Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2025

Fluga á vegg

Mikið væri gaman að vera fluga á vegg á leiðtogafundi NATO sem hefst í kvöld. Hvað skyldu þær eðalfraukur Þorgerður Katrín og Kristrún Frosta hafa að segja um heimsmálin?

Miðað við fyrri yfirlýsingar má ætla að þær láti Trump heyra það fyrir að ráðast á Íran og styðja Ísrael. Þær sögðu að með aðgerðum sínum væru Bandaríkin að hella olíu á eld og stigmagna átökin.  

Svo er Kaja Kallas, sem fer með utanríkismál Evrópusambandsins og áður forsætisráðherra Eistlands. Hún hefur heldur betur verið digurbarkaleg í yfirlýsingum gagnvart Bandaríkjunum og Ísrael og talað af svipuðum gapuxahætti og Þorgerður Katrín. 

Fróðlegt verður að fá fréttir af framgöngu þeirra þriggja á NATO fundinum.


Enn að fara í skóna

Á meðan Evrópuleiðtogar eru enn að velta fyrir sér hvort árás Bandaríkjanna á kjarnorkuvopnaverksmiðjur Írana hafi verið brot á alþjóðalögum er hernaðaraðgerðum lokið og komið á vopnahlé milli allra aðila. Snöfurmannlega gert hjá Trump.

Það var ánægjulegt að þetta skyldi gerast áður en að Þorgerður Katrín utanríkisráðherra náði að fara í fordæmingarskóna og gera Ísland að viðundri á alþjóðavettvangi einu sinni enn. 

Sama verður ekki sagt um Macron litla Frakklandsforseta, sem langar svo mikið til að verða forustumaður Evrópu og náði að fordæma Bandaríkin um það leyti sem vopnahlé komst á. Aðrir Evrópuleiðtogar voru á sama stað og Þorgerður utanríkis, ekki komnir í skóna þegar ófriðurinn var úti og sluppu því við að verða sér til sömu skammar og Macron. 

Nú verður fróðlegt að sjá hvað gerist á leiðtogafundi NATO á morgun.

Framkvæmdastjóri NATO hélt haus í þessum hremmingum og stóð með skynsemishyggju Bandaríkjanna og Ísrael í viðureigninni við hryðjuverkaríkið Íran. Hvað munu svo svefngenglarnir forustumenn Evrópu segja. Munu þeir flaðra upp um Trump og fagna viturlegum ákvörðunum eða munu þeir reyna að finna sér skotgrafir til að skríða niður í a la Macron.

Já og hvaða afstöðu tekur "langstórasta" landið í heiminum að mati Þogerðar Katrínar.

Hefur friðaraðgerð USA og Ísrael verið réttlætt að mati svefngenglanna?


Hvað veldur Kristrún og Þorgerður

Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með Kristrúnu Frosta forsætis- og Þorgerði Katrínu utanríkis-,frá því að þær tóku við ráðherradómi. Báðar hafa þær verið herskáar þegar stríðið milli Úkraínu og Rússa ber á góma og vilja refsa Rússum, senda hergögn og búnað til Úkraínu. Þegar Úkraínumenn leggj til atlögu innan Rússlands,fagna þær því og tala aldrei um, að það geti leitt til stigmögnunar stríðsins. Þær stöllur reyna umfram allt að spyrða sig saman við ráðherra Evrópusambandsins og vera meðal herskáustu þjóða Evrópu.

Þorgerður Katrín hefur verið með mikil undarlegheit gagnvart Ísrael og m.a. sakað Ísrael um þjóðarmorð þrátt fyrir að hún eigi að vita þó ekki væri nema menntunar sinnar vegna að svo er ekki, en þrátt fyrir það lét hún taka saman doðrant í utanríkisráðuneytinu til að styðja kröfu Suður Afríku um að Ísrael yrði sakfellt fyrir þjóðarmorð. Ekki gáfulegt það og fjarri því að vera gott innlegg gagnvart bestu vinaþjóð okkar. 

Þegar gripið er til varnaraðgerða gagnvart hættulegasta ríki og ríkisstjórn heims, Íran,þá vara þær Þorgerður og Katrín við stigmögnun stríðsins og krefjast samninga við Írani þrátt fyrir að þeim sé báðum ljóst að Íransstjórn er sönn að sök um að hafa svikið og logið við samningaborðið í rúman áratug. Var þá ekki eðlilegra að lýsa yfir stuðningi við réttmætar varnaraðgerðir Ísrael og Bandaríkjanna til að koma í veg fyrir frekari hryðjuverkaárásir þessa þursaríkis. Nei það datt þeim ekki í hug.

Furðulegt að það skuli hafa farið framhjá þessum konum, að besti bandamaður sem Ísland á og hefur átt frá lýðveldisstofnun eru Bandaríkin. Okkar hagsmunir felast í því að vera í sem bestum tengslum við þau og fráleitt að utanríkis- og forsætisráðherrar skuli ekki lýsa yfir óskilyrtum stuðningi við réttmætar hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. 

Þjónkun við Evrópusambandið glepur. Þær vilja samsama sig með þeim aumingjadómi og úrræðaleysi, sem þar viðgengst. Vafalaust finnst þeim gaman að sitja með strákunum í Brussel á endalausum fundum um ekki neitt.

Er ekki kominn tími til að þær Kristrún og Þorgerður marki utanríkisstefnu í samræmi við hagsmuni Íslands, en láti skálaglamrið í Brussel lönd og leið. Þar er hvort eð er engin sem mundi koma okkur til hjálpar ef á okkur yrði ráðist.    


Trump er ekki pappírstígrisdýr

Margur hélt, að Trump Bandaríkjaforseti mundi ekkert gera gegn Íran þ.á.m.Ingibjörg S, Gísladóttir fv.utanríkisráðherra, sem sagðist ekki búast við að USA mundi blanda sér í ófriðinn við Íran í fréttum RÚV, á sama tíma og sprengjuflugvélar USA hófu loftárásir á kjarnorkuinnviði Íran.

Ógnarstjórn klerkanna í Íran hefur gengist fyrir hryðjuverkum víða um heim og ítrekað talað um að útrýma Ísrael o.fl. Þeir halda úti hryðjuverkasamtökum hverra mikilvirkastir eru Hamas,Hesbollah og Hútar. Ráðamenn hins vestræna heims og fleiri sögðu að koma yrði í veg fyrir það með öllum ráðum, að Íranir kæmu sér upp kjarnorkuvopnum. 

Endalausir fundir og samningaviðræður Bandaríkjanna og ES o.fl. við öfgastjórnina í Íran skiluðu litlu og síðar kom í ljós, að það litla sveik klerkastjórnin áður en blekið þornaði. Íranir héldu ótrauðir áfram við að koma sér upp kjarnorkuvopnum til þess m.a.að útrýma Ísraelsmönnum og væntanlega líka stóra Satan, Bandaríkjunum. Það átt því öllum að vera löngu ljót, að það var ekki hægt að semja við öfgamennina í Quom sem stjórnast af guðlegu innsæi að eigi mati. 

Ísrael átti því ekki um annað að velja en að ráðast gegn þeim sem ógnuðu tilveru þeirra. Sem betur fer hafa Bandaríkin nú séð, að þau eiga ekki heldur annars úrkosta en að láta kné fylgja kviði og koma í veg fyrir þá vá, að öfga- hryðjuverka- og ofbeldisstjórn klerkana í Quom í Íran hafi yfir gjöreyðingar vopnum að ráða.

Vonandi tekst að eyðileggja kjarnorkuvopnauppbyggingu Íran og koma því til leiðar, að frjálshuga lýðræðisöfl nái völdum í Íran og steypi ofstækinu af stóli, sem hefur myrt Íranskan almenning í stórum stíl fyrir að hafa aðrar trúarskoðanir hvað þá konur fyrir að leyfa sér þá ósvinnu að láta sjást í hárið. Eðlilegt að vinstra fólk í  Evrópu sýni samstöðu með þessum öfgum og afturhaldi. 

Illt skal með illu út reka og fyrir frjálshuga lýðræðisríki er ekkert annað að gera. Það er þeim til skammar að hafa ekki verið á undan Ísrael að uppræta ógnarstjórnina sem allri heimsbyggðinni stafar hætta frá. 

 


Palladómar pistlahöfundarins

Kolbrún Berþórsdóttir skrifar iðulega ágæta pistla. Stundum bera fyrirframskoðanir hennar eða tilraunir til að halda sig á kratískri línu með "góða fólkinu" þó ágætið ofurliði eins og sést í pistli hennar í Mbl.

Þar fjallar hún réttilega um ofstæki og ofbeldi fámenns hóps Palestínuvina, sem hikar ekki við að vanvirða þjóðhátíðardaginn með hrópum og köllum.

Eftir að hafa sagt sannleikann um Palestínuvinina, þurfti pistlahöfundur að sýna jafnvægislist kratískrar meðalmennsku og vísaði þá til hópsins "Þvert á flokka". Í tilraun til að viðhalda trúnaði "góða fólksins" skjöplast pistlahöfundinum svo alvarlega að hún verður viðskila við sannleikann og dregur ályktanir á röngum forsendum. 

Í fyrsta lagi segir hún að fámennur hópur hafi verið á Austurvelli þegar mótmælafundur "Þvert á flokka" var að byrja. Þetta er rangt mótmælafundurinn var vel heppnaður og meira fjölmenni á fundinum en almennt á mótmælafundum á Austurvelli og tíu sinnum fleiri en á fundum Palestínuvina.

Í annan stað að hópurinn segi ranglega,að meirihluti þjóðarinnar fylgi okkur. Í þessu tilviki vill svo vel til að tvær nýlegar skoðanakannanir sýna yfirgnæfandi meirihluta við þau sjónarmið, sem samtökin "Þvert á flokka" berjast fyrir. 

Þá heldur hún því fram að þessi hópur segi að landamærin séu galopin, en svo sé vitanlega ekki. Nú vill svo til að ég var ræðumaður á þessum útifundi þar sem mér sýndist yfir 1000 manns vera mætt og talaði um að öflugur lögreglustjóri á Suðurnesjum hefði tryggt landamæragæslu tímabundið og þessvegna hefði hann þurft að taka pokann sinn. Staðhæfing pistlahöfundar er röng. En við viljum mun öflugri landamæragæslu sem er annað mál.

Þá heldur pistlahöfundur því fram að okkur sé sérstaklega uppsigað við múslima. Þetta er líka rangt. Okkur er ekki uppsigað við múslima. Hins vegar verður að segja sannleikann um landnám þeirra í Evrópu og hvaða vandamál fylgja. 

Samtökin þvert á flokka berjast fyrir varðveislu íslenskrar tungu og menningar og vilja m.a. herta landamæragæslu til að þeim meginmarkmiðum verði náð. Við mætum með íslenska fánann á fundi,sem gunnfána fyrir þær hugsjónir sem við berjumst fyrir. Þær eru ekki rasískar, þær tengjast ekki litharhætti eða trúarbrögðum. Í hverju fellst þá ofstækið sem pistlahöfundurinn bregður okkur um? Raunin er að það er ekki til staðar heldur eðlileg málefnaleg þjóðfélagsbarátta.

Ég get verið sammála pistlahöfundi um, að það sé óráð að kæra utanríkisráðherra fyrir landráð. Það var verulega misráðið, en því fer fjarri, að það fólk sem að því stendur sé ofstækisfólk eðlilegra að kalla það einlæga þjóðvini, sem ég á fulla samstöðu með að öðru leyti en því að mér finnst misráðið að ætla að færa stjórnmálabaráttuna inn í réttarsali.  

 


Hinir áhrifalausu

Bandaríkjaforseti flaug heim í gær af fundi G7 ríkjanna, þar sem sitja forustumenn helstu Evrópuríkja og Kanada ásamt Bandaríkjunum með samtals um 780 milljónir íbúa. 

Fátt sýnir betur algert áhrifaleysi Evrópuríkjanna en þessi atburður. Bandaríkjaforseti taldi tíma sínum betur varið og líklegri til árangurs en að ráðslaga um mál við Evrópuleiðtoga. 

Evrópuríkin í Evrópusambandinu hafa undanfarin ár ráðslagast með kyn og loftslag, sem Trump afgreiddi snyrtilega í innsetningarræðu sinni, sagði að kynin væru tvö og meint hlýnun af mannavöldum væri ekki aðkallandi úrlausnarefni ef hún þá væri til staðar. 

Undanfarin ár hafa Hútar í Yemen að undirlagi Íranstjórnar stundað sjórán og ráðist á skip allra Evrópuþjóðanna sem sátu G7 fundinn. Ekkert þeirra hefur brugðist við enda heyir Íran málið ekki undir kyn eða loftslag. Þessi ríki hafa látið ræningjaflokka Húta og þursaveldi klerkana í Íran snýta sér algjörlega hvar sem á er litið og ekki var frammistaða Bandaríkjanna betri gegn þursaveldinu meðan þeir Obama og Biden fóru með völd. Þeir sendu flugvélahlaða af peningum til þursaveldisins sem útdeildi þeim til skæruliðasveita sinna Húta, Hamas og Hesbollah. 

Ekki skrýtið að komið sé svo fyrir Evrópu, að þangað sé ekki litið ef gera þarf eitthvað sem máli skiptir. Álfan er algjörlega forustulaus og tilraunir Macron Frakklandsforseta til að sýnast eitthvað eru í besta falli brjóstumkennanlegar.

Nú þegar Ísrael sýnir það þor, að ráðast gegn meinsemd þursaveldisins í Íran þora Evrópuríkin ekki einu sinni að bregðast við og lýsa yfir fullum stuðningi við aðgerðir þeirra og aðstoða þá á alla lund. Aumingjaskapurinn er því miður algjör. 

Ýmislegt bendir til þess að Trump hafi ákveðið að girða sig í brók í þessu máli og hefði það mátt fyrr vera en það er annað mál. 

Bandaríkin ættu nú að hafa forustu um að þursarnir í Íran verði hraktir frá völdum og hvetja bandamenn sína í Evrópu og víðar til að standa saman gegn hryðjuverkaríkinu og linna engu fyrr en þursarnir hafa verið hraktir frá völdum. 

Bandamenn í annarri heimstyrjöld kröfuðst skilyrðislausrar uppgjafar Þjóðverja og þess verður nú að krefjast af þursastjórnnni í Íran. Ísrael á ekki að þurfa að gera það sem frjálsar lýðræðisþjóðir hefðu átt að gera fyrir löngu. 

 

 

 


Kyn- og trúvillta kirkjan, kyrjar lofsöng um Allah

Nokkrum tíðindum þykir sæta, að í drögum að nýrri handbók íslensku þjóðkirkjunar er hún með öllu orðin kyn- og trúvillt. 

Hæstiréttur Bretlands komst að þeirri niðurstöðu að vandlega athuguðu máli, að kynin væru bara tvö í samræmi við líffræðilegar staðreyndir. Íslenska þjóðkirkjan er ósammála og vill samsama sig hugmyndafræði transfræðinnar. 

Geir Waage þjóðkirkjuprestur í Reykholti til margra ára gagnrýnir þetta réttilega og vísar m.a. í orð Jesú, en boðskapur hans virðist koma handbókarhöfundunum lítið við og verður að víkja fyrir woke og transfræðinni. Enda hefur biskup sagt í podkasti hjá Pax vobis að Jesús sé bara milliliður.

Hvernig samræmist það kenningunni um þríeinan Guð?

Það dugar því ekki að breyta handbókinni það verður líka að breyta trúarjátningunni til samræmis við trúarskoðanir biskups. Vafalaust verður það næst á dagskrá þegar búið er að brjóta niður ýmsar fleiri meginstoðir kristilegrar boðunar.

Svo kemur óskiljanleg og dragúldin rússína í pylsuendanum. Lofsöngur til Allah. Hvaða erindi á það inn í handbók þjóðkirkjunnar. Telur íslenska þjóðkirkjan sig geta samsamað sig með þeim trúarhópi sem um aldir og enn í dag herjar á kristna söfnuði og stefnir að algjörum yfirráðum m.a. undirokun allra kristinna.

Sé sú læpuskaps ódyggð ríkjandi meðal presta þjóðkirkjunnar að hún láti þetta yfir sig ganga þá er best að biðja Guð að hjálpa sér eins og sr. Sigvaldi sagði þegar fokið var í öll skjól. Þá er spurning hvort ekki sé best að yfirgefa fleyið áður en strandkapteinar hinnar nýju boðunar sigla skipinu í strand kyrjandi lofsöng um Allah.  

 


mbl.is Varar við boðun villutrúar biskups
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorir Evrópa að standa með Ísrael gegn Írönsku ógninni?

Enn einu sinni kemur smáríkið Ísrael á óvart vegna áræðis, hugrekkis og útsjónasemi við að verja tilveru sína.  Þeir eiga raunar engan annan valkost en að berjast fyrir tilveru sinni. 

Árásin á kjarnorku- og hernaðarmannvirki Írana var svipuð snilldar aðgerð hernaðarlega og loftárásir Ísrael á Egyptaland, Sýrland og Jórdaníu við upphaf 6 daga stríðsins 1967 þegar flugfloti þessara ríkja var algjörlega eyðilagður. 

Árásin er í ætt við þegar Ísrael eyddi kjarnorkuuppbyggingu Saddam Hussein í Írak og Assads í Sýrlandi,þessi ríki höfðu lýst yfir gjöreyðingu Ísrael eins og Íran. 

Þegar Ísrael gerði að engu kjarnorkuáform einræðisherrana Saddam Hussein og Assads, fagnaði allur hinn vestræni heimur. NATO ríkin og fleiri lýstu stuðningi. 

Hvað nú. Hafa Vesturlönd döngun vit og áræði til að styðja Ísrael. Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir. Sama verður lesið út úr yfirlýsingum forsætisráðherra Þýskalands og framkvæmdastjóra NATO en vinstri maðurinn Keir Starmer forsætisráðherra Breta höktir í tómarúmi vesalmennskunar. 

Hvað með yfirlýsingaglaða utanríkisráðherrann og íslensku ríkisstjórnina. Munu þau samsama sig með öfgavinstri stjórnum Evrópu t.d.Noregi og Írlandi eða sýna hugdirfð og standa með eina lýðræðisríkinu fyrir botni Miðjarðarhafs og taka undir með frkv.stj. NATO,Bandaríkjaforseta og forsætisráðherra Þýskalands og styðja aðgerðir Ísrael til að verja sig og Íran hafi verið raunveruleg ógn, sem  braut alla samninga og alþjóðareglur við tilraunir til að koma sér upp kjarnorkuvopnum.


mbl.is Ísrael og Íran: Hvað vitum við?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loftslagsráðherrar

Loftslagsspekúlantar Norðurlanda komu saman í gær og líffræðingurinn sem er eins konar loftslagsráðherra Veðurstofunar og þó víðar væri leitað. Sagði það niðurstöðu sína og vina sinna, að vegna þess að hitabylgja hefði verið á Íslandi í maí yrði hitabylgja í júlí nánast óbærileg þar sem hiti gæti farið yfir 30 gráður. 

Þessi hópur sanntrúaðra ríkisstyrktra embættismanna vill í þessu sambandi vegna loftslagsvárinnar í júlí n.k. leggja sérstakar byrðar á almenning í landinu á þeim forsendum, að fólki líði best þegar það er skattlagt úr öllu hófi, svo elíta vanhæfra embættismanna hafi úr meiru að moða til að kaupa meira trjákurl og henda í sjóinn og annað því líkt. 

Einhvern veginn af óskiljanlegum ástæðum hefur það farið fram hjá þessum loftslagssnillingum að fyrstu 10 dagar júní eru 3 gráðum kaldari en meðaltalstölur síðustu 30 ára. Vafalaust mætti finna það út með sömu skarpskyggni og einkennir loftslagssérfræðinganna, að þetta þýði að kuldabylgja sem gæti verið í október mundi vera hrikalega köld jafnvel 20 stiga frost. 

Eða gilda sitthvor vísindin þegar talað er um hitabylgju eða kuldabylgju. 

Svo bætti það nú heldur betur gráu ofan á svart að strandkapteinninn Katrín Jakobsdóttir skuli hafa verið dregin á flot. Ekki af Davos eins og búast hefði mátt við heldur af WHO þeirri gjörspilltu stofnun Sameinuðu þjóðanna, sem hefur kostaði heimsbyggðina á aðra trilljón bara út af Kóvíd. Þar ætlar Katrín að hamast að almenningi með kröfum um aukna skattheimtu vegna þess hve heitt er á norðurhveli og að sjálfsögðu skýrslugerð um afleiðingar þess hræðilega hita sem við höfum þurft að búa við undanfarin ár vegna hnattrænnar hlýnunar af mannavöldum. 

Ja sér er nú hver sköpin sagði kellingin þegar hún spýtti tóbaksrullunni út úr sér eftir að hafa hlustað á Sölva Helgason segja frá því hvernig hægt væri að reikna barn í konu. 


Sagan kennir mér að átta mig á framtíðinni.

Gildi söguþekkingar fyrir stjórnmálamenn var viðurkennd á árum áður m.a. mótuðu þeir Winston Churchill forsætisráðherra Breta og Franklin Delano Roosevelt Bandaríkjaforseti mikilvæga framtíðarsýn m.a. með Atlantshafssáttmálanum 1942, þegar grimmilegt heimsstríð var í algleymingi.

Þeir höfðu þekkingu og framtíðarsýn. Þeir vissu, að það þurfti að uppræta óargadýr nasismanns og fasismanns ekkert minna var í boði hvað svo sem það kostaði í mannfórnum og hörmungum almennra borgara. Hið illa varð ekki þá frekar en nú með öðru en illu út að rekið.

Söguleg vanþekking, rangfærslur og lygi einkennir mikið af umræðunni um átök varnarsveita Ísrael.

Frá því að Sameinuðu þjóðirnar samþykktu sjálfstætt þjóðríki, Ísrael 14. maí 1948 ekki síst vegna snöfurmannlegrar framgöngu sendiherra Íslands, Thor Thors. Réðust Egyptaland, Jórdanía, Sýrland og Írak inn í Ísrael daginn eftir í þeim tilgangi að eyða Ísrael. Drepa átti alla Gyðinga sem ekki legðu á flótta.

Vestubakkinn svonefndur var aldrei tekinn af Palestínumönnum, hann var hluti Jórdaníu þangað til í 6.daga stríðinu 1967 þegar Jórdanir ásamt Egyptum og Sýrlendingum reyndu enn að útrýma Ísrael og Gyðingum.

Með Oslóarsamkomulaginu 1990 var Palestínumönnum boðið frjálst ríki og fullveldi, en í kjölfarið fylgdu gríðarlegar hryðjuverkaárásir m.a. sjálfsmorðssprengingar víða um Ísrael sem kostuðu fjölda Ísraelsmenn lífið og kom í veg fyrir að Oslóarsamkomulagið næði fram.

Árið 2000 var Palestínumönnum boðið það sama í Camp David og 96% af Vesturbakkanum en þeir höfnuðu því.

Árið 2008 bauð þáverandi forsætisráðherra Ísrael Ehud Olmert Palestínumönnum 94% af Vesturbakkanum, Austur Jerúsalem sem höfuðborg Palestínu og að gamli bærinn í Jerúsalem yrði undir alþjóðlegri stjórn. Því hafnaði Abbas leiðtogi Palestínumanna.

Eina skilyrði Ísraelsmanna í öllum þessum tilvikum var að Palestínumenn viðurkenndu Ísrael og gerður yrði friðar og vináttusamningur milli ríkjanna sem aðilar skuldbindu sig til að fylgja. Það hafa Palestínumenn aldrei verið tilbúnir að gera. Af hverju?

Af því að tilvera Ísrael er þeim þyrnir í augum. Þeir vilja ekki ríki við hlið Ísrael þeir vilja ríki án Ísrael. Meðan svo er eru engar forsendur til að semja um tveggja ríkja lausn. Hún gengur ekki upp nema öryggi fólks í báðum ríkjum sé tryggt og aðilar virði tilverurétt hvors annars.

Ef farið væri að kröfum utanríkisráðherra Íslands, varðandi tveggja ríkja lausn mundi það land sem helmingur Ísraelsbúa eiga heima vera 15 km. breitt, á svæði sem mikilvægustu innviðir Ísrael eru, m.a. Tel Aviv og Ben Gurion flugvöllurinn. Það gengur aldrei upp og var viðurkennt í Osló,Camp David og tilboði Ehud Olmert. En samt hamast Þorgerður.

Eftir hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7.október 2023 með fjöldamorðum, nauðgunum, gíslatökum, þar sem ungabörn voru steikt lifandi áður en foreldrar þeirra voru drepin. Konu var hópnauðgað og drepin og líki hennar ekið um götur í Gasa þar sem lýðurinn svívirti lík hennar og hrækti á það. Hún hafði það eitt til saka unnið að tilheyra ákveðnum kynþætti.

Samt tala vestrænir fjölmiðlar ekki um kynþáttahatur eða þann skefjalausa ógeðslega rasisma, sem tilveruréttur Hamas byggir á. Það fólk sem veifar Hams fánanum ætti að athuga að með því er það að gerast talsmenn kynþáttahaturs,skefjalausasta rasisma í heiminum þar sem stefna Hamas er að drepa alla Gyðinga hvar svo sem þeir finnast.

Leiðtogi Palestínu Mahmoud Abbas er óhæfur gjörspilltur leiðtogi. Hann var kosinn til fjögurra ára fyrir 20 árum. Engar kosningar hafa verið í Palestínu síðan 2005. Abbas hefur það helst til frægðar unnið að hafa prófgráðu frá Moskvuháskóla, í endurskoðun á helförinni. Ríkisstjórn hans greiðir bætur til fjölskyldna hryðjuverkamanna. Þeim mun hærri eftir því sem hryðjuverkin kosta fleiri Gyðinga lífið.

Þegar Ísrael yfirgaf Gasa árið 2005, án skilyrða, taldi Ariel Sharon og ríkisstjórn hans að alþjóðasamfélagið mundi fordæma hverja árás Gasa búa á Ísrael og bregðast við. Þar skjátlaðist hinum aldna hershöfðingja illilega. Strax og Gaza búar voru frjálsir, hóf Hamas sem tók alla stjórn á Gasa að skjóta flugskeytum á Ísrael og senda konur og börn til að fremja hryðjuverk í Ísrael þangað til Ísrael lokaði landamærunum.

Gasa búar áttu alla möguleika á því að byggja upp nútíma ríki með frjálsum viðskiptum og nýsköpun. En þeir ákváðu að halda áfram að hata Ísrael og skipuleggja gjöreyðingu Gyðinga. Gasa búar fá stóran hluta flóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna, en þeir teljast hafa verið „flóttamenn“ frá 1948 eða í 77 ár.

Þegar Al Kaída illyrminn frá Sádi Arabíu flugu á tvíburaturnana í New York o.fl byggingar í Bandaríkjunum var þjóðhátíð á Gasa og hryðjuverkunum fagnað.

Tveggja ríkja lausn býður ekki upp á frið og öryggi í þessum heimshluta í dag því miður, heldur þvert á móti. Þorgerður Katrín og vinstri sinnuðustu ríkisstjórnir Evrópu spyrja „Hvað í ósköpunum ætti svo sem að fara úrskeiðis,“ þegar þeir bera fram tveggja ríkja lausnina. Barnaskapur af sama tagi og þau sýna færist því miður í aukanna eftir því sem sögulausum stjórnmálamönnum á vinstri kantinum fjölgar.

Það er líka auðveldara að hætta lífi barna annarra en sínum eigin þegar dyggðaflöggun friðarins er dregin upp úr pússi utanríkisráðherra Íslands.

Ísraelsmenn eiga í stríði sem þeir hvorki hófu né vildu. Stríð er algjör viðbjóður og helvíti og verst þegar vígamenn fela sig bak við almenna borgara og hafa stjórnstöðvar undir skólum, barnaleikvöllum og sjúkrahúsum eins og Hamas gerir og hafast við í undirgöngum sem eru lengri en neðanjarðarlestarkerfi Lundúna.

Það hefur alltaf legið fyrir að stríðinu á Gasa lýkur sama dag og gíslum Hamas er skilað og aðrir taka við stjórn Gasa en hryðjuverkasveitir Hamas. Allt tal um þjóðarmorð eins og íslenski utanríkisráðherrann hefur ítrekað sakað varnarsveitir Ísrael um er því fáránleiki.

Ísrael varar fólk á Gasa við væntanlegum árásum, flytur borgara frá hættusvæðum og nú streymir aðstoð og vistir frá Ísrael til íbúa Gasa en ekki Hamas eins og það var meðan Sameinuðu þjóðirnar sáu um þessa neyðaraðstoð. Þá stálu Hamas liðar neyðaraðstoðinni og seldu íbúum Gasa á uppsprengdu verði til að geta haldið úti hernaðinum gegn Ísrael og borgað hermönnum Hamas.

Aðstoð eins og sú sem Gasa búum er veitt var ekki í boði fyrir íbúa Þýskalands þegar herir bandarmanna sóttu þar inn í síðara heimstríði. Þá datt engum skynsömum stjórnmálamanni í hug að tala um þjóðarmorð og hinir sem höfðu verið aftar á bekknum þegar drottinn útdeildi gáfunum datt það ekki heldur í hug ólíkt þeim stjórnmálamönnum í dag, sem á aftasta bekknum sátu og tala af algjöru þekkingaleysi um þjóðarmorð á Gasa.

Vandamálið sem við er að eiga í dag og allt frá 1948 þegar Ísraelsríki var stofnað er tilveruréttur lands Gyðinga í Ísrael. Meðan Palestínumenn viðurkenna ekki tilverurétt Ísrael og Gyðinga, þá eiga Ísraelsmenn ekki annan valkost en að berjast til sigurs á Gasa, á Vesturbakkanum á landamærum Sýrlands og Líbanon og við Húti hryðjuverkamennina í Yemen þar sem fjöldi barna deyr úr sulti daglega ólíkt því sem er á Gasa.

Allir þessir aðilar heimta fullan sigur og útrýmingu Gyðinga í Ísrael. Ísrael á því ekki annan valkost en að útrýma hinu illa hvað sem það kostar eins og nasismanum og fasismanum var útrýmt árið 1945. Við eigum að standa með þessu eina lýðræðisríki fyrir botni Miðjarðarhafs í þeirri frelisbaráttu.

Það er ekki hægt annað en að fordæma sögulausa,lýðsleikju stjórnmálamenn eins og Þorgerði Katrínu, Kristrúnu Frostadóttur og Ingu Sæland, sem taka sér stöðu með hryðjuverkasamtökum í beinni andstöðu við söguleg rök, rökræna framtíðarsýn, frið og skynsemi og viðhafa orðfæri sem eru fráleit og lögfræðingurinn í hópnum ætti að vita betur, en hún fer samt fram sem dólgslegast.

Það eru aumir leiðtogar sem láta berast með straumi lygafrétta og sögufalsana og rísa ekki upp til að bera sannleikanum vitni jafnvel þó það kosti nokkur skálaboð með vinstri elítunni í Brussel, Osló og Madrid.


Næsta síða »

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 335
  • Sl. sólarhring: 794
  • Sl. viku: 4459
  • Frá upphafi: 2554258

Annað

  • Innlit í dag: 322
  • Innlit sl. viku: 4177
  • Gestir í dag: 314
  • IP-tölur í dag: 311

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband