5.7.2012 | 08:47
Öryrkjabandalagið og mannréttindi
Formaður Öryrkjabandalagsins hefur kynnt þá fyrirætlun bandalagsins að kæra framkvæmd forsetakosninga fyrir þann ágalla, að farið skuli að íslenskum kosningalögum við framkvæmd kosninganna. Fróðlegt verður að sjá málatilbúnað lögmanns bandalagsins þegar kæran lítur dagsins ljós.
Stjórn Öryrkjabandalagsins heldur því fram að framkvæmd forsetakosninganna hafi verið mannréttindabrot af því að farið hafi verið eftir 3.mgr. 63 gr. laga um kosningar til Alþingis, sem einnig gilda um forsetakjör, en þar er kveðið á um það að fulltrúar kjörstjórnar megi einir veita aðstoð þeim sem þurfa.
Formaður Öryrkjabandalagsins og nokkrir sem hafa tjáð sig telja það mannréttindi sín að geta sjálfir valið hver skuli aðstoða þá við að kjósa. Það gleymist í þessari umræðu að þetta ákvæði var sett til að tryggja leynilega kosningu þeirra sem þurfa á aðstoð að halda með tilliti til hagsmuna þeirra.
Í mörgum tilvikum er heppilegt að sá sem öryrki kýs að aðstoði hann geri það. Það er þó ekki einhlítt. Í sumum tilvikum getur öryrkinn verið undir óeðlilegum og óþægilegum þrýstingi og verður að hlíta því með breyttum reglum að velja þess vegna aðila sér nákominn sem ræður þá atkvæði hans í raun. Tryggjum við mannréttindi betur með þeim hætti? Tryggjum við betur leynilegar kosningar?
Skv. samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er kveðið á um það að fatlaðir geti notið aðstoðar einstklings að eigin vali við að greiða atkvæði. Eðlilegt er að löggjöfinni verði breytt til að fullnægja því ákvæði, en spurningin er hvað átt er við með ákvæðinu. Nú getur fatlaður einstaklingur valið hvern sem er úr kjörstjórninni til að aðstoða sig, en vafi er um hvort það uppfylli skilyrði ákvæðisins. Ef til vill mætti hugsa sér að hópur trúnaðarmanna yrði ákveðinn og fatlaðir gætu valið úr þeim hópi. Það er nefnilega ekki endilega víst að það þjóni best hagsmunum fatlaðra að vera undir handarjaðri fólki sem er þeim nátengt ef tryggja á að vilji þeirra í leynilegri kosningu nái fram að ganga.
Það eru hræðileg örlög að búa við alvarlega fötlun. Þjóðfélaginu ber að gera það sem unnt er til að tryggja hag og réttindi þeirra sem þannig er komið fyrir. Bestu úrræðin þurfa ekki alltaf að vera þau að þeir sem næst standi þeim fatlaða hafi í raun vald yfir honum.
Hafi einhver brugðist í því að aðlaga íslenska löggjöf að samningi Sameinuðu þjóðanna þá eru það viðkomandi ráðherra og Alþingi. Eðlilegt er að ræða þau mál öfgalaust og ná sem bestri niðurstöðu fyrir fatlaða svo það sé tryggt sem best að vilji þeirra fái að koma fram í leynilegum kosningum. Það borgar sig hins vegar ekki að hrapa að niðurstöðunni og fordæma ákvæði löggjafar sem einmitt var sett á sínum tíma til að tryggja hagsmuni þeirra sem þurfa á aðstoð að halda í kjörklefanum.
Sú afstaða Öryrkjabandalagsins að ætla að kæra forsetakosningar er í ljósi þessa vægast sagt vafasöm. Ekki verður séð að sú kæra þjóni hagsmunum fatlaðra, en gæti e.t.v. flokkast undir pólitíska misnotkun á Öryrkjabandalaginu. Hagsmunir öryrkja eru fólgnir í því að um þessi mál verði rætt öfgalaust og náð þeirri niðurstöðu sem best hentar hagsmunum fatlaðra til að tryggja réttindi þeirra í stað pólitískra upphlaupa eins og þessi málflutningur formanns Öryrkjabandalagsins ber með sér.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 08:49 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 106
- Sl. sólarhring: 265
- Sl. viku: 3943
- Frá upphafi: 2428164
Annað
- Innlit í dag: 89
- Innlit sl. viku: 3637
- Gestir í dag: 86
- IP-tölur í dag: 78
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Er ekki eitthvað sem þú gleymir Jón.Hvað með að allir skuli jafnir fyrir lögum.Þess var ekki gærtt við kosninguna.Tveir einstaklingar fengu sérmeðferð við kosninguna.Annar var fatlaður einstaklingur,sem fékk að velja sér aðstoðarmann sem var ekki frá kjörstjórn.Hinn var forsetaframbjóðandi, sem gat ekki framvísað persónuskilríkjum, en fékk samt að kjósa.Ítrekað hafði verið auglýst fyrir kosninguna að fólk yrði að framvísa persónuskilríkjum. Ekki var minnst á að nein undanþága væri gefin fyrir öðru.Með lögum skal land byggja og forseta kjósa.
Sigurgeir Jónsson, 5.7.2012 kl. 09:15
Kannski "VILL" formaður Öryrkjabandalagsins ekki varpa ábyrgðinni á formann síns stjórnmálaflokks, vegna þess að hans flokkur er ábyrgur og flokksbróðir hans er ráðherra og ber ábyrgð á málflokknum?????
Jóhann Elíasson, 5.7.2012 kl. 09:28
Jón ég er sammála þessu sem þú berð fram í þessu bloggi.
Þetta er ekki eins einfalt og sumir á mbl. blogginu vilja halda fram. Það er ekki hægt að hafa leynilegar kosnigar á Íslandi og þar á meðal öðrum löndum fyrir þá sem þurfa aðstoð í kjörklefa, eins og kosnigar fara fram í dag.
Ef kjósandi þarf aðstoð annara í kjörklefa þá er það auðvitað ekki lengur leynileg kosning.
Tökum sem dæmi blindann kjósanda; getur blindur kjósandi vitað að aðstoðarmaður hans/hennar í kjörklefa hafi merkt við það val sem kjósandi vildi?
í þessu tilfelli væri kanski betra að hafa persónulegan og opinberan aðstoðarmenn í kjörklefa. Minni líkur á kosningasvindli.
En að tala um leynilegar kosningar þegar kjósandi þarf aðstoð í kjörklefa er alveg út í hött.
Kveðja frá Las Vegas.
Jóhann Kristinsson (IP-tala skráð) 5.7.2012 kl. 09:57
Sammála góðum hugleiðingum þínum Jón.
Guðmundur Pálsson, 5.7.2012 kl. 16:34
Mikið er ég sammála þér núna Jón.
Sigurður Haraldsson (IP-tala skráð) 5.7.2012 kl. 17:57
Góður punktur hjá þér með þrýstinginn frá nákomnum, sem örugglega geta átt sér stað í einhverjum tilfellum.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.7.2012 kl. 18:07
Ekki veit ég hvaðan í ósköpunum sú hugmynd kemur að kosning með eigin aðstoðarmanneskju sé eitthvað meira leynileg en kosning með opinberum aðstoðarmanni.
Fram kemur í núgildandi lögum að sá sem ekki er fær að kjósa án aðstoðar skuli sjálfur benda á einhvern í kjörstjórn sér til aðstoðar.
Fulltrúum í kjörstjórn er ennfremur óheimilt að bjóða fram aðstoð að fyrra bragði.
Fulltrúar í kjörstjórn eru bundnir þagnarheiti, eins og gildir um ýmsar starfsstéttir, svo sem lækna og lögmenn og sjálfsagt fjölda opinberra starfsmanna.
Ég sé ekki betur en að með þessu fyrirkomulagi sé mun betur búið að leynd kjósandans en ef einhver honum nákominn er með nefið ofan í hans málum.
Með því að leyfa ótakmarkaðan aðgang "aðstoðarfólks" í kjörklefann opnast möguleikar á alls konar misferli og misnotkun, eins og t.d. atkvæðasölu, sem núgildandi lögum er einmitt ætlað að fyrirbyggja.
Ég held að þarna hafi fatlaðir hlaupið á sig í einhverri misskilinni réttlætisherferð. Það að þvinga sitt fram með frekju, og kæra svo kosningarnar er þeim a.m.k. ekki til framdráttar.
Reyndar er það svo að það er búið að teygja hugtakið "mannréttindi" allt of langt. Það liggur við að fatlaðir líti svo á að geti þeir fötlunar sinnar vegna ekki gert eitthvað sem aðrir geta gert sé það skylda stjórnvalda að gera þeim það kleift hvað sem það kostar.
Ég bðí eftir því að Freyja ákveði að það séu hennar mannréttindi að fara í fallhlífarstökk.
Árni Árnason (IP-tala skráð) 5.7.2012 kl. 18:13
Ég er alveg sammála þér Sigurgeir. Ég tel að kjörstjórnir hafi gert mistök í báðum tilvikum. Í öðru tilvikinu var brotið gegn ótvíræðu lagaákvæði sem er alvarlegt mál og í hinu tilvikinu er brotið gegn starfsreglum sem yfirkjörstjórnir höfðu sett. Þetta voru þó minni háttar hnökrar á framkvæmd kosninganna. En að sjálfsögðu eiga sömu lög að gilda fyrir alla.
Jón Magnússon, 5.7.2012 kl. 22:00
Þetta hvarflaði líka að mér Jóhann. En þá er líka um að ræða pólitíska misnotkun á Öryrkjabandalaginu.
Jón Magnússon, 5.7.2012 kl. 22:01
Það má til sanns vegar færa Jóhann, en þarna er verið að miða við að fulltrúinn í kjörstjórn er bundinn þagnarskyldu og ákveðnum trúnaðarskyldum við þann sem þarf að hjálpa til að kjósa. Þeir sem geta kjósa með leynilegum hætti, en til að tryggja að þeir sem ekki geta kosið hjálparlaust þá var við það miðað að aðstoðin væri sem ópersónulegust.
Jón Magnússon, 5.7.2012 kl. 22:04
Þakka ykkur fyrir Guðmundur, Sigurður og Rafn.
Jón Magnússon, 5.7.2012 kl. 22:04
Ég er hjartanlega sammála Árni. Góður punktur með með meintu mannréttindinn sem ekki er hægt að fullnægja vegna ómöguleika.
Jón Magnússon, 5.7.2012 kl. 22:07
Haldi þið virkilega að einn maður hjá ÖBÍ geti tekið svona ákvörðun. Það eru 33 aðildarfélög að ÖBÍ og um svona hluti fjallar framkvæmdarstjórnin. Vildi bara leiðrétta þann miskiling að þetta sé frá formanninum þó hann komi fram fyrir hönd félagsins.
Hilmar Guðmundsson, 6.7.2012 kl. 10:36
Vildi leiðrétta þann miskiling að formaður hafi einn tekið þessa ákvörðun. Þessi ákvörðun er tekin af framkvæmdarráði en aðildarfélög að ÖBÍ eru 33.
Hilmar Guðmundsson, 6.7.2012 kl. 10:44
Þakka þér fyrir þessar upplýsingar Hilmar. Það er ennþá undarlegra að fjölskipuð stjórn skuli hafa látið sér detta í hug að kæra kosningarnar á þessum forsendum.
Jón Magnússon, 6.7.2012 kl. 16:39
Hversvegna eru þessi mótmæli ÖBÍ núna fyrst tilkomin þegar ÓRG er kjörinn?
Hefðu þessi mótmæli komið fram ef Þóra hefði sigrað?
Hví var ekki mótmælt í síðustu Alþingiskosningum þega VG og Samfylkingin unnu.
Vegna þess að formaður ÖBÍ hann Guðmundur Magnússon er kommúnisti sem fylgir udir fölsku flaggi.
Köllum mennina sínu rétta nafni.
Sigurbjörn Friðriksson, 7.7.2012 kl. 00:05
Sæll Jón.
Í þessari athugasemd ætla ég ekki að hafa skoðun á því hvort fatlað fólk á að njóta aðstoðar einhvers úr kjörstjórn eða að eigin vali, ég hef skoðun á því, en ætla ekki að tjá hana hér. Hins vegar finnst mér að þú ættir að vanda skrif þín betur og gæta betur að þeim staðhæfingum (fleiri en einni) sem þú setur hér fram á opnu bloggi. Ein þeirra er eftirfarandi:
"Það eru hræðileg örlög að búa við alvarlega fötlun."
Í fyrsta lagi; hvað er "alvarleg" fötlun?
Í öðru lagi; hefurðu yfirleitt einhverja hugmynd um hvað þú ert að segja með þessari staðhæfingu þinni? Ef þú getur áttað þig á því hvað þér finnst vera alvarleg fötlun, hefurðu þá kynnt þér það með einhverjum hætti hversu "hræðilegt" því fatlaða fólki finnst að búa við fötlun sína?
Ef svörin við þessum spurningum eru "nei", gættu þá betur að því hvað þú ert að skrifa og staðhæfa áður en þú setur það fram á opinberum vettvangi.
Það er enginn fær um, hvorki þú né ég, að segja til um hversu hræðilegt líf og örlög einhvers eru, allra síst þegar um heilan hóp fólks er að ræða, sem ég reyndar átta mig ekki á hversu stór er í þínum huga.
Ágústa Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 8.7.2012 kl. 02:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.