Leita í fréttum mbl.is

Ys og þys út af engu.

Fjórflokkur fáránlegra tiltækja á Alþingi, Píratar, Viðreisn og Flokkur fólksins standa að kjánalegri aðför að dómsmálaráðherra út af lítilfjörlegu máli. 

Guðfaðir aðfararinnar er hugmyndafræðingur og andlegur leiðtogi Viðreisnar, Sigmar Guðmundsson. Hann hefur enda hæfileika og langtíma reynslu í að búa til ekki fréttir og fréttir úr engu og nýtir þá reynslu nú á Alþingi. 

Vantrauststillagan er á grundvelli meintrar vanrækslu við upplýsingagjöf um umsóknir um ríkisborgararétt, vegna breyttra reglna sem dómsmálaráðuneytið beitti sér fyrir til að fara að tilmælum umboðsmanns Alþingis á sínum tíma.

Þessi fjórflokkur fáránleikans hefur það helst á stefnuskrá sinni að skipta um þjóð í landinu, að Flokki fólksins undanskildum. Vera þess flokks í þessu násamneyti byggist á þeirri skoðun formanns flokksins, að hanng geti verið eins og púkinn á fjósbitanum og fitnað við það að stríða ríkisstjórninni jafnvel þó engar málefnalegar forsendur séu fyrir hendi.

Sú var tíðin að menn sögðu, að við værum ekki með nógu góða þingmenn, vegna þess hve þeir væru illa launaðir. Það hefur heldur betur breyst, en þinginu hrakar samt ef eitthvað er.

Þjóðin á rétt á því að þingmenn taki störf sín alvarlega og vinni að hagsmunum þjóðarinnar, en standi ekki að stöðugum uppákomum og sýndarveruleika út af engu. 

Þó svo að hugmyndafræðingur Viðreisnar telji sig eiga harma að hefna eftir hraklega útreið í umræðum um Útlendingafrumvarpið, þá getur það ekki verið afsökun fyrir því að bera fram vantrausttillögu á dómsmálaráðherra. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Jónsson

Téður Sigmar fer stöðugt á handahlaupum í æsingakenndum upphlaupum.  Með þessari hegðun hefur hann áunnið sér trúðsímynd, sem ekki er treystandi fyrir horn. 

Bjarni Jónsson, 30.3.2023 kl. 11:21

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Sigmar er eins og sætabrauðsdrengurinn
Hleypur og hleypur og gerir grín að þeim sem hann hittir

en fyrr eða síðar þarf Sigmar að komast yfir á
og sá sem ferjar hann þar yfir 
ræður öllu um hans örlög

Grímur Kjartansson, 30.3.2023 kl. 17:29

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Líttu á björtu hliðarnar.  Þarna fóru nokkrir dagar í ekekrt, sem annars hefðu farið í að grafa undan hagsmunum Íslands.

Ásgrímur Hartmannsson, 30.3.2023 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 627
  • Sl. viku: 2950
  • Frá upphafi: 2294569

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 2687
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband