Leita í fréttum mbl.is

Hvað gerir Sérstakur í Seðlabankamálinu?

Fyrri nokkru ákvað þáverandi bankaráðsformaður Seðlabanka Íslands í samráði við bankastjórann,að greiða bankastjóranum kostnað hans vegna málaferla sem hann fór í á hendur Seðlabankanum og tapaði. Þannig greiddi Seðlabankinn samkvæmt laumuspili bankaráðsformannsins þáverandi og bankastjórans allan kostnað vegna málsins líka málskostnaðinn sem bankastjórinn var dæmdur til að greiða Seðlabankanum.

Þegar þetta lá fyrir var ljóst að um mál var að ræða sem vísa átti til Sérstakt saksóknara og/eða Sérstakur að taka upp og rannsaka af eigin frumkvæði samanber starfshætti hans í málum annarra fjármálafyrirtækja. En hér sannast enn hið nýkveðna úr "Animal Farml" að öll dýr eru jöfn en sum dýr eru jafnari en önnur.  Þess vegna hefur Sérstakur ekkert gert. Bankaráð Seðlabankans tók síðan þá röngu ákvörðun að vísa málinu til Ríkisendurskoðunar.  Nú hefur ríkisendurskoðun kynnt þá niðurstöðu sína að:  

"út­gjöld í til­efni tengsl­um við fjár­hags­lega hags­muni seðlabanka­stjóra verði að bera upp í bankaráðinu til samþykkt­ar áður en greiðsla er innt af hendi eða að bankaráðið veiti for­manni þess form­lega heim­ild til þess að stofna til þeirra." 

Nú er spurning hvað Óli Sérstaki gerir. 

Er betra að greiða án umboðs frá bankaráði SÍ en lánanefnd í viðskiptabanka?  Þá hefur jafnvel verið talið að eftir á samþykki lánanefndar sé ekki nóg. 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ótrúleg meðferð á opinberu fé í skjóli ónógra upplýsinga. Þrátt fyrir óánægju með laun þá sækir Már um aftur ? Sérstakur Saksóknari hlýtur að tryggja að allir séu jafnir fyrir lögum.

Magnus Magnusson (IP-tala skráð) 3.7.2014 kl. 13:11

2 Smámynd: Magnús Magnússon

Ótrúlega farið með opinbert fé og allt í skjóli ónógra upplýsinga. Málsókn á hendur bankanum bendir til óánægju í launum. Samt sækir Már um aftur ? Sérstakur saksóknari hlýtur að tryggja að allir séu jafnir fyrir lögum.

Magnús Magnússon, 3.7.2014 kl. 14:53

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Forstjóri almenningsstofnunar stelur frá almenningi og þjófurinn biður um framlengingu á starfi forstjóra um fimm ár.

Hvar í veröldinni gerist þetta?

Í Nígeríu?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 3.7.2014 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 346
  • Sl. sólarhring: 559
  • Sl. viku: 4167
  • Frá upphafi: 2427967

Annað

  • Innlit í dag: 318
  • Innlit sl. viku: 3854
  • Gestir í dag: 302
  • IP-tölur í dag: 281

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband