16.4.2010 | 08:46
Aðför að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
Það er fordæmanlegt að fréttamiðlarnir visir.is og dv.is skuli með fréttaflutningi sínum hafa staðið að því að hvetja fólk til að gera aðför að heimili Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Þetta er sennilega í fyrsta sinn sem fréttamiðlar gera mannsöfnuð fjögurra einstaklinga að fjöldamótmælum og hvetja óbeint til aðfarar að heimili viðkomandi.
Þetta er sennilega líka í fyrsta sinn sem aðför er gerð þó örfámenn hafi verið að heimili óbreytts þingmanns. Fyrir ári mátti dómsmálaráðherra þola aðför að heimili sínu vegna þess að ráðuneyti hennar gerði tilraun til að framfylgja lögum um innflytjendur. Öfgafólk fyrir landamæralausu Íslandi var ekki á sama máli og brást við með þessum ósæmilega hætti. Sú aðför var almennt fordæmd.
Það verður hver að svara fyrir sig og sínar gerðir og sýslan á eðlilegum vettvangi. En það verður að vera órjúfanlega tengt íslenskri menningu og siðferði að við virðum einstaklingsfrelsi og friðhelgi einstaklingsins þar með talið heimilisfrið fólks. Allir fjölmiðlar og stjórnmálamenn eiga að sameinast í fordæmingu á aðför eins og þeirri sem tilraun var gerð í gær til að gera að heimili Þorgerðar Katrínar.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Mannréttindi | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 220
- Sl. sólarhring: 491
- Sl. viku: 4436
- Frá upphafi: 2450134
Annað
- Innlit í dag: 200
- Innlit sl. viku: 4129
- Gestir í dag: 196
- IP-tölur í dag: 194
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Ég er búinn að fá svo upp í kok af því hvernig þetta fólk hefur hagað sér. Maðurinn hennar var launahæsti maðurinn hjá Kaupþing með um 24 milljónir í mánaðarlaun, lét afskrifa kúlulán uppá eitthvað um 800 milljónir ef ég man rétt, á meðan gengið er að eignum almennings. Þorgerður ætti að sjá sóma sinn í að segja af sér en að öðru leiti er ég sammála þér 100% . Það á að láta heimili fólks í friði þar sem eru börn sem hafa ekkert til saka unnið.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 16.4.2010 kl. 09:33
Undir þetta geta allir tekið og þar að meðal ég. Þarna ertu að setja fram kröfur um hegðan í samfélaginu. Þú tekur ekki til umfjöllunar þær breytingar- byltingu öllu heldur í þvi ferli siðrænnar þróunar sem stýrt var af tilteknum hópum áhrifamanna á flestum póstum.
Hér breyttist á skömmum tíma í óargadýr óhugnanlegur fjöldi fólks af báðum kynjum sem tældi fólk til að setja aleigu sína að veði fyrir hagnaði sem því var lofað. Allmargir töpuðu aleigu sinni og stóðu frammi fyrir því að vera orðnir vanskilamenn með brotna ímynd.
Ég hef mikla samúð með börnunum sem misstu feður sína. Feðurna sem treystu sér ekki til að lifa með þá sjálfsmynd sem þeir höfðu kappkostað að forðast og lagt líf sitt og metnað í að styrkja.
Og ég mun aldrei skoppa framhjá þeim sannleika að á bak við þessa ógæfu alla var hugmyndafræði. Hugmyndafræði sem hafði að leiðarljósi græðgina og til liðsinnis lygina hrokann og flest það sem skekkir þá ímynd sem maðurinn hefur leitast við að skapa sér.
Stjórnmálamenn þiggja vald af fólki. Það er ekki sjálfgefið að öllum sé fært að skilja ábyrgðina sem því fylgir að drýgja fólki örlög.
Verði ekki gert upp við þetta svartnætti Íslandssögunnar af einurð og heiðarleika þá er það vísun á annað slys. En til þess þarf kjark.
Og þarna koma margir einstaklingar vð sögu sem verða að skilja þann einfalda sannleika að sá sem með einhverju móti fellur undir orðið valdsmaður verður að hefja það ferli með því að takast á við að vera maður í góðum skilningi og sönnum.
Takist það ekki þá er voði vís.
Á þessu prófi féllu flestir þeir sem undir það gengu úr hópum þeirra sem tóku að sér það vandaverk að drýga þjóð sinni örlög.
Reiði er vond en hún er ekki alltaf sjúkleg.
Bestu kveðjur.
Árni Gunnarsson, 16.4.2010 kl. 10:58
Mér þykir verst að það mættu ekki fleiri. ,,Aðför að heimili Katrínar", hvað með aðför að heimilum hundruða, ef ekki þúsunda fólks, sem hefur orðið illa út úr bankakreppunni, fólks sem trúði lygum Þorgerðar, og treysti á hana til að vernda hagsmuni fólksins í landinu, eins og hún var kosin til ? Einu hagsmunirnir, sem hún hugsaði um voru hennar eigin.
Það hefði átt að ryðjast inn, og henda henni og fjölskyldu hennar út á götu, eins og búið er að gera við hundruð Íslendinga um land allt. Það er ekkert réttlæti, ef hún og fjölskylda hennar fær að búa áfram í eigin húsnæði, með 1700 milljóna skuld á bakinu, á meðan fólki er hent út vegna skitins bílaláns uppá kannski nokkur þúsund. Og hver ber ábyrgð á því ástandi sem hér er ? Atvinnuleysi og örbirgð ? Hver annar en þeir sem tóku þátt í að mergsjúga bankana á kostnað almennings ?
Það eina rétta fyrir Þorgerði Katrínu er að segja af sér öllum opinberum störfum strax, og flytja síðan út úr glæsihöllinni. Það er nóg til af leiguhúsnæði. Kannski hefur hún ekki efni á því, þegar hún verður atvinulaus, hún finnur þá kannski sviðan af gjörðum og aðgerðarleysi sínu.
Og Kristján, ,,drengurinn okkar" faldi sig bak við lítið barn, þvílík hetja !!
Börkur Hrólfsson, 16.4.2010 kl. 11:24
Góðan dag; Jón Magnússon !
Stæði þér ekki nær; að verja heimili þess fólks, sem Sýslumenn landsins, og þeirra fylgikindur (Banka lúðar og önnur úrhrök), sitja um - og hafa setið, að undanförnu ?
Má vart; á milli sjá - hvort siðblindara er / fólk; af gráðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, eða þá; íslenzk lögmanna stétt, að stærstum hluta, síðuhafi góður.
Hér eftir; duga engar fyrigefningar - né kærleikur, til handa valda stéttinni, heldur; grimmilegar hefndir, eftir aðförina, að íslenzkri Alþýðu !!!
Með; kveðjum þó /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.4.2010 kl. 15:49
Þetta eru ákaflega lítisverð vinnubrögð hjá þessum blaðamönnum. Til háborinnar skammar.
sandkassi (IP-tala skráð) 16.4.2010 kl. 16:06
Jón, ég vil minna þig á að bað DV.is og visir.is sögðu reglulega frá því þegar öfgahópur sletti málningu á hús manna. Þá sögðu þeir skilmerkilega frá því þegar hús annars Werners bræðranna var málað að utan og ,, að til stæði að mála hús hins bræðranna svo og hús Bjarna Benediktssonar".
Ég minnist þess ekki að hús Hreins Loftssonar, Jóns Ásgeirs eða annarra Baugsmanna væru máluð.
Þessar aðgerðir virtust ekki stuða ríkisstjórnina, fyrr en hús dómsmálaráðherra var málað.
Sigurður Þorsteinsson, 16.4.2010 kl. 17:43
Rafn meginatriðin í því sem ég blogga um er mannhelgi og friðhelgi heimilis og ómerkilegheit fjölmiðlanna sem reyndi að egna fólk til þessarar aðfarar. Við erum sammála um þau atriði. Það er síðan mál sem fólk á að tala um opinskátt hvort það telur eðlilegt að kjörnir fulltrúar þeirra gegni áfram trúnaðarstöðum eða ekki.
Jón Magnússon, 16.4.2010 kl. 19:20
Ágæti vinur minn Árni þetta er vel sagt sem þú bendir á í athugasemd þinni og við erum sammála í öllum meginatriðum. En mannhelgi og friðhelgi einstaklingsins verður að virða og það er þungamiðjan í því sem ég er að benda á.
Jón Magnússon, 16.4.2010 kl. 19:22
Börkur það hafa fáir bent á það jafn oft og lengi hvað við búum við vond lánakjör og ég hef krafist breytinga á þeim í tæpa tvo áratugi og gert sérstakar athugasemdir við verðtrygginguna og líka gengislánin þegar þau komu fram. Ef þú skoðar það sem ég hef sagt og skrifað svo árum skiptir þá er það einmitt athugasemdir við lánakerfið í landinu. Ég taldi þegar hrunið varð að það yrði að frysta verðtrygginguna og bjóða fólki upp á skuldbreytingu gengislánanna. Það var ekki gert og ríkisstjórnin hefur ekkert gert sem máli skiptir fyrir venjulegt fólk hvað þetta varðar. Það gengur ekki og þar verður að verða breyting á. Við getum verið sammála um það. Hitt er annað Börkur að við eigum að standa saman um að heimili fólks sé friðheilagt og ekki veitast að fólki á heimilum sínum. Þá brestur eðlileg umgjörð réttarríkisins um grundvallarmannréttindi. Það er svo annað að það verður hver um sig að svara fyrir það sem viðkomandi hefur gert.
Jón Magnússon, 16.4.2010 kl. 19:30
Óskar ég hef heldur betur staðið í baráttu til verndar heimilum fólksins í landinu. í fyrsta lagi með tillögugerð um afnám verðtryggingar af skuldum. Í öðru lagi með því að leggja áherslu á lög um greiðsluaðlögun um árabil áður en frumvarp var loks lagt fram á Alþingi og þá að standa að samþykkt þess. Í þriðja lagi að vera meðflutningsmaður á frumvarpi um ábyrgðarmenn sem varð að lögum á síðasta þingi. Við erum síðan gjörsamlega ósammála um baráttuaðferðir Óskar. Fyrir rúmum þúsund árum sagði Þorgeir Ljósvetningagoði á Alþingi íslendinga eitthvað á þá leið að ef lögin væru rofin þá væri friðurinn líka rofin. Þeir sem beita hefndaraðgerðum verða venjulegast fyrir þeim sjálfir á endanum. Þú ættir að skoða söguna hvað það varðar Óskar. Við höfum byggt hér upp réttarríki og það skiptir okkur máli að virða það en vinna að lagfæringum á því sem úrskeiðis hefur farið. Sú leið er hægfara en stefnir að ákveðnu marki. Sú leið sem þú talar um að fara hefur aldrei orðið til góðs þegar upp hefur verið staðið.
Jón Magnússon, 16.4.2010 kl. 19:36
Þakka þér fyrir athugasemdina Gunnar við erum algjörlega sammála.
Jón Magnússon, 16.4.2010 kl. 19:36
Þakka þér fyrir Sigurður þetta eru athyglisverðar upplýsingar ég hafði ekki gert mér grein fyrir þessu sem þú ert að nefna.
Jón Magnússon, 16.4.2010 kl. 19:37
ég sá í dag manninn sem keyrir út stefnurnar á því svæði sem ég bý, hann hefur komið víða við undanfarið, ég get mér þess til að í sumum tilfella voru það börn sem opnuðu dyrnar fyrir þeim manni sem kvaddi dyra á "þeirra" heimili til að bera þeim væntanlega "váleg" tíðindi.
þungir timar hjá mörgum í dag
Jón Snæbjörnsson, 16.4.2010 kl. 23:19
Það er alveg rétt Jón að það eru þungir tímar hjá mörgum í dag. Börn taka raunar ekki við stefnum og stefnur eru afhentar í umslögum þannig að þau válegu tíðindi sem þar eru liggja ekki fyrir fyrr en viðkomandi opnar bréfið ef hann tekur ekki við stefnunni sjálfur. Mér er ekki kunnugt um annað en stefnuvottar gæti þess að sýna kurteisi og háttvísi en séu ekki með ógnandi tilburði eða rjúfi heimilisfrið. En þetta kemur í sjálfu sér Þorgerði Katrínu eða aðför að heimili hennar ekki við. Sú aðgerð er ekki að einu eða neinu leyti tengd störfum stefnuvotta. Með sama hætti mætti hvetja til þess að rjúfa heimilisfrið hjá Steingrími J og Jóhönnu en það er heldur ekki samhengi þar á milli. Þá mætti líka með sama hætti rökfæra það og væri í sjálfu sér eðlilegra að gerð yrði aðför að heimli félagsmálaráðherra sem hefur ekki verið með nema takmarkaðar tillögur til lausnar skuldavanda heimilanna. En það væri líka fráleitt vegna þess að vandinn er ekki félagsmálaráðherra að kenna. En setjum svo að vandinn væri að einhverju leyti honum að kenna þá væri samt rangt að gera aðför að heimili hans. Það er þá eðlilegra að mótmæla við ráðuneytið eða þingið. Flóknara er það ekki nafni minn góður. Við eigum að virða mannhelgi og friðhelgi heimilisins.
Jón Magnússon, 16.4.2010 kl. 23:43
Þó fyrr hefði verið
Finnur Bárðarson, 16.4.2010 kl. 23:54
Stefnuvotturinn sem ég var að vitna til er hin hugprúðasti maður er einvörðungu að sinna starfi sínu, ekkert við han að sakast svo það sé á hreinu.
ég er alveg sammála þér Jón nú sem oft áður, ekki vil ég Þorgerði Katrínu neitt illt og hvað þá að ráðast að heimili hennar eða annarra er fjarri mínum skilningi sem og langt undir öllu venjulegu siðferði að ég tel.
Nei þessi ríkisstjórn er langt í frá að standa sig langt í frá tel ég í raun að umboði hennar sé löngu lokið enda sína kannanir það sem gerðar hafa verið - en einhvern vegin ná þau að sitja sem er mér óskiljanlegt
það eru ólgu tímar sem komu á eftir heljarmikið umrót margir vilja ákveðna tiltekt sem og uppgjör á öllum stigum - ég kann uppskriftina af friði og sátt fyrir mig en ekki fyrir alla hina því miður - ég vona það besta svo við getum hafið störf að nýju með "bros" á vör að nýju
Jón Snæbjörnsson, 17.4.2010 kl. 07:48
Ágaett hjá Árna Gunnarssyni hér ad ofan. Menn lesi Árna, ritfaeran og réttsýnan. Mín skodun er sú vardandi reglur um mannasidi vid heimili fólks er ad thar meigi menn safnast og leggja fram mótmaelaplagg en alls ekki fremja nein spjöll. Lögregla aetti raunar alltaf ad vera vidstödd ad frumkvaedi theirra sem vilja mótmaela. Og vera sérstaklega tilköllud. Hugmyndin er thessi: Sidprúd mótmaeli hafa mikil áhrif, meiri áhrif en skítkast og vitleysa.
Guðmundur Pálsson, 18.4.2010 kl. 13:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.