Leita í fréttum mbl.is

Léleg vinnubrögð og hræðsluáróður.

Fréttastofa RÚV er ein lélegasta fréttastofa Evrópu. Fréttir af  heimsviðburðum eru takmarkaðar og fréttaskýringar iðulega litaðar pólitískum áróðri og/eða vanþekkingu.

Tvennum fréttum sinnir fréttastofan þó af mikilli alúð en það eru fréttir af eldgosinu, sem fréttastofan gerir vel og áróður um ofurhita í suðurhluta Evrópu,en sérstakur þáttur er um þessi atriði dag hvern. 

Sagt er að um 60 þúsund manns muni deyja úr hita í Evrópu á þessu ári. Ekki er sagt frá því að um 200 þúsund manns deyja úr kulda í Evrópu á ári hverju. Ekki er gerð grein fyrir því að nú er í gangi veðurfyrirbrigðið El Nino í Kyrrahafi, sem veldur miklum átökum í veðri um allan heim og hugsanlega þeim staðbundnu hlýindum sem nú er í Evrópu. Ekki er stuðst við sambærilegar mælingar ári til árs o.s.frv. Allt þetta veldur því að þessar fréttir eru áróður fyrir meintri hnattrænni hlýnun af mannavöldum í stað þess að vera hlutlæg fréttamennska.

Hve lengi ætla alþingismenn að láta það viðgangast að fólk sé neytt til að borga til áróðursmiðstöðvar RÚV við Efstaleiti. Frjálsir borgarar hljóta að krefjast þess að fá að nýta þá fjölmiðla sem þeir vilja og borga fyrir það, en séu ekki neyddir til að borga fyrir fjölmiðil, sem er orðin að þjóðmálahreyfingu og lítur á hlutverk sitt sem slíkt. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er mjög áhugavert að sjá muninn á fréttum RÚV og DR af þessum hitabylgjum, veðursérfræðingur DR segir beinlínis að það skuli varast að tengja núverandi hitabylgjur beint við loftslagsbreytingar.  Hitabylgjur séu "eðlilegar" og tengjast m.a. El Nino eins og þú bendir á, þótt hugsanlega geti hitinn verið hærri en áður vegna loftslagsbreytinga.  Það þurfi hins vegar að bíða niðurstaðna frekari rannsókna áður en hægt sé að slá því föstu.

Þar fyrir utan er það óásættanlegt þegar fullyrt er um alls kyns veðurtengd "met" frá "upphafi", þegar átt er við "met" frá "upphafi mælinga".  Þegar þessu eina orði er sleppt breytist samhengi hlutanna og svo virðist sem sumt fólk átti sig ekki á þeim mun - eða mögulega það sem verra væri, að það kjósi að haga frásögninni með þeim hætti.

TJ (IP-tala skráð) 21.7.2023 kl. 12:26

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ekki má gleyma nýlegri áráttu fréttamanna til þess að afmennska fólk.

"Tvö urðu fyrir matareitrun," eitt dó í reiðhjólaslysi, osfrv.  Það er að bæta gráu ofan á svart að vera afmennskaður svona eftir að hafa orðið fyir skakkaföllum.

Ásgrímur Hartmannsson, 21.7.2023 kl. 14:47

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

... eða nærri því jafn léleg og móðurhýdran BBC ...

Guðjón E. Hreinberg, 21.7.2023 kl. 16:26

4 Smámynd: Grímur Kjartansson

Á hinn bóginn þá veldur þessi Úlfur úlfur fréttamenska því að fólk hættir að nenna á hlusta á þessa vitleysu

Sbr skopmyndin í Morgunblaðinu í dag 
þá held ég að æ færri nenni að horfa á "fréttir" hjá RUV
því vissulega er fleira í boði

Grímur Kjartansson, 21.7.2023 kl. 20:03

5 Smámynd: Tryggvi L. Skjaldarson

  Allar árásir til að veikja undirstöður RÚV, sem er í eigu landsmanna, eru í sömu átt.  Ná yfirráðum yfir upplýsingagjöf til almennings.

Tryggvi L. Skjaldarson, 22.7.2023 kl. 07:42

6 identicon

Rúv er þjóðarskömm.

Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 22.7.2023 kl. 17:50

7 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir TJ. Ég horfði líka á þessa umfjöllun í danska ríkissjónvarpinu. Ekki nóg með það. Þar var sagt frá því, að það væri óvenju kalt í Danmörku og Skandinavíu raunar um alla Norður Evrópu og sýnt að vegna loftstrauma þá væri stöðugur kuldapollur yfir Norður Evrópu og hitapollur yfir Suður Evrópu. Ástæða hitanna í S Evrópu er því annað en hlýnun af mannavöldum eftir því sem best verður séð. 

Jón Magnússon, 23.7.2023 kl. 10:08

8 Smámynd: Jón Magnússon

Guðjón ekki vafi á að RÚV fer lengra í áróðrinum en BBC og er þá langt til jafnað. Ótrúlegt að þessi virta sjónvarpsstöð BBC skuli falla í þessa gryfju sbr, að þeir dreifðu falsfréttum frá banka Nigel Farage og hafa ekki beðist afsökunar, þó það hafi verið afhjúpað, að bankinn var að ljúga en Farage að segja satt. 

Jón Magnússon, 23.7.2023 kl. 10:10

9 Smámynd: Jón Magnússon

Því miður Grímur, þá er stór hluti landsmanna, sem telur RÚV vera góða fréttastöð og hlustar ekki á aðrar. En sem betur fer fjölgar þeim stöðugt sem átta sig á hversu léleg og pólitísk fréttastofa RÚV er. 

Jón Magnússon, 23.7.2023 kl. 10:11

10 Smámynd: Jón Magnússon

Tryggvi þetta er alrangt. Eina sem ég krefst, það er vönduð vinna og heiðarleg fréttamennska. Fréttastofa RÚV grefur sína eigin gröf. Það verður ekki liðið endalaust, að skattgreiðendur greiði gríðarlega fjármuni til að reka lélega fréttastofu, sem hefur það helst að markmiði að þrýsta sínum pólitísku skoðunum upp á landsmenn. 

Jón Magnússon, 23.7.2023 kl. 10:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 944
  • Sl. sólarhring: 1254
  • Sl. viku: 6717
  • Frá upphafi: 2304032

Annað

  • Innlit í dag: 880
  • Innlit sl. viku: 6211
  • Gestir í dag: 840
  • IP-tölur í dag: 812

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband