Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Evrópumál

Hefđu Írar valiđ ţađ sama og Ísland vćru ţeir ekki í vanda

Írar sćkja um billjón Evra neyđarađstođ frá Evrópusambandinu og Alţjóđagjaldeyrissjóđnum vegna ţess ađ ţeir tóku ábyrgđ á írskum bönkum í lok september 2008.

Margir íslenskir hagfrćđingar og háskólaprófessorar vildu haustiđ 2008 ađ viđ fćrum sömu leiđ og Írar og láta skattgreiđendur ábyrgjast bankanna. Hefđi veriđ fariđ ađ ţeirra ráđum vćru skuldir íslenska ríkisins um 8.000 milljörđum meiri en hún er í dag. Ísland vćri  gjaldţrota.

Ísland valdi skynsamlegustu leiđina ţegar bankarnir riđuđu til falls. Viđ settum neyđarlög og höfnuđum ţeirri leiđ ađ láta skattagreiđendur bera ábyrgđ á bönkunum.

Í hinni makalausu skýrslu Rannsóknarnefndar Alţingis er ţess ekki getiđ ađ ţeir sem héldu um stjórnvölin á ţessum tíma á Íslandi forsćtisráđherra, seđlabankastjórar og stjórn og framkvćmdastjóri FME skuli hafa beitt vitrćnustu viđbrögđum viđ bankakreppunni haustiđ 2008. Ţess í stađ er hamrađ á aukaatriđum. Ţeir sem gegndu fyrrnefndum embćttum eru ómaklega bornir sökum á forsendum baunatalningar. Sé máliđ skođađ í heild ţá er meginniđurstađa Rannsóknarnefndar Alţingis um viđbrögđ stjórnvalda viđ bankakreppunni röng. Ţađ sýnir sig nú.

Stađreyndin er sú ađ forustumenn í íslenskum efnahagsmálum haustiđ 2008 stýrđu ţjóđarskútunni betur en ađrir forustumenn í heiminum ţar sem eins háttađi til varđandi bankakreppur.

Ţađ er til marks um lánleysi íslensku ţjóđarinnar ađ hún skuli hafa flćmt alla ţá úr embćtti sem stýrđu ţjóđinni giftusamlega frá ţeim mistökum sem opinberuđ hafa veriđ í Írlandi. Ţau mistök  eiga eftir ađ koma betur í ljós og bitna hart á skattgreiđendum  í Bretlandi og Bandaríkjunum. 

Ţá er ţađ einstakt međal siđađra ţjóđa ađ forsćtisráđherra sem stýrđi ţjóđinni ţegar réttar ákvarđanir voru teknar  á erfiđustu tímum hennar, skuli nú sitja á sakamannabekk fyrir tilstuđlan meiri hluta Alţingis. 

 


Sviss vill ekki ganga í EES. Af hverju?

Svisslendingar tóku skynsamlegustu ákvörđun ţeirra ţjóđa sem vildu eiga gott samband og samstarf viđ Evrópusambandiđ en voru ekki tilbúin ađ ganga í Evrópusambandiđ.  Ţeir gerđu tvíhliđa samning viđ Evrópusambandiđ á međan viđ gengum í EES

EES var í raun ekki hugsađ til annars en ađ vera undirbúningferli fyrir fulla ađild ađ Evrópusambandinu. Öll ríkin sem mynduđu EES međ okkur hafa gengiđ í Evópusambandiđ ţannig ađ bara viđ Norđmenn og Lichtenstein erum eftir.  Á sínum tíma skrifađi hiđ virta rit "The Economist" um EES sem fordyri Evrópusambandsins og sagđi eitthvađ á ţá leiđ ađ ţađ ţjónađi í sjálfu sér engum tilgangi ađ fara í EES nema fyrir ţjóđir sem ćtluđu ađ ganga síđar eđa fljótlega í Evrópusambandiđ.

Međ ţví ađ ganga í EES ţá samţykktum viđ ađ framselja verulegan hluta fullveldis okkar m.a. hluta löggjafarvaldsins í raun.  Viđ féllumst m.a. á opinn vinnumarkađ sem varđ til ţess ađ magna upp spennuna á árunum 2005-2008 og valda síđari tíma atvinnuleysi og dýpka kreppuna meir en ella hefđi veriđ. Öllum ađvörunarorđum varđandi innflutnings ţúsunda erlendra starfsmanna var vísađ frá sem röngum og jafnvel rasískum eins gáfulegt og ţađ nú var.

Ţví miđur tókum viđ ekki ţann kost sem Svisslendingar tóku ađ gera tvíhliđa samning viđ Evrópusambandiđ, en ţađ hefđi haft verulega kosti í för međ sér fyrir okkur, hefđum viđ fariđ ađ dćmi Svisslendinga.  

http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2010/08/19/svisslendingar_vilja_ekki_adild_ad_ees/

 


« Fyrri síđa

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 128
  • Sl. sólarhring: 183
  • Sl. viku: 3568
  • Frá upphafi: 2547664

Annađ

  • Innlit í dag: 115
  • Innlit sl. viku: 3312
  • Gestir í dag: 103
  • IP-tölur í dag: 103

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband