Færsluflokkur: Dægurmál
11.11.2008 | 19:23
Bjarni Harðarson
Mér finnst miður að Bjarni Harðarson skuli hafa sagt af sér þingmennsku.
Við Bjarni vorum ósammála í mörgu. Það skiptir í sjálfu sér ekki máli. Bjarni var góður þingmaður og fylginn sér og einkar skemmtilegur. Hann átti iðulega snarpa og skemmtilega spretti í ræðustól Alþingis. Þá hafði hann ákveðnar skoðanir. Í sumum tilvikum skoðanir sem engir eða afar fáir deila með honum en það kom ekki í veg fyrir að Bjarni beitti sér í samræmi við skoðanir sínar.
Ég óska Bjarna allra heilla í framtíðinni. Það var hans ákvörðun að segja af sér þingmennsku. Hann er ekki minni maður fyrir að gera það.
Samt finnst mér spurning hvort ástæða hafi verið til þess af hans hálfu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.11.2008 | 14:21
Mánaðarafmæli neyðarlaganna.
Í dag er mánuður liðinn síðan neyðarlögin voru samþykkt á Alþingi. Frá þeim tíma hefur lítið þokast á Alþingi og alþingismenn fá ekki upplýsingar eða svör um stöðu mála. Ríkisstjórnin er greinilega hugmyndasnauð og það hefur komið fram í utandagskrárumræðum í dag á Alþingi um vanda fjölskyldnanna í landinu og vanda íbúðareigenda.
Í ræðu á Alþnigi fyrr í dag þá benti ég á aðgerðir sem grípa yrði til strax til að tryggja stöðu venjulegs fólks og fyrirtækja í landinu.
1. Lánakjör verði sambærileg og í nágrannalöndum okkar.
2. Stýrivextir verði þegar í stað lækkaðir í 5%
3. Nauðsynlegum gjaldeyrishöftum verði beitt tímabundið meðan náð er tökum á gjaldeyrismarkaðnum.
4. Tengja verður gjaldmiðilinn við stærra myntkerfi þannig að um stöðugleika og öryggi geti verið að ræða.
5. Veita verður atvinnufyrirtækjunum fyrirgreiðslu til að framleiðslan geti haldið áfram og tryggja með því sem mesta atvinnu í landinu.
6. Frysta verður verðtryggð lán og lán í erlendri mynt í a.m.k. 6 mánuði
7. Endurreikna verður vísitöluna miðað við raunveruleikann og gefa upp á nýtt. Með sanngjörnum hætti að þessu sinni.
8. Afnema verður verðtrygginguna.
Heimspekingurinn Plato sagði að það þjóðfélag þar sem ekki væri gætt réttlætis fengi ekki þrifist.
4.11.2008 | 20:16
Ítarleg rannsókn strax
Milljarður er mikið fé. Hvað þá hundrað milljarðar. Ítrekaðar fréttir af meintu misferli eða skrýtnum hlutum sem kunna að hafa átt sér stað rétt áður en bankarnir voru þjóðnýttir kallar á ítarlega rannsókn á viðskiptum bankanna við æðstu stjórnendur bankanna, hluthafa og sérstaka vildarviðskiptavini síðustu mánuði áður en bankarnir fóru í þrot.
Ég tel að rannsókn verði að ná a.m.k. ár aftur í tímann vegna þess að mörgum var ljóst að veður gátu orðið válynd á fjármálamarkaðnum strax frá haustinu 2007. Mikilvægt er líka að rannsókn verði hraðað og sóttir erlendir sérfræðingar til að tryggja það að rannsóknin verði hraðvirk ítarleg og hlutlæg.
Eingöngu á grundvelli ítarlegrar rannsóknar á meintum misferlum, undanskotum og innherjaviðskiptum er hægt að komast að því sanna í málinu.
Það er þjóðhagslega mikilvægt að rannsókn verði hraðað sem mest.
Fólkið í landinu sem hefur mátt horfa á eigur sínar brenna upp að hluta eða alveg í verðbólgunni og verðtryggingunni verður að fá fullnægjandi upplýsingar um það hvort skuldir sumra voru felldar niður, þeim breytt eða peningar gefnir til vildaraðila með einum eða öðrum hætti.
Alþingi verður að hlutast til um það strax að ítarleg hlutlæg rannsókn fari fram þegar í stað.
![]() |
100 milljörðum skotið undan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.11.2008 | 23:05
Kjördagur
Bandaríkjamenn ganga að kjörborðinu á morgun. Flestir spá Barack Obama sigri en John McCain er búinn að sýna ótrúlega hörku í kosningabaráttunni. Ég get ekki annað en dáðst að því hvað John McCain hefur staðið sig vel í kosningabaráttunni þó að hann eigi svo sannarlega á brattann að sækja. Hann hefur óstjórn Bush á bakinu. Efnahagsvandinn er skrifaður að stórum hluta á kostnað Repúblikana og John McCain má heldur betur taka á sig áföll þess vegna.
Þrátt fyrir það að ég telji John McCain vera einn allra besta stjórnmálamanninn í Bandaríkjunum þá tel ég að tími Repúblikana eigi að vera liðinn í bili. Bush forseti hefur gert þvílík mistök að Bandaríkin þurfa nú á að halda forseta sem gefur allt aðra ímynd en nótar forsetans. Mér finnst Barack Obama líklegri til að græða þau sár sem stjórn Bush skilur eftir sig gagnvart mörgum þjóðum sem stjórn hans hefur fjandskapast við.
Obama er athygliverður stjórnmálamaður frá því að ég tók eftir honum fyrst þá hefur mér fundist hann mjög athygliverður sem stjórnmálamaður og líklegur til að boða breytingar til hins betra í Bandarísku samfélagi.
Áður en fyrstu forkosningarnar voru í byrjun ársins þá lýsti ég því yfir hér á blogginu að ég vildi sjá þá Obama og McCain í baráttunni og að Obama væri líklegri til að geta gert betri hluti og því vonaðist ég til að hann sigraði.
Ég hef ekki skipt um skoðun og nú er að spyrja að leikslokum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.11.2008 | 18:24
Óheilindi Samfylkingarinnar.
Óneitanlega eru margar aðgerðir ráðherra Samfylkingarinnar sérkennilegar. Nú hafa ráðherrar Samfylkingarinnar látið bóka sérstaka afstöðu sína til Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra. Næst bregst Samfylkingin þagnarskyldu og trúnaði og lætur málgagni sínu Fréttablaðinu í té upplýsingar um bókunina. Ekki verður annað séð en með þessu hafi Samfylkingin annað hvort kosið að standa varðstöðu um Davíð Oddsson þó að með þessum sérkennilega hætti sé eða vinna að stjórnarslitum.
Samfylkingarráðherrum er ljóst að samstarfsflokkur þeirra í ríkisstjórn verður ekki knúinn til að láta fyrrverandi formann sinn fara úr embætti Seðlabankastjóra með bókun á ríkisstjórnarfundi. Þvert á móti þá er slík aðgerð líkleg til að koma í veg fyrir að Seðlabankastjóri verði látinn víkja. Markmiðið með bókuninni getur því tæpast verið annað en að knýja Sjálfstæðisflokkinn til að standa við bakið á Davíð. Samfylkingin er með því að reyna að koma höggi á samstarfsflokk sinn í ríkisstjórn og það ætti öllum að vera ljóst.
Eftirtektarvert hefur verið að fylgjast með því undanfarna daga eftir að Samfylkingi notar öll tækifæri til að reyna að koma sér undan ábyrgð á óvinsælum aðgerðum en láta líta svo út að það sé allt á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins. Þegar svo er komið í ríkisstjórn þá eru engin heilindi til staðar lengur. Slík ríkisstjón er ekki á vetur setjandi og ekki líkleg til að valda því risavaxna verkefni sem framundan er.
Kjósendur verða að velta því fyrir sér hvort að Samfylkingin sem nú mælist með mest fylgi allra stjórnmálaflokka er trausts verður þegar ráðherrar flokksins sína ítrekað af sér dæmafá óheilindi gagnvart samstarfsaðila sínum þegar mest á ríður að samstaða um lausn vandamálanna sé til staðar.
Stjórnarandstaðan hefur sýnt fulla ábyrgð og vilja til að vinna af heilindum að lausn þess gríðarlega vanda sem er framundan. Það er því með ólíkindum að annar stjórnarflokkurinn skuli sína af sér ítrekað jafnmikið ábyrgðarleysi og Samfylkingin gerir.
Skyldi Samfylkingin haga sér svona ábyrgðarlaust af því að hún er blinduð af velgengni í skoðanakönnunum og vilji í raun slíta stjórnarsamstarfinu og láta efna til kosninga sem fyrst?
![]() |
Samfylking afneitar Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.11.2008 | 08:21
Hvað vissu Geir og Gordon hvenær?
Fréttin á Channel 4 um að forsætisráðherra hafi aðvarað Gordon Brown í apríl á þessu ári um aðsteðjandi vanda íslensku bankanna og íslensks fjármálalífs er með ólíkindum. Sé þessi frétt Channel 4 rétt þá verður ekki annað séð en forsætisráðherra hafi í fyrsta lagi sagt Alþingi ósatt í umræðum um efnahagsmál. Í öðru lagi þá er það með ólíkindum að ekki hefði verið gripið til aðgerða strax í apríl vegna aðsteðjandi vanda sem vitað var um samkvæmt fréttinni. Í þriðja lagi þá voru íslenskir ráðamenn á auglýsingaferðum fyrir íslenskt fjármálalíf á þessum tíma og töluðu opinberlega um styrk þess.
Það er nánast útilokað að þessi frétt á Channel 4 geti verið rétt. Væri hún rétt þá hefði það í fyrsta lagi verið ábyrgðarleysi að nýta ekki lánsheimild ríkissjóðs sem veitt var á Alþingi í maí upp á 500 milljarða. Þá væri það með ólíkindum að ráðamenn hefðu farið í sumarfrí og klappstýruferðir til Kína eða utanríkisráðherrann að endasendast út um lönd og álfur til að fá einræðisherra til að styðja framboð Íslands til öryggisráðsins.
Mér finnst líklegt að fréttin sé tilhæfulaus. Væri hún rétt þá kæmi ekki annað til greina en afsögn ríkisstjórnarinnar þegar í stað.
![]() |
Geir aðvaraði Brown í apríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
31.10.2008 | 13:35
Stýrivextirnir lama atvinnulífið og eyðileggja fjárhag fólksins.
Daginn eftir að Seðlabanki Íslands tilkynnti ákvörðun sína að hækka stýrivexti í 18% með blessun ríkisstjórnarinnar, ákvað Seðlabanki Bandaríkjanna að lækka stýrivexti sína í 1%. Seðlabanki Bandaríkjanna gaf þá skýringu að þessi vaxtalækkun væri nauðsynlegt til að örva framleiðslu og atvinnuskapandi starfsemi.
Með því að færa stýrivexti í 18% er gerð fálm- og krampakennd tilraun til að styrkja stöðu krónunnar. Enn á að leggja á þau mið að hafa stýrivexti í ofurhæðum til þess að geta pumpað upp krónuna. Stýrivaxtarugl Seðlabankans er þó sennilega einn stærtst orsakavaldur þess efnahagsöngveitis sem við erum lent í. Annar orsakavaldur er skortur á erlendum gjaldeyri sem Seðlabankinn ber líka ábyrgð á og hugsaði ekki fyrir því í tíma að taka lán til að komist yrði hjá gjaldeyriskreppu.
Vandinn nú er að tryggja atvinnu fólksins og hjól atvinnulífsins snúist. Með því að hækka stýrivextina í 18% þegar nauðsyn bar til að lækka þá niður í 5% eða enn lægra, var hrundið af stað hópuppsögnum um allt land. Nú ber ríkisstjórn og Seðlabanki alfarið ábyrgð á því að leggja enn upp í þessa ábyrgðaralusu vegferð til þess eins að reyna að láta krónuna hjarna við óháð því hvað líður atvinnu fólksins, framleiðslunni í landinu og skuldastöðu fólks og fyrirtækja. Þetta er ábyrgðarleysi.
Nú skulda heimilin í landinu rúma 75 milljarða í yfirdráttarlánum. Algengir yfirdráttarvextir eru um 20% en ætla má að þeir hækki í 26%. Það þýðir að heimilin í landinu munu því greiða um 4.5 milljarða meira í vexti en ella væri vegna stýrivaxtahækkunarinnar bara af yfirdráttarlánunum.
Þjóðin hefur ekki efni á svona viltausri hagstjórn.
29.10.2008 | 21:55
Peningarmarkaðssjóðir. Örugg sparnaðarleið?
Bankarnir auglýstu peningamarkaðssjóðina sem örugga sparnaðarleið. Þeir sem vildu ekki spila á hlutabréfamarkaðnum gátu lagt peninga í peningamarkaðssjóði og búið við það öryggi sem fólk almennt telur sig búa við þegar það leggur peningana sína á innlánsreikninga bankanna.
Forsætisráðherra og viðskiptaráðherra hafa lýst því yfir að allir sem eiga innlánasreikninga í þjóðnýttu bönkunum fái inneign sína að fullu. Hvaða rök eru þá fyrir því að láta annað gilda um peningamarkaðssjóðina.
Miðað við það með hvaða hætti peningarmarkaðssjóðirnir voru markaðssettir þá er ekkert sem réttlætir það að fara að með öðrum hætti hvað þá varðar en aðra innlánsreikninga.
![]() |
Fundað með hagsmunaaðilum vegna taps í peningamarkaðssjóðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2008 | 21:54
Ísland á mesta samleið með Norðurlöndunum.
Vonandi átta ráðamenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar sig á því sem fyrst að Norðurlöndin eru þau lönd sem okkur eru skyldust og við eigum mesta samleið með.
Nú skiptir máli að fá úr því skorið hvort að Norðurlöndin vilja rétta okkur hjálparhönd þegar við þurfum virkilega á að halda. Mestu skiptir að byggja pólitískt og efnahagslegt samstarf við Noreg sem við eigum helst samleið með sem Efta og EES þjóð.
Íslenskum stjórnvöldum mátti vera ljóst að fljótandi gjaldmiðill minnsta myntkerfis í heimi, íslenska krónan gæti aldrei haft stöðugleika í för með sér. Síðan þegar krónan var orðinn að lottógjaldmiðli fjárglæfrafyrirtækja þá hefði augun heldur betur átt að opnast fyrir því að nauðsynlegt væri að haga gjaldmiðilsmálum okkar með öðrum hætti.
Nú er spurning hvort að við getum náð samstarfi við Noreg um að tengjast norsku krónunni. Það er miklu nærtækara en að tengjast Evru án þess að ganga í Evópusambandið. Við eigum sem fyrst að láta reyna á það hvað þétt samstarf getur orðið milli okkar og Norðmanna. Báðar þjóðir hafa ákveðið að standa utan Evrópusambandsins og báðar eiga mikilvæga sameiginlega hagsmuni þegar kemur að flestum samningum við Evrópusambandið. Það skiptir því máli að við myndum sem sterkust tengsl við Noreg. Sér í lagi nú þegar það hefur loksins runnið af þjóðinni og hún áttar sig á því að það skiptir máli að eiga alvöru vini.
Norðurlandaráðsfundurinn nú og fundir ráðherra Norðurlandaþjóðanna hafa aldrei skipt eins miklu fyrir hagsmuni Íslands og nú.
![]() |
Ráðherrar funda um Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.10.2008 | 21:38
Rétt ákvörðun Obama
Barack Obama gerði rétt í því að gera hlé á kosningabaráttu sinni fyrir að verða forseti Bandaríkjanna og heimsækja ömmu sína á sjúkrabeð. Amma hans ól hann upp að verulegu leyti og hann bjó metan hluta barnæsku sinnar og unglingsár hjá afa sínum og ömmu. Þegar upp er staðið þá er það ekki hið ytra sem skiptir máli heldur litli heimur hvers og eins, fjölskylda, ættingjar og vinir.
Nokkru áður en Obama flaug til Hawai til að heimsækja ömmu sína réðist hann á skattatillögur andstæðings síns John Mc Cain sem boðar m.a. frekari skattalækkanir í fyrirtæki. Talsmenn Repúblikanaflokksins og sumir talsmenn Sjálfstæðisflokksins hér hafa haldið því fram að með því að lækka skatta á fyrirtæki þá muni skatttekjurnar aukast. Máli sínu til stuðnings hafa þessir aðilar bent á auknar skatttekjur undanfarin ár af fyrirtækjum þrátt fyrir að skattar á þau hafi verið lækkaðir. Hætt er við nú þegar efnahagsbólan er sprungin að minni skatttekjur verði af fyrirtækjunum en nokkru sínni fyrr þannig að kenningin gekk ekki upp nem í útblásnu gervigóðæri.
En meðal annarra orða. Hverjir eru það svo sem borga ofurskattana til að standa undir óreiðunni? Það er venjulegt launafólk í landinu. Ekki pabbírsbarónar, kvótagreifar eða útrásarfurstar.
Talsmenn eftirlitslausu Frjálshyggjunar töluðu gegn þjóðfélagslegri ábyrgð fyrirtækja, töluðu gegn siðlegu aðhaldi að gróðaöflunum og töluðu fyrir því að skattbyrðinni yrði misskipt þannig að launþegar bæru meginhluta skattbyrðarinnar. Það var einu sinni sagt að það versta við rónana væri það að þeir kæmu óorði á brennivínið. Það sama á við með talsmenn eftirlitslausu Frjálshyggjunar er að þeir og lærisveinar þeirra í hópi fyrirtækjarekenda koma óorði á markaðshagkerfið.
![]() |
Obama heimsækir Hawaii |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 351
- Sl. sólarhring: 374
- Sl. viku: 3044
- Frá upphafi: 2550580
Annað
- Innlit í dag: 337
- Innlit sl. viku: 2743
- Gestir í dag: 329
- IP-tölur í dag: 321
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
-
Adolf Friðriksson
-
Jón Þórhallsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Agný
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Andrés Magnússon
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Björg Hjartardóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Jón Þóroddur Jónsson
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Auðbergur Daníel Gíslason
-
Baldur Hermannsson
-
Námsmaður bloggar
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Björn Halldórsson
-
Björn Júlíus Grímsson
-
SVB
-
Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
-
Carl Jóhann Granz
-
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
-
Dominus Sanctus.
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Helga Kristjánsdóttir
-
Þórólfur Ingvarsson
-
Dögg Pálsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Einar G. Harðarson
-
Eiríkur Guðmundsson
-
Elinóra Inga Sigurðardóttir
-
Erla Margrét Gunnarsdóttir
-
ESB og almannahagur
-
Ester Sveinbjarnardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Jón Kristjánsson
-
Atli Hermannsson.
-
Baldur Gautur Baldursson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Guðjón Sigurbjartsson
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gestur Halldórsson
-
Gísli Kristbjörn Björnsson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Grazyna María Okuniewska
-
Grétar Pétur Geirsson
-
Gunnar Th. Gunnarsson
-
Guðmundur Júlíusson
-
gudni.is
-
Jón Þórhallsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Gústaf Níelsson
-
Gústaf Adolf Skúlason
-
Guðjón Ólafsson
-
Gylfi Þór Þórisson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haukur Baukur
-
Birgir Guðjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Heimir Ólafsson
-
G Helga Ingadottir
-
Helgi Kr. Sigmundsson
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Himmalingur
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Eiríkur Harðarson
-
Hjörtur Guðbjartsson
-
Haraldur Huginn Guðmundsson
-
Snorri Hrafn Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Pétur Steinn Sigurðsson
-
Einar Ben
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Inga G Halldórsdóttir
-
Jakob S Jónsson
-
Einar B Bragason
-
Jens Guð
-
jósep sigurðsson
-
Sigurður Einarsson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Pétur Líndal
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Jórunn Ósk Frímannsdóttir
-
Eyþór Jóvinsson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Júlíus Brjánsson
-
Bergur Thorberg
-
Katrín
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Eggertsson
-
Kjartan Magnússon
-
Högni Snær Hauksson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Kristján H Theódórsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Steingrímur Helgason
-
Konráð Ragnarsson
-
Lífsréttur
-
Loncexter
-
Guðjón Baldursson
-
Lúðvík Júlíusson
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Magnús Jónsson
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Morgunblaðið
-
Natan Kolbeinsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ólafur Sveinsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Páll Ingi Kvaran
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pjetur Stefánsson
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar G
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rannveig H
-
Árni Gunnarsson
-
Ragnheiður Ólafsdóttir
-
Rósa Harðardóttir
-
ragnar bergsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Samstaða þjóðar
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Skattborgari
-
Haraldur Pálsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Stefán Júlíusson
-
Þorsteinn Guðnason
-
Jóhann Pétur
-
Sverrir Stormsker
-
Sturla Bragason
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Ólafur Ingi Hrólfsson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Björn Bjarnason
-
Óli Björn Kárason
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Þórhallur Heimisson
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Valsarinn
-
Valur Arnarson
-
Vefritid
-
Ingunn Guðnadóttir
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Vilhjálmur Eyþórsson
-
Vilhjálmur Sveinn Björnsson
-
Kristinn Ingi Jónsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Arnar Freyr Reynisson
-
Ívar Pálsson
-
Guðmundur Karl Snæbjörnsson