Leita í fréttum mbl.is

Stytta hefði átt að vera komin fyrir löngu.

Það er löngu tímabært að knattspyrnuhreyfingin sýni Albert Guðmundssyni tilhlýðilega virðingu. Þess vegna er ánægjulegt að heyra að ætlunin sé að gera styttu af þessum frábæra fótboltamanni og forustumanni knattspyrnuhreyfingarinnar um árabil.

Ég man eftir viðtali við Albert Guðmundsson þegar Ísland hafði tapað fyirr Dönum 14 gegn 2 og Albert svar spurður hvað ætti að gera.  Albert var ekki banginn en sagði það sem við eigum að gera er að við eigum að vinna okkur út úr þessu vandamáli og skoða hvað fór úrskeiðis og stilla upp sama liði fljótlega aftur því að þar eru margir miklir hæfileikamenn. Þetta er ungt lið sagði Albert og það versta sem hægt er að gera er að standa ekki við bakið á þessum strákum (Endursagt eftir minni) Fljótlega eftir þetta tók Albert við forustu í KSÍ og það var hans hlutverk að byggja upp íslenska knattspyrnu.

Það mættu margir minnast þess að það er mikilvægast að örvænta ekki þegar erfiðleikar steðja að. Þá skiptir máli að hafa örugga menn í forustu. Hvort heldur í íþróttum eða þjóðmálum.

Það er fleiri sem að mættu minnast Alberts Guðmundssonar og sýna honum verðuga virðingu.  Sjálfstæðisflokkurinn á Albert Guðmundssyni mikið að þakka þó að hann þyrfti að hrekjast burt úr flokknum vegna skammsýni þeirra sem síðan tóku við stjórn flokksins. Albert var ötull baráttumaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Albert var helsti framkvæmdamaðurinn við byggingu Sjálfstæðishússins við Háaleitisbraut og hann kom betri skipan á fjármál flokksins en áður höfðu verið. Á þeim tíma þurftu stjórnmálaflokkarnir að hafa fyrir því að safna peningum en slitu þá ekki út úr skattgreiðendum eins og núna. Sennilega hafa fáir verið eins framkvæmdasamir við að byggja upp Sjálfstæðisflokkinn eignalega og Albert Guðmundsson. Það er því kaldhæðni örlaganna að það skyldu  vera andstæðingar hans í flokknum sem nýttu sér ávexti erfiðis hans og margra fleiri.


mbl.is Stytta af Alberti rís á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég kynntist Allbert lítillega fyrir mörgum árum, fyrir tilstilli sameiginlegs kunningja. Ég man eftir að ég spurði Albert að því hvort hann fyndi fyrir því að vera umdeildur? Hann brosti við og kannaðist vel við það og hefði engar áhyggjur af því. Þeir sem gerðu lítið í lífinu væru ekki umdeildir, það hefði aldrei verið sitt keppikefli. 

Það er örugglega rétt hjá Albert að þeir sem gera mikið komast ekki hjá að gera mistök. Hitt er líklega óumdeilt að Albert Guðmundsson gerði miklu fleira gott en slæmt  fyrir Ísland.

Sigurður Þórðarson, 5.1.2009 kl. 21:34

2 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Styttur eru ömurleg tímaskekkja og styttur af spilltum stjórnmálamönnum eru náttúrulega ólíðandi. Albert var góður í fótbolta og eflaust góður við konuna sína og börnin sín, en hann var spilltur stjórnmálamaður sem notað fé annara og almennings til að komast áfram í pólitík.Það er nokkuð dæmigert um íslendinga hvað þeir sjá í gegnum slík "léttvæg" afglöp að það verður ómögulegt að þessi þjóð okkar geti eða vilji losa sig við spillingaröflin. Aumingjagæskan er slík að Albert flaug inn á þing með her manns eftir að hann varð uppvís og Þorsteinn Pálsson reyndi að setja honum skorður. Ef sett verður upp stytta af AG á almannafæri er réttlætisins vegna þörf á styttu af Þorsteini Pálssyni við hliðina.

Gísli Ingvarsson, 6.1.2009 kl. 13:28

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Framkoma Sjálfstæðisflokksins við Albert Guðmundsson verður honum til ævarandi skammar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 17:12

4 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Framkoma Sjálfstæðisflokksins við Albert Guðmundsson verður honum ( Alberti ) til ævarandi skammar.

Gísli Ingvarsson, 6.1.2009 kl. 18:25

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Gísli Ingvarsson fer á kostum.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.1.2009 kl. 19:12

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Jón.

Virðing mín fyrir Albert Guðmundssyni sem fótboltamanni og stjórnmálamanni er sannarlega fyrir hendi, en faðir minn heitinn ákvað að yfirgefa íhaldið á sínum tíma og fylgja Alberti að málum.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.1.2009 kl. 00:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 47
  • Sl. sólarhring: 1202
  • Sl. viku: 5791
  • Frá upphafi: 2277542

Annað

  • Innlit í dag: 47
  • Innlit sl. viku: 5353
  • Gestir í dag: 47
  • IP-tölur í dag: 46

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband