Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2021

Að ala nöðru við brjóst sér

Biskupakirkjan á Englandi hefur fundið fyrir því hvernig það er að ala nöðru við brjóst sér. Íslömsku hryðjuverkamennirnir í Liverpool voru teknir undir verndarvæng kirkjunnar og gátu því undirbúið hryðjuverkaárásina í hennar skjóli. 

Ekki er dregið í efa að margir kirkjunnar þjónar hafa mikinn áhuga og vilja til að láta gott af sér leiða og huga þá stundum ekki að því þegar verið er að misnota velvilja þeirra. Þetta getur leitt til fáránlegra viðbragða kirkjunnar þjóna eins og þegar þeir með fulltingi biskups hindruðu störf lögreglunnar með uppákomu í Laugarneskirkju um árið. 

Sami barnaskapur og hjá biskupnum forðum einkenndi þá í biskupakirkjunni  í Liverpool. Þar komu nokkrir múslimskir strákar og vildu kasta trú sinni að eigin sögn og gerast kristnir. Þeim var tekið fagnandi. Kirkjunnar menn athuguðu ekki að þessum mönnum hafði verið neitað um hæli og vísað úr landi í Bretlandi þegar þeir sóttust eftir að komast undir náðarfaðm kirkjunnar. Þeir voru teknir nánast undirbúningslaust inn í samfélag kristins fólks, en hjá þeim var þetta allt í plati af því að skv. trúarskoðunum múslima, þá mega þeir ljúga og svíkja alla sem eru ekki múslimar. 

Ekki má útiloka það að múslimskur hælisleitandi vilji skipta um trú. Kirkjunnar menn verða að gæta allrar varúðar í því sambandi einkum þegar liggur fyrir, að smyglararnir sem moka inn peningum fyrir að smygla fólki til Vesturlanda gefa þeim grundvallarráðleggingar eins og þær að henda öllum skilríkjum eins og vegabréfum, svo þeir geti haldið því fram, að þeir séu að koma frá stríðshrjáðum ríkjum eins og Sýrlandi eða Írak. Þeim er einnig ráðlagt af smyglurunum og raunar ýmsum lögmönnum hælisleitenda líka að skipta um trú og gerast kristnir að nafninu til. Þá njóti þeir verndar kristinnar kirkju og jákvæðar verði litið á umsóknir þeirra enda geti þeir  þá haldið því fram að þeir verði ofsóttir þegar heim er komið vegna trúskiptanna. Þannig lætur kristin kirkja í allri Evrópu þó síst kaþólska kirkjan misnota sig til að veita lögbrjótum skjól og hryðjuverkamönnum athvarf. Naðran þrífst því vel í náðarfaðmi kirkjunnar.

Kristin kirkja getur að sjálfsögðu haft skoðanir á þjóðfélagsmálum, en má ekki gleyma því að það eru stjórnvöld, ríkisstjórn og Alþingi sem stjórna í þjóðfélaginu og þeim reglum verður að hlíta sem þessir aðilar setja. Í Laugarneskirkju virtust kirkjunar yfirvöld hafa gleymt þessu grundvallaratriði. 

Kirkjan getur að sjálfsögðu mótað ákveðnar skoðanir um móttöku hælisleitenda og hefur gert það. En það merkilegasta við kristna kirkju á Vesturlöndum undanfarna tvo áratugi er að þeim virðist helst ekki koma neitt við nema múslimskir strákar sem þykjast vera á flótta undan harðræði heima fyrir á sama tíma og kristið fólk sætir mestum ofsóknum í löndum eins og Sýrlandi, Írak og raunar um allan hinn múslimska heim. Í Íran eru kerfisbundnar ofsóknir gegn kristnum og í Pakistan vegna laga um guðlast.

Ofsóknir gegn kristnu fólki í Sýrlandi og Írak leiða til þess, að því er ekki vært í flóttamannabúðum Sameinuðu þjóðanna. Kristið fólk eru hinir réttlausu og kristin kirkja Vesturlanda er svo upptekin við að ala nöðruna við brjóst sér, að hún hefur engin úrræði til að veita þeim hjálp sem mest þurfa á henni að halda. Trúarsystkinum okkar.  

Leiðtogar kristins fólks á Vesturlöndum hafa því miður brugðist eigin fólki, öryggi þess og hagsmunum.


Beðið eftir Godot

Á sínum tíma var sýnt leikritið "Beðið eftir Godot" eftir Samuel Becket. Þrátt fyrir biðina þá kom Godot aldrei. Í hinum íslenska veruleika þá er undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar Alþingis sem er í hlutverki Godot.

Fréttamenn og forsætisráðherra sem og fleiri hafa hamast á því, að ekki sé hægt að mynda nýja ríkisstjórn fyrr en undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar hefur lokið störfum. En þetta er rangt.

Starf undirbúningsnefndarinnar og hvenær hún lýkur störfum hefur ekkert með það að gera hvort mynduð verður ný ríkisstjórn eða ekki. Alþingi myndar ekki ríkisstjórn.

Talsmenn þeirra flokka sem standa að stjórnarmyndunarviðræðum geta gengið á fund forsta Íslands á morgun fyrir hádegi og farið fram á að hann komi ríkisstjórn Framsóknar, Sjálfstæðis og Vinstri grænna á koppinn og telji forseti að líkur séu á að Alþingi muni þola ríkisstjórnina þ.e. ekki verði samþykkt á hana vantraust svo farið, þá ber honum að verða við því og í hádegisfréttum á morgun gæti nýr forsætisráðherra gert grein fyrir hinni nýju ríkisstjórn.

Þannig skiptir engu máli þó að Godotarnir í undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar koma sér einhverntíma saman eða ekki. Þeir hafa ekkert með myndun ríkisstjórnar að gera og ný ríkisstjórn getur tekið við völdum án þess að Alþingi sé kallað saman. Þannig eru nú einfaldlega ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins. 


Hvað þurfa bólusettir að óttast?

Það er fullyrt af sérfræðingum í Covid 19 fræðum, að miklu skipti að borgararnir mæti til að láta bólusetja sig í þriðja skiptið með Pfiser bóluefninu. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir telur  að þriðja bólusetningin geti skipti öllu mál og komið í veg fyrir smit og alvarleg veikindi.  

Á sama tíma kemur fram bergmál fasismans um að refsa þeim, sem ekki hlýða valdstjórninni og vilja ekki láta ekki bólusetja sig með tilraunabóluefni. En afhverju á að refsa þeim? Valda þeir einhverri hættu gagnvart þeim sem eru fullbólusettir með þriðja skammtinum?

Ekki nema að þriðji skammturinn dugi ekki. Rökfræðilega verður ekki komist að annarri niðurstöðu en þeirri, að þeir sem vilja skerða frelsi þeirra sem vilja ekki láta bólusetja sig vegna hagsmuna fullbólusettra,að það sé vegna þess, að þriðja bólusetningin skipti litlu sem engu máli.

Ef þriðja bólusetningin kæmi í  veg fyrir smit og alvarleg veikindi, þá skipti engu máli þó einhverjir faríar þráuðust við og neituðu að láta bólusetja. Slíka peyja pent við getum pissað á mætti segja,eins og ráðherrann og stórkaupmaðurinn sungu á sínum tíma í Deleríum Búbónis eftir þá bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni.

Það eru ekki þeir sem neita að láta bólusetja sig sem bera einhverja sök. Þeir sem bera sök, eru þeir sem eru búnir að selja bóluefni fyrir hundruði milljarða. Bóluefni sem duga ekki. Af hverju eru stjórnmálamenn um víða veröld svona skyni skropnir að átta sig ekki á því. Þetta eru einfaldlega vörusvik.

Út frá neytendarétti, ætti ríkisstjórn Íslands að krefja lyfjafyrirtækin um bætur vegna þess, að þau hafa verið að selja okkur ónýta vöru eða í besta felli vöru sem gagnast lítið til þess, sem hún á að gera. Það er mergurinn málsins en ekki þeir sem vilja ekki láta bólusetja sig með lyfi, sem lyfjaframleiðendurnir sem maka krókinn á tá og fingri, hundruði milljarða, vilja enga ábyrgð bera á glundrinu sínu. 

Svo segir formaður Framsóknarflokksins og ritstjóri Fréttablaðsins, að það komi vel til greina að óbólusettir þurfi að sæta afarkostum. Er þessum hrímþursum sjálfrátt. Hvar er hin rökfræðilega forsenda þess?

 

 

 


Kallað eftir höftum og frelsisskerðingu

Enn einu sinni hefur sóttvarnarlæknir skilað minnisblaði til ráðherra og enn einu sinni mun ríkisstjórnin ræða til hvaða frelsisskerðinga á að grípa til að takmarka fjölda Kóvíd smita. 

Við ákvarðanatöku verður ríkisstjórnin að ganga út frá þeirri staðreynd, að þessi veira er komin til að vera með okkur hvort sem okkur líkar betur eða verr, óháð því til hvaða aðgerða við grípum til nú til að takmarka útbreiðsluna tímabundið, skráningum, smitrakningu o.s.frv.

Af því að veiran mun vera með okkur mun fólk halda áfram að veikjast, en hlutfallslega færri og færri alvarlega og færri og færri munu þurfa að leggjast inn á spítala og færri og færri munu deyja, miðað við þróun Kóvíd þann stutta tíma sem þessi pest hefur verið með okkur. Miðað við þessar staðreyndir eru þá forsendur til að grípa til þess að skerða frelsi borgaranna?

Þá ber einnig að skoða hvort að þær valdheimildir sem sóttvarnarlög kveða á um heimila slíka skerðingu og á hvaða forsendum þá. Eigum við enn einu sinni að sæta grímuskyldu, fjarlægðamörkum og takmörkunum á því hvað margir mega koma saman? Er ekki best að biðla til almennings um að fara gætilega og huga að sóttvörnum. 

 

 

 

 


Óvinurinn eini.

Eftir að kommúnistar og sósíalistar höfðu háð harða baráttu í 70 ár á síðustu öld við að skapa velferð og réttlátt þjóðfélag urðu þeir að viðurkenna sig gjaldþrota og kerfi þeirra dygði ekki og því fylgdi örbirgð og ógnarstjórn. Þeir gáfust upp.

Við blasti þegar Sovétríkin féllu,gríðarleg mengun, þar sem mörg níðingsverk höfðu verið unnin á "móður jörð". Markaðskerfið eða kapítalisminn þurfti til að koma til að tryggja að fólk yrði ekki hungurmorða víða í kommúnistaríkjunum og hreinsa til þar sem náttúruvá blasti við. 

Nú hafa sósíalistar gleymt arfleifð sinni eða vilja ekki muna og halda því óhikað fram að allt það vonda, sem gerist í veröldinni sé stórkapítalismanum að kenna.

Í leiðara Fréttablaðsins í dag fer ritstjórinn mikinn og kennir stórkapítalismanum um ástandið í loftslagsmálum og öllu því sem illa hefur farið í heiminum frá upphafi iðnbyltingar eða í tæp 400 ár.

Helstu stórkapítalistarnir í heiminum, Jeff Bezos hjá Amason ríkasti maður heims og Bill Gates hjá Microsoft sem fylgir þétt í kjölfarið eru þá vafalaust í þeim hópi sem verður um kennt, að mati leiðarahöfundar. Raunar eru þeir Jeff og Bill meðal ötulustu talsmanna grænna gilda og prédika ógnina af hlýnun jarðar á milli þess sem þeir fljúga á einkaþotunum sínum heimsálfa á milli. 

Hægt er að kenna markaðskerfinu um ýmislegt og það er fjarri því að vera fullkomið, en ritstjórinn hrapar að rangri niðurstöðu þegar hann gerir stórkapítalismann ábyrgan fyrir allri náttúruvá í heiminum og meintri hnattrænni hlýnun. 

Á líftíma ritstjórans hefur mannkyninu fjölgað um marga milljarða. Hver einstaklingur skilur eftir sig kolefnisspor og þarf að nýta sér það sem jörðin gefur af sér. Stórkapítalismanum verður ekki um það kennt nema e.t.v. ef á að taka það með í reikninginn, að markaðskerfið, kapítalisminn hefur tryggt gríðarlega framleiðsluaukningu matvæla. Í stað stórkostlegra hungursneyða, sem hefðu kostað milljónir mannslífa, þá hefur að mestu verið komið í veg fyrir þá vá,með skilvirkni kapítalismans nema í stríðshrjáðum löndum og þar sem kapítalisminn kemst ekki að eins og í Norður Kóreu og nú í Afganistan.

Í Kína er kommúnistaríki, þar sem kommúnistarnir sem stjórna landinu hafa áttað sig á því, að útilokað er að auka velmegun í landinu og koma  í veg fyrir hungursneyð nema með því að virkja markaðshagkerfið,kapítalismann. Þeir hafa því gert það og þeirra viðmiðun er sú, að það mikilvægast sé að tryggja borgurum Kína velmegun með markaðskerfinu. Saga kapítalismans í Kína er auk heldur svo stutt, að fólkið þar og stjórnendur landsins muna, að það var kapítalisminn líka stórkapítalisminn, sem lyfti Kína frá örbirgð og hungursneyð, þar sem milljónir dóu úr hungursneyð.

Kommúnistiarnir í Kína láta ekki fólk með hugmyndafræði nítjándu aldar sósíalisma eins og ritstjóra Fréttablaðsins segja sér að þeim líði betur í örbirgð og hungursneyð en með því að virkja kapítalismann þannig að fólkið hafi nóg að borða og njóti velmegunar.

Því miður virðast Vesturlönd hafa gleymt þessum grundvallaratriðum og þessvegna sækir Kína nú fram á meðan Evrópa er að dæma sig til efnahagslegs sjálfsmorðs.

 

 


Hin ofsóttu

Uppákoman í Eflingu er með ólíkindum. Starfsfólk á skrifstofu Eflingar gefur stjórnunarháttum Sólveigar Önnu Jónsdóttur fyrrv formanns og Viðars Þorsteinssonar fyrrv. framkvæmdastjóra algjöra falleinkun. Svo slæma falleinkun að óvíða sætir starfsfólk að eigin sögn annarri eins aðsókn eins og hjá þessum stjórnendum.

Samt var meiri hluti stjórnar félagsins tilbúinn til að styðja áframhaldandi ofsóknarstjórn Sólveigar Önnu og Viðars. Greinilega vanhöld á að standa með starfsfólkinu þar á bæ. 

Þegar Viðar Þorsteinsson fyrrv. framkvæmdastjóri tjáði sig í Kastljósi, stóð bunan út úr honum um það, hvílíkum ofsóknum hann og Sólveig Anna hefðu mátt sæta af hálfu starfsfólksins. Starfsfólksins sem þau sjálf réðu til starfa eftir að hafa rekið það sem fyrir var. 

Saga þeirra Viðars og Sólveigar Önnu í starfsmannamálum Eflingar er ljót. Þau sögðu upp nánast öllu starfsfólki Eflingar þegar þau komust til valda með svigurmælum um ýmsa sem voru reknir sumir eftir langa og dygga þjónustu.

Þrátt fyrir hreinsanirnar og ráðningu nýs starfsfólks sem var þeim Sólveigu og Viðari þóknanlegt, þá dugar það ekki til. Allt fer í óefni þannig að komið var að uppsagnarhrinu númer tvö, þegar þau Sólveig Anna og Viðar gugnuðu á frekari stalínískum stjórnunaraðgerðum gagnvart starfsfólki sínu og sáu það, að "illþýðið" sem þau höfðu ráðið til starfa  beitti þau ofsóknum. Við ofsóknirnar gátu þau Sólveig og Viðar ekki sætt sig. 

Trúir virkilega einhver því að Sólveig Anna og Viðar hafi verið beitt ofsóknum af hálfu starfsfólks Eflingar? 

 

 


« Fyrri síða

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 441
  • Sl. sólarhring: 967
  • Sl. viku: 6185
  • Frá upphafi: 2277936

Annað

  • Innlit í dag: 414
  • Innlit sl. viku: 5720
  • Gestir í dag: 404
  • IP-tölur í dag: 395

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband