Færsluflokkur: Mannréttindi
19.8.2013 | 20:41
Valdarán og lýðræði
Ráðamönnum í Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi er svo umhugað að koma á lýðræði að þessi lönd eitt eða fleiri hafa á undanförnum árum staðið fyrir eða stutt að stjórnendum væri velt úr sessi í Írak, Afganistan, Líbýu og Egyptaland. Ekkert lýðræði er í raun í neinu þessara landa í dag.
Á sínum tíma hröktu Bretar svokallaða stjórn hvíta minnihlutans undir forustu Ian Smith frá völdum í Rhodesíu, sem nú heitir Zimbabwe. Þá voru haldnar kosningar og þar sigraði uppreisnarforingi Robert Mugabe að nafni sem setið hefur við völd síðan eða rúm 30 ár og kosningar í landinu verið meira upp á grín en raunveruleiki. Hert harðstjórn tók við undir formerkjum lýðræðis og Vesturlönd fögnuðu.
Þegar Mubarak hafði verið hrakinn frá völdum í Egyptalandi og Morsi frá Múslimska bræðralaginu kjörinn forseti með litlum meiri hluta atkvæða, tók Morsi strax til við að koma á stefnu múslimska bræðralagsins, Sharia lögum, þrengja réttindi kvenna og ýmissa minnihlutahópa þ.á.m. kristinna Kopta. Menntafólkið sem studdi uppreisnina gegn Mubarak snérist fljótlega gegn Morsi og sá að það var kominn nýr einræðisherra í stað Mubarak. Ástandið hafði ekki batnað. En Vesturlönd mótmæltu og kröfðust þess að Morsi yrði settur í embætti.
Svo virðist sem ráðamönnum á þessum vesturlöndum sjáist yfir að lýðræði er ekki bara fólgið í kosningum einu sinni. Lýðræði þýðir svo mikið meira t.d. að almenn mannréttindi séu virt, réttindi minni hluta og reynt verði að ná málamiðlun um mikilvægustu þjóðfélagsmál sé þess kostur. Fólkið í þessum löndum er ekki sérstaklega að kalla á lýðræði. Það er að kalla á öryggi, atvinnu og lífsafkomu.
Einu sinni átti ég þess kost að hlusta á erindi manns sem hafði verið varakonungur, sendiherra o.sfr.v. í mörgum löndum í mismunandi heimsálfum á blómatíma breska heimsveldisins. Hann sagði að virkasta lýðræðið sem í raun hefði verið komið á í fyrrum nýlendum Breta á þeim tíma væri í Tanganæka þar sem aldrei væru kosningar en ættflokkarnir væru svo margir og tiltölulega jafnstórir að ættbálkahöfðingjarnir mynduðu þjóðarráðið eins konar Alþingi og það hefði gefið góða raun. Hann gaf að öðru leyti lítið fyrir lýðræðið í fyrrum breskum nýlendum og möguleika vestrænna þjóða til að koma sínu stjórnarfari til gerólíkra landa þar sem menn skorti skilning á innviðum samfélagsins.
Mikið væri gott ef þeir Obama, Cameron og Hollande skoðuðu heimssöguna, berðust fyrir almennum mannréttindum en léti ólíkar þjóðir og siðmenningu þeirra að öðru leyti í friði. Þeir gætu t.d. byrjað á að skoða að hvergi er fleira fjölmiðlafólk og stjórnarandstæðingar í fangelsum í svokölluðu lýðræðislandi en Tyrklandi Erdogans. Skyldi einhver forustumaður vestrænna þjóða gera athugasemd við það?
14.8.2013 | 22:55
Sóknarnefnd og sóknarprestur Laugarneskirkju sjá ljósið.
Sóknarnefnd og sóknarprestur Laugarneskirkju sjá sérstaka ástæðu til að álykta gegn aðkomu þjóðkirkjunnar að komu Franklin Graham til landsins vegna afstöðu hans til samkynhneigðar. Sagt er frá því að umræður á fundinum hafi verið ítarlegar.
Sóknarpresturinn í Laugarneskirkju hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hann varð sér til skammar með hrópum og skrílslátum í héraðsdómi Reykjavíkur auk þess sem hann krafðist að sr. Geir Waage yrði vikið úr embætti vegna skoðana sr. Geirs. Þá lýsti sr. Bjarni yfir þeirri girnd sinni að berja þáverandi lögmann en núverandi alþingismann Brynjar Níelsson vegna þess að hann var honum ósammála. Ekki er vitað til að sóknarnefnd Laugarneskirkju hafi þótt þessi atlaga sr. Bjarna að tjáningarfrelsinu og girnd til að brjóta hegningarlögin vera fundar eða ályktunar hvað þá ítarlegrar umræðu virði.
Afstaða Franklin Graham til samkynhneigðra raskar hins vegar ró og makindum sr. Bjarna og sóknarnefndar hans.
Mér er nær að halda að sóknarnefnd Laugarneskirkju og presturinn viti harla lítið um Franklin Graham.
Ég er ósammála Franklin Graham í veigamiklum málum. Afstaða hans til samkynhneigðar vegur þar ekki þyngst. Franklin Graham studdi innrás Bandaríkjanna í Írak. Hann hefur vegið að Obama forseta vegna trúarskoðana þó hann hafi beðið hann afsökunar síðar. Hann hefur haldið fram dæmalausum hlutum um ýmis önnur trúarbrögð auk ýmissa rangfærslna og margs annars sem ég er andvígur trúfræðilega. Þá hefur hann oftar en einu sinni eins og sr. Bjarni snúist eins og pólitískur vindhani.
Þrátt fyrir það tel ég eðlilegt að Franklin þessi fái að tjá skoðanir sínar og þjóðkirkjan beri sig ekki að vingulshætti með að segja sig frá þáttöku í þessari vonar uppákomu. Sjálfur ætla ég að hlusta á Franklin Graham ef ég á þess kost þó ég sé honum ósammála í veigamiklum atriðum.
Sóknarnefndin í Laugarneskirkju ætti að muna eftir orðum sem franska skáldinu og heimspekingnum Voltaire eru eignuð: " Ég fyrirlít skoðanir þínar, en ég er tilbúinn að fórna lífi mínu til að þú fáir að halda þeim fram."
12.8.2013 | 09:56
Mistök,lögbrot og stefnuleysi
Geta Bandaríkin verið forustuþjóð hins frjálsa heims? Svo virðist sem Obama Bandaríkjaforseti geti ekki markað utanríkisstefnu með skynsamleg framtíðarmarkmið að leiðarljósi.
Obama segist ætla að berjast gegn Al Qaida og hryðjuverkastarfsemi í maí s.l. sagði hann að Al Qaida væri á flótta (on the run) en nú nokkrum mánuðum síðar þá þurfa Bandaríkjamenn að loka 19 sendiráðum vegna ógnar Al Qaida.
Samband Bandaríkjanna og Rússa hefur versnað og stráksleg ummæli Obama um Putin eru ekki til þess fallin að laga þau. Obama ákvað að hætta við fund með Putin þrátt fyrir að hafa lýst áður yfir mikilvægi góðra samskipta og samvinnu Rússa og Bandaríkjanna. Sennilegasta ástæða þess að Obama vill ekki hitta Putin núna er vegna þess að Putin mundi líklega koma út úr fundinum sem sterki maðurinn en Obama sá veiki.
Stefna Bandaríkjanna,Tyrkja, Frakka og Breta í Sýrlandi eru hættuleg mistök. Þessar þjóðir hafa sent mikið af vopnum til uppreisnarmanna, sem hafa lent í höndum Al Qaida liða. Þá hefur stefnan aukið á spennuna á þessum slóðum og stuðlað að baráttu milli trúarhópa og þjóðfélagsbrota. Eini raunverulegi sigurvegarinn í þessari baráttu virðist á þessari stundu vera Íran.
Obama hefur ekki lokað fangabúðunum í Guantanamo. Þar sitja menn sem hafa setið í fangelsi í meir en áratug án dóms og laga. Fangabúðirnar í Guantanamo er brot á aljþóðalögum og Bandaríkjunum til mikillar minnkunar. Uppljóstranir Snowden um framferði NSA grefur einnig undir áliti á Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir að Obama tali stöðugt um framtíðina og þær vonir sem við hana eru bundnar þá verður ekki séð að hann hafi nein ráð eða sé fær um að veita forustu eða hafi skilning á þeim nýju kröfum og þeirri breyttu heimsmynd sem nú er fyrir hendi.
Það er slæmt þegar Bandaríkin voldugasta ríki heims eru komið í þá stöðu að geta ekki veitt pólitíska eða siðferðilega forustu. Vonandi sjá Bandaríkjamenn sig knúna til þess í næstu kosningum að velja forseta sem er fær um að vera forustumaður og hefur sýn á framtíðina og skilning á því sem er að gerast. Slíkur forseti hefur ekki verið í Bandaríkjunum síðan Ronald Reagan gengdi embættinu.
11.8.2013 | 12:14
Kvennakúgun eykst í Afganistan
Noor Zia Atmar var talskona hins nýja Afghanistan fyrir réttindum kvenna þegar stjórn Talibana féll. Hún varð þingmaður á Afganska þinginu og mætti á fundi og ráðstefnur víða um heim til að tala um aukin réttindi kvenna og þá breytingu sem væri orðin í landinu.
Þetta var fyrir þrem árum. Núna býr Noor í skýli fyrir konur sem hafa mátt þola heimilisofbeldi, en maður hennar hefur niðurlægt hana, barið og jafnvel skorið með hníf. Noor segir í dag að konur séu í verri stöðu núna og á hverjum degi séu þær drepnar eða eyru eða nef skorið af þeim.
Á 10 ára afmæli hersetu NATO herja í Afganistan sýnir staða Noor sem er bara eitt dæmi af mörgum að árangur veru NATO herjanna í landinu skiptir engu máli. Skýlum fyrir konur er lokað og þing landsins hefur til samþykktar lög sem kemur í veg fyrir að ættingjar geti borið vitni gegn hver öðrum en það mundi koma í veg fyrir réttarhöld vegna heimilisofbeldis.
Noor Atmar flúði að heiman gegn mótmælum fjölskyldu sinnar sem bönnuðu henni að sækja um skilnað þrátt fyrir þær misþyrmingar sem hún hafði mátt sæta í hjónabandinu. Þegar hún sótti um skilnað yfirgaf fjölskyldan hana og töldu hana ættarskömm.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Afganistan til að gæta að hagsmunum og réttindum kvenna. Henni hefur ekkert orðið ágengt og staða kvenna hefur versnað frá því að hún kom til þessara starfa. Það er ekki henni að kenna. Þessir hlutir voru fyrirsjáanlegir að þegar vestrænir herir færu frá Afganistan þá mundi sækja í sama farið því miður.
Billjónum hefur verið sóað í tilgangslaust stríð í Afganitan og billjónum hefur verið varið í þróunaraðstoð í landinu. Ákveðinn hluti þess fjár hefur lent í vösum gjörspilltra stjórnenda landsins. Afskiptin af Afganistan er eitt dæmi um vanþekkingu vestrænu stjórnmálastéttarinnar sérstaklega þeirrar bandarísku á sögu og menningu þjóða eins og Afganistan. Öll afskiptin af landinu hafa því verið mistök og því miður mannslífum og fjármunum fórnað til einskis.
Ingibjörg Sólrún ætti að segja upp nú þegar af því að starf hennar ber engan árangur og vera hennar í landinu er eingöngu til að þiggja launin sín án annars takmarks eða tilgangs. Vestrænir herir ættu líka að fara sem allra fyrst og helst langt á undan áætlun. Vera þeirra skiptir hvort sem er ekki máli. Afganar verða sjálfir að ráða örlögum sínum.
10.8.2013 | 15:39
Í skugga hommahaturs
Hópur fólks berst fyrir því að þjóðir sniðgangi vetrarolympíuleikana sem eiga að vera í Rússlandi eftir 6 mánuði vegna afstöðu þarlendra til samkynhneigðra. Í fylkingarbrjóst hefur skipað sér frábær leikari Stehpen Fry. Sniðgöngutillögurnar fá dræmar undirtektir og bæði Obama Bandaríkjaforseti og Cameron forsætisráðherra Breta hafa hafnað þeim með öllu.
Það hefur komið fyrir að þjóðir hafa sniðgengið Olympíuleika vegna stjórnarfars í viðkomandi löndum. Þá kom upp krafa um að sniðganga Evrópusöngvakeppnina í Aserbadjan s.l. vetur vegna harðýðgi, en af því varð ekki. Í þeim tilvikum þar sem þjóðir hafa sniðgengið Olympíuleika hefur það fyrst og fremst bitnað á þeim sem sniðgengu og íþróttamönnum þeirra.
Hætt er við að fljótt taki fyrir alþjóðleg samskipti ef fólk vill beita þeim reglum út í hörgul að koma hvergi þar sem því mislíkar eitthvað í stjórnarfari, siðum eða trúarbrögðum þjóða. Samkynhneigðir mundu þannig berjast gegn því að nokkur alþjóðleg mót eða samskipti færu fram í Íslamska heiminum þar sem afstaðan til samkynhneigðra er mun harðari en í Rússlandi auk margra annarra landa.
Barátta samkynhneigðra fyrir eigin mannréttindum verður ekki aðskilinn frá mannréttindabaráttu almennt. Þess vegna er spurningin hvaða þjóðir uppfylla ekki þau skilyrði sem menn vilja setja varðandi mannréttindi. Þar koma til skoðunar þjóðir sem virða ekki réttindi þjóðfélagshópa í eigin landi og réttindi minnihlutahópa.
Svo má velta því fyrir sér hvort það er til þess fallið að koma á umbótum í mannréttindamálum að útiloka þá sem okkur finnst ekki þóknanlegir í þeim efnum. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að það horfi frekar til bóta til að koma á mannréttindum að hafa sem mest samskipti við þá sem brotlegir eru og láta þá heyra það sem okkur mislíkar.
9.8.2013 | 00:45
Þjóðkirkjan og tjáningarfrelsið
Þegar ég las afsökunarbeiðni kirkjunnar vegna auglýsingar um komu bandaríska evangelista prédikarans, Franklin Graham til landsins þá duttu mér í hug orð séra Sigvalda úr Manni og Konu eftir Jón Thoroddsen "Nú er víst kominn tími til að biðja Guð að hjálpa sér."
Kirkjan biðst afsökunar á því að hafa auglýst komu þessa prédikara til landsins af því að hann er á móti hjónaböndum samkynhneigðra. Jafnframt ítrekar íslenska þjóðkirkjan þetta í tilkynningu:
"Það var ekki ætlunin með birtingu hennar að varpa neinum skugga á Hinsegin daga eða taka undir orð Franklin Graham um samkynhneigða og hjónaband þeirra. Við biðjumst afsökunar á þessu. Um leið viljum við ítreka að þjóðkirkjan hvikar hvergi frá samstöðu sinni með samkynhneigðum, réttindabaráttu þeirra og hjónabandi samkynhneigðra."
Þá finnst Sigríði Guðmarsdóttur presti í Guðríðarkirkju nægt tilefni vegna þessa til að nota orðið "fokk" í netfærslu vegna þessa. Prestlegra getur það nú varla orðið. Oh my God hefði Kristján heiti ég Ólafsson yfirneytandi úr Spaugstofunni sennilega sagt við þessu.
Eftir því sem ég fæ skilið þennan málatilbúnað þjóðkirkjunnar og prestsins í Guðríðarkirkju, þá hefur þjóðkirkjan tekið afstöðu gegn tjáningar- og skoðanafrelsi kristins fólks sem talar gegn samkynhneigð og hjónabandi samkynhreigðra. Eftir því sem ég fæ skilið prestinn í Guðríðarkirkju og tilkynningu þjóðkirkjunnar þá eiga menn ekki lengur samleið með þjóðkirkjunni séu þeir á móti samkynhneigð og hjónaböndum samkynhneigðra og óheimill prédikunarstóll í kirkjudeild Agnesar Sigurðardóttur biskups. Sérstaklega á þetta við á Hinsegin dögum samkvæmt tilkynningunni.
Þrátt fyrir að ég telji eðlilegt að samkynhneigðir hafi öll lýðréttindi og megi ganga í hjónabönd þá finnst mér of langt gengið þegar það er fordæmanlegt að hafa aðra skoðun en mína hvað þetta varðar. Hinsegin dagar eru til að draga úr fordómum gagnvart samkynhneigðum og berjast fyrir mannréttindum þeirra. Sá tilgangur er góður og með sama hætti verða aðrir líka að njóta sömu réttinda hvorki meiri né minni.
Háskólinn fær iðulega fyrirlesara sem hafa skoðanir sem margir eru á móti og finnst jafnvel fordæmanlegar. Háskólinn risi hins vegar ekki undir nafni ef hann fengi ekki slíka fyrirlesara og gengist fyrir vandaðri málefnalegri umræðu þar sem fólk deilir og sitt sýnist hverjum. Ég sótti tvo slíka fyrirlestra manna sem ég er andstæður í pólitík sósíalistanna Göran Person og David Milliband. Þó ég væri að mörgu leyti ósammála þeim þá fannst mér miklu skipta að eiga þess kost að hlusta á fróðlegt framlag þeirra og geta spurt þá spurninga og komið að gagnstæðum sjónarmiðum.
Á ekki það sama að gilda innan þjóðkirkjunnar eða er þar aðeins heimil ein skoðun. Sé svo þá er best að Agnes Sigurðardóttir biskup fari að biðja Guð að hjálpa sér þar sem grundvöllur er þá brostinn fyrir þjóðkirkjunni.
Hvernig væri að koma smá skynsemi og umburðarlyndi inn í þetta þjóðfélag?
4.8.2013 | 12:18
Ingibjörg Sólrún og konur í Afghanistan
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk þá vafasömu upphefð í gegn um fjölskyldu "vininn" Össur Skarphéðinsson þáverandi utanríkisráðherra að vera send til Afghanistan til að sinna málefnum þarlendra kvenna.
Launin eru að vísu firnagóð en verkefnið nánast óleysanlegt og starfsaðstaða óneitanlega ein hættulegasta sem hægt er að bjóða þeim upp á sem ekki gegna hermennsku á vígvelli.
Eðlilega gerir Ingibjörg nú sem mest úr mikilvægi þessa viðamikla verkefnis. Samt sem áður er hætt við að allt það starf verði lítils metið þegar vestræn vopn og hermenn hverfa af svæðinu. Í þessu efni eins og með herhlaupið til Afghanistan er spurningin til hvers? Alveg eins og með þá hundruði milljarða sem hafa verið sendir til landsins og hafnað oftar en ekki í vösum spiltra stjórnmálamanna sem krefjast þess að konur þeirra klæðist skósíðum búrkum og líta á það sem dauðasynd að þær mennti sig eða keyri bíl.
Vestrænt stjórnmála- og fjölmiðlafólk er sannfært um að við höfum skipulagslega og hugmyndafræðilega yfirburði sem allir aðrir bíði eftir að tileinka sér. Þessi hrokafulla hugsun er röng og það sýnir sig eftirminnilega á hverjum degi í Írak og Afghanistan.
Vandi Vesturlandabúa eða á ég að segja kristna heimsins er að skoða sjálfa sig og þjóðfélagsgerð sína og átta sig á að hugmyndafræðilega erum við orðin viðskila við ákveðin grunngildi og erum tilbúin til að loka augunum fyrir kvennakúgun og mannfyrirlitningu þegar það hentar. Þess vegna er Dalai Lama iðulega útskúfað en furstar Saudi Arabíu boðnir velkomnir.
Af hverju eru konur seldar og svívirtar svo þúsundum skiptir á Vesturlöndum á sama tíma og við teljum okkur bær um að koma vitinu fyrir aðra? Það er eitthvað rotið ekki bara í konungsríkinu Danmörku heldur víðar í hinum vestræna heimi.
17.7.2013 | 15:01
Er tími til kominn?
Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi á Akranesi segir að það vanti 700 milljarða í lífeyriskerfið þrátt fyrir skerðingar. Hvað er til ráða. Hækka lífeyrisaldur upp í 70 ár e.t.v. 75 ár. Hækka iðgjöld upp í 19%. Breyta um kerfi.
Hvað með að láta það vera hlutverk ríkisins að annast um heilbrigðismál og vistun aldraðra sem og annarra. Hvað fólk sparar að öðru leyti ætti að vera mál þess sjálfs. Tónleikar, leikhúsferðir, utanlandsferðir eða annað í ellinni á að lúta sömu lögmálum og annarra borgara. Það þarf ekki þvingaðan sparnað í lífeyrissjóði til þess.
Hvernig ætlum við að komast í gegn um erfiðleika sem blasa við eins og svokallaða snjóhengju upp á rúma 500 milljarða. Lífeyrissjóðsvanda upp á rúma 700 milljarða. Einna skuldugustu fyrirtæki og fjölskyldur í Evrópu. Launakjör sem duga vart til framfærslu hjá stórum hluta launþega.
Það er kominn tími til að hugsa þetta upp á nýtt. Hvað með að láta markaðslausnir ráða í stað þess að hneppa borgarana í stöðugt meiri sósíalíska ánauð ofurskatta og ofurgjalda til lífeyrissjóða. Svo ekki sé minnst á lánskjör sem miðast við hagsmuni lífeyrissjóða en hvorki eðlilega vaxtatöku á markaði né almenn sjónarmið varðandi lánakjör.
Er ekki tími til kominn að velja leið frelsisisins en hafna ánauðinni?
11.7.2013 | 16:01
Reykingarfasisminn
Ég er á móti tóbaksreykingum og mér finnst sígarettureykur óþægilegur og vil vera laus við hann. Reykingafólk á samt sinn rétt og verður að fá að stunda nautnalíf sitt með þeim hætti að það skaði ekki aðra en sig sjálft.
Tóbaksreykingar eru hættulegasta fíkniefnið hvort sem er ólöglegt eða löglegt af því að þær drepa flesta. Þrátt fyrir það telur löggjafinn rétt að leyfa þetta fíkniefni en banna önnur sem valda minna tjóni.
Fyrst notkun þessa fíkniefnis tóbaks er leyft þá er ekkert sem réttlætir að yfirvöld banni ákveðnar tegundir tóbaksreykinga eins og sígarettur með mentolfílter meðan fílterlausar lútsterkar Camel sígarettur eru látnar óáreittar. Það ekkert óáþekkt að banna bjór og leyfa brennivín.
Tilraunir alræðissinnaðs rétthyggjufólks til að setja sem víðtækustu takmarkanir á réttindi reykingafólks til að stunda þessa viðbjóðslegu nautn sína minna á hugmyndafræði alræðisríkis fasista á Ítalíu í tíð Mussolinis þegar ákveðna hluti skyldi framkvæma með þeim hætti sem voru að skapi Il Duce (leiðtoganum)
Fyrst við viljum banna að selja annað en vondar sígarettur af hverju færum við þetta ekki á aðrar skaðlegar nautnir eins og t.d. sykurneyslu sem drepur líka marga. Hvað segðu súkkulaði og sælgætisneytendur við því að hvorugt væri sjáanlegt í búðum og það þyrfti að biðja um það sérstaklega og þá yrðu lokaðir kassar opnaðir. Þá er spurning um hvort banna eigi sérstaklega sælgæti sem börn eru líkleg til að ánetjast eins og t.d. kókómjólk og Coco Puffs.
Svo má banna transfitu og krefjast þess að 29 vikur á ári borði fólk samkvæmt matseðli frá Lýðheilsustofnun.
Svo er líka til sú leið að gera fólk ábyrgt gerða sinna, uppfræða það og leyfa því síðan að lifa lífinu án afskipta Ríkisins af neysluvenjum borgaranna.
9.7.2013 | 14:02
Á forsetinn frjálst val?
Mikið eigum við gott að hafa ungað út fjölda fræðimanna sem fjölmiðlamenn tala við um málefni sem þeir fræðimenn hafa enga sérfræðiþekkingu á.
Eitt af þessum málum sem stjórnmála- og stjórnsýslufræðingarnir virðast sammála um er að forsetinn eigi frjálst val um það hvort hann samþykkir eða synjar lagafrumvarpi staðfestingar.
Með sama hætti gætu stjórnsýslu- og stjórnmálafræðingar komist að þeirri niðurstöðu að embættismenn ættu frjálst val um afgreiðslu mála að geðþótta, ef eitthvað væri óljóst eða tæki ekki af öll tvímæli í reglugerð eða lögum. Embættismennirnir verða að fylgja þeim reglum sem stjórnsýslan hefur mótað og geta ekki afgreitt sambærilega hluti með jái í dag en neii á morgun. Sömu reglur gilda um æðsta embættismann þjóðarinnar, forsetann.
Forsetinn verður að vera sjálfum sér samkvæmur og virða meginreglur. Forsetinn hefur ekki almennan málsskotsrétt til þjóðarinnar og fram til þess tíma að Ólafur Ragnar hafnaði að staðfesta fjölmiðlalögin hafði engin forseti eða hann sjálfur synjað lögum staðfestingar. Synjun forseta á staðfestingu fjölmiðlalaganna var óheppileg pólitísk geðþóttaákvörðun og andstæð gildandi stjórnsýsluhefð. Forsetinn var þá undir miklum þrýstingi frá helsta auðhring landsins og fjölmiðlaveldi sem hafði stutt hann.
Synjun Ólafs Ragnars á Icesave samningunum var annars eðlis þar var ekki tekist á um flokkspólitískt deilumál í raun heldur rétt fólksins gagnvart frekju og yfirgangi Breta og Hollendinga. Ólafur Ragnar gaf bestu skýringuna á réttmæti þess að vísa þeim samningum ítrekað til þjóðarinnar með þeim ummælum sem hann viðhafði um Gordon Brown fyrrverandi forsætisráðherra Breta á alþjóðavettvangi í vor.
Ólafur Ragnar á þess ekki kost að synja lögum um breytingar á veiðigjaldi staðfestingar. Geri hann það er hann orðinn virkur þáttakandi í daglegum stjórnmálum og synjunin er andstæð eðlilegri lögskýringu á 26.gr. stjórnarskrárinnar. Miðað er við í 26.gr. stjórnarskrárinnar að forsetinn fylgi eigin sannfæringu en ekki áskorunum á undirskriftarlistum. Forsetinn verður að taka af öll tvímæli hvað það varðar í dag.
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.4.): 16
- Sl. sólarhring: 378
- Sl. viku: 2392
- Frá upphafi: 2516578
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 2191
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Ívar Pálsson