Færsluflokkur: Dægurmál
10.10.2010 | 17:07
Nú ríða hetjur um héruð
Nú ríða sérkennilegar hetjur um héruð í líki þingmannanna Kristjáns L. Möller, Ólínu Þorvarðardóttur, Sigmundar Ernis Rúnarssonar og fleiri af sama sauðahúsi. Þessar hetjur hafa tekið sér stöðu með stofnunum í kjördæmum sínum gegn fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Í hópi þessara hugdjörfu þingmanna er Guðbjartur velferðar Hannesson sem sagði að ýmsu þyrfti að breyta í fjárlagafrumvarpinu.
Fyrir nokkru stóðu þessar sömu hetjur að því í Alþingishúsinu við Austurvöll í Reykjavík að leggja fram fjárlagafrumvarpið sem þau eru á móti heima í héraði. Ekki nóg með það, Guðbjartur velferðar Hannesson var formaður fjárlaganefndar Alþingis sem hefur undirbúið og á mesta heiðurinn og/eða skömmina af fjárlagafrumvarpinu.
Fjárlagafrumvarp verður ekki til á einum degi og er ekki afrakstur eða hugarfóstur fjármálaráðherra eins. Mikil vinna fer fram í fjárlaganefnd Alþingis og áður en fjárlagafrumvarpið er lagt fram á Alþingi sem stjórnarfrumvarp er það kynnt þingflokkum stjórnarflokkanna og lagt fram eftir að þeir hafa lagt blessun sína yfir frumvarpið. Hetjurnar í héraði og Gutti velferðar tala því með einum rómi á Alþingi en öðrum heima í héraði.
Nú eru það þingmenn Samfylkingarinnar til hægri og vinstri sem reyna að slá sig til riddara með því að berjast gegn eigin frumvarpi heima í héraði. Fróðlegt verður að sjá hvernig Jóhönnu Sigurðardóttur gengur að smala þessum hérum í Samfylkingunni til stuðnings við fjárlagafrumvarpið.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.10.2010 | 13:33
Uppgötvun Jóhönnu
Það var athyglivert að heyra það í hádegisfréttum að forsætisráðherra hafði uppgötvað að stór hópur fólks ætti í skuldavanda. Hún sagði að nú þyrfti að skoða málin en vildi ekki segja hvað ætti að gera. Hefur Jóhanna virkilega ekki skoðað málin og liggja ekki staðreyndir fyrir hjá henni eftir samfellda setu í ríkisstjórn frá 2007 og þingsetu nokkru eftir að Úlfljótur og Grímur geitskór hættu á Alþingi.
Eftir að hafa hlustað á stefnuræðu forsætisráðherar og viðbrögð núna þá datt mér í hug það sem danska drottningin sagði í byrjun síðustu aldar þegar hún spurði af hverju fólk væri sósíalistar og var svarað að sumir væru ekki ánægðir með ríkisstjórnina og konunginn. Þá sagði drottningin. "Hvílíkt vanþakklæti og við sem höfum gefið fólkinu Tívolí."
Þá eins og nú þá má upplýsa Jóhönnu um að fólk hvorki borðar né býr í sértækri skuldaaðlögun.
6.10.2010 | 22:07
Enn einn hring
Fjórum sinnum hefur ríkisstjórnin boðað til blaðamannafunda og sagt að nú væri kynnt hin endanlega lausn í málum skuldsettra einstaklinga. Jafn oft hafa landsmenn orðið fyrir vonbrigðum með boðskapinn.
Tveimur árum eftir hrun hafa höfuðstólar verðryggðra lána hækkað gífurlega vegna ímyndaðra hækkana, sem reiknaðar eru út á Hagstofunni, þrátt fyrir að engin virðisauk mælist í þjóðfélaginu heldur þver öfugt. Það þýðir að verið sé að taka frá skuldurum og gefa fjármagnseigendum.
Verðtryggingarbullið og aðrar sérokurleiðir í lánamálum eru að éta upp eignir venulegs fólks. Jóhanna og Steingrímur hafa horft á með velþóknun ásamt ömurlegustu verkalýðshreyfingu veraldar.
Óneitanlega er það sérkennilegt að þau Jóhanna og Steingrímur skuli standa varðstöðuna með fjármagnseigendum. Raunar er mér sagt að Jóhanna hafi þegar byrjað þá varðstöðu í ríkisstjórn Geirs H. Haarde fyrir tveim árum síðan.
Þegar ríkisstjórn hefur misst traust þá er erfitt að ávinna það aftur. Stefnulaus og úrræðalaus forsætisráðherra ætlar samt að freista þess enn einu sinni að kaupa sér vinsældir með því að spila einhverju út hvað svo sem það verður.
En það dugar ekkert minna en að afnema sérleiðirnar í lánamálunum. Það verður að afnema verðtrygginguna. Það verður að reikna höfuðstólana aftur til október 2008. Eitt verður yfir alla að ganga í því efni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.10.2010 | 23:30
Dagar ríkisstjórnarinnar eru taldir
Flestum er ljóst að dagar ríkisstjórnarinnar eru taldir. Forsætisráðherra biðlar nú til stjórnarandstöðunnar um að koma að borðinu með henni, en það getur stjórnarandstaðan ekki gert að óbreyttu.
Með aðgerðarleysi varðandi stökkbreyttu höfuðstólana og með því að horfa aðgerðarlaus á þegar fjöldi einstaklinga eru reknir út af heimilum sínum og í gjaldþrot vegna okurlánanna hefur ríkisstjórnin tapað tiltrú fólksins í landinu.
Ríkisstjórnin hefur magnað upp reiðina í þjóðfélaginu og vantrú á stjórnmálamönnum með því að ákæra fyrrverandi forsætisráðherra. Þingmenn allir gerðust sekir um afglöp þegar þeir greiddu atkvæði með niðurstöðu Atlanefndarinnar þrátt fyrir að hún stangist á við heilbrigða skynsemi í ýmsum tilvikum.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur varð til eftir að Vinstri grænir og hluti Samfylkingarinnar kynntu undir mótmælum og aðför að ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksins. Ef til vill sannast hið fornkveðna. "Illur fengur illa forgengur"
Vandi í lýðræðisþjóðfélagi verður ekki leystur með öðru en lýðræðið fái að hafa framgang. Sennilega er rétt að ákveða kosningar til Alþingis fyrri hluta næsta árs og fresta kosningum til stjórnlagaþings.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.10.2010 | 23:44
Mótmæli við Alþingishúsið
Verið er að boða fólk niður á Austurvöll til að mótmæla við Alþingishúsið meðan forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína og umræður verða um hana. Vissulega er ástæða til að mótmæla stefnu og stefnuleysi ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega úrræða- og aðgerðarleysi hennar gagnvart vanda fólks og fyrirtækja vegna stökkbreyttra höfuðstóla.
Það hefur því sjaldan verið meiri ástæða til að mótmæla duglausri og úrræðalausri ríkisstjórn en einmitt núna.
Á sama tíma og það er full ástæða til að mótmæla á Austurvelli þá er líka full ástæða til að fólk taki höndum saman um að koma í veg fyrir ofbeldi og skemmdarverk. Alþingishúsið er þjóðarhús. Það er húsið okkar allra. Það á engin að sýna þá skrílmennsku að henda einhverju í Alþingishúsið eða sóða það út. Lögregluþjónarnir sem eru við skyldustörf eru að vinna við að halda uppi friði og allsherjarreglu. Við eigum að virða það sem þeir gera og hlýða þeim og koma því fólki burt sem sýnir lögreglu óvirðingu eða veitist að lögregluþjónum.
Við eigum hvort heldur við mótmælum eða tökum þátt í umræðu að sýna að við séum siðað fólk sem leikum eftir þeim leikreglum sem lýðræðið og réttarríkið heimila.
3.10.2010 | 10:22
Lettar
Lettar lentu í efnahagshruni eins og við og að mörgu leyti af sömu ástæðum þó að bankakerfi þeirra væri miklu minna hlutfallslega en okkar. Strax eftir hrunið í Lettlandi greip ríkisstjórnin til margháttaðra aðgerða til að reisa efnahaginn við. Það var ekki sársaukalaust. Atvinnuleysi hefur farið upp í 20% og ríkisútgjöld hafa verið skorin mjög mikið niður til að ná jafnvægi í ríkisfjármálin.
Margir spáðu því að kjósendur mundu refsa stjórnarflokkunum í Lettlandi fyrir að ganga fram af jafn mikilli skynsemi og þeir gerðu og hörku við að koma hlutum í lag á nýjan leik. Þannig skrifaði tímaritið the Economist fyrir nokkru að líklega yrðu þeir stjórnmálamenn sem stjórnuðu í Lettlandi látnir taka út refsingu af hálfu kjósenda fyrir að gera strax það sem nauðsynlegt væri að gera með meðfylgjandi tímabundnum þrengingum í landinu.
Nú að loknum kosningum í Lettlandi liggur fyrir að stjórnarflokkurinn heldur velli. Lettneskir kjósendur eru ekki svo heillum horfnir að þeir hlaupi eftir fagurgala Steingríma þess lands heldur horfa á málin með skynsemi og virða það sem vel hefur verið gert.
Í Lettlandi hefur verið hagvöxtur að undanförnu og spáð er að atvinnuleysi fari minnkandi og hagvöxtur aukist enn.
Því miður er íslenska ríkisstjórnin að gera allt annað en ríkisstjórnin í Lettlandi. Hér dregst þjóðarframleiðsla saman tveim árum eftir hrun. Hver fjárlögin af öðrum eru lögð fram þar sem lagt er til að við höldum áfram að lifa um efni fram. Opinberum starfsmönnum er fjölgað og föllnum fyrirtækjum haldið lifandi með fjárgjöfum frá ríkisbönkum. Ekki eru gerðar nauðsynlegar hagræðingar í utanríkisþjónustu eða fjármálakerfi landsins. Atvinnuleysistölur eru falasaðar með því að halda uppi óarðbærum opinberum störfum.
Kjósendur á Íslandi eru ekki fífl frekar en í Lettlandi. Þvert á spár þá ákváðu kjósendur í Lettlandi að velja þá til áframhaldandi forustu sem hafa stýrt landinu farsællega í efnahagskreppunni þrátt fyrir þrengingar. Með sama hætti munu íslenskir kjósendur velja þá valkosti í næstu kosningum sem eru líklegir til að skila þjóðinni áfram.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.10.2010 | 14:35
Ákall Steingríms J
Steingrímur J. Sigfússon hefur gengið harðast fram í því að andskotast út í andstæðinga sína í stjórnmálum og ber mestu ábyrgð á ákærum á hendur fyrrverandi ráðherrum og skrípaleiknum í kring um þær. Steingrímur J og Atli hinn "frómi" Gíslason stóðu þar fyrir aðför að pólitískum andstæðingum í þeim helsta tilgangi að leiða athyglina frá eigin getu- og úrræðaleysi.
Fimm dögum eftir að Steingrímur J. stóð fyrir aðgerð sem var pólitísk griðrof, kallar hann eftir samstöðu stjórnmálamanna. Það er svipað og maður sem sparkar í annan og fótbrýtur hann biðji þann fótbrotna síðan um að hjálpa sér að bera fyrir sig innkaupapokana.
Því miður er útilokað að verða við tilmælum Steingríms J. vegna þess að honum er ekki treystandi. Eftir það sem gerðist á þriðjudaginn 28. september getur Steingrímur J. ekki kallað eftir samstöðu stjórnmálamanna. Slík samstaða getur ekki myndast meðan hann situr sem ráðherra.
Heift Steingríms J og pólitískur loddaragangur auk fjandskapar hans og flokks hans við frjálst atvinnulíf og atvinnuuppbyggingu leiðir til þess að samstaða stjórnmálamanna er ekki fyrir hendi með honum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.10.2010 | 15:26
Mótmæli við setningu Alþingis
Eðlilega er venjulegu fólki misboðið vegna getu- og aðgerðarleysis stjórnvalda. Misboðið vegna skemmdaverka þingmanna Vinstri Grænna vegna haturs þeirra á frjálsu athafnalífi.
Eðlilega er fólki misboðið að horfa upp á það að einstaklingar skuli sviptir eignum sínum þúsundum saman og bornir út úr húsum sínum, vegna þess að höfuðstólar lána þeirra stökkbreyttust vegna þeirra sérleiða með verðtryggingu og gengislánum.
Eðlilega er fólki misboðið vegna þess að það er ekkert gert til að leiðrétta stökkbreytta höfuðstóla lána. Það getur engin skuldari borgað stökkbreyttu lánin.
Eðlilega er fólki misboðið að ekki skuli koma fram raunhæfar tillögur um lausn á Alþingi.
Sjálfstæðisflokkurinn mótaði þá stefnu fyrir meir en hálfri öld, að gera fólk að eignafólki með því að auðvelda því að eignast sína eigin íbúð og tryggja fólkið aðgang að hagkvæmum húsnæðislánum. Athugið hagkvæmum húsnæðislánum. Ekki okurlánum. Vilji Sjálfstæðisflokkurinn verða marktækur valkostur verður hann að leggja fram tilllögur nú þegar á Alþingi um lausn á skuldavanda venjulegs fólks og fyrirtækja. Það verður engin sátt í þjóðfélaginu ef venjulegt fólk verður svipt eignum sínum og einkafyrirtækin eyðilögð á altari ruglaðs lánakerfis.
Sá er munur á þeim mótmælum sem nú voru fyrir utan Alþingishúsið og þeim sem voru upphafsmánuði 2009, að nú safnast saman venjulegt fólk sem er misboðið, en að hluta til voru í hinum fyrri mótmælum skipulagður óeirðarhópur Vinstri grænna kallaður til að grafa undan þáverandi ríkisstjórn. Sá er líka munurinn að þá var lögreglan ekki tilbúin til að beita táragasi eða kylfum á mótmælendur. En nú undir Steingrími J. til að verja hann þá voru kylfur hafnar strax á lofti og táragassprengjum hótað.
Óneitanlega var það spaugilegt að sjá þessa varðsveit byltingarforingjanna Steingríms J. og Össurar í búningum lögregluþjóna beina kylfum að hópi friðsamra kvenna á miðjum aldri á Austurvelli, sem greinilega höfðu ekkert misjafnt í hyggju. En það gefur e.t.v. vísbendingu um að annar bragur sé á löggæslunni þegar varðstöðu þarf um félaga Steingrím.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
29.9.2010 | 16:29
Þeir lána Steingrímur eyðir
Um svipað leyti og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn tilkynnti að hann ætlaði að lána til Íslands 16 milljarða króna í kjölfar 3. endurskoðunar efnahagsáætlunar stjórnvalda barst sú frétt að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mundi leggja fram frumvarp til fjárlaga þar sem hallinn væri nálægt hundrað milljörðum.
Eftir alla baráttuna við að fá lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þá er staðan sú að lánið eftir 3. endurskoðun dugar fyrir tveggja mánaða óráðssíu Steingríms J. Sigfússonar í ríkisfjármálum.
Við þessar aðstæður þá eru það ófyrirgefanleg afglöp í starfi fjármálaráðherra að reka ríkissjóð með halla.
Að ári liðnu þá hafa vextirnir af óráðssíu Steingríms J. étið upp lánið frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, en við sitjum uppi með skuldirnar en vonandi ekki Steingrím J. sem ráðherra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.9.2010 | 23:42
Pólitísk griðrof
Allt venjulegt góðgjarnt fólk skilur að í dag voru framin pólitísk griðrof á Alþingi. Sú ákvörðun meiri hluta alþingismanna að standa að pólitískri ákæru á hendur Geirs H. Haarde eru mikil ótíðindi.
Þegar grið hafa verið rofin þá geta þeir sem slíkt gera ekki átt von á því að þeim verði gefin grið þegar andstæðingar þeirra komast næst í stöðu til að láta kné fylgja kviði svo sem Steingrímur J. Sigfússon og hyski hans stendur nú fyrir.
Ákærendurnir á þingi átta sig ekki á hvaða þýðingu það hefur fyrir virðingu og orðspor þjóðarinnar að standa að ákæru eins og þeirri sem meirihluti Alþingis hefur samþykkt. En þeir sitja uppi með skömmina án ábyrgðar.
Ég var einn fárra þingmanna sem gagnrýndi efnahagsstjórnina á þingi árin 2007 fram yfir bankahrun og varaði við yfirvofandi kreppu haustið 2008. En nú eru í hópi ákærenda Geirs H. Haarde þáverandi forsætisráðherra fólk sem talaði um slíka gagnrýni sem algera fásinnu.
Pólitíski leikur Steingríms J. Sigfússonar og félaga hans er að halda við vitlausri umræðu um hrunið og berja á Sjálfstæðisflokknum með að ákæra fyrrum formann hans til að draga athyglina frá eigin getuleysi.
Steingrímur J. Sigfússon leggur fram frumvarp til fjárlaga með um hundrað milljarða halla til viðbótar við hundrað milljarða halla ársins í ár. Slík forustu í þjóðmálum sem Steingrímur J. sýnir með ráðsmennsku sinni sem fjármálaráðherra er afglapaháttur og getur ekki leitt til annars en þjóðargjaldþrots. Það er hin alvarlegi raunveruleiki sem ákærendurnir á þingi hefðu átt að gefa meiri gaum en gagnslausri og ónýtri ákæru.
Óstjórnin er í núinu og eyðileggur möguleika þjóðarinnar í framtíðinni. Það er hinn alvarlegi raunveruleiki sem ónýt ríkisstjórn, ónýtt Alþingi og þjóðin stendur frammi fyrir. Gegn þeirri óstjórn verður þjóðin að rísa.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 16
- Sl. sólarhring: 106
- Sl. viku: 2784
- Frá upphafi: 2547705
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 2564
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Arnar Freyr Reynisson
-
Ívar Pálsson
-
Guðmundur Karl Snæbjörnsson