3.11.2011 | 12:36
Harðasti rukkarinn
Viðskiptaráðherra sagði á Alþingi í morgun að Lífeyrissjóðirnir væru harðasti rukkarinn gagnvart skuldugum heimilium og kæmi minnst að lausn á skuldavanda heimilanna. Þetta eru merkilegar upplýsingar.
Lífeyrissjóðirnir eru hugsaðir til að tryggja ákveðna velferð fólks þegar það hættir að vinna. Slíka velferð má tryggja með öðrum hætti en nú er gert t.d. með því að fólk geti myndað lífeyrissparnað með því að fjárfesta í eigin húsnæði og sé þá fjár síns ráðandi í stað þess að löggjafinn taki fjárráðinn af fólki með skylduaðild að lífeyrissjóðum og takmörkunum á fjárfestingum fólks vegna lífeyris.
Stjórnendur lífeyrissjóðanna vilja ekki horfa á það stóra samhengi að með því að neita aðkomu að og vilja til að leysa skuldavanda þeirra sem eiga eitthvað og geta eitthvað þá eru þeir að framlengja kreppu í landinu og koma í veg fyrir að aukna tekjuöflun sína í nánustu framtíð. Þessi afstaða lífeyrissjóðanna er því líkleg til að skaða þá þegar á heildarmyndina er liðið.
En stjórnendur lífeyrissjóðanna starfa samkvæmt því sem viðskiptaráðherra segir á þeim grundvelli að bjóða skuli upp hús fólks og reka það út á Guð og gaddinn til þess að því geti hugsanlega liðið betur í ellinni.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Fjármál, Kjaramál, Viðskipti og fjármál | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 24
- Sl. sólarhring: 188
- Sl. viku: 4884
- Frá upphafi: 2474410
Annað
- Innlit í dag: 21
- Innlit sl. viku: 4479
- Gestir í dag: 21
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Mikil óttaleg þvæla er þetta hjá þér Jón! Læt vera með skoðanir þínar á því, hvort lífeyrissparnaður eigi að vera svona og lögbundinn, þér er auðvitað frjálst að hafa þá skoðun, en að taka undir þetta dómsdagsbull, sem þú segir að viðskiptaráðherra hafi borið upp í ræðustól Alþingis, það hreinlega get ég ekki skilið.
Sjálfur ættir þú að þekkja lögin og sjálfur hefur þú setið á Alþingi. Þér ætti því að vera það fullkomlega ljóst að enginn lífeyrissjóður á Íslandi hefur heimild til að skerða lífeyri eins til þess að niðurgreiða eða fella niður skuld annars. Þá gildir einu hver skuldin er. Þess vegna er lífeyrissjóðunum sá einn kostur að innheimta það sem innheimtanlegt er, hver sem í hlut á, einstaklingur eða fyrirtæki. Fyrir þessu eru nokkrir Hæstaréttardómar og álit umboðsmanns Alþingis.
Ekki leggjast niður á það lága plan sumra stjórnmálamanna að finna sér blóraböggul í lífeyrissjóðunum þegar óskir þeirra ná ekki fram að ganga eða þegar þeir reyna að snúa sig út úr vandræðum, sem þeir hafa búið sér sjálfir.
Annars: Bestu kveðjur:-))
ÞJ
Þórhallur Birgir Jósepsson, 3.11.2011 kl. 12:55
Er ekki rétt Jón að það sé skoðað hverjir eigi lífeyrissjóðina? það skyldu þá ekki vera útlendir vogunarsjóðir án þess að við höfum hugmynd um það.
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 3.11.2011 kl. 13:08
Þú manst þessa umræðu og mínar tillögur held að það sé orðið tímabært að menn fari að tala saman og stilla strengi sína til að leggja þetta ægivald í landinu niður. Þeir sem ráða þarna för eru flestir að hugsa um eigin hag og kippa sér ekkert upp við að tapa milljörðum hér og miljörðum þar ef vinir og ættingjar hafa gott af.
Það hefur aldrei gefist vel að ríkisvaldið afsali sér einkaleyfi til skattlagningar en eins og AGS benti á í fyrstu umfjöllun sinni um peningamál Íslands söguð þeir að ómögulegt væri annað en að líta á lífeyrissjóðina sem skattlagningu og þar með værum við að borga miklu hærri skatta en nokkur önnur þjóð. Þetta má Sjálfstæðisflokkurinn hafa í huga þegar menn þar á bæ eru að berja sér á brjóst og tala um lága skatta.
Jón gakk nú í lið með þeim sem vilja breyta þessu kerfi, afnema vald lífeyrissjóðanna en láta sparnað landsmanna vinna öllum til hagsbóta með því að fjármagna íbúðalánakerfi á ódýran og skinsaman hátt
Sigurður Haraldsson
Sigurður Haraldsson (IP-tala skráð) 3.11.2011 kl. 16:17
Ég er ekki sammála því að lífeyrissjóðirnir séu hörðustu rukkararnir. Það eru skattyfirvöld og fyrirtæki og stofnanir ríkisins. Ég veit nokkur tilfelli þess að skatturinn hefur farið fram á gjaldþrot eftir að samningar höfðu verið gerðir við alla aðra lánadrottna. Skattyfirvöld vildu fá bankatryggingu fyrir greiðslu skuldarinnar vegna samnings um greiðslufrest ! Bankar eru auðvitað ekki tilbúnir til að veita bankaábyrgð vegna greiðslu á skattskuld - sérstaklega ef sá hinn sami banki er nýbúinn að fella niður hluta skuldar.
Ég veit líka dæmi þess að hótað var fjárnámi og gjaldþroti í kjölfar þess vegna ógreiddra reikninga hjá Landsspítalanum. Landsspítalinn er með lögfræðistofu í fullri vinnu við að innheimta reikninga, eins og það gangi betur ef reikningurinn hækkar um helming eftir bréf frá lögfræðistofu.
Björn S. Lárusson (IP-tala skráð) 3.11.2011 kl. 17:23
Þakka þér fyrir harða ádrepu Þórhallur. Ég þekki lögin um lífeyrissjóðina en það er annað að innheimta fé eða vera harðasti rukkarinn eins og Árni Páll ráðherra sagði. Ég tel síðan að löggjafinn hefði átt að grípa inn í varðandi lífeyrissjóðina og eigi að gera það til að lífeyrissjóðirnir taki þátt í nauðsynlegri almennri skuldaaðlögun í samræmi við álit hagfræðingsins Buiter sem á sínum tíma varaði íslensk stjórnvöld við hruni.
Jón Magnússon, 3.11.2011 kl. 17:51
Ekki veit ég það Kristján en það væri áreiðanlega nauðsynlegt að skoða hvað er raunverulega í þeim.
Jón Magnússon, 3.11.2011 kl. 17:51
Rétt og satt Sigurður. Ég hef alltaf verið í því liði.
Jón Magnússon, 3.11.2011 kl. 17:52
Þetta getur allt saman verið rétt hjá þér Björn. Ég var að vísa til þess sem viðskiptaráðherra sagði á Alþingi og hélt að það væri hægt að treysta einföldum ummælum hans um staðreyndir. Ef til vill er það ekki hægt.
Jón Magnússon, 3.11.2011 kl. 17:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.