Leita í fréttum mbl.is

Vísindin og ríkið

Á annan áratug hafa fjárhirslur ríkisins í hinum vestræna heimi verið galopnar þegar vísindamenn og aðrir sem telja sig vera það, fara fram á rannsóknarstyrki,sem tengjast meintri hamfarahlýnun. 

Í fréttum RÚV í gær var sagt frá viðamikilli rannsókn á atferli og möguleikum rjúpunnar til að lifa  af í stöðugt hlýnandi umhverfi. Rannsóknin stendur væntanlega eins lengi og skattgreiðendur borga.

En hvaða hlýnun er þetta? Hvaða breytingar er verið að  tala um?

Skv. þeim tölulegu gögnum um hækkun á hita á til lengri tíma á Stykkishólmi og Reykjavík í eina öld þá er hann óverulegur og sama gildir um mælingar á sjávarhita við Vestmannaeyjar. 

Nú þegar frostið bítur og heimskautavindurinn gnauðar og allir geta tekið undir "nú er frost á Fróni, frýs í æðum blóð". Er þá ekki rétt að skoða raunveruleikann sem blasir við okkur og í framhaldi af því að segja okkur frá Parísarsasmkomulaginu og öllum loftslagsgjöldum. 

Svo fer að verða kominn tími á,að RÚV hætti einhliða áróðri um hamfarahlýnun í ófærð vegna frosta og snjóa. Þetta er vægast sagt aumkunarvert hjá RÚV trúboðinu.


Bloggfærslur 26. desember 2022

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 65
  • Sl. sólarhring: 632
  • Sl. viku: 7018
  • Frá upphafi: 2313747

Annað

  • Innlit í dag: 57
  • Innlit sl. viku: 6487
  • Gestir í dag: 56
  • IP-tölur í dag: 55

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband