16.3.2015 | 18:52
Óbærilegur léttleiki tilverunnar
Eftir að Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra í umboði ríkisstjórnarinnar, afhenti utanríkisráðherra Litháen lítið letters bréf um slit aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið hafa margir velt fyrir sér hvort sú aðferð sé lögformlega rétt,lýðræðisleg, þingræðisleg eða jafnvel ekkert af þessu.
Í 7.mgr 45.gr. þingskaparlaga 55/1991 segir: "Forsætisráðherra leggur í október á hverju ári fram á Alþingi skýrslu um framkvæmd þeirra ályktana sem þingið samþykkti á næstliðnu ári og kalla á viðbrögð ráðherra eða ríkisstjórnar auk yfirlits um framkvæmd þingsályktana sl.þrjú ár nema lögin kveði á um að haga skuli skýrslugjöf til þingsins á annan hátt. Í skýrslunni skal enn fremur fjalla um meðferð málefna sem þingið hefur vísað til ríkisstjórnar eða einstaks ráðherra. Þegar skýrslan hefur verið lögð fram skal hún ganga til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar til umfjöllunar. Nefndin getur lagt fyrir þingið álit sitt á skýrslu ráðherra, ef hún telur ástæðu til, gert tillögur til þingsins um einstök atriði í skýrslunni."
Af þessu ákvæði þingsskaparlaga verður ekki ráðið en að einstakir ráðherrar eða ríkisstjórn geti einhliða og án atbeina meirihluta Alþingis fellt úr gildi þingsályktun sem Alþingi hefur samþykkt. Alla vega yrði þá að gera það með þeim formlega hætti sem 7.mgr. 45.gr. þingskaparlaga kveður á um. Ríkisstjórn hefur enga stjórnskipulega heimild til að fella úr gildi þingsályktunartillögu og það dugar ekki að laumast úr landi með lítið letters bréf og ímynda sér að þar með hafi ríkisstjórnin hnekkt þingsályktun. Sú aðgerð er stjórnskipulega marklaus.
Aðferð ríkisstjórnarinnar í málinu er því stjórnskipulega röng. Auk heldur er hún ólýðræðisleg. Hún er ekki þingræðisleg og getur leitt til þess að bolabrögðum verði beitt í auknum mæli í íslenskum stjórnmálum. En hvað brýnast var nú að leiða stjórnmálin út úr þeim farvegi og í þann sem tíðkast með þróuðum lýðræðisríkjum.
Afstaða til Evrópusambandsins skiptir ekki máli í þessu sambandi.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Mannréttindi, Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 23:42 | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 220
- Sl. sólarhring: 491
- Sl. viku: 4436
- Frá upphafi: 2450134
Annað
- Innlit í dag: 200
- Innlit sl. viku: 4129
- Gestir í dag: 196
- IP-tölur í dag: 194
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Kæri nafni.
Ég taldi líka að forsetinn ætti að fara varlega með neitunarvaldið þegar hann hafnaði fjölmiðlalögum. Hver eru viðurlögin? Hér á Íslandi virðist ekki vera spurning hvað sé rétt heldur hvað komast menn upp með. Það er erfitt að bera þannig Íslendinga seman við siðaðar þjóðir.
Viðurlög þingsins eru að sjálfsögðu þau að lýsa yfir vantrausti á einstaka ráðherra eða ríkisstjórnina í heild. Góður meirihluti á þingi getur þannig komist upp með ýmislegt. Ekki er vænlegur kostur að draga menn fyrir Landsdóm. Það er á fleiri stöðum en á Grikklandi sem tiltekt myndi ekki saka mikið.
Jón Sigurgeirsson , 16.3.2015 kl. 21:05
Sammála þér kæri nafni. Það má aldrei gleyma því að lýðræðið er ekki virkt ef það er einræði meirihlutans og minni hlutinn hefur ekkert um málin eða framkvæmdina að segja. Ég hef áhyggjur af svona aðferðum sem mér finnast andlýðræðislegar. Ég gagnrýndi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hart fyrir ólýðræðisleg tilþrif á sínum tíma og þessi bréfasending kom því eins og köld vatnsgusa frá þeim sem síst skyldi.
Svo er það einstakt með forsætisráðherra að hann bullar út í eitt og skilur ekki að þingsályktunartillaga Alþingis er jafngild eftir sem áður þó skipt sé um ríkisstjórn.
Jón Magnússon, 16.3.2015 kl. 23:46
Takk fyrir þessa faglegu greiningu og álit.
Wilhelm Emilsson, 17.3.2015 kl. 05:17
Kæri Jón
Útskýrðu fyrir mér af hverju þú heldur að ríkisstjórnin sé að reyna að fella einhverja þingsályktun úr gildi?
Hvaða refsing fyligir því fyrir ríkistjórn/ráðherra að hunsa þingsályktun?
Richard Ulfarsson (IP-tala skráð) 17.3.2015 kl. 07:14
Þakka þér fyrir Wilhelm.
Jón Magnússon, 17.3.2015 kl. 09:25
Ég er ekkert að halda Richard það liggur í augum uppi hvað er verið að gera.
Ef ráðherra fremur sem ráðherra brot sem heyrir undir Landsdóm þá getur hann unnið til refsingar. Í íslenskri réttarframkvæmd hafa ráðherrar ekki verið kallaðir til ábyrgðar þó þeir hafi gerst sekir um ólögmæta aðferð við gerð stjórnarathafnar eða valdníðslu svo dæmi séu tekin. Jafnvel ekki þó að einstakir borgarar hafi þurft að líða fyrir ólögmætar aðgerðir ráðherra. Eitt besta dæmið í því sambandi er þegar aðgerðir Jóns Helgasonar landbúnaðarráðherra voru dæmdar sem valdníðsla í Hæstarétti. Þá var hann aldrei látinn sæta persónulegri refsiábyrgð vegna þess þó að einstaklingar hefðu beðið mikið fjárhagstjón og jafnvel þurft að sitja í fangelsi vegna valdníðslu ráðherra. Það mætti heldur betur styrkja vernd borgaranna gagnvart framkvæmdavaldinu hvað þetta varðar Richard.
Jón Magnússon, 17.3.2015 kl. 09:32
Þingsáluktunartillagan sjálf innifelur þá fyrirvara að þingmennirnir sem að henni stóðu (fyrst og fremst hugsað fyrir þingmenn VG) geti hvenær sem er slitið viðræðunum. Þá eru í ályktuninni skilyrði sem nú þegar er ljóst að muni ekki verða uppfyllt. Skrýtið að þingmenn fyrri meirihluta hafi getað hvenær sem er slitið viðræðunum en nýr meirihluti geti það ekki. Hefur þú Jón skoðað hvað margar þingsályktunartillögur eru í fullu gildi ef túlkun þín stenst. Þær eru nokkrar sem hafa verið samþykktar frá 1944. Þessi túlkun þín Jón getur engan vegin staðist enda á skjön við álit flestra stjórnskipunarfræðinga. Slík tillaga getur engöngu verið bindandi fyrir nýtt þing og nýja stjórn ef hún buggir á gildandi lögum eða sjórnarskrá.
Stefán Örn Valdimarsson (IP-tala skráð) 17.3.2015 kl. 10:15
Góð grein, finnst þetta vera rökrétt niðurstaða (tek fram að ég er ekki löglærður og reyni því að lesa það sem lögfræðingar/lögmenn segja um málið, sem reyndar hefur verið misvísandi.) Því er gott að fá þitt álit.
Lokasetningin er algert lykilatriði í þessu: Afstaða til Evrópusambandsins skiptir ekki máli í þessu sambandi.
Ég verð þó að segja að ég á mjög erfitt með að skilja þetta upphlaup stjórnarinnar. Nú liggur það alveg ljóst fyrir að stjórn SDG er algerlega andvíg aðild Íslands að ESB og það vita forráðamenn sambandsins (væntanlega.)
Hvað var þá Gunnar Bragi (og þar með stjórnin) að reyna að gera? Voru þeir að reyna að tryggja að Ísland myndi aldrei aftur geta sótt um aðild að ESB? Ef svo er, þá er núverandi stjórn að binda hendur næstu stjórna(r) sem er einmitt það sem þeir vilja ekki að þingsályktunartillaga 2009 geri. Ég þarf ekki að taka fram að næstu stjórnir geta verið með allt aðra afstöðu til ESB.
Af hverju er ekki nóg að það liggi fyrir að stjórnin vill ekki halda áfram viðræðum, að þær séu "í salti?" Eru þeir að reyna að eyðileggja þá vinnu sem búið er að vinna? Geta þeir breytt því sem búið er að ræða við ESB og þeim niðurstöðum sem þó liggja fyrir úr þeirri vinnu?
Ég sé enga aðra leið til þess en að finna upp tímavél, fara aftur í tímann og breyta fortíðinni, þannig að engin viðræðuvinna verði unnin á árunum 2009-2013. Miðað við raunsæiss-stuðulinn á loforðum Framsóknarflokksins hingað til, kæmi það mér reyndar ekki á óvart að þeir tækju upp á því að lofa því í næstu að finna upp tímavél og breyta fortíðinni.
Theódór Norðkvist, 17.3.2015 kl. 10:55
Gátu þeir slitið viðræðunum hvenær sem var Stefán? Ég held ekki og setti stórt spurningamerki við það þegar sagt var nokkru fyrir síðustu kosningar að viðræðum væri frestað. Ég tel að ríkisstjórnin hafi ekki haft sjálfdæmi í því en hefði þurft að bera það undir Alþingi miðað við þingskaparlögin. Ég er ekki með kenningu Stefán. Ég er að benda á ákveðna grein í þingskaparlögum og benda á hvað hún þýðir. Það vill svo til að fjölmargir löglærðir hafa tekið undir með mér og sagt skrýtið að prófessorarnir sem fréttastofurnar töluðu við skuli ekki hafa bent á þingskaparlögin í þessu sambandi og t.d. hvernig staðið er að málum í Danmörku sem fordæmi hvað þetta varðar.
Jón Magnússon, 17.3.2015 kl. 23:52
Ég er fyrst og fremst að ræða um málið miðað við lög sem gilda um þingsályktunartillögur og meðferð þeirra Theódór. Ég er ekki að fjalla um Evrópusambandið eða samningaviðræður heldur aðferðarfræði og lög.
Jón Magnússon, 17.3.2015 kl. 23:54
Já þingsályktunartiillagan sjálf fól það í sér að hægt væri að slíta viðræðunum hvenær sem er þannig það var ekki á skjön við tillöguna að slíta viðræðunum.
Stefán Örn Valdimarsson (IP-tala skráð) 18.3.2015 kl. 12:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.