Leita í fréttum mbl.is

Teboð hjá Trump

Í gær var Emírinn og einræðisherra ríkisins Qatar. Emir Sheikh Tamim bin Hamad Al-Thani í teboði í Hvíta húsinu í Washington DC í boði Donald Trump. Trump sagði að emírinn væri sérstakur vinur sinn. Á sama tíma hótaði hann Rússum og Sýrlendingum öllu illu vegna meintrar eiturefnaárásar og hryðjuverkastarfsemi. 

Nú vil svo til, að ríki sem eiga landamæri að Qatar, Saudi Arabí og  Sameinuðu Arabísku furstadæmin hafa auk, Yemen og Egyptalands sett Qatar í bann fyrir að styðja við bakið á hryðjuverkahópum bæði fjárhagslega og með því að selja þeim vopn og vistir. Það aftrar ekki Donald Trump að tengjast honum vináttuböndum.

Ítrekað hefur komið í ljós, að Qatar hefur stutt við hryðjuverkahópa bæði fárhagslega og með því að selja þeim og/eða leyfa vopnum og vistum að komast til þeirra. Hryðjuverkahópar, sem eru sérstaklega nefndir í því sambandi eru Hamas, Isis og Jabhat Al Nusra. 

Þrátt fyrir þetta býður Trump emírnum frá Qatar í te og lofar hann fyrir baráttu gegn hryðjuverkum og kallar hann sérstakan vin sinn. Skyldi hann ekki vita um stuðning Qatar við hryðjuverkastarfsemi? 

Vandamál Donald Trump er að hann hefur enga hugmyndafræðilega kjölfestu eða sýn á nauðsynlegar breytingar á bandarískri utanríkisstefnu. Þess vegna tollir starfsfólk illa hjá honum vegna þess að það veit ekki hvað snýr upp og hvað snýr niður frá degi til dags. 

Bandaríkjaforsetar skila ekki góðu verki nema hafa úrvalsstarfslið. Það hefur Donald Trump ekki. Það er engin von til þess að stjórnmálamaður sem hefur það eitt til málanna að leggja að tísta af og til um stjórnmálin geti komið miklu vitrænu til leiðar. 

Ég batt vonir við, að með komu Donald Trump þá væri hægt að koma utanríkisstefnu Bandaríkjanna úr þeirri klemmu sem hún hefur verið í alla þessa öld. En Trump er á fleygiferð í að gera hlutina verri og er þá langt til jafnað.  

Forsenda þess, að Bandaríkin verði "great again" er að þau virkji dugnað og áræði fólksins í landinu til framfara en séu ekki með hundruðir þúsunda ríkisstarfsmanna á launum við að herja í löndum sem þeim koma ekkert við án takmarks eða tilgangs. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón minn vertu ekki of upptekinn af þessu hugsjónavingli þíu sem leiddi þig frá Sjáflstæðiflokknum sewm þurfti að gera fleira en gott þótti.

Trump segist ekki vera stjórnmálamaður heldur bisnessmaður og dealmaker, Hann hefur skrifað bækur um samningatækni sem sína sérgrein. Þessvegna kaus fólkið hann, pragmatisman mann sem ætlar að ná árangri með lausnum en ekki kjaftæði um ideólógíu sem verður svo yfirvarp yfir lygina eins og dobbeljú gerði við okkur í Írak.

Trump mun semja við KimJongUn í gegn um Kínverja, hann notar tollana sem kúbein til að opna þá hlera. Sannaðu til að hann fer til Kina að hitta fíflið og vingast um leið við Kínabófana.

Trump er maður aksjónar og beitir brögðum,tei,  hótunum og fortölum í því skyni.

Hann er "Bugsy" Trump sem er að gera US great again og búinn að semja slagorðið sitt fyrir 2020:

"Keep America great."  

Halldór Jónsson, 11.4.2018 kl. 21:07

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Furðulegt hve fjölmiðlar dansa með. Jafnvel í svona augljósu dæmi um svíðing í teboði hjá BNA forseta.  Ekki bofs, frá neinum fjölmiðlum. Fáránleikinn alger, sem undirstrikar gjaldfellingu alls, sem heitir fjölmiðlar nútímans. Það eru ekki lengur "sagðar" fréttir. Þær eru endursagðar, endursögnin jafnvel endursögð eftir öðrum og það eru ekkifréttir. Það er aumingjaháttur. Ekki gleyma sádaskröttunum. Qatar og Saudi- Arabía eru undirrót illskunnar, sem vesturlandabúar þurfa að búa við að hendi þá, einn góðan eða slæman veðurdag, hvar sem er og hvenær sem er. Bæði ríkin eru "bestu vinir" forseta BNA! Forseta lands, sem telur sig alheimslöggu, en er þó stjórnað af Rockefellerum og Rothschildum. Fólki sem á meginþorra vopnaframleiðslufyrirtækja heimsins, með einum eða öðrum hætti og étur ekkert súkkulaði, án gullhúðar.

 Sjaldan, ef nokkurn tíma fyrr, hafa fjölmiðlar og þeir sem þar starfa gjaldfellt sig meira í ruslflokk, sem nú, algerlega sjálfir. Verst hve almenningur fylgist illa með lengur, en það skrifast sennilega á lélega fjölmiðla, enn og aftur, auk fjölmiðlasljóvgaðs almennings. Metnaðurinn ekki meiri en svo, innan fjölmiðlastéttarinnar, að meira að segja henni sjálfri er orðið andskotans sama. Dapurlegt í meira lagi.

 Afsakaðu romsuna. Vona að hún sé ekki lengri en stórgóður pistillinn. Þakka hann.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 12.4.2018 kl. 02:41

3 Smámynd: Halldór Þormar Halldórsson

Hernaðurinn hefur að sjálfsötðu tilgang. Hann eykur ríkisútkjöld stórlega sem renna til stórfyrirtækja sem framleiða vopn, farartæki og tæknibúnað. Fyrirtækin leggja einnig til starfslið sem vinnur ýmis verkefni fyrir herinn. Allt eru þetta fyrirtæki sem eru að stórum hluta í eigu aðila sem greiða háar fjárhæðir í kosningasjóði stjórnmálamanna.

Halldór Þormar Halldórsson, 12.4.2018 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.12.): 220
  • Sl. sólarhring: 497
  • Sl. viku: 4436
  • Frá upphafi: 2450134

Annað

  • Innlit í dag: 200
  • Innlit sl. viku: 4129
  • Gestir í dag: 196
  • IP-tölur í dag: 194

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband