Leita í fréttum mbl.is

Vísindin og ríkið

Á annan áratug hafa fjárhirslur ríkisins í hinum vestræna heimi verið galopnar þegar vísindamenn og aðrir sem telja sig vera það, fara fram á rannsóknarstyrki,sem tengjast meintri hamfarahlýnun. 

Í fréttum RÚV í gær var sagt frá viðamikilli rannsókn á atferli og möguleikum rjúpunnar til að lifa  af í stöðugt hlýnandi umhverfi. Rannsóknin stendur væntanlega eins lengi og skattgreiðendur borga.

En hvaða hlýnun er þetta? Hvaða breytingar er verið að  tala um?

Skv. þeim tölulegu gögnum um hækkun á hita á til lengri tíma á Stykkishólmi og Reykjavík í eina öld þá er hann óverulegur og sama gildir um mælingar á sjávarhita við Vestmannaeyjar. 

Nú þegar frostið bítur og heimskautavindurinn gnauðar og allir geta tekið undir "nú er frost á Fróni, frýs í æðum blóð". Er þá ekki rétt að skoða raunveruleikann sem blasir við okkur og í framhaldi af því að segja okkur frá Parísarsasmkomulaginu og öllum loftslagsgjöldum. 

Svo fer að verða kominn tími á,að RÚV hætti einhliða áróðri um hamfarahlýnun í ófærð vegna frosta og snjóa. Þetta er vægast sagt aumkunarvert hjá RÚV trúboðinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Já, það virðast ekki sterk rök fyrir því að veita skattfé í erfðafræðilega rannsókn á getu rjúpunnar hérlendis til að aðlaga sig meintri hlýnun á Íslandi.  Það er búið að hræða lýðinn og stjórnmálamenn með hlýnun andrúmslofts af mannavöldum, en hún lætur bíða eftir sér, og vetrarhörkur með mesta móti í Norður-Ameríku og Japan.  Ef hlýnar hér, hækkar gróðurlínan og rjúpan fylgir.  Bezt fyrir lífríkið væri að friða rjúpuna og vera ekki að keppa við fálkana o.fl. um að drepa hana.  

Bjarni Jónsson, 26.12.2022 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 76
  • Sl. sólarhring: 213
  • Sl. viku: 4259
  • Frá upphafi: 2296049

Annað

  • Innlit í dag: 71
  • Innlit sl. viku: 3903
  • Gestir í dag: 69
  • IP-tölur í dag: 69

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband