Leita í fréttum mbl.is

Þursaveldið

Í síðustu viku hitti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ráðamann frá Saudi Arabíu og sagðist hafa rætt við hann um mannréttindi. Gaman hefði verið að vera fluga á vegg og hlusta á samtalið. Mannréttindi hafa nefnilega ekki þvælst fyrir þessu þursaveldi þar sem öfgafyllsta útfærsla af Íslam ræður ríkjum.

Baráttukonur í Saudi Arabíu gerðu kröfu um að þeim og öðrum konum í landinu yrði leyft að aka bifreið. Þegar ríkisstjórnin í þursaríkinu gat ekki lengur staðið gegn þeirri kröfu var það leyft, en síðan heimsótti lögreglan í fyllingu tímans baráttukonurnar og handtóku þær og margar sitja enn í fangelsi. Þursar bíða nefnilega síns tíma. 

Nokkrum mánuðum áður en fjármálaráðherra hitti fulltrúa þursaveldisins voru framkvæmdar fjöldaaftökur í þursaríkinu þar sem 81 maður var tekinn af lífi fyrir ýmsar sakir m.a. að hafa afbrigðilegar trúarskoðanir og ríkissjónvarpið sagði að þeir sem hefðu verið teknir af lífi hefðu gengið erinda Djöfulsins.

Fróðlegt hefði verið að heyra hvort fjármálaráðherra hafi tekið upp mál manns að nafni Badawi, sem hefur verið bannað að fara úr þursaríkinu til konu sinnar og þriggja barna sem búa í Kanada, en þau neyddust til að flýja eftir að Badawi hafði verið dæmdur til að þola 1000 vandarhög opinberlega, 50 á viku í 20 vikur og  tíu ára fangelsi að auki. Þegar hann var leystur úr haldi var sett á hann 10 ára ferðabann. Badawi fékk nýlega Sakharov verðlaunin fyrir hugsanafrelsi.

Badawi sem er bloggari hafði unnið sér það til sakar að gagnrýna Trúarbragðalögreglu þursaveldisins. Lögregluna sem bannaði að ungar stúlkur sem voru í brennandi húsi fengju að fara úr húsinu af því að þær voru ekki sómasamlega klæddar að mati lögreglunnar Þær brunnu allar inni. Ótrúlegt en svona ógeð gerist í þursaríkjum. Þessa lögreglu sem ber konur ef þær eru ekki í fylgd karlmanns eða það sést í öklana á þeim eða hárið leyfði Badawi sér að gagnrýna og  hefur þurft að þola fangelsi og vandarhögg og nú ferðabann í 10 ár fyrir. 

Við fulltrúa þessa þursaríkis sagðist íslenski fjármálaráðherrann hafa talað um mannréttindi. Það hafa raunar ýmsir aðrir vestrænir stjórnmálamenn sagst hafa gert. En þeir hafa annaðhvort ekki tjáð sig nægjanlega skírt eða þursaveldið tekur ekki neitt mark á þeim. Mér er næst að halda að hvorutveggja eigi við. 

Þursaveldið fer sínu fram vitandi að Vesturlönd gera ekki neitt þrátt fyrir glæpi þess innanlands sem erlendis eins og m.a. kemur fram í bókinni "Sleeping with the Devil" sem fyrrum háttsettur embættismaður í Bandaríkjunum skrifaði um samskipti ríkjanna.

Badawi hefur nú fengið Sakharov verðlaunin vegna baráttu fyrir hugsanafrelsi og ber að þakka það.  En baráttan gegn þursaveldinu þarf að taka aðra stefnu en vinsamleg orð um mannréttindi þar í land sem útúrdúr frá raunverulegu umræðuefni. Af hverju eru þeir ekki beittir sama harðræði og Rússar t.d. og eignir Saudi Arabískra auðmanna frystar? Það gæti haft áhrif.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón.

Það er ekki oft sem ég er orðlaus, þú veist það manna vel.

Stundum kem ég með kárínur, stundum þakka ég fyrir góða pistla, sem og ég tjái hrifningu mína þegar ég les orðsnilld sem maður las hjá svo mörgum í æsku, og fram eftir næstum öllum aldri, en er líkt og horfinn í dag.

Þá vísa ég í rökhyggju, sannfæringu, sýn á það sem ritari telur rétt, og það sé sagt sem þarf að segja. Gegn hjarðhegðun hinna borgaralegu íhaldsmanna sem næstum eru farnir að kóa með öllu, sem er rangt, sem er gegn gildum borgarlegs samfélags, gegn gildum vestrænna lýðræðishyggju.

Guðlaugur var kannski aldrei sérstaklega stór, en eftir pistla þína um Erdogan, ofríki hans, kúgun og samsvörun hans við miðaldahyggju Islamista, þá hef ég eiginlega ekki séð Guðlaug, froða hans um mannréttindi, verandi kóandi með Tyrkjum í Nató, smækkaði hann í hvert skipti sem þú kaust að pistla um staðreyndir þessa Trójuhest Nató samstarfsins.

Ég er ekki einn af þeim sem bendir fingur á Bjarna eftir síðustu bankasölu, velti reyndar aðeins fyrir mér dómgreind hans, sem ég taldi vera í góðu lagi.

En þessi innantómu orð, þessi froða um að hafa talað um mannréttindi við svartholið í Riyadh, og hvernig þú eiginlega steiktir Bjarna á grillteini Jón, það er eitthvað sem gerir jafnvel skoðanamenn eins og mig orðlausan.

Í alvöru, þó það hafi tekið mig nokkur orð til að útskýra það orðleysi.

Bið þess eins að þú eigir eftir marga svona pistla.

Svona orð þurfa að segjast.

Kveðja úr sólinni að austan.

Ps. Jörðin er að hlýna að mannavöldum.

Ómar Geirsson, 29.4.2022 kl. 10:54

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Hef engan áhuga á mannréttindum Elenóru Rúsevelt, öfgakommúnista. Hef hins vegar áhuga á borgararéttindum stjórnarskráa, og fullyrði að þau eru ekki lengur til, hvorki hér né annarsstaðar í heiminum. Eigum við að ræða sannleiksráðuneyti Bædens frá því fyrir nokkrum dögum eða hvað rætt er hérlendis um "upplýsingaóreiðu" og "falsfréttir" eða "siðanefnd Jóhönnu" samanber nornaveiðar gegn Marjorie Taylor Greene, vestra, en slíku hefur sannanlega verið beitt hérlendis. Þú afsakar kæri Jón, en fyrirsögn þín passar ekki síður við Lýðveldið okkar en Saúdí konungsríkið.

Guðjón E. Hreinberg, 29.4.2022 kl. 16:36

3 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir góð orð Ómar. En ég var ekki að vandræðast með það sem Bjarni sagði í sjálfu sér. Þetta er það sem flestir vestrænir stjórnmálamenn segja um leið og þeir reyna að afsaka samskipti sín við þursana. Því miður eru vestrænir stjórnmálamenn búnir að spila heimsspilið illa síðustu 40 ár með þeim afleiðingum sem nú sjást í austrinu, sem er skelfileg. En áfram skal haldið og reynt að halda stríðinu við í stað þess að gera marktæka hluti til að koma á friði og vinna síðan að því að gott samstarf komist á við bæði Úkraínu og Rússland í stað þess að Erdogan og aðrir ívið verri þursar geti ráðskast með það sem þeim sýnist.

Jón Magnússon, 30.4.2022 kl. 09:13

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Og betur er ekki hægt að orða andmæli (er það ekki orðið um gagnathugasemd?) við athugasemd Jón.

Takk fyrir góðan pistil, og ekki hvað síst; Vaktina, fyrir heilbrigðra skynsemi og rökhyggju.

Sólarkveðjur að austan.

Ómar Geirsson, 30.4.2022 kl. 14:07

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Að hugsza sér?

 En áfram skal haldið og reynt að halda stríðinu við í stað þess að gera marktæka hluti til að koma á friði og vinna síðan að því að gott samstarf komist á við bæði Úkraínu og Rússland í stað þess að Erdogan og aðrir ívið verri þursar geti ráðskast með það sem þeim sýnist.

Halldór Jónsson, 1.5.2022 kl. 01:51

6 Smámynd: Jón Magnússon

Sömuleiðis Ómar við erum greinilega oftast sammála um nánast öll mál nema Kóvíd viðbrögð. En nú er það sem betur fer liðin tíð í bili og vonandi alltaf.

Jón Magnússon, 1.5.2022 kl. 07:23

7 Smámynd: Jón Magnússon

Sammála þér Halldór. Mér finnst Vesturlönd ekki vera að leika góða leiki í þessu stríði. Eru í raun orðin þáttakendur í því með því að senda fullkomnustu vopn og búnað til Úkraínu í stað þess að setja Rússum úrslitakosti varðandi áframhaldandi sókn og setjast niður til alvöru friðarviðræðna. 

Jón Magnússon, 1.5.2022 kl. 07:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 402
  • Sl. sólarhring: 531
  • Sl. viku: 2812
  • Frá upphafi: 2298785

Annað

  • Innlit í dag: 383
  • Innlit sl. viku: 2627
  • Gestir í dag: 381
  • IP-tölur í dag: 372

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband