Færsluflokkur: Dægurmál
13.5.2012 | 23:09
7000 ár að borga skuldirnar
Álftanes er ekki eina sveitarfélagið í heiminum þar sem meiri hluti sveitarstjórnar skuldsetti sig umfram heilbrigða skynsemi.
Í spænska þorpinu Pioz skammt frá Madrid þar sem búa 3.800 skuldsetti sveitarstjórnin sig svo mjög, að miðað við tekjur sveitarfélagsins þá tekur 7.000 ár að borga skuldirnar til baka.
Sveitarstjórnin í Pioz tók lán til að byggja og kauaa íbúðir, vatnshreinsunarstöð og sundlaug með flottum vatnsrennibrautum fyrir hálfan milljarð. Nú er búið að loka sundlauginni af því að það er of dýrt að reka hana. Hætt er að lagfæra vegi og byggingar. Rafmagn er í 12 klukkustundir á sólarhring. Það virðist erfiðara á Spáni að velta óráðssíu við stjórn sveitarfélaga yfir á aðra, en hér á landi.
En hvernig bregðast ofurskuldug sveitarfélög við hér? Er beitt einhverjum aðhaldsaðgerðum - ef svo er þá hverjum?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.4.2012 | 18:19
Hvað er íslensk gestrisni?
Hópur fólks sem telur til eignarráða yfir Kerinu í Grímsnesi meinaði forsætisráðherra Kína að skoða þetta sérstaka náttúrufyrirbrigði. Ástæðuna segir fólkið vera að þeim líki hvorki við stefnu stjórnvalda í Kína eða á Íslandi.
Ég get tekið undir athugasemdir landeiganda við Kerið í Grímsnesi varðandi þessi stjórnvöld. Það að úthýsa gestum er hins vegar annað. Það finnst mér vera argasti dónaskapur.
Í minni sveit var alltaf talað um að taka vel á móti gestum óháð því hvort manni líkaði við þá eða ekki. Um árabil fóru frambjóðendur til Alþingis um héruð og ræddu við kjósendur og fengu fæði og húsaskjól jafnvel hjá pólitískum andstæðingum. Það var eitt af því sem gerði Ísland og íslendinga svo sjarmerandi svo notuð sé alkunn sletta.
Það gengur ekki að fólk fari að eins og hópurinn sem meinar forsætisráðherra Kína að skoða landið. Þessi merkilegi stjórnmálamaður, hvort heldur landeigendum í Grímsnesi líkar betur eða verr, er gestur íslensku þjóðarinnar og við eigum að sýna honum helstu náttúruminjar og fræða hann um land og þjóð eins vel og við getum. Það er íslensk gestrisni.
Þessu uppákoma leiðir til þess að taka verður aðgengi að helstu ferðamannastöðum til umræðu. Það gengur ekki að hópur fólks geti meinað sumum aðgang en leyft öðrum þegar um náttúruminjar er að ræða sem með réttu eru eign íslensku þjóðarinnar.
12.4.2012 | 13:01
Er það svo Össur?
Fyrir Efta dómstólnum er rekið dómsmál sem Eftirlitsstofnun Efta rekur gegn Íslandi, vegna ágreinings um túlkun á reglum um innistæðutryggingar. Málatilbúnaður Eftirlitsstofnunarinnar er í samræmi við málatilbúnað ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu allt til þess tíma að þjóðin hafnaði Icesave samningunum í annað sinn í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að taka þátt í málarekstri Eftirlitsstofnunarinnar fyrir Efta dómstólnum. Þau afskipti voru fyrirséð miðað við túlkun framkvæmdastjórnarinnar á reglum um innistæðutryggingar og ættu ekki að koma neinum á óvart. Þessi afstaða framkvæmdastjórnarinnar segir ekkert annað en vitað hefur verið um túlkun hennar á reglunum.
Þrátt fyrir það segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra að þetta sýni veikleika kröfugerðar Eftirlitsstofnunar Efta gagnvart Íslandi. Þessi ummæli utanríkisráðherra eiga því miður ekki við nokkur rök að styðjast en hann kýs í þessu máli eins og svo mörgum öðrum að veifa frekar röngu tré en öngvu.
Sama marki eru brennd ummæli innanríkisráðherra um ósvífni í garð íslendinga og ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins að verið sé að sýna íslendingum hver ræður.
Því má ekki gleyma að það er verið að tala um dómsmál. Ef afstaða ríkislögmanns Íslands til ýmissa ágreiningsmála fengju svipapa umfjöllun, þá yrði sá góði maður sakaður daglega um að sýna öryrkjum fulla fjandsemi og þeim sem krefja ríkið um bætur, að ríkið sé að sýna hver ráði bara með því að láta reyna á hvað sé rétt túlkun á lögum fyrir dómi.
Því miður sagði ríkisstjórn Íslands ekki af sér eins og henni bar að réttu lagi að gera eftir niðurstöðu úr Icesave kosningunni síðari. Ríkisstjórnin sem hélt uppi svipuðum málatilbúnaði í Icesave málinu og Eftirlitsstofnun Efta gerir nú fyrir Efta dómstólnum, taldi eftir það sem á undan er gengið rétt að hún stæði fyrir málsvörn Íslands í málinu.
Sá málatilbúnaður og afstaða sýnir bæði veikleika, ósvífni og hroka viti firrtrar ríkisstjórnar í þessu máli. Það er höfuðatriðið.
Getur einhver búist við að þessi ríkisstjórn geti eftir það sem á undan er gengið haldið uppi vitlegum málatilbúnaði og málsvörn fyrir Efta dómstólnum í málinu?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.3.2012 | 08:47
Samfylkingin svíkur.
Eitt helsta kosningaloforð Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar var að innkalla allar aflaheimildir með svonefndri fyrningarleið. Innkalla átti 5% árlega. Framboðshetjur Samfylkingarinnar riðu um héruð og fóru mikinn. Jóhanna Sigurðardóttir hallmælti íhaldinu sem engu vildi breyta og flokkssystir hennar úr Þjóðvaka, Ólína Þorvarðardóttir fór mikinn eins og henni einni er lagið.
Nú þrem árum seinna hefur ekki einn einasti fisksporður hvað þá meira verið fyrndur eða innkallaður.
Í sjónvarpsþætti í gær upplýsti fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason sem er einn af fáum hófsemdarmönnum í þeim flokki að alfarið hefði verið horfið frá fyrningarleiðinni.
Nú talar Jóhanna um þjóðarsátt í fiskveiðistjórnarmálum, þó það sé ekki ljós um hvað sú þjóðarsátt á að vera. Alla vega er ljóst að Samfylkingin miðar ekki við að ná þjóðarsátt um fyrningarleiðina.
Eftir því sem næst verður komist þá á þjóðarsáttin að felast í óbreyttu kvótakerfi með aukinni skattlagningu á útgerðina auk sérleiða sem leiða til aukinna ríkisafskipta, geðþóttaákvarðana stjórnmálamanna og óhagkvæmni í útgerð. Þetta er sú stefna sem Samfylkingin og Vinstri grænir leggja nú fram.
Hefði Samfylkingin náð að slíta upp eitt einasta atkvæði í síðustu kosningabaráttu á þessum grundvelli?
Hvað sem því líður þá er nú endanlega staðfest að Samfylkingin er búin að svíkja enn eitt helsta kosningaloforð sitt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.3.2012 | 14:09
Samstaða Samfylkingarinnar gliðnar.
Árni Páll Árnason alþingismaður sagði í viðtalsþætti í Ríkissjónvarpinu í dag, að nauðsynlegt væri að samstaða og þjóðarsátt yrði um nýja stjórnarskrá. Þrátt fyrir það að í öllum þróuðum lýðræðisríkjum sé fólk sammála þessum sjónarmiðum Árna Páls, þá hefur Jóhanna Sigurðardóttir rekið stjórnarskrármálið með þeim hætti að einræði meirihlutans ætti að ráða varðandi breytingar á stjórnarskrá.
Ummæli Árna Páls sýna að samstaða innan Samfylkingarinnar um að keyra áfram breytingar á stjórnarskrá í ósætti við stóran hluta þjóðarinnar nýtur ekki lengur fulls stuðnings. Ljóst er að Jóhanna þarf því að smala köttum á sínum eigin bæ en ekki aðeins hjá Vinstri grænum ætli hún að keyra fram þá einstöku aðferðarfræði í stjórnarskrármálinu sem hún hefur fylgt fram að þessu. Þannig er raunar farið að í einræðisríkjum og aðferðarfræði þeirra ríkja eru Jóhönnu Sigurðardóttur hugleiknari en virðing fyrir eðlilegum leikreglum lýðræðisinis.
Engin furða að hinu betra og góðgjarnara fólki innan Samfylkingarinnar sé ofboðið.
Þá var athyglivert að í sama umræðuþætti skyldi varaformaður stjórnarskrárnefndar Alþingis, Álfheiður Ingadóttir halda því fram að kosning til stjórnlagaþings hefði ekki verið dæmd ógild. Hafi svo ekki verið af hverju þurfti Álfheiður Ingadóttir þá að bera fram sérstaka þingsályktunartillögu um stjórnlagaráð í stað stjórnlagaþings.
Ákvörðun Hæstaréttar Íslands þ.25.1.2011 um stjórnlagaþingskosninguna var samt sem áður þessi:
Framangreindir annmarkar á framkvæmd kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 verða við úrlausn málsins metnir heildstætt og er það niðurstaða Hæstaréttar að vegna þeirra verði ekki hjá því komist að ógilda hana.
Ályktarorð:
Kosning til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 er ógild.
Sérkennilegt að Álfheiði Ingadóttur skuli hafa sést yfir jafnmikilvæga staðreynd í málinu. En þessi yfirlýsing Álfheiðar vekur athygli þar sem hún hefur nýlega sent frá sér aðra yfirlýsingu vegna ummæla Geirs Jóns Þórissonar yfirlögregluþjóns um byltingarforingjann í Alþingishúsinu, en þar afneitaði hún að hafa haft afskipti af aðgerðum óeirðarfólks utan Alþingishússins. Skyldi minni Álfheiðar vera jafn óbrigðult um það sem um ógildingu kosninga til Stjórnlagaþings?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.3.2012 | 23:51
Rasistaflokkur Lindu Blöndal.
Lindu Blöndal útvarpskonu á RÚV fannst viðeigandi að kalla Front National í Frakklandi rasistaflokk í síðdegisþætti rásar 2. Þeim þætti stjórnar hún ásamt Hallrgími Thorsteinsen.
Í umræddu tilviki var þessi "hlutlægi" útvarpsmaður að fjalla um umsátur lögreglu um íslamskan hermdarverkamann sem hefur myrt 7 manns í Frakklandi undanfarna daga þar af þrjú börn.
Það er ekkert nýtt að ríkisfjölmiðillinn hengi sérkennileg heiti á þá stjórnmálamenn í Evrópu sem vara við sósíalísku fjölmenningarhyggjunni. RÚV kallar þá "hægri öfgamenn". Erlendir fjölmiðar segja að þeir séu langt til hægri eða yst á hægri vængnum. Ríkisfjölmiðillinn einn notar hugtakið "hægri öfgamaður eða öfgaflokkur" eða "rasistaflokkur". Spurning er raunar um suma slíka þar á meðal Front National hvort þeir falla að skilgreiningunni um að vera hægri flokkur.
Ummæli Lindu Blöndal um Front National voru óviðurkvæmileg og röng. Hún ætti að biðjast afökunar á þeim. Útvarpsstjóri ætti líka að gera athugasemdir við framsetningu og pólitískar uppnefningar vinstri sinnaðra starfsmanna fjölmiðilsins. Ríkisfjölmiðillinn hefur ákveðnar skyldur sem honum ber að rækja.
Fölmiðlakonan Linda Blöndal er almennt að standa sig vel í starfi og þess vegna finnst manni þetta leiðinlegt. Þess vegna vona ég líka að hún þori að viðurkenna mistök sín og biðjast afsökunar á óréttmætum staðhæfingum um rasistaflokkinn.
Sérkennilegt að RÚV skuli eingöngu taka viðtal við vinstri sinnaðasta forsetaframbjóðandann í Frakklandi sem mælist með um 1% atkvæða. Skyldu hægri menn vera á bannlista stofnunarinnar?
http://en.wikipedia.org/wiki/Marine_Le_Pen
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
21.3.2012 | 13:22
Grænn vegur til versnandi lífskjara
Við húrrahróp og fögnuð samþykkti Alþingi einróma þingályktunartillögu um eflingu svonefnds græns hagkerfis. Verði þessi græna ályktun að veruleika þá verða meiri höft lögð á borgarana og atvinnustarfsemi verður gert erfiðara fyrir.
Það er athyglivert að á sama tíma og íslenskir stjórnmálamenn sameinast í húrrahrópum og lýðskrumi um gildi græna hagkerfisins, þá eru þær þjóðir sem áður hafa lagt út á þessa braut að uppgötva hvílíka lífskjaraskerðingu það hefur í för með sér fyrir almenning. Einnig gríðarlegan kostnaðarauka fyrir ríki og sveitarfélög. Eðlilegt að þingheimur fagni.
Í Bretlandi er rætt um í tengslum við umræður um fjárlög og útgjöld ríkisins, að lög vegna meintrar hnattrænnar hlýnunar og græna hagkerfisins, valdi gríðarlegum hækkunum á raforku til almennings. Með skírskotun til græna hagkerfisins eru skattar á bensín og aðrar munaðarvörur auknir- skemmtileg tilhugsun fyrir íslenska neytendur eða hvað?
Í grein enska stórblaðsins The Daily Telegraph í dag segir að græna hagkerfið valdi kostnaðarauka upp á 650 pund árlega á venjulega fjölskyldu eða 130.000 íslenskar krónur á ári. Skyldu íslenskir alþingismenn hafa hugsað um þennan viðbótarpinkil á fjölskyldurnar í landinu þegar þeir stigu stríðsdans á Alþingi til að fagna samþykkt þingsályktunartillögunnar um græna hagkerfið?
Fjármálaráðherra Breta hefur áhyggjur af uppsöfnuðum áhrifum "grænnar stefnumörkunar" eins og hún hefur verið rekin í Bretlandi og Evrópusambandinu og segir að endalausar kröfur um þjóðfélagsleg og umhverfisleg markmið þýði gjaldþrota fjölda fyrirtækja, mörg störf muni tapast og landið verði fátækara." Athyglisvert að þetta skuli fjármálaráðherra Breta segja á sama tíma og Alþingismenn á Íslandi dönsuðu stríðsdans af fögnuðu yfir því að koma þessum hömlum á íslenska þjóð.
Skrýtið að þessi græna leið til versnandi lífskjara skuli hafa forgang á Alþingi en verðtryggingu og skuldavanda skuli ýtt til hliðar. Eðlilega nýtur Alþingi trausts þjóðarinnar í samræmi við þessa forgangsröðun.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.3.2012 | 14:31
Endalaus óánægja
Það er sérkennilegt að fylgjast með málflutningi vinstri sinnaða réttlætispöpulsins, með Egil Helgason, Björn Val Gíslason, Þorvald Gylfason og Þór Saari í helsta fyrirsvari. Svo virðist að þrátt fyrir að Jóhanna hafi hlaupið eftir hverjum goluþyt þessara manna að þá sé aldrei hægt að gera þeim og helsta stuðningsfólki þeirra til hæfis. Raunar á ríkisstjórnin líf sitt undir stuðningi Þór Saari svo mikið þarf að sjálfsögðu við að hafa.
Þessir menn héldu því fram að það væri ekki hægt að sleppa Landsdómsákæru á Geir H. Haarde af því að það þyrfti að gera upp við Hrunið. Þeir sögðu að skýrslur vitnanna sem leidd yrðu fyrir Landsdóm væru ómetanlegt innlegg. Svo hófst Landsdómsmeðferðin og þessir spekingar pópúlismans hamast nú við að lýsa því hvað réttarhöld, málsmeðferð og vitnaleiðslur í Landsdómi valdi miklum vonbrigðum. Egill Helgason hafði Landsdómsmálið síðan í flimtingum með mjög svo ósmekklegum hætti. Enn ein rós í hnappagat "hlutlæga" þáttastjórnandans.
Allir gerðu þeir hróp að Baldri Guðlaugssyni og sumir þeirra voru sannfærðir um sekt hans áður en dómur gekk í Hæstarétti og virtist enginn dómur yfir Baldri nógu þungur til að það gæti sefað þessa spekinga. Svo fór að Hæstiréttur dæmi Baldur til fangelsisvistar, ranglega, að mínu mati en það er annað mál. Í morgun kom síðan frétt af því að Baldur hefði hafið afplánun en þá bregðst pópúlistarnir þannig við að ásaka fangelsisyfirvöld um að leyfa Baldri að byrja að afplána og látið í veðri vaka að það sé brot á jafnræðisreglu.
Jóhanna og Steingrímur færðu þessum hávaðasama hópi vinstri pópúlista stjórnlagaþing og þegar kosningin til þess var dæmd ólögmæt þá ákváðu þau að hafa dóm Hæstaréttar að engu og ákveða stjórnlagaráð með þingsályktunartillögu. Það dugði ekki til, því að Þorvaldur Gylfason var ekki fyrr búinn að bulla úr skálum visku sinnar fyrr en hann krafðist þess að einræði meirihlutans yrði látið ráða því hvernig stjórnarskrá lýðvelsins yrði. Að vísu allt í andstöðu við stjórnarskrána, en hvað varðar einn prófessor um lög og rétt í landinu þegar hann telur að vinir sínir stjórni og hann geti komið málum fram að eigin geðþótta.
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon ættu að muna það að þeir sem fá sér reiðtúr á tígrisdýri enda í maganum á því. Þau geta aldrei gert neikvæðu vinstri pópúlistana ánægða hvað mikið svo sem þau reyna.
Þeir eru alltaf óánægðir og sjá spillingu í öllum hornum nema hjá sjálfum sér og vinum sínum eins og nýleg dæmi sanna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.3.2012 | 23:21
Draugurinn í Háskólanum
Fréttastofa ríkissjónvarpsins hefur vakið upp gamlan draug úr Háskóla Íslands, Gylfa Magnússon. Gylfi þessi stjórnaði atlögu að íslenska bankakerfinu í septemberlok 2008 og gerðist síðan mótmælandi á vegum Harðar Torfasonar, annars trúbadúrs. Framganga Gylfa sem mótmælanda varð síðan til þess að hann varð viðskiptaráðherra í stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Margir töldu að Gylfi þessi væri happafengur í ríkisstjórnina þar sem hann væri fræðimaður, mótmælandi og eini maðurinn sem hefði stjórnað alsherjar aðför að bankakerfi lands síns. Það voru greinilega mannkostirnir sem Jóhanna Sigurðardóttir mat mest þegar hún valdi fólk til ráðherradóms.
Gylfi vann það sér síðan til frægðar sem ráðherra að vera einn verklausasti viðskiptaráðherra sem nokkru sinni hefur setið í landinu. En hitt var þó verra að upp komst um strákinn Gylfa þegar hann hagræddi sannleikanum með þeim hætti að hann sagði Alþingi vísvitandi ósatt. Þá var ljóst að dagar hans í ráðherrastól voru taldir.
Í kvöld birtist þessi draugur fortíðarinnar til að gagnrýna lánveitingu Seðlabankans til Kaupþings banka í byrjun október 2008. Eins og fyrri daginn var Gylfi með það á hreinu hverjum um væri að kenna án þess þó að hafa kynnt sér málið til hlítar.
Það vill svo til að ég sat í Viðskiptanefnd Alþingis þessa örlagaþrungnu daga í október 2008 og spurðist ítarlega fyrir um þetta lán, raunar sá eini sem það gerði. Mér er því ljóst hvað var um að ræða og það er annað en uppvakningur fréttastofu sjónvarpsins heldur fram.
Gaman væri að Gylfi Magnússon færði frekari rök fyrir þeim sjónarmiðum sem hann setti fram í kvöldfréttum sjónvarpsins ef hann hefur þá tíma til þess vegna anna við að verja verðtrygginguna.
6.3.2012 | 16:43
Eru líkamsárásir á lögmenn afsakanlegar?
Skelfing er að lesa ummæli Þórs Saari alþingismanns á bloggsíðu hans á Eyjunni, þar sem hann reynir að finna skýringar já og jafnvel asfakanir á fólskulegri manndrápstilraun á starfsmann lögmannsstofu í gær.
Þór Saari virðist álíta að hann lifi í glæpamannasamfélagi þar sem allt er rotið og engu hægt að treysta. Það virðist að hans mati vera ástæða manndrápstilraunarinnar þó Þór fari að vísu fimlega í kring um heita grautinn sem hann kokkar upp hvað þetta varðar.
Þegar ógæfumaður eyðilagði hús sem hann hafði reist en skuldaði algerlega og braut það niður með stórvirkri vinnuvél tók þessi sami Þór Sarri brotna spítu úr húsinu og gerði að gunnfána Hreygingarinnar. Þar með samsamaði þessi þingmaður sig með ofbeldinu og lögleysunni.
Í skrifum Þórs er margt fullyrt sem ekki kemur heim og saman við raunveruleikann eins og t.d. um mikla aukningu sjálfsmorða og annað í þeim dúr. Einfalt ætti að vera fyrir þingmanninn að afla sér haldbærra upplýsinga áður en hann ruglar svona í skrifum sínum.
Ef til vill áttar Þór Saari sig ekki á því að það er m.a. maður eins og hann sem veldur auknu vonleysi og erfiðleikum í þjóðfélaginu. Endalaus neikvæðni og rógur um samborgarana og samstarfsmenn og ítrekaðar upphrópanir um að heiðvirt fólk séu glæpamenn er ekki til þess fallið að glæða vonir fólks eða auka fólki bjartsýni. Þvert á móti leiðir það til þess að sumir aðrir taka trúa röngum fullyrðingum Þórs Saari með vondum afleiðingum fyrir samfélagið.
Það er mikilvægt fyrir okkur sem þjóð að átta okkur á því hvað við eigum mikla möguleika og viðurkenna hvað margt er þó gott í okkar samfélagi og mikið af góðu og grandvöru fólki. Það væri hægt að áorka miklu til góðs í samfélaginu með ögn af kristilegum kærleika og eðlilegri bjartsýni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 3
- Sl. sólarhring: 58
- Sl. viku: 2915
- Frá upphafi: 2544099
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 2698
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Arnar Freyr Reynisson
-
Ívar Pálsson
-
Guðmundur Karl Snæbjörnsson