Bloggfærslur mánaðarins, maí 2025
23.5.2025 | 08:08
Íslarabía
Skóla í Breiðholti er haldið í helgreipum af strákum af erlendum uppruna.
Við Skyggnisbraut í friðsælu úthverfi Reykjavíkur var hífabardagi um miðjan dag milli manna af sama uppruna. Íbúi hverfisins segir þetta fólk halda íbúum hverfisins í helgreipum óttans.
Sama gerist varðandi leiguakstur slakað var á öllum kröfum þannig að því fór fjarri að öryggi neytenda væri virt og afleiðingarnar liggja fyrir og hafa verið til umjföllunar vegna nauðgunarmála auk annarra minni afbrota.
Hvernig stendur á því að hælisleitendur, sem halda fólki í heilgreipum óttans við Skyggnisbraut í Reykjavík eru þar í nýjum íbúðum? Keyptu þeir eða eru á vegum velferðarbatterísins sem vinnur að því að skipta um fólk í landinu t.d. borgarstjórn Reykjavíkur.
Lögreglan er vanbúin til að takast á við þá ógn sem stjórnmálamennirnir bera ábyrgð á allt frá árinu 2014. Lögreglan var ekki styrkt til að geta svo vel væri tekið á vandanum og fólki frá framandi menningarheimum var dælt inn í landið með þeim afleiðingum sem nú sést og vísað er til í fréttum núna nánast á hverjum einasta degi.
Hvaða viðbrögð sýna svo stjórnvöld og hvaða áætlanir hafa þau um að bregðast við svo vel sé? Því miður afar fátækleg ef þá nokkur.
Við það verður ekki unað, að hópar hælisleitenda taki þjóðfélagið í gíslingu og komi í veg fyrir að við getum gengið örugg um götur og dreifbýli þegar okkur dettur í hug örugg og frjáls.
Óeirðarseggjunum og þeim sem virða ekki íslensk lög verður að víkja úr landi.
Var það einhvern tímann meininginn að bjóða þá velkomna, sem ætluðu sér að gera landið okkar að samskonar araba landi og þeim sem þeir fóru frá.Við skulum ekki láta þann draum þeirra rætast.
21.5.2025 | 21:06
Sótt að hinum seku?
Í dag áttu þeir fund forseti Bandaríkjanna(US) og Suður-Afríku(SA). Á fundinum sakaði Trump, Ramaphosa forseta um að stjórn hans hefi ekki brugðist við og veitt hvítum bændum vernd og í raun væri um þjóðarmorð gagnvart þeim að ræða.
Í framhaldi af ásökunum Trump, er hamast að honum og fullyrt að hann fari með falsfréttir. Sé málið skoðað nánar, þá sést, að ummæli Trump hafa við rök að styðjast. Viðbrögðin því á sama grunni og þegar hann benti á að í Svíþjóð væru hverfi þar sem lögreglan færi ekki inn í öðru vísi en þungvopnuð, sem mótmælt var, en hið sanna kom í ljós. Þetta var rétt hjá Trump.
Fjöldi hvítra bænda í SA hefur mátt þola, að ráðist er á bú þeirra og þeir flæmdir á brott eða drepnir. Ríkisstjórn SA gerir lítið sem ekkert og svo virðist sem sama sagan sé að endurtaka sig og í Zimbabwe,þar sem hvítir bændur voru hundeltir ráðist á bú þeirra og þeir drepnir ásamt fjölskyldum sínum.
Meir en 30 hvítir bændur frá SA hafa sótt um hæli í Bandaríkjunum og í fréttum spænska sjónvarpsins í kvöld var sagt frá rúmlega 50 hvítum bændum frá SA og fjölskyldum þeirra, sem hefðu sótt um hæli vegna ofsókna gegn þeim.
S-Afríka er gjörspillt ríki, þar sem glæpatíðni er hvað mest í heiminum. Ríkisstjórnin virðist hafa takmarkaðan áhuga á að vernda eigin borgara og alls ekki fólk sem er ljóst á hörund.
Þetta glæpa ríki ákærði Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum, fyrir þjóðarmorð á Gasa á sama tíma og unnið er að skipulagðri útrýmingu hvítra bænda í SA. En íslenski utanríkisráðherrann hefur aldrei þessu vant ekki haft neitt um þetta mál að segja.
SA verður vonandi neytt til að vernda eigin þegna óháð litarhætti þeirra eftir réttmæta árás Trump á fundi forseta ríkjanna í dag. Það fornkveðna gildir síðan fyrir SA:
Þeir ættu ekki að kasta steinum sem í glerhúsi búa.
![]() |
Segir þjóðarmorð hafa verið framin gegn hvítu fólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.5.2025 | 08:01
My heart belongs to Brussel
Starmer forsætisráðherra Bretlands hefur gert samning við Evrópusambandið með tilheyrandi faðmlögum og kossaflensi við Ursulu von der Leyen leiðtoga Evrópusambandsins (ES). Með þessum samningi er fyrsta skrefið stigið til nýrrar aðildar Breta að ES og Starmer virðist hafa verið svo mikið í mun að ná samningnum, að breskum hagsmunum var varpað fyrir róða til að Starmer kæmist undir pilsfaldinn á von der Leyen.
Hagsmunir bresks sjávarútvegs eru algerlega hundsaðir í samningi Starmer og Leyen svo dæmi sé nefnt auk margra annarra hagsmuna.
Í sjálfu sér þarf ekki að koma á óvart að Starmer beiti sér fyrir að Bretar gangi aftur í ES, þegar haft er í huga, að hann vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna um Brexit þar sem meirihluti kjósenda ákvað að Bretar skyldu ganga úr ES. Lögmaðurinn frá London nú forsætisráðherra Breta vildi hundsa lýðræðislegt val þjóðarinnar af því að það var honum ekki að skapi. Atkvæði tæplega 18 milljóna átti að hafa að engu.
Því miður situr Starmer nú í forsætisráðuneytinu breska og þykist geta farið sínu fram. Hjarta hans slær í Brussel, sem sýnir hve blindir margir ES sinnar eru á hagsmuni eigin þjóðlanda þegar þeir eru sannfærðir um að ágæti ES sé slíkt, að hagsmunir þjóða þeirra verði að víkja fyrir ákvörðunum Brussel báknsins.
Þegar horft er á vinnubrögð eins og þau sem Starmer sýnir í þessu mái þar sem hann vílar ekki fyrir sér að hengja Bretland aftur á snagann í Brussel, þá veltir maður fyrir sér hvað með íslenskt ofsatrúarfólk á ágæti ES þær Þorgerði Katrínu og Kristrúnu Frostadóttur. Munu þær feta sömu leið og Starmer sá breski að gera allt til að troða Íslandi inn í ES hvað sem það kostar t.d. að fórna fiskveiðihagsmunum Íslands.
Því miður mál telja upp á að Þorgerður Katrín sé tilbúin í hvað sem er þegar Brussel er annars vegar því hjarta hennar eins og Starmers slær fyrir Brussel og frú Kristrún, kötturinn sem læðist virðist sömu gerðar þegar vel er að gáð.
Við sem viljum Ísland frjálst og fullvalda þurfum því heldur betur að vera á varðbergi gagnvart þeim ættjarðarlausa aðli, sem telur það hentast vorri þjóð, að tapa þjóðerninu og segja okkur til sveitar hjá Brusselvaldinu.
20.5.2025 | 08:28
Kæri Pedro
Öfgavinstri maðurinn Pedro Sanches forsætisráðherra Spánar, sem Kristrún Frostadóttir hefur valið sér sem meðreiðarsvein talaði á fundi Arababandalagsins í gær, þar sem hann sparaði ekki stóru orðin gagnvart Ísrael og ljúfmælgina gagnvart múslimaríkjunum.
Þennan öfgavinstri mann hefur Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra stórveldisins Íslands valið sér til fylgilags en þau Pedro eru sögð hafa gengist fyrir því að ríki Evrópu skrifuðu upp á sérstaka einhliða yfirlýsingu til fordæmingar á Ísrael og fengu til fylgilags við sig eftir miklar tilraunir, önnur stórveldi Evrópu eins og Möltu, Lúxemborg, Noreg og Írland þar sem aðrir vinstri öfgamenn eru í forsæti. Aðrir vildu ekki koma um borð á þetta lekahrip Kristrúnar og Pedrós.
Daginn eftir að forsætisráðherrar ofangreindra stórvelda Evrópu birtu mynd af sér um leið og þau kynntu yfirlýsinguna greiddi almenningur í Evrópu atkvæði í Eurovísion söngvakeppninni og þar fór svo að langflestir þeirra sem greiddu atkvæði á Spáni og raunar Evrópu, greiddu ísraelska laginu atkvæði sitt.
Pedro var allt annað en sáttur. Að hans undirlagi hafði spænska sjónvarpið haft myrkvaðan skjá í meir en 15 sekúndur og birti yfirlýsingu gegn Ísrael, en allt kom fyrir ekki fólkið á Spáni fór ekki að fyrirmálum Pedros og greiddi atkvæði með ísraelska laginu.
Pedro telur að hér séu ísmeygileg brögð í tafli og sé leyniþjónustunni Mossad hinni ísraelsku um að kenna, þó vandséð sé, hvernig hún hafi getað komið að þeim málum. Sama kvöld og þetta kom sendi Kristrún kjölturakkann sinn í hlutverki útvarpsstjóra til að feta í fótspor Pedros, sem hann gerði með þeim sóma við stjórn þessa áróðursfyrirtækis Samfylkingarinnar sem ætlast var til af honum.
Hvað sem líður áhuga fólks á fyrirbrigðinu Euróvisíon þá er það athyglisvert að keppnin sé orðin að pólitísku þrætuepli vegna þess að öfgavinstriöflin í Evrópu, sem hamast hafa að Ísrael nú árum saman sætta sig ekki við að almenningur í Evrópu skuli ekki samsinna þeim og í raun kjósa gegn áróðri þeirra og öfgum.
Mér er síðan spurn hefði ekki verið eðlilegra að aftengja þessa keppni þessum pólitíska biturleika harðlífisvinstrafólksins en fagna sigri lífsins með því að fagna því að ísraleska söngkonan, sem flutti framlag Ísrael skuli vera í tölu lifenda eftir þá mannraun, sem hún lenti í þegar hún kom fram á söngvakeppninni í Ísrael sem Hamas liðar réðust á og drápu flesta en tóku aðra sem gísla. Söngkonan geðþekka slapp frá hroðalegum örlögum af hendi Hamas með því að látast vera dáinn undir hlaða af líkum ungs fólks sem Hamas hafði drepið án þess að það hefði neitt til saka unnið.
Það er dapurlegt að Kristrún skuli hafa skipað sér í hóp með öfgafyllstu vinstri prelátum Evrópu og sýnt með því sama dæmalausa dómgreindaleysið og utanríkisráðherra hennar. Ég satt að segja bjóst við meiru af Kristrúnu Frostadóttur, en það reyndist ekki vera innistæða fyrir þeirri von því miður.
19.5.2025 | 09:06
Það skiptir máli
Félag hjúkrunarfræðinga beinir áskorun til stjórnvalda um að erlendir hjúkrunarfræðingar verði ekki ráðnir til starfa á Íslandi nema þeir kunni skil á íslensku. Af hverju þarf starfsgreinafélag að taka fram og berjast fyrir sjálfsögðum hlutum, sem að íslensk stjórnvöld hefðu átt í meir en áratug að gera að forgangsverkefni.
Vegna þess að stjórnmálastéttin er metnaðarlaus gagnvart íslenskri menningu og tungu hvað svo sem sagt er á tyllidögum.
Verði ekki brugðist við strax og gert að skilyrði að vinnandi fólk á Íslandi kunni það góð skil á íslensku,að geta gefið upplýsingar til viðskiptavina eða þjónustuaðila á íslensku er vá fyrir dyrum.
Verði ekki brugðist við strax og íslenskan sett í öndvegi þá er hætt við því að innan 20 ára verði íslenskan ekki helsta samskiptamál á stór höfuðborgarsvæðinu, þó henni kunni að vegna betur úti á landsbyggðinni nokkur ár til viðbótar.
Ef við missum íslenskuna þá týnist stór hluti íslenskrar menningar og við hættum að vera sérstök og íslensk en verðum eins og samkynja sandkorn á strönd þess sem greinir ekkert frá öðru.
Finnst okkur virkilega engu máli skipta að berjast fyrir íslensku þjóðerni, menningu og tungu? Slík barátta skiptir meira máli en ákveðinn auðsöfnun hinna fáu í núinu fyrir íslenska þjóð.
18.5.2025 | 09:48
Hvaða framtíðarsýn?
Í kalda stríðinu fyrir 1989 héldu kommúnistar fram að kapítalisminn (markaðshagkerfið) grundvallaðist á auðsókn og óheft samkeppni gerði þá ríku ríkari á þá fátæku fátækari. Kapítalisminn væri stefna arðráns.
Kapítalistarnir sögðu frjálst markaðshagkerfi leysa úr læðingi hugvit, tækifæri, sjálfsákvörðunarrétt og væri vegurinn til velmegunar. Kapítalisminn leiddi til þess að allir yrðu ríkari.
Kommúnisminn hrundi og varð gjaldþrota í Sovétríkjunum og Austur Evrópu og síðar urðu mörg fyrrum kommúnistaríki rík þjóðfélög eftir að markaðshagkerfið var tekið upp.
Lýðræði reyndist hins vegar ekki óhjákvæmileg forsenda markaðsþjóðfélags. Einræðisríki gátu á stundum látið markaðshagkerfið vinna eins og t.d. Kína,jafnvel betur en þegar lýðræðið var að þvælast fyrir. Kína er næststærsta hagkerfið í heiminum og getur farið sínu fram eins og dæmið með Belti og Braut sýnir, sem í raun býður upp á hluti sem gæti gert ríki ánauðug kínverska kommúnistaríkinu.
Baráttan um heimsyfirráð er bara valdabarátta í dag. Hún er hvorki hugmyndarfræðileg né siðræn eins og að mörgu leyti áður. Við sem vonuðumst eftir grundvallarbreytingum í heiminum til hins betra við fall sovétkommúnismans höfum heldur betur orðið fyrir vonbrigðum. Baráttan nú er grímulaus valdabarátta, án siðrænna eða hugmyndafræðilegra gilda og stjórnmálamenn nútímans hafa ekki þá framtíðarsýn að móta stefnu framtíðar til framfarasóknar alls mannkyns byggða á réttlæti, mannréttindum og siðrænum gildum.
Það er svo bágt að standa í stað og mönnunum munar annað hvort aftur á bak eða nokkurt á leið kvað þjóðskáldið Jónas. Heimurinn hefur verið að færast aftur á bak undanfarin ár og það er nauðsynlegt að breyta því.
Hvað er þá til ráða? Hvaða framtíðarsýn viljum við hafa?
16.5.2025 | 19:25
Biden, falsfréttir og valdarán.
Innan við þriðjungur fólks treystir fréttum helstu fréttaveitna skv. könnunum í Bretlandi og Bandaríkjunum. Þessar fréttaveitur, ríkisútvörp, og stærstu fréttamiðlar hafa ítrekað sagt ósatt og reynt að fela sannleikann.
Alvarlegasta nýja dæmið sem allir helstu fréttamiðlar í Bandaríkjunum og víðar t.d. RÚV tóku þátt í, var að reyna að fela, hvað illa var komið fyrir Joe Biden meðan hann var Bandaríkjaforseti. Svo illa að hann var ófær um að gegna embættinu. Samt reyndi hirðin í kringum hann að fá hann endurkjörinn.
Nýlega kom út bókin "Original Sin: President Biden´s Decline,its cover-up and his disastrous choice to run again eftir Jake Trapper og Alex Thompson. Höfundar sýna fram á hvernig lítill hópur í kringum forsetann reyndi að fela m.a. fyrir ráðherrum í ríkisstjórn Bandaríkjanna, hve illa var komið fyrir Biden. Þessi hópur fékk dyggan stuðning frá öllum helstu fréttamiðlum.
Innsti kjarninn í kringum Bidengegndi forsetaembættinu í raun. Engin þeirra lýðræðislega kjörin. Hirðin gerði allt sem hún gat til að koma í veg fyrir að almenningur fengi réttar upplýsingar.
Eftir kappræður Biden og Trump um mitt síðasta ár mátti öllum vera ljóst, að Biden hafði ekki hæfi til að vera forseti. Nokkru síðar er sagt að hann hafi hitt helsta stuðningsmann sinn George Clooney leikara í veislu og ekki þekkt hann.
Alvarlegustu hlutirnir í sambandi við "the Biden cover up" eða falsfréttirnar um Biden eru í fyrsta lagi að dreifa falsfréttum. Í annan stað, að helstu fjölmiðlar um allan heim skyldu flytja þessar falsfréttir athugasemdalaust þó flestum mátti vera ljóst þetta gekk ekki. Í þriðja lagi, að lítill hópur í kringum Biden gegndi forsetaembættinu, en engin úr þeim hópi hafði fengið lýðræðislega kosningu.
Skömm Demókrata og helstu fjölmiðla er mikil vegna þessa samsæris þagnarinnar og falsfrétta. Vinstri sinnaða skítapakkið í kringum Biden ætlaði að halda áfram að ráða með fölsunum og lygi, en tókst það ekki lengur þar sem lygin varð svo augljós.
Enn og aftur koma helstu falsfréttir frá opinberum aðilum og ekkert er að marka meginstraumsfjölmiðla af því að þar á bæjum nenna menn ekki lengur að leita sannleikans eða telja sig jafnvel hafa hagsmuni af því að viðhalda lyginni.
15.5.2025 | 21:13
Er rasísk andstaða gegn fyrirtækjum stefna ríkisstjórnarinnar?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur skipað sér fremsta í röð vestrænna utanríkisráðherra, sem hatast út í Ísrael og Gyðinga. Mér er ekki kunnugt um neinn annan utanríkisráðherra lýðræðisríkis í Evrópu, sem lýsir yfir nauðsyn rasískrar BDS herferðar gegn fyrirtækjum í eigu Gyðinga.(BDS var krafa þýskra nasista um að eyðileggja fyrirtæki Gyðinga)
Í kvöldfréttum RÚV sjónvarps hvatti utanríkisráðherra til að ákveðið fyrirtæki yrði sniðgengið. Fyrirtækið sem um ræðir skilar góðri þjónustu, en það skiptir ekki máli að mati utanríkisráðherra vegna þess að fyrirtækið er í eigu Gyðinga.
Höfuðsynd og eina synd fyrirtækisins að mati utanríkisráðherra er rasísk og andgyðingleg. Með þessu er íslenskur ráðherra að samsama sig með þursaveldinu sem stóð fyrir BDS hreyfingunni í Þýskalandi og kristalsnóttinni 1938 þegar þýskir nasistar eyðilögðu fyrirtæki Gyðinga í Þýskalandi vegna þess að þau voru í eigu Gyðinga.
Er það virkilega svo, að það sem utanríkisráðherra segir sé stefna ríkisstjórnarinnar? Vonandi er það ekki og þá verður utanríkisráðherra að víkja - farið hefur þá fé betra.
Telur forsætisráðherra og aðrir stjórnarliðar að utanríkisráðherra gæti íslenskra hagsmuna með orðagjálfri, hatursáróðri og stríðsyfirlýsingum?
15.5.2025 | 08:49
Hafa stórveldi engar siðrænar viðmiðanir.
Allt frá því að hryðjuverkasveitin Hayat Tahir al Sham(HTS)lagði undir sig Damaskus og varð ríkjandi stjórnvald í Sýrlandi hafa HTS liðar og aðrir vígahópar tengdir þeim einsog ÍSIS og Al Kaída framið fjöldamorð á trúarlegum andstæðingum, Alavítum, Kristnum og Drúsum um allt Sýrland.
Myndir hafa birst á netinu af Alawítum, heilu fjölskyldunum sem hafa verið strádrepnar, menn, konur og börn skotin af stuttu færi og líkunum stundum misþyrmt. Eftir að hafa einbeitt sér að Alawitum kom röðin síðan að kristnum og Drúsum.
Jafn viljugar og fréttastofur Vesturlanda eru að birta daglega fréttir frá Hamas um hve margir hafi fallið á Gasa, þá bregður svo sérkennilega við að á þessi raunverulegu fjöldamorð HTS og skuggalegra félaga þeirra er aldrei minnst. Það væri þó a.m.k. einnar fréttar virði að sýna þegar fjölskyldur Alavita, kristinna og Drúsa eru reknar á flótta eignir þeirra yfirteknar af hryðjuverkamönnunum og fólkið síðan drepið á fóttanum.
Kristnir söfnuðir minnast ekki á hræðilegar ofsóknir gegn kristnum, Drúsum og Alawitum og Macron Frakklandsforseti minnist ekki á þessi svívirðilegu fjöldamorð í fyrrum nýlendu Frakka, Sýrlandi en boðar til sérstakra funda til að fordæma Ísrael.
HTS er skilgreint sem hryðjuverkasamtök í Bandaríkjunum, Bretlandi og Evrópusambandinu. Katar og Tyrkland standa á bakvið HTS. Erdogan er maðurinn sem stendur þarna helst að baki og á sama tíma og hann fordæmir Ísrael sigar hann morðhundum sínum í HTS á saklaust varnarlaust fólk þessvegna á flótta. Fjöldamorðin eru framin með velþóknun hans enda stefnir hann að því að ná til baka Íslamska veldi Tyrkjasóldána, Ottómana veldið með næsta viðkomustað Jerúsalem, en árum saman hefur Erdogan sagt að markmiðið sé að ná Jerúsalem.
Þjóðir og stjórnmálmenn þurfa að vanda til þess hverja þeir velja sem vini sína. Þessa gætir Donald Trump ekki og hefur átt í illdeilum við traustustu vini Bandaríkjanna þann stutta tíma sem hann hefur verið forseti á ný, en faðmar nú Al Kaída liðann Ahmad Al Sharaa stjórnanda Sýrlands og heitir því að allar viðskiptaþvinganir gagnvart Sýrlandi verði afnumdar til þess eins og Trump orðaði það; "in order to give the country a chance to greatness." (til þess að gefa landinu tækifæri til að verða stórveldi á nýjan leik)
Áður fyrr höfðu jafnvel stórveldi eins og Bandaríkin ákveðnar siðferðilegar viðmiðanir en með faðmlaginu við Ahmad Al Sharaa og fólskulegum árásum á Dani hefur Trump sýnt því miður, að hann hefur engar siðferðilegar viðmiðanir í alþjóðlegum samskiptum.
En ætlum við að halda áfram að þegja um fjöldamorðin gegn minnihlutahópum í Sýrlandi og sýna sama siðferðilega aumingjaskapinn og Donald Trum.
14.5.2025 | 07:55
Berufsverbot
Starfsbann (Berufsverbot) hét það hjá þýsku nasistunum þegar pólitískir andstæðingar voru reknir úr störfum sínum og fengu ekki að vinna vegna skoðana sinna. Nú hefur dómsmálaráðherra vikið vaskasta lögreglustjóra landsins Úlfari Lúðvíkssyni úr embætti vegna skoðana sinna og framgöngu við að stemma stigu við komu hælisleitenda til landsins þó annað sé látið í veðri vaka.
Um þetta skrifar Hjörtur J Guðmundsson athyglisverðan pistil, sem ég leyfi mér að endurrita hér:
"Fyrirvaralaust var Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, boðaður á fund Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra og þingmanns Viðreisnar, í fyrradag þar sem honum var tilkynnt að ráðningarsamningur við hann yrði ekki endurnýjaður þegar hann rynni út í haust og að embættið yrði auglýst til umsóknar. Úlfari var ekki greint frá því fyrir fundinn hvert tilefni hans væri. Haft var eftir ráðherranum í fjölmiðlum að ákvörðunin hefði verið pólitísks eðlis.
Fyrirhugaðar eru töluverðar breytingar á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum sem eru í samræmi við áherslur nýrrar ríkisstjórnar um verulega aukinn þunga í landamærapólitík. Það liggur fyrir að ég mun leggja fram frumvarp í haust um brottfararstöð. Það eru sömuleiðis fyrirhugaðar breytingar um það að flytja komustöð svokallaða til Suðurnesja. Samhliða því að það er verið að skoða alvarlega að flytja ákveðin verkefni frá Ríkislögreglustjóra til lögreglustjórans.
Með þessum hætti rökstuddi Þorbjörg ákvörðun sína um að segja Úlfari upp störfum í samtali við Vísi í gær sem er áhugavert í ljósi þess að hann hefur sjálfur ítrekað kallað eftir því í fjölmiðlum að stjórnvöld tækju landamæraeftirlitið fastari tökum og bent á brotalamir í þeim efnum.
Bæði í tíð núverandi og síðustu ríkisstjórnar. Þá hefur ítrekað verið fjallað í fjölmiðlum um aukinn árangur lögreglunnar á Suðurnesjum til að mynda varðandi brottvísun erlendra afbrotamanna. Fyrir vikið hefði mátt ætla að áframhaldandi störf Úlfars féllu einkar vel að áðurnefndum áherzlum dómsmálaráðherra og þær þar af leiðandi miklu fremur rök fyrir því að endurnýja ráðningarsamning hans frekar en að segja honum upp.
Hins vegar hefur Úlfar einnig bent á ýmsar brotalamir varðandu aðild Íslands að Schengen-svæðinu. Sú gagnrýni fellur vitanlega illa að stefnu Viðreisnar um að gengið verði í Evrópusambandið en eins og ráðherrann sagði var ákvörðunin pólitísk.
Fyrir skömmu ritaði Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, grein í Morgunblaðið þar sem hann gagnrýndi aðildina að Schengen-svæðinu og vitnaði í nýleg ummæli Úlfars í Dagmálum um stöðu mála á landamærunum að öðrum ríkjum þess. Meðal annars hafði Guðni eftir honum að stjórnvöld yrðu að vakna í þessum efnum.
Viðtalið við lögreglustjórann er nánast samfellt neyðaróp. Ákall til stjórnmálamanna um að grípa í taumana, sagði hann enn fremur. Ég skora á dómsmálaráðherra að skoða þá fullyrðingu Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra að herða verði löggjöfina á landamærum, sagði Guðni áfram.
Þorbjörg svaraði á síðum Morgunblaðsins og sagði áhyggjur Guðna ástæðulausar. Taldi hún síðan upp mál sem hún væri með í gangi en áttu það flest sameiginlegt að hafa átt upphaf sitt í tíð forvera hennar. Til að mynda brottfararstöð og hælissvipting vegna alvarlegra afbrota. Réttum tveimur vikum síðar rak hún Úlfar."
Ljóst er að skoðanir Úlfars og dugnaður við að hafa stjórn á landamærunum féllu ekki að skoðunum dómsmálaráðherra og stefnu ríkisstjórnarinnar. Þess vegna varð Úlfar að víkja vegna skoðana sinna og það þrátt fyrir að hafa staðið sig frábærlega vel í starfi. Svona stjórnsýsla eins og dómsmálaráðherra sýnir er fordæmanleg.
Ef til vill er það rétt sem hvíslað er um lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, að brotaþolar,sem verða fyrir ofbeldi m.a. af hálfu erlendra leigubifreiðastjóra fái mál sín ekki tekin fyrir af lögreglu. Er það hin nýja stefna sem dómsmálaráðherra vill leggja blessun sína yfir? Já og þeir sem eru ósammála og vilja vernda borgarana verði að víkja?
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.5.): 1151
- Sl. sólarhring: 1165
- Sl. viku: 5213
- Frá upphafi: 2534547
Annað
- Innlit í dag: 1081
- Innlit sl. viku: 4867
- Gestir í dag: 1048
- IP-tölur í dag: 980
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Arnar Freyr Reynisson
-
Ívar Pálsson
-
Guðmundur Karl Snæbjörnsson