrigðissviði með skylduaðild...
#6 Davíð Oddsson...
#7 Veðrið...
Nostradamus, 17.9.2008 kl. 18:57
..að markaðssetningin var alveg brilliant..
Það er ótrúlegt að siðaðir menn kalli það á einhvern hátt brilliant að hafa aleiguna af fólki með spákaupmennsku. Öryrki sem trúði bankaráðgjafa sínum og upphrópunum forsætisráðherrans missti aleiguna sem var arfur eftir móður hans.
Kannski er það úrelt í dag að skammast sín?
En ég þakka þér fyrir þennan góða pistil Jón og það að hvetja fólk til tímabærrar íhugunar um spilagaldra hinnar mannfjandsamlegu frjálshyggju. Þar er lokatrixið að gefa skilyrðislaust veiðileyfi á hrekklaust fólk.
Árni Gunnarsson, 17.9.2008 kl. 20:10
"Aldrei hefur verið rekinn eins skefjalaus áróður fyrir einu fyrirtæki eins og markaðsstjórarnir, Kári og bankarnir sem voru látnir kaupa bréfin í fyrirtækinu gerðu við að markassetja bréfin á gráa markaðnum. Óskráð bréf".
Þegar bankarnir sem þá voru í ríkiseign voru látnir kaupa í DeCode var fenginn erlendur ráðgjafi til að annast gjörninginn. Þessi "ráðgjafi" fékk að mig minnir 400 milljónir fyrir ómakið. Ég hef allar götu síðan furðað mig á því að þessi millifærsla, að mig minnir til Kaymaneyja, skuli aldrei hafa verið rannsökuð. Það eins sem ég hef heyrt er að einhver blaðamaður hafi farið héðan til að grafast fyrir um með þetta "virta ráðgjafafyrirtæki" en hafi ekki fundið neitt sem studdi tilurð þess.
Atli Hermannsson., 17.9.2008 kl. 20:23
Ég er ein af þeim sem missti þarna aleiguna; íbúðina mína sem ég var búin að nurla fyrir á starfsævinni og átti loksins nær skuldlausa. Fór þar að ráði "viturra" manna sem sögðu að þetta væri fjárfesting sem ég gæti ekki tapað á og myndi sennilega ávaxta sig vel.
Hversu aulalega líður mér ekki í dag...
Ótal margir lentu í þessu sama og leið svo hræðilega að þeir geta ekki einu sinni talað um þetta. Sumir fyrirfóru sér. Ég flutti úr landi.
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 18.9.2008 kl. 09:54
Óttalega er þetta klén grein - ekkert nema rangfærslur, persónuníð og útúrsnúningar.
Er þetta virkilega þinn skilningur, Jón, eða ertu aðeins að höfða til lægstu hvata fólks með sleggjudómum og fáfræði?
Guðmundur Guðmundsson (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 13:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.