Leita í fréttum mbl.is

Aðgerðir Seðlabankans skila ekki árangri.

Þrátt fyrir stýrivexti í háhæðum þá fer verðbólga vaxandi á nýjan leik því miður. Hávaxtastefna Seðlabankans hefur leitt til hágengis og aukinnar spennu á fjármálamarkaði en valdið samkeppnis- og framleiðslufyrirtækjum vaxandi vandamálum.

 Fróðlegt verður að sjá hvernig verðbólga þróast til áramóta,en fari svo að hágengið haldist en verðbólga vaxi þrátt fyrir það þá ættu fleiri en nú að sjá að hávaxtastefna Seðlabankans skilar ekki árangri í þeim efnum sem ætlast er til.

Aðeins til skoðunar og íhugunar. Af hverju lækkar bensínið og kornflexið ekki þó að gengi íslensku krónunnar hækki. Evran stendur nú í 85 krónum en fór í síðasta mánuði í 90 kr. Þegar krónan féll hækkuðu allar innfluttar vörur. Af hverju lækka þær ekki í sama mæli þegar gengið styrkist? Væri ekki eðlilegt að birta vísitölu verðs á innfluttum vörum þ.e. verð þeirra í heildsölu. Þá geta neytendur betur gert sér grein fyrir hvort um eðlilega verðlagningu í smásölu er að ræða.

 Er e.t.v nauðsynlegt að taka upp viðmiðunarverð í Evrum til að efla verðskyn neytenda þar sem krónan flökktir svo mjög sem raun ber vitni og það virðist valda aukinni verðbólgu jafnvel þrátt fyrir að hún styrkist.  Verðmyndun í landinu er ekki eðlileg miðað við gengisþróun. Það er nú málið.


mbl.is Verðbólgan fer vaxandi á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Langmikilvægasta atvinnustarfsemi okkar er framleiðsla skuldapappíra og varð það ekki í gær heldur hefur það verið að þróast lengi. Þannig að það er algjörlega meðvituð og hönnuð stefna. Til þess að fá fjármagn til téðrar framleiðslu þarf háa vexti sem laða að erlent spekúlantafjármagn til að viðhalda þessum keðjubréfafaraldri. Þetta hefur lengi verið augljóst. Jafnframt þarf að hafa sérvalið meðvitundarlaust lið í seðlabankanum sem á endanum gefst upp á að opna kjaftinn. Og þar erum við núna stödd á ferlinu. Den mere kloge narrer altid den mindre kloge og bruger ham. Það er engin tilviljun að allir þessir fjármálasnillingar okkar fóru ekki í pólitík.

Baldur Fjölnisson, 10.10.2007 kl. 21:15

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Þetta er í rauninni dæmigerður Hegel.

Við erum gjaldþrota en verðum það ekki lengur eftir að við höfum verið innlimuð í risabatterí Evrópusambandsins. Það jafnar sig frábærlega út fyrir dvergþjóðina gokkur.  Þetta er ákveðin leiksýning og hún hefur verið sett á svið og sérvaldir trúðar hafa verið í hinum ýmsu rullum. 

Baldur Fjölnisson, 10.10.2007 kl. 22:49

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Mér líst ekki illa á að flytja inn smávaxnar einstæðar mæður frá Kolumbíu. Þetta er fjarskylt og líklega ekki svo galin blöndun við stofninn. Ég held að þeir séu furðu duglegir. Svipað er um Pólverjana að segja, blöndun við þá er varla óholl. þeir eru seigir. Adolf Hitler fór lofsamlegum orðum um Pólverja og sagði þá gagnlega verkmenn en hins vegar gæti sjálfsgt pólskt ríki varla staðist.

Baldur Fjölnisson, 10.10.2007 kl. 23:24

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Munt þú Jón, setja upp nýja Verðlagsstofnun þegar þú verður stór ?Þegar ég var lítill þá réð verðlagsstjórinn verðinu. alvega ónæmur fyrir einhverjum sveiflum útí heimi.

Íslendingar áttu bestu bókhaldsreglur heimsins meðan verðbólgureikningsskil voru viðhöfð. Nú voru þau afnumin í þeirri von að krónan væri orðin stabíl. Nú heimta menn evrur í stað króna.

Með frelsinu þarf að leita að því fólki sem enn tekur íslensk lánskjaravísitölulán á 6 % vöxtum (ofan á gengistryggingu  og innlent verkfallakaupgjald ) þegar nóg er framboð að jenum á ca. 2 %.

Skilur enginn að lán er yfirleitt ólán. Sparnaður er það hinsvegar ekki.

Halldór Jónsson, 13.10.2007 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 24
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 2259
  • Frá upphafi: 2296196

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 2089
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband