Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Spámaður í föðurlandi

Helsti sérfræðingur alheimsins og mannkynsfrelsari, Ólafur Ragnar Grímsson fyrrum forseti íslenska lýðveldisins, sagði í kvöldfréttum 28.ágúst, að Grænlandsjökull væri að bráðna og sjávaryfirborð mundi þá hækka allt að tvo metra. Í sama fréttatíma kom annar sérfræðingur sem talaði um bráðnun Suðurskautsins, en allt var þar í meiri óvissu en hjá Ólafi.

Sérfræðingar á borð við mannkynsfrelsarann Ólaf Ragnar hafa oft komist að sömu niðurstöðu, ranglega, með hnattræna hlýnun og bráðnum Grænlandsjökuls og Suðurskautsins. 

Fyrir 99 árum þ. 7. apríl 1923, sagði blaðið Daily Mercury, "Norðurpóllinn er að bráðna. Margir jöklar eru horfnir".

Í sama streng tók blaðið Harrisburg Courier 17.des.1939 en þar sagði "Vísindamenn segja að Grænlandsjökull sé að bráðna."

Árið eftir þ. 13.okt 1940 sagði síðan blaðið Hartford Courant Magazine "Ísinn á Suðurhvelinu bráðnar hratt."

Okkar ástsæli fyrrum forseti ætti e.t.v. að snúa sér að öðru en  að taka undir aldargamla spádómum um hamfarahlýnun og hamfarabráðnun. Honum fer ýmislegt betur úr hendi en að gerast sölumaður "snákaolíu".

 


Verðhjöðnunarlögin

Demókratar í Bandaríkjunum hafa fengið samþykkt lagafrumvarp sem þeir kalla verðhjöðnunarfrumvarpið (Inflation reduction act) Í fréttamiðlum hér hefur það iðulega verið nefnt loftslagsfrumvarpið, sem er ansi vel í lagt. Fyrst og fremst er þetta frumvarp sem kveður á um auknar millifærslur og skattheimtu þó að veita eigi verulega styrki til óarðbærrar svokallaðrar grænnar framleiðslu.

Skattahækkanir eru verulegar til að reyna að vega upp á móti auknum ríkisútgjöldum. Samt sem áður er talað um að með þessu nýja eyðslufrumvarpi muni skuldastaða Bandaríkjanna verða verri en Ítalíu. 

Munurinn á Ítalíu og Bandaríkjunum er sá, að Bandaríkin hafa hingað til prentað dollara út úr efnahags mistökum af því að dollarinn er heimsmynt. Hvað lengi geta þeir það? 

Biden fékk samþykkt eyðslufrumvarp 2021, sem hleypti af stað mikilli verðbólgu ekki bara í Bandaríkjunum heldur vítt og breitt um heimsbyggðina.

Nýasta lagasetning Biden Demókratana kemur enn til að magna verðbólguna og er því heiti frumvarpsins hrein öfugmæli. 

Hætt er við að Seðlabankastjóri Íslands megi sín lítið til að vinna gegn þeirri ofurverðbólgu sem  verðhjöðnunarlög Biden eru líkleg til að hafa í för með sér. 

Efnahagsstefna Biden er einstök. Til að draga úr verðbólgu er ausið út gjafafé til einstaklinga og fyrirtækja, en á sama tíma lagðir á skattar sem m.a. hækka verð á framleiðsluvörum.


Til hvers var barist?

Í fyrradag myrtu Bandaríkjamenn leiðtoga Al Kaída með því að gera drónaárás á heimili hans í Kabúl í Afganistan.

Þ.11.september 2001 fyrir rúmum 20 árum skipulögðu Al Kaída samtökin hryðjuverk í Bandaríkjunum undir forustu Osama bin Laden með því að ræna flugvélum og fljúga þeim á tvíburaturnana í New York og á Pentagon bygginguna í Washington DC. Osama bin Laden skipulagði þessar árásir frá Kabúl í skjóli Talibana.

Bandaríkjamenn réðust á  Afganistan vegna þessa og komu Talibönunum frá völdum.  Lengsta stríð sem Bandaríkjamenn hafa háð var síðan í Afganistan gríðarlegt fé rann til Afganistan frá Vesturlöndum í þessi 20 ár til að uppfræða fólkið og tryggja stöðu kvenna og treysta innviði í landinu. 

Talibandar tóku völdin þegar Bandaríkjamenn nenntu ekki að stríða lengur án takmarks eða tilgangs og  buðu leiðtoga Al Kaída að vera með bækistöðvar í Kabúl skjóli þeirra eins og Osama bin Laden naut fyrir 20 árum. 

Konurnar eru reknar aftur í búrkurnar,stúlknaskólum er lokað og harðræði öfgafyllstu túlkunar sharia laga hafa tekið gildi með opinberum aftökum m.a. með því að konur eru grýttar til bana. 

Bandaríkjamenn og önnur NATO ríki hljóta að velta fyrir sér til hvers var barist. Hver varð árangurinn af herförinni?

Sennilega verðru heifúðug borgarastyrjöld í Afganistan innan skamms, en það var aldrei markmiðið með afskiptum NATO og þúsunda milljarða fjárgjöfum Vesturlanda.

Íslenska ríkisstjórnin ákvað í tilefni dagsins og þess að Al Kaída hefur á ný hreiðrað um sig í Kabúl, að senda Talibana stjórninni fjárstuðning frá íslenskum skattgreiðendum án þess að spyrja þá um leyfi.

Var virkilega ekki hægt að ráðstafa því fé betur?


Hver á að stjórna ferðinni?

Rishi Sunnak keppir um formannsstólinn í Íhaldsflokknum breska við Liz Truss. Bæði hafa lýst svipuðum sjónarmiðum varðandi hælisleitendur og nauðsyn aðgerða og breyttra vinnubragða. Þau eru sammála um að Bretar verði að stjórna ferðinni en ekki utanaðkomandi aðilar eða stofnanir af því að Bretar séu fullvalda ríki sem beri að taka ákvarðanir á þeim grundvelli.

Fjölskylda Rishi Sunnak flutti til Bretlands fyrir 60 árum og  þekkir hvað það er að vera innflytjandi. Sunnak setti fram greinargóða stefnu í þessum málum fyrir nokkru.

Við verðum að stjórna landamærununum segir Rishi Sunnak og takast á við flóð ólöglegra innflytjenda það er eitt mikilvægasta málið. Núverandi kerfi er ónothæft.

Ég mun koma á grundvallarbreytingum og þrengja skilgreiningu á því hverjir þurfa á alþjóðlegri vernd að halda í samræmi við samþykkt um flóttafólk frekar en skilgreiningar ECHR (Mannréttindadómstóll Evrópu). Þær breytingar munu koma í veg fyrir að hver sem kemur til landsins geti dvalið hér.

Mannréttindadómstóllinn er hindrun sem ég mun takast á við. Við ákváðum að fara úr Evrópusambandinu svo við yrðum fullvalda ríki. Mannréttindadómstóllinn getur ekki takmarkað möguleika okkar á að hafa fulla stjórn á landamærunum og við eigum ekki að leyfa honum það. Við þurfum að setja inn góðan skammt af heilbrigðri skynsemi inn í þetta flóttamannakerfi. /(Greinilegt að hann telur (og það með réttu) slíka skynsemi ekki að finna í úrlausnum Mannréttindadómstóls Evrópu)

Ég er sammála þeirri leið sem var valin af ríkisstjórninni með því að senda hælisleitendur til Rúanda meðan fjallað er um mál þeirra segir Sunnak, en sú leið verður að virka. Það gengur ekki að við eyðum peningum skattgreiðenda til að hýsa ólöglega innflytjendur á hótelum. Við verðum að hafa frelsi til að senda erlenda glæpamenn og þá sem uppfylla ekki skilyrði fyrir alþjóðlegri vernd heim til sín.

But basic human decency must be accompanied with hard-headed common sense. (Grundvallar mannlegu velsæmi verður að fylgja rökföst almenn skynsemi).

Sérkennilegt að engin íslenskur þingmaður (e.t.v. þrjár undantekningar) skuli tala með þessum hætti eða ljá þessum þanka lið eða gera sér grein fyrir að hér er um mikilvægt alvörumál að ræða, sem takast verður á við. Íslenska stjórnmálastéttin neitar að taka þessi mál til skynsamlegrar skoðunar og hefur nánast öll tekið upp Píratíska hugmyndafræði varðandi þessi mál þ.á.m. því miður stór hluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins.

Þessvegna m.a. flæða milljarðarnir stjórnlaust úr íslensku ríkisfjárhirslunni.


Hinn ofurbólusetti

Joe Biden Bandaríkjaforseti kenndi forvera sínum Trump um galin viðbrögð við Kóvíd veirunni og að smitin væru honum að kenna. 

Svo komu tilraunabóluefnin. Biden lét sprauta sig aftur og aftur og aftur o.s.frv. og talaði um mikilvægi þess að allir létu bólusetja sig með tilraunalyfjunum, en sættu afarkostum ella, vera reknir úr vinnu og bannað aðgengi að kaffihúsum, almenningssamgöngum og jafnvel opinberum stofnunum. 

Biden er einn kóvíd bólusettasti maður veraldar en þrátt fyrir það fékk hann Kóvíd en hristi það af sér á skömmum tíma eins og flestir í dag bólusettir, sem óbólusettir.

En svo smitaðist hinn ofurbólusetti Biden aftur af Kóvíd fáum dögum síðar. Vonandi gengur honum vel að hrista það af sér líka enda í besta heilbrigðisatlæti sem nokkur maður býr við. 

Vonandi bráir svo vel af Biden núna að hann sjái að einu aðilarnir sem njóta góðs af bólusetningarfarganinu eru lyfjafyrirtækin, en heimsbyggðinni kann að stafa meiri hætta af tilraunabóluefnunum en kóvíd veirunni. 


Er einhvers að vænta?

Þrír meiriháttar stjórnmálamenn hafa lýst yfir þáttöku í forkosningum Repúblíkana til forseta. Það er fyrrum varaforseti Mike Pence. Skörungurinn Nikki Haley fyrrum sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum og Ron De Santis fylkisstjóri í Flórída er talinn munu vera í þessum hópi.

Ron De Santis er athyglisverður stjórnmálamaður og hann mælist nú með meira fylgi en fíllinn í stofunni hjá Repúblíkönum.

Vinur minn homminn Douglas Murray skrifaði um stjórnmálamanninn Ron De Santis sem er 43 ára fyrir nokkrum dögum.Ég fylgi að mestu þeim þönkum sem hann setur fram:

Meðan Kóvídið gekk yfir þá var ekki beitt innilokunum eða öðrum takmörkunum í Flórída ólíkt því sem stjórnmálaelítan í öðrum fylkjum Bandaríkjanna og öðrum löndum gerði. Ákvörðun De Santis í Kóvídinu leiddi til efnahagslegrar uppsveiflu og fjöldi fólks kaus frelsið í stað Kóvíd helsisins og kom til Flórída, sem vegnaði síður en svo verr en þeim stöðum þar sem innilokunum og öllum pakkanum að öðru leyti var fylgt.

De Santis er traustur hægri maður og tekur ekki þátt í jámennsku við hugsana- og tjáningarógn vinstri manna. Í menningarstríði vinstri manna má ekki tala um atriði í dag, sem var í lagi að gera í gær. Fáránleikinn er stundum þeirra sannleikur og allt of magir miðju- og hægri stjórnmálamenn taka undir af hræðslu.

Þegar íþróttamaður að nafni Lia Thomas raunar skírð Vilhjálmur vann sundmóti kvenna ákvað De Santis að konurnar í öðru og þriðja sæti færðust upp, þar sem engin sanngirni væri í að Vilhjálmur(Lia) gæti komið séð og sigrað í kvennasundi eftir kynskiptaaðgerð.

De Santis barðist fyrir lagafrumvarpi sem kæmi í veg fyrir að ungum börnum væri kennd kynjavitleysan um að kynin væru ekki tvö heldur milljón mismunandi kyn (og færi stöðugt fjölgandi) og spendýrategundin mannkynið væri tvíkynja. Stórfyrirtækið Disney lagðist á árar með vinstra liðinu og þá gerði De Santis nokkuð einstakt. Hann sló til baka.

Disney nýtur ýmissa fríðinda fyrir að vera í Flórída. De Santis gerði þeim ljóst að um þau fríðindi yrði að semja upp á nýtt ef Disney ætlaði að verða pólitískt fyrirtæki og ljúga hlutum og skoðunum upp á fólk sem fyrirtækið væri ekki sammála. Disney gaf eftir og skammaðist sín. Með framgöngu sinni hefur De Santis sýnt fram á að það er þess virði að vera samkvæmdur sjálfum sér og láta ekki öfga vinstrið í menningarstríðinu gegn gildum frelsisins og staðreyndum lífsins komast upp með að útiloka umræðu og beita afli sínu til að eyðileggja stjórnmálamenn sem þora að bera sannleikanum vitni.

Repúblíkanar eiga því nú þegar þrjá öfluga frambjóðendur sem sækjast eftir tilnefningu til forseta og eru verðugir málsvarar sjónarmiða hægra fólks. Það er löngu tímabært að Bandaríkin fái verðugan forseta, en það hafa þau ekki haft á þessari öld.

 


Kvenréttindabarátta

Fyrir nokkru var 20 ára kona í Súdan dæmd til að vera grýtt til bana fyrir hjúskaparbrot. Þessi dómur sýnir e.t.v. að réttindi og staða kvenna er víða verri í dag en hann var. 

Þursaríkin, Saudi Arabíu, Brunei, Íran og Afganistan, hafa öll lög um  að konur skuli grýttar ef svo ber undir. Þungun er iðulega talin sanna afbrot konu og konur sem tilkynna nauðgun í þursaríkjunum lenda stundum í því að vera ákærðar í stað þess að þær njóti stöðu brotaþola eða fórnarlambs.

Talibanar í Afganistan hafa lögfest að nýju margt sem þrengir að réttindum kvenna m.a. möguleikua til náms og starfa. Á Indónesíu eru konur víða þvingaðar til að vera með blæju jafnvel þær sem eru ekki múslimar. 

Kvenréttindasamtök hér á landi þurfa að taka upp baráttu fyrir réttindum kynsystra sinna í þursaríkjunum og þar sem konur njóta ekki grundvallarmannréttinda. 

Allir sem berjast fyrir mannréttindum og jöfnum rétti borgaranna hlítur að renna það til rifja að horfa upp á þessa gegndarlausu kvennakúgun og brot á grundvallarmannréttindum. Við eigum ekki að láta það viðgangast.


Sér er nú hver ósóminn

Fyrir skömmu samþykkti þingið í Georgíufylki í Bandaríkjunum, að kjósendur yrðu að framvísa persónuskilríkjum til að sanna á sér deili þegar þeir kæmu til að kjósa. Við höfum lengi búið við að þurfa að sanna á okkur deili þegar við komum að kjósa og finnst það ekkert óeðlilegt. 

Demókratar í Bandaríkjunum bregðast hins vegar ókvæða við berjast gegn og fordæma þessa lagasetningu í Gerorgíu og segja hana vera ómengaðan rasisma. Hvernig svo sem slík tenging verður réttlætt. 

Furðulegt að stjórnmálaflokkur eins og Demókratar geri allt til að koma í veg fyrir að kosningar fari fram með löglegum og eðlilegum hætti. 

En e.t.v. er það ekki furðulegt fyrst þeir kalla notkun persónuskilríkja rasisma og fordæma þá sem neita að viðurkenna að kynin séu þúsund eða fleiri og telja að öryggi borgaranna sé best borgið með því að leggja niður lögregluna. 

Vegferð þessa galna meirihluta Demókrataflokksins bíður vonandi versti kosningaósigur í kosningunum í nóvember þannig að þeir verði dæmdir til áhrifaleysis, jafnvel þó Joe Biden sé forseti, og það vonandi þangað til einhver skynsemdarhyggja nær aftur tökum á þessum stóra og fyrir margt löngu merkilega stjórnmálaflokki. 


Aðgöngumiðinn að NATO

Í nótt gerði NATO ríkið Tyrkland loftárás á annað ríki, Kúrda héruð í Írak og drápu 8 ferðamenn. Tyrknesku sprengjunum var að sjálfsögðu ætlað að drepa sem felsta Kúrda en hæfðu aðra.

Tyrkir hafa um árabil beitt Kúrda í Tyrklandi miklu harðræði og svipt fjölda þeirra mikilvægum mannréttindum og fangelsað fjölda þeirra. Þeir hafa ráðist á Kúrda bæði í Írak og Sýrlandi og studdu Íslamska ríkið með ýmsu móti til að þeir næðu að drepa sem flesta Kúrda,kristið fólk og Yasida. 

Tyrkland bandalagsríki okkar í NATO neitar hluta borgara sinna að njóta grundvallarmannréttindi og neitar að viðurkenna sök sína á þjóðarmorði á Armennum á síðustu öld og drepur Kúrda í nágrannaríkjum Tyrklands eftir hentugleikum. 

Fyrir skömmu sóttu Finnland og Svíþjóð um aðild að NATO. Því var tekið fagnandi af öllum þjóðum nema Tyrklandi og eins og alltaf í samskiptum hvort heldur við Evrópusambandið eða NATO setur Erdogan Tyrkjasoldán skilyrði.

Svíar mega ekki vera í NATO nema þau svipti Kúrda sem flúið hafa undan ofsóknum Tyrkja þeirri vernd sem Svíar hafa veitt þeim og framselji þá til Tyrklands. Svíar eiga að framselja 75 einstaklinga til Tyrklands og þeirra bíða ógnvænlegri örlög en allra þeirra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd á Íslandi undanfarin ár.

Sagt var frá því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands hefði haft aðkomu að því að samningar náðust við þursaríkið Tyrkland um að Svíar og Finnar kæmust inn í NATO og 75 einstaklingar í neyð yrðu sviptir alþjóðlegri vernd í Svíþjóð. Það var heldur betur illa gert af þeim sem að þessum samningum stóðu eða komu nálægt þeim. 

Það er fordæmanlegt að NATO ríkin skuli heimila þursaríkin Tyrklandi að vera í NATO hvað þá að láta sem þau sjái ekki mannréttindabrot Tyrkja gagnvart eigin borgurum og árásarstríð þeirra gegn Kúrdum og til að bíta höfuðið af skömminni að samþykkja að aðgöngumiði Svía og Finna í NATO sé að þeir framselji fólk sem hefur hlotið alþjóðlega vernd í þessum löndum. Yfir það blessar síðan íslenski forsætisráðherrann. 

Forustumenn NATO ríkjanna mega skammast sín sem og ráðamenn í Svíþjóð að gangast undir þetta ómannúðlega ok Erdogan. Í hverskonar veruleika lifir er þetta fólk.

Á sama tíma brosir Erdogan breitt á leiðtogafundi með Pútín og erkiklerknum í Íran. Sá veruleiki fer sennilega líka framhjá leiðtogum annarra NATO ríkja.

 

 


Græna örbirgðin

Hvernig stendur á því að efnahagur Sri Lanka breytist úr einum mesta hagvexti í Asíu í mannlega hryllingssýningu sem virðist koma öllum á óvart skrifar Matt Ridley blaða- og vísindamaður í DT í dag og heldur áfram:

Hvað gerðist? Svarið er einfalt. Í apríl 2021 bannaði forsetinn meindýraeitur og tilbúinn áburð til að landbúnaðarframleiðsla landsins yrði algjörlega lífræn. Innan nokkurra mánaða hafði útflutningur á te minnkað um helming og hrísgrjónauppskeran drógst gríðarlega saman, þannig að í fyrsta skipti þurfti að flytja inn hrísgrjón.

Vegna þessa gat ríkið ekki greitt afborganir af lánum og gjaldmiðillinn hrundi. Algeng matvæli voru sýkt, sem leiddi til skorts á mat og útbreiddrar hungursneyðar. Allt var þetta afleiðing af svo kölluðum sjálfbærum landbúnaði.

Á loftslagsráðstefnunni í Glasgow í fyrra montaði forseti Sri Lanka sig af því að landbúnaðarstefna hans væri samtvinnuð og í samhljómi með náttúrunni og einn þekktasti umhverfissinninn Vandana Shiva sagði að þessi ákvörðun mundi örugglega gera bændur á Sri Lanka ríkari.

Shiva ásamt mörgum umhverfisverndunarsinnum hafa gagnrýnt grænu byltinguna sem varð upp úr 1960 með hjálp tilbúins áburðar og meindýraeiturs og uppgötvana Norman Borlaug. Sú bylting kom í veg fyrir gríðarlegan mannfelli vegna hungurs í heiminum í fyrsta skipti í sögunni, þrátt fyrir gríðarlega fjölgun mannkynsins.

Margir umhverfissinnar sjá allt vont við þessa grænu byltingu og halda því fram að hefðbundin lífrænn landbúnaður geti miklu frekar brauðfætt heimsbyggðina með mun heilusamlegri mat en græna bylting tilbúins áburðar, skordýraeiturs o.fl. geti gert.

Nú hefur tilraunin með lífrænan búskap verið reynd á Sri Lanka með hörmulegum afleiðingum. „Lífrænn landbúnaður er sjálfbær að því leyti að hann viðheldur fátækt og matarskorti .“ Landbúnaður var lífrænn þegar milljónir dóu úr hungri á hverjum áratug og rykstormarnir ríktu á sléttunum í Bandaríkjunum vegna þess að það skorti áburð.

Ef það ætti að brauðfæða 8 þúsund milljónir manna með lífrænum aðferðum, þá yrði að taka meira en helmingi meira land í notkun fyrir slíkan landbúnað eða nánast allt ræktarland og skóga í heiminum. Af hverju segja hefðbundnar fréttastofur ekki frá staðreyndunum varðandi Sri Lanka og lífræna framleiðslu.

Hvað þarf að fórna miklu áður en menn horfast í augu við raunveruleikann?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 169
  • Sl. viku: 2310
  • Frá upphafi: 2507131

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 2158
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband