Leita í fréttum mbl.is

Stjórnmálaskörungurinn Mogens Glistrup látinn.

glistrupMogens Glistrup var athyglisverður maður. Hann var talinn einn besti lögmaður Dana og sérhæfði sig í skattarétti og benti á veikleika í skattakerfinu. Hann var með tekjuhæstu lögmönnum í Danmörku þgar hann snéri sér að stjórnmálum. Þegar Mogens Glistrup snéri sér að stjórnmálum þá lagði hann megináherslu á lækkun ríkisútgjalda og lækkun skatta.

Mogens Glistrup stofnaði Framfaraflokkinn danska og var formaður hans lengi vel en lenti í því að þurfa að gjalda skoðana sinna og var ákærður og sakfelldur fyrir skattsvik. Þar varð hann að gjalda fyrir skoðanir sínar. Mogens Glistrup hafði bent á hvað væri auðvelt að nýta sér veikleika skattakerfisins einkum hvað varðar undanþágur. Þessi atriði urðu til þess að skattayfirvöld í Danmörku fóru í lúsarleit hjá Glistrup og uppskáru að koma Mogens Glistrup út úr pólitík um nokkurt skeoð. Eftir það náði Mogens Glistrup sér aldrei á strik aftur í pólitík því miður.

Ég átti þess kost fyrir margt löngu að hitta Mogens Glistrup í matsal danska þjóðþingsins og eiga við hann orðastað í rúma klukkustund. Þá var hann á sínu fyrsta kjörtímabili. Mogens Glistrup var einstaklega skemmtilegur maður. Hann reitti af sér brandaranna og var greinilega vel heima í mjög mörgum hlutum. Mogens Glistrup er einn athyglisverðasti stjórnmálamaður sem ég hef hitt.  Því miður hafa sjónarmið hans um minni ríkisumsvif og minni skattheimtu ekki náð fram að ganga ennþá.

En að því verður að vinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kærar þakkir fyrir þennan góða pistil


Já þetta er missir fyrir dönsku þjóðina. Mogens Glistrup er einn fárra Dana sem hafa verið grýttir opinberlega fyrir skoðanir sínar. Það var sárt að horfa uppá þennan gamla mann grýttann opinberlega í lýðræðisríki.

Lúsarherför danskra skattayfirvalda fóru illa með heilsu Glistrup.

Á námsárum sínum var Glistrup spurður af hverju hann hefði ekki með sér lagasöfnin í prófið því það væri heimilt. Því svaraði hann svona: "til hvers, ég er búinn að lesa þau". Hann fékk hæstu einkunn.

Við munum sakna hans hér í Danmörku.

Gunnar Rögnvaldsson, 2.7.2008 kl. 18:34

2 identicon

Einhverju sinni á ferð minni til Danmerkur varð ég þeirri gæfu njótandi að kynnast stór vinni Mogens Glistrup, Hans Holger frá Hobro sem sem var þingmaður Framfaraflokksins hafði líka lögmannsréttindi til fyrir Mannréttindadómstólnum í Strassburg. Oft er sagt að líkur sækir líkan heim og í þeirri vissu hefur Morgens Glistrup verið stórmenni landi sínu og þjóð.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 18:50

3 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir Gunnar. Ég las einhverntíma greinargerð dansks doktors í lögum sem fjallaði um að dómurinn yfir Glistrup hefði verið rangur. Ég hef aldrei kynnt mér það mál til hlítar en fannst það alltaf lykta af pólitískum ofsóknum. Hann var dæmdur í 3. ára fangelsi og eina milljón danskar í sekt.  Hann var síðar dæmdur í fangelsi fyrir ummæli sín um innflytjendur frá Íran ef ég man rétt.

Ég vona að Danir saknir hans ekki síst þegar þeir fá álagningarseðlanna.

Jón Magnússon, 2.7.2008 kl. 22:56

4 Smámynd: Jón Magnússon

Baldvin það litla sem ég kynntist Glistrup þá fannst mér hann stórmenni.

Jón Magnússon, 2.7.2008 kl. 22:57

5 identicon

Ákaflega skemmtilegur og sniðugur maður hann Glistrup.

Hvíldu í friði félagi. 

Johnny Rebel (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 23:11

6 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Glistrup hreyfði við mönnum, benti á fáráðleika Kerfisins, lagði til að í stað hersins yrði sett upp sjálfvirkur símsvari sem segði einfaldlega "Vi gir op" því það væri hvort sem er alltaf niðurstaðan.

Fór yfir hve stórkostlega vitlaust hið danska velferðakerfi væri og hve sterkur segull það væri, að bjóða eitthvað ókeypis, menn sæktust eftir því, hvort sem neyð væri eða ekki, allir væru ekki stórir í sniðum.

Fyrir allt þetta hlaut hann hræðslu Vinstri afla og því var hann lagður í einelti þeirra.  PC er ekkert annað en hræðslumúr sem reistur er utanum það sem ekki MÁ segja og hvort það er satt eða ekki, verður að halda því niðri með hörku, samanber dóma hérlendis yfir ungmenni, sem sagði HUG sinn um menningarmun.

Skíthælar eru allsstaðar til, bara mis áberandi.

Miðbæjaíhaldið

Frelsisunnandi, bæði sín eigin og annarra.

Bjarni Kjartansson, 3.7.2008 kl. 09:39

7 Smámynd: Jón Magnússon

Nú verð ég að viðurkenna ágæti Bjarni að ég skil ekki skammstöfunina  PC.  Síðan er ég alveg sammála þér hvað varðar dómi Hæstaréttar yfir ungmennunum á grundvelli svokallaðs hatursákvæðis.

Athyglivert að mikið af því vonda sem Glistrup sagði um múslímska innflytjendur hefur komið fram því miður. Í dag er t.d. grein í Berlinska þar sem það er staðhæft að heiðursmorðum fari fjölgandi en yfirleitt séu stúlkurnar sendar úr landi og myrtar í heimalandi fjölskyldunnar oft eftir að hafa sætt misþyrmingum og ítrekuðum nauðgunum.

Jón Magnússon, 3.7.2008 kl. 12:25

8 identicon

Efast

Birgir Birgisson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 13:09

9 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Political correktness

Pólitísk rétthugsun.

Heiglar nota sleggjudóma og alhæfingar, síðan banna þeir umræður um viðfangið.

Það er svo skelfilegt, að þetta skuli komið hingað inn í okar löggjöf.  Það var talið óhugsandi, að lýðveldi, stofnað á grunni Upplýsingarstefnunnar, frelsisbaráttan háð á upplýsingu og orðræðu.  Að sama Alþingi og tókst á við álitaefni á borð við nýjan sið og hvaðeina, hafi getað sett lög um, að SKOÐANIR gætu farið í bann.

Fyrir mér er þett mikið skipbrot aristokratiskrar hugsunar og upplýstrar sýnar á debat.

Miðbæjaríhaldið

Fyrirlít sumar skoðanir en vill endilega leyfa þær allar.

Bjarni Kjartansson, 3.7.2008 kl. 13:10

10 identicon

Ég efast ekkert um ad madurinn var brádgáfadur og hardduglegur vid ad benda á gallana í kerfinu.  Sem hann reyndar gerdi einna helst med thví ad nýta sér thá til hins ítrasta, med tilheyrandi neti af "kolkrabba" fyrirtækjum og Gud má vita hvad (Varla neitt til eftirbreytni).

En hver er svo arfurinn eftir hann i dønskum stjórnmálum?

Pia Kjærsgaard, arftaki Mogens og hennar útleggingar á hvøssum (hatrømmum?) skodunum Mogens, sérstaklega hvad vardar innflytjendur í Danmørku, hafa nú ekki komid neitt sérstaklega vel út.  Hvorki fyrir okkur Íslendinga né eda adra sem eru ad reyna ad gera honum leikinn eftir og skara svolítinn eld ad eigin køku.

Langar helst til ad líkja pólitískum ferli Mogens Glistrup vid einn af thessum  thrýstiloftsthokulúdrum sem voru svo vinsælir á handboltaleikjum í "den".  Hann hafdi hatt (stundum ótharflega hatt) og nú thegar hann er horfinn á braut, skilur hann ekkert eftir sig.....nema (eins og sagt er hér í Baunaveldi) "varm luft".

Birgir Birgisson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 61
  • Sl. sólarhring: 1179
  • Sl. viku: 6131
  • Frá upphafi: 2304322

Annað

  • Innlit í dag: 51
  • Innlit sl. viku: 5657
  • Gestir í dag: 51
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband