Leita í fréttum mbl.is

NATO

Fram undir aldamótin síðustu voru ráðamenn NATO ríkja þess meðvitaðir að NATO væri varnarbandalag, stofnaði til þess að viðhalda friði og standa sameiginlega að vörnum bandalagsríkjanna. Árás á eitt var árás á þau öll.

NATO var ekki árásarbandalag. Það var hernaðarbandalag til varnar en ekki árása. Þetta breyttist í tíð Bill Clinton þegar þess var krafist að ráðist yrði á frjálst og fullvalda ríki Serbíu af herliði NATO. Það var alvarlegt brot á stofnskrá og tilgangi NATO sem varnarbandalags.

Aftur kröfðust Bandaríkjamenn þess undir forustu stríðglæpamannsins George W. Bush jr. þá forseta Bandaríkjanna, að  NATO stæði með Bandaríkjunum að herhlaupi til Afganistans. Aftur var brotið gegn stofnskrá og tilgangi NATO sem varnarbandalags.

Nú gera Bandaríkjamenn kröfu til þess að NATO komi að hernaði gegn ISIS í Írak og Sýrlandi. Færa má rök að því að NATO ríkin geti í samræmi við stofnskrá sína og tilgang staðið að hernaði gegn ISIS þar sem samtökin hafa gert árásir víðsvegar á NATO ríki og önnur Evrópuríki. ISIS hafa gert árásir á Frakkland, Þýskaland, Belgíu, Svíþjóð, Danmörku og nú síðast á börn og unglinga í Manchesester á Englandi. Það er því fullkomlega réttlætanlegt miðað við stofnskrá og tilgang NATO að fara af öllu afli gegn ISIS samtökunum - og þó fyrr hefði verið.

En það er ekki nóg að herja á ISIS í Sýrlandi og Írak. Það verður að herja á fimmtu herdeild ISIS í borgum og bæjum Evrópu og uppræta hryðjuverkastarfsemi þeirra til að tryggja öryggi borgara NATO ríkja. Þetta verður að gera af öllu afli til að tryggja þau gildi sem NATO var stofnað til að verja.

Utanríkisráðherra Íslands og íslenska ríkisstjórnin ætti því að styðja tillögu Bandaríkjanna um þáttöku NATO í hernaðinum gegn ISIS.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að hin sitjandi ríkistjórn Íslands  getur ekki komið í veg fyrir nýja múslima-mosku í sogamýrinni að þá er ekki mikið gagn af hinu nýja riddaraliði/hinu nýstofnaða þjóðaröryggisráði.

Jón Þórhallsson, 25.5.2017 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 276
  • Sl. sólarhring: 751
  • Sl. viku: 4097
  • Frá upphafi: 2427897

Annað

  • Innlit í dag: 256
  • Innlit sl. viku: 3792
  • Gestir í dag: 251
  • IP-tölur í dag: 240

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband