Leita í fréttum mbl.is

Aumasti gróðurinn ekki það er, sem ormarnir helst vilja naga.

Fjórflokkur læpuskaparins, Pírtar, Samfylking, Flokkur Fólksins og Viðreisn flytja saman vantrauststillögu á dómsmálaráðherra, eftir að honum tókst með þrautseigju, að koma örlitlu meira skikki á bullið í hælisleitendamálunum. 

Raunar má þessi fjórflokkur hugsa sinn gang þar sem í ljós hefur komið í skoðanakönnun nýverið að einungis 17% aðspurðra voru óánægðir með frumvarpið, en inni í þeim hóp er fólk eins og ég sem telur það ganga allt of skammt til varnar hagsmunum lands og þjóðar.

En þar sem Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra tókst með harðfylgi, að koma þessu máli í gegn, skal allt reynt til að bola honum frá og nú er flutt sérstök vantrauststillaga gegn honum. 

Hefur Jón Gunnarsson staðið sig illa í starfi sínu sem dómsmálaráðherra? Fjarri fer því. Jón Gunnarsson hefur þvert á móti staðið sig afbragðs vel. Af hverju þá að bera fram vantrauststllögu gegn afkastamesta og einum traustasta ráðherra ríkisstjórnarinnar? 

Afstaða Viðreisnar, Pírata og Samfylkingar er skiljanleg af því að Jón hefur staðið sig vel og barist gegn opnum landamærum, sem þessir flokkar hafa gert að inntaki stefnu sinnar. 

Afstaða Flokks fólksins er hinsvegar óskiljanleg. Vill sá flokkur endanlega segja sig í sveit með þeim sem vilja opin landamæri? Fari svo, að flokkurinn standi að þessari vantrauststillögu, þá er það yfirlýsing þess efnis. 

Nú er brýnt, að samflokksmenn Jóns standi gegn þessu rugli og geri samstarfsflokkum sínum grein fyrir því, að verði þessi rugl vantrauststillaga ekki felld, þá feli það í sér endalok þessarar ríkisstjórnar.

Hér gildir hið fornkveðna sem Hannes Hafstein fyrsti ráðherra Íslands kvað í upphafi síðustu aldar: 

Taktu ekki níðróginn nærri þér,

það næsta gömul er saga.

Að lakasti gróðurinn ekki það er,

sem ormarnir helst vilja naga.


mbl.is „Grafalvarlegt brot gegn þinginu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stjórnaandstaðan þarf að fara að hætta þessum persónuofsóknum og einbeita sér að undirbúa sumarfríið sitt.

Þar eru Píratar og Miðflokkurinn bestir.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 29.3.2023 kl. 17:59

2 identicon

samala goð grein

Hakon

Hakon Isaksson (IP-tala skráð) 29.3.2023 kl. 22:25

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Þú átt að venju heiður skilinn fyrir að láta óhræddur skoðanir þínar í ljós, sem verður því miður ekki sagt um flokkssystkini þín flest í bælinu inni við Austurvöll.

Nú síðast er hart sótt að Dómsmálaráðherra sem er þó rækta skyldu sína, sem snýst auðvitað helst um að gæta hagsmuna landsmanna sinna, en þau sjónarmið eru hreinlega hötuð af kerlingum allra flokka og af öllum kynjum þarna í samkundunni.

Auðvitað var það skot hans á sumar af talskonum óhefts innflutnings hælisleytenda vegna hagsmuna þeirra sá neisti sem kveikti bálið.

Jónatan Karlsson, 30.3.2023 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 379
  • Sl. sólarhring: 508
  • Sl. viku: 2789
  • Frá upphafi: 2298762

Annað

  • Innlit í dag: 361
  • Innlit sl. viku: 2605
  • Gestir í dag: 359
  • IP-tölur í dag: 350

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband