Leita í fréttum mbl.is

Hrunið

Ég lauk í gær við að lesa bók Guðna Th. Jóhannessonar "Hrunið.   Mér fannst kærkomið að fá bók sem rekur atburðarásina með þeim hætti sem Guðni gerir. Þar koma fram margar gagnlegar upplýsingar um það sem gerðist bak við tjöldin þá örlagaríku daga sem liður frá bankahruninu 6. okbóber 2008 til stjórnarslitanna í lok janúar 2009.

Við lestur bókarinnar kemur glögglega í ljós hvað ríkisstjórnin var í raun ráðvillt um og eftir bankahrunið og hvað það hafði afdrifarík áhrif að formaður Samfylkingarinnar skyldi eiga við alvarleg veikindi að stríða.

Það er óhætt að mæla með þessari bók. Guðni lætur hjá líða að fella palladóma um það hverjir bera ábyrgð en rekur söguna með hlutlægum hætti að því er mér finnst. 

Ég varð hins vegar fyrir vonbrigðum þegar ég las bók Ólafs Arnarssonar. Sú bók er að vísu læsileg en er hins vegar ekki trúverðug nema að litlu leyti vegna þess hvað höfundur tekur afgerandi afstöðu með banka- og útrásarmönnum gegn stjórnvöldum.

Helsti örlagavaldur bankahrunsins virðist manni vera Davíð Oddsson þáverandi Seðlabankastjóri samkvæmt bók Ólafs en lítið er gert úr hlut fyrirtækjanna sem skulda hundruði milljarða og geta ekki greitt eða með hvaða hætti bankastarfsemin var rekin.

En það á eftirt að segja miklu meira og upplýsa mun meira en nú hefur verið gert. Mér er nær að halda að sumir sem hafa verið úthrópaðir eigi eftir að rétta hlut sinn á meðan aðrir sem hafa verið minna í umræðunni m.a. vegna veldis þeirra í íslenskri fjölmiðlun eigi eftir að axla þá ábyrgð sem þeim ber.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ég vil þetta um téða  bók segja.

Ég get ekki treyst því sem hann ritar um þessi mál. Hann segist hafa undir höndum Tölvupósta og SMS skilaboð sem genguá milli Geirs og Ingibjargar Sólrúnar þá leikar stóðu hæst. Hvar fékk hann þessi gögn? Hvor fær betri meðferð í bókinni?Þannig vitum við frá hverjum gögnin eru. Þá vitum við hver vill rita söguna EFTIR að atburðir urðu og verða þannig sigurvegarinn. Alsiða hefur verið í Mannkynsögunni, að ,,sagnfræðingar" hafa verið fengnir til ritunar ,,fræðirita" um hvaðeina, allt í boði þeirra sem aura eða völd hafa og vilja endilega halda í. Miðbæjaríhaldiðtrúir afar fáu sem ,,sagnfræðingar" rita um nýorðna atburði og allsekki yngri en svona aldargamla.

Bjarni Kjartansson, 10.6.2009 kl. 10:07

2 Smámynd: Jón Magnússon

Það er rétt hjá þér Bjarni að það er vandasamt að rita góða samtímasögu og það er alltaf spurning um hver útvegar heimildir. Mér finnst heilt tekið heimildasöfnun Guðna vera góð en það eru nokkrir þættir sem hann hins vegar minnist ekki nægjanlega mikið á eins og t.d. aðkoma VG og sumra ráðamanna Samfylkingarinnar að árásunum á Alþingi í janúar s.l. Þá var greinilegt að samkomulag hafði verið gert milli sumra um að hrekja þáverandi ríkisstjórn frá. Jafnvel hvað svo sem Ingibjörg Sólrún segði.

Jón Magnússon, 10.6.2009 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 43
  • Sl. sólarhring: 840
  • Sl. viku: 4557
  • Frá upphafi: 2426427

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 4224
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband