Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Mannréttindi

Dauðadómur og vanvirða

Nokkru eftir að Bandaríkjastjórn samdi við Íran um að látið skyldi af refsiaðgerðum gagnvart landinu, tilkynnti æðsti Immaminn að dauðadómur yfir skáldinu Salman Rushdie væri enn í gildi og hver sá sem dræpi hann fengi 80 milljónir í sinn hlut frá Írönskum skattgreiðendum.

Á sínum tíma þegar Khomeini Erki-Immam dæmdi Rushdie til dauða og lagði fé til höfuðs honum taldi fólk á Vesturlöndum að Khomeini hlyti að vera orðinn elliær. Brugðist var hart við þessu og fjölmiðlar um allan heim fordæmdu þessa aðför að tjáningarfrelsinu. Nú þegar ekki er um villst að þarna er um glórulaust ofstæki að ræða og aðför að tjáningarfrelsinu hjá ráðamönnum milljónaþjóðar þá hefur engin neitt við þetta að athuga af forustufólki hins Vestræna heims.

Fjölmiðlar og fjölmiðlafólk rís ekki upp til varnar og forustufólk í lýðræðisríkjum lætur sem þeim komi þetta ekki við. Páfinn er upptekinn við að fordæma Trump og faðma Castro og má ekki vera að því að vandræðast með aðför að tjáningarfrelsinu.

Óvinir tjáningarfrelsins  finnast víða í fleti fyrir. Vestrænir fjölmiðlar hafa tekið að sér sjálfritskoðun og þöggun eins og stjórnmálastéttin og háskólaelítan. 

Fyrir nokkru rak Akureyrarbær Snorra Óskarsson frá störfum sem kennara vegna skoðana hans. Grímulausu atvinnubanni(berufsverbot) var beitt gagnvart honum. Hæstiréttur dæmdi uppsögnina ólögmæta, en bæjarstjórinn sættir sig illa við að Hæstiréttur skuli hafa tekið afstöðu með tjáningarfrelsinu. 

Bæjarstjórinn telur að Snorri hafi kallað yfir sig vanvirðu og álitshnekki vegna skrifa sinna og trúarskoðana og þess vegna geti bæjarstjórinn sest í dómarasæti yfir honum og fordæmt skoðanir hans og ekki nóg með það svipt hann störfum.

Hefði Snorri ekki verið kristinn heldur játað Múhameðstrú og verið Imam þar á bæ þá hefði gegnt öðru máli. Þá hefði verið sagt að skrif hans væru réttlætanleg út frá hugmyndum um fjölmenningu. Virða yrði ólíkar trúarskoðanir. Ógæfa Snorra er að vera kristinn og njóta ekki þeirrar undanþágu sem þöggunarlið Vesturlanda heimilar flestum þeim sem ekki játa kristna trú.


RÚV virkið

Sérstakt að fylgjast með einhliða og neikvæðri umfjöllun í fréttum og Kastljósi, Ríkissjónvarpsins síðustu tvö kvöld um fyrirtæki sem starfrækt er á Grundartanga í Hvalfirði. Af umfjölluninni að dæma mátti ætla að það væru meiriháttar embættisafglöp starfsfólks eftirlitsaðila að hafa ekki lokað fyrirtækinu fyrir löngu.

Litlar varnir voru færðar fram og forustumenn fyrirtækisins gátu ekki borið hönd fyrir höfuð sér í þessari einhliða umfjöllun RÚV um málið til að byrja með.

Skýringin á þessum fréttaflutningi kom síðar í ljós. Stjórnarformaður fyrirtækisins er Eyþór Arnalds, sem ekki alls fyrir löngu hafði forgöngu um skýrslugerð skv. beiðni menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið og komst að þeirri niðurstöðu að þar væri ekki allt eins og best væri á kosið og nauðsynlegt væri að taka rækilega til hjá RÚV.

Það er greinilega meira en RÚV arar geta sætt sig við og þeir eru staðráðnir í að verja sitt RÚV og breyta engu hvað sem tautar og raular og ata þá auri sem gera athugasemdir við starfsemi RÚV með réttu eða röngu.

Fyrir löngu varð ljóst að RÚV arar vöruðust að taka viðtöl við eða fá álit þeirra sem hafa efasemdir um ríkisrekinn fjölmiðil.

Nú er baráttan tekin á annað plan og þeir atyrtir og ataðir auri,  sem leyfa sér að gagnrýna stofnunina.


Hvað gerum við og hvað gerir NATO?

Saudi Arabar og bandalagsþjóð okkar í NATO, Tyrkir hafa umfram aðra fjármagnað, vopnað og stutt vígamenn í Sýrlandi, en það hefur kveikt og viðhaldið því ófriðarbáli sem þar hefur geisað allt of lengi. Síðan ákvað Tyrkland að ýta á aðra milljón flóttamönnum frá Sýrlandi yfir hafið til Evrópusambandsins og skammsýnn stjórnmálaleiðtogi Angela Merkel brást við með röngum hætti og reynir nú að bera fé á Tyrki til þess að þeir láti af hermdarverkum sínum gagnvart Evrópu.

Eftir að Rússar blönduðu sér í ófriðinn í Sýrlandi með afgerandi hætti hefur fjarað undan vinum Tyrkja og Saudi Araba þ.á.m. ISIS, sem Tyrkir hafa stutt aðallega leynt og sendu síðast í gær 500 vígamenn þeirra yfir landamæri Sýrlands og Tyrklands til að þeir herjuðu á Kúrda.  Tyrkir hafa einnig verið með linnulausa stórskotahríð á borgir Sýrlandsmegin landamæranna.

Tyrkir hafa boðað að þeir munu hefja landhernað í Sýrlandi og þá gæti svo farið að þeim lenti saman við Rússa. Í framhaldi af því munu Tyrkir kalla á vini sína í NATO og krefjst þess að við og aðrar NATO þjóðir styðjum þá við að framkvæma hermdarverk sín gagnvart Kúrdum og hrjáðum borgurum í Sýrlandi.

Hvað ætlum við þá að gera. Standa með Tyrkjum eða mótmæla strax kröftuglega hernaðarbrölti þeirra og hremdarverkum. Mannsbragur væri að því að Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra mótmælti nú kröftuglega fyrir hönd íslensku þjóðarinnar framgöngu Tyrkja gagnvart Kúrdum sem berjast nú sem fyrr fyrir tilveru sinni gegn þessu mikla herveldi Tyrklandi, sem hefur kúgað Kúrda um aldir.

Er ekki rétt Gunnar Bragi að við stöndum með frelsinu gegn Tyrkjum og gerum kröfu til að þessari samstarfsþjóð ÍSIS samtakanna verði tímabundi vikið úr NATO.


Breytingar á stjórnarskránni

Samkomulag hefur náðst í stjórnarskrárnefnd um að leggja fram ákveðnar breytingar á stjórnarskrár lýðveldisins. Það er fagnaðarefni og þannig á að vinna að breytingum á stjórnarskrá í þróuðum lýðræðisríkjum, að ná sem víðtækastri sátt um þann þjóðfélagssáttmála sem stjórnarskráin er og á að vera.

Ekki hefur verið greint frá því nákvæmlega hvaða tillögur stjórnarskrárnefndin leggur til, en leiða má líkum að því að samkomulag sé um aðferð til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um mál, auðlinda- og umhverfismál.

Aðsúgsfólk að stjórnarskránni náði að telja fyrrverandi ríkisstjórn og ákveðnum hópi þjóðarinnar trú um að nauðsyn væri að kollvarpa núverandi stjórnarskrá og fékk hana til að fara með sér í ólánsvegferð sem kostaði mikinn tíma og peninga og endaði í algjöru glóruleysi eins og svo margt annað sem þau Jóhanna og Steingrímur baukuðu saman.  

Nú hillir undir að skynsemin fái að ráða og vitsmunir og hæfi ráði för við breytingar á stjórnarskránni, þannig að breytingar verði á henni gerðar til bóta, í samræmi við viðmið og venjur í þróuðum lýðræðisríkjum eins og okkar.

 

 

 

 

 


Berufsverbot (Atvinnubann)

Sú var tíðin að vinstri menn fóru hamförum yfir því sem kallað var Berufsverbot sem beita átti í Þýskalandi gagnvart fólki með óæskilegar skoðanir að mati valdhafa. Við frjálslyndir hægri menn vorum þeim heldur betur sammála og tókum upp baráttuna gegn þessum ófögnuði á grundvelli tjáningarfrelsisins.

Nú er öldin önnur og vinstra fólkið hefur fjarlægst fyrri stefnumál um að fólk fái að segja það sem það vill án þess að eiga atvinnumissi á hættu. Í dag voru  borgarstarfsmenn skammaðir og áminntir af skoðanalögreglu Dags B. Eggertssonar og félaga vegna skoðana sinna.

Hugsið ykkur. Við búum í þjóðfélagi þar sem þessi vinnuveitandi Reykjavíkurborg hefur fólk á launum við að fylgjast með því sem starfsfólk borgarinnar er að gera í frítíma sínum. Sams konar starfshættir og leyniþjónusta Stalíns og Hitlers, KGB og Gestapo viðhöfðu á sínum tíma.

Fólki ber að gæta hófs í orðavali og framsetningu en það er óásættanlegt að takmarka tjáningarfrelsið umfram það sem stjórnarskrá og hegningarlög kveða á um. Þetta atferli vinstri stjórnar Reykjavíkur að standa í persónunjósnum að næturþeli er óásættanlegt brot á mannréttindum starfsmanna Reykjavíkur.

Hvað ætlar vinstri meiri hlutinn síðan að gera? Reka þá sem tjá skoðanir sem vinstra liðinu er ekki að skapi. Er það ekki "berufsverbot" eða atvinnubann? Hvað með það ef aðrir taka við sem telja aðrar skoðanir óæskilegar á þá að reka annan hóp starfsfólks?

Það er óhæfa og á ekki að líðast að starfsfólki sé ógnað vegna þess að það hefur skoðanir og tjáir þær. Það eru fasísk og/eða kommúnísk lögregluríki sem njósna um hvað starfsfólkið er að gera í frítíma sínum og  hóta fólki uppsögn vegna skoðana sinna. 


Fjölmenning

Hvað er fjölmenning? Eitthvað sem er gott? Eitthvað sem færir fólk saman og býr til betri heim, upplýstari og ríkari að menningu og góðmennsku? Í orðræðu þeirra sem nota þetta óljósa hugtak, þá virðist oft, sem fólk trúi því að fjölmenning sé af hinum góða og muni færa þróuðum ríkjum mikla blessun. Þessi huglæga þráhyggja án vitrænnar skilgreiningar hefur heltekið marga oftast á fölskum forsendum.

Ísland hefur alltaf verið fjölmenningarland í þeim skilningi að við höfum lært um siði, menningu og sögu fjarlægra þjóða og tileinkað okkur hugmyndir til framróunar í verkmenningu, listum og lögum. Við lærðum um sögu Grikklands og Róm og baráttu Voltaire og annarra heimspekinga fyrir almennum lýðréttindum. Saga Evrópu er saga fjölmenningar. Þjóðirnar lærðu hver af annarri og tóku upp það besta í lögum, hugmyndafræði og verkmenningu annarra þjóða. Fræðsla um fjarlæg lönd og menningu fór fram í skólastofum og margir heilluðust af ýmsu, sem leiddi til þess að þeir hinir sömu lögðu lönd og álfur undir farartæki og hemisóttu framandi þjóðir og kynntu sér framandi menningu og miðluðu síðan af reynslu sinni.

Sú fjölmenning sem hér er lýst er allt annað en hugtakið fjölmenning þýðir nú. Í dag byggir fjölmenning vinstri elítunar og íslömsku yfirráðahyggjunar á því að menning og gildismat nýrra minnihlutahópa sé sambærileg menningu og gildismati meirihlutans. Það þýðir að meirihlutinn getur ekki búist við því eða vænst þess að minnihlutahópurinn taki tillit til menningar meirihlutans. Það felur um leið í sér að meirihlutinn verður að þola afstöðu og gjörðir, sem meiri hlutinn hafnar eins og í tilviki Evrópu í dag hvað varðar múslima. Fjölmenningarhugmyndin í dag segir að lítilsvirðing múslima og ofbeldi gagnvart konum og virðingarleysi fyrir þeim sem aðhyllast aðrar trúarskoðanir, sé hluti fjölmenningarinnar, sem okkur beri að láta afskiptalausa. Þeir sem leyfa sér að hafa aðra skoðun eða menningu minnihlutahópsins eru sakaðir um rasisma eða hatursumræðu. Í tímans rás hefur þessi fjölmenningarhugmynd lamað skynsamlegar umræður um innflytjendamál. Þessi skilgreining fjölmenningar og vígorðið sem þetta hugtak er orðið í dag, er fjandsamlegt þjóðlegri menningu og þjóðlegum gildum.

Við sem höfnum þessari fjölmenningar skilgreiningu teljum nauðsynlegt að það sé sameiginleg menning, sem er í menntakerfinu, vinnureglum og velferðarkerfi og framkvæmd laga. Það er ekki til að refsa fólki sem er í minnihluta, heldur til að tryggja að allir geti tekið fullkominn þátt í þjóðfélaginu og séu jafnir fyrir lögunum.

Fjölmenningartrúboðum nútímans annaðhvort sést yfir þá staðreynd eða vilja ekki viðurkenna að það er stór hópur af velmenntuðu fólki sem aðhyllist Íslam og er ákveðið að troða því frumstæðasta sem þar er að finna fyrst upp á aðra múslima og síðan ef þeir geta upp á samfélagið allt. Að hafna þeirri fjölmenningu er ekki rasismi heldur heilbrigð skynsemi.

Afsökunin fyrir því að gera ekki neitt er óskin um að fá að lifa í friði óáreittur. En lífið er barátta og hver tími býður upp á ný tækifæri og nýjar ógnir. Fólk verður að vera reiðubúið til að bregðast við hvoru tveggja af einurð og skynsemi ef vel á að fara.  Nú steðjar að ógn nýrrar heildarhyggju, Íslamismans, sem verður að bregðast við. Það er áskorun sem við stöndum frammi fyrir.

Við erum rík þjóð, sem hefur tekið og tekur vel á móti fólki af mismunandi trúarbrögðum. Við erum öll jöfn fyrir lögunum og lögin verða að taka á öllum með sama hætti. Íslenskur borgari sem hvetur til glæpa eða fremur þá, á að þola refsingu án þess að trú hans eða uppruni skipti máli. Sérhvern Íslending sem reynir að grafa undan íslenska ríkinu og íslenskri þjóðmenningu ætti að ákæra fyrir landráð. Við getum ekki eftirlátið fólki að fara eftir þeim lögum sem því hentar og brjóta önnur, til að þjóna furðuhugtakinu "fjölmenning". Við bjóðum fólki úr öðru menningarlegu umhverfi velkomið til landsins, en við krefjumst þess að það aðlagist samfélaginu og fari að lögum okkar og siðum.

Góð fjölmenning er allt annað en það inntak sem lagt er í orðið fjölmenning í dag. Góð fjölmenning er sú að kynna sér menningu og siði annarra og nýta eftir föngum. Sú fjölmenning sem grefur undan siðum og reglum þjóðfélags okkar eins og fjölmenningarpostular opinberrar umræðu á ljósvaka- og öðrum fjölmiðlum boða, er fjölmenning sem leiðir til menningarlegrar uppgjafar íslensku þjóðarinnar. Þá mun þjóðin týna tungu sinni og menningu. Eru gælur við hugtakið fjölmenningu á forsendum minnihlutahópa þess virði að við glötum íslenskri þjóðmenningu og kristilegum gildum?

Grein eftir mig sem birtist í Morgunblaðinu 14.1.2016.


Stungnir grísir

Í leiðara Fréttablaðsins segir að tvær ungar konur ritari Sjálfstæðisflokksins og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, kveinki sér eins og stungnir grísir vegna þess að þær hafi orðið fyrir óvæginni umræðu. Vel má vera að það sé rétt. En leiðarahöfundur hefði átt að kynna sér aðkomu þeirra og framgöngu á opinberum vettvangi áður en hún býr til fórnarlömb.

Í leiðaranum er látið sem þessar konur séu fórnarlömb óvæginnar umræðu og helst að skilja að "nettröllin" svonefndu fari að þeim með dólgshætti og svívirðingum. Til þess þekki ég ekki svo gjörla, en til hins þekki ég að báðar þessar ungu konur hafa farið fram í umræðu og aðgerðum með svigurmælum og dólgshætti, sem lítt sæmir forustufólki í pólitík.

Það stoðar lítt fyrir Semu Erlu Serdar og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem hafa ítrekað kastað grjóti og drullu úr glerhúsum sínum að kveinka sér undan því að í þær sé kastað á móti.

Miðað við málflutning þeirra Áslaugar og Semu og stöðu þeirra í flokkum sýnumm þá má frekar velta þvi fyrir sér hvort flokkar sem velja slíkt fólk til forustu eigi mikið erindi við þjóðina.

Það sem skiptir mestu máli er að fólk virði tjáningarfrelsið og virði skoðanir hvers annars. Það hafa hvorug þeirra Sema Erla og Áslaug Arna gert og uppskera e.t.v. í samræmi við það.

Fjölmiðill eins og Fréttablaðið sem og aðrir fjölmiðlar ættu að stuðla að agaðri og vandaðri umræðu með því að halda uppi hófstilltri vitrænni málefnalegri umræðu í stað upphrópanna. En þá er með öllu óvíst að þær Sema og Áslaug ættu aðkomu að umræðunni.


Allt fór vel fram- eða þannig

Hulunni var svipt af þögguninni og ritskoðuninni þegar allt of margir vissu að innflytjendur í boði Angelu Merkel höfðu veist að og í mörgum tilvikum nauðgað fjölda þýskra stúlkna í Köln á nýársnótt.

Þöggunin var svo alvarleg að í frétt lögreglu Kölnarborgar á nýársdag sagði:

"Nýársfagnaðurinn í borginni fór að mestu leyti vel fram"

Lögregluyfirvöld vissu samt að þetta var lýgi.

Fjölmiðlar sögðu ekki hvað hefði gerst og lögregluyfirvöld ekki heldur - Ekki fyrr en almenn vitneskja var um málið. Jafnvel þá reyndu Angela Merkel og fréttastofa RÚV að halda því fram að ekki væri vitað hverjir hefðu staðið fyrir nauðgununum.

Þegar það lá loks fyrir að það voru útlendingar, sem þarna voru að verki, þá var áhersla lögð á það í fjölmiðlum að þetta væru menn af Norður Afrískum uppruna. Síðan hefur komið í ljós að það er líka fölsun á staðreyndum. Gerendurnir eru í yfirgnæfandi meirihluta innflytjendur í boði Angelu Merkel.

Anré Blattman hershöfðingi yfirmaður svissneska hersins segir Evrópu á barmi borgarastyrjaldar og hvetur svissneska borgara til að vopnast. André Blattman veit örugglega meira en við af því að hann fær upplýsingar óbrenglaðar fá öðrum og áreiðanlegri heimildum en fjölmiðlum. Gefum okkur að André Blattman hershöfðingi hafi rétt fyrir sér, er þá ekki þörf á því að herða innflytjendalöggjöfina og taka upp virkt landamæraeftirlit?

Er lengur hægt að saka þá sem vara við ástandinu og vilja loka landinu fyrir innflytjendum frá Arabíu og Norður-Afríku um hræðsluáróður eða ómannúðlegar kenndir?

Spurningin er ekki lengur um mannúðarstarfsemi heldur raunsætt mat á því, sem er frumskylda stjórnvalda,  að gæta öryggis íslenskra ríkisborgara.

Góða fólkið svokallaða sem vill opna landamærin er í raun vont fólk sem er að leiða ógæfu og hörmungar yfir þjóðina. Getum við ekki látið vítin í nágrannalöndum okkar vera okkur til varnaðar.

 


Gegn eigin borgurum

Í gær bárust fréttir af því að stórir hópar ungra manna af Arabískum og Norður-Afrískum uppruna hefðu veist að konum með ránum og kynferðislegu ofbeldií Köln í Þýskalandi og nokkrum öðrum þýskum borgum á gamlárskvöld. 

Af hverju bárust fréttir af þessu fyrst í gær? Vegna þess að lögregluyfirvöld og stjórnvöld reyndu að þagga þetta niður. Fylgjendum fjölmenningar í Þýskalandi slógu skjaldborg um pólitísk viðhorf sín og horfðu framhjá hagsmunum eigin borgara. Lögreglan virðist ekki hafa skorist í leikinn til að verja eigin borgara af ótta við að vera sökuð um rasisma. 

Ótti lögreglu og ýmissa annarra yfirvalda hefur iðulega á síðustu árum leitt til þess að ekki er brugðist við til að verja eigin borgara af ótta við að stuða samfélag múslima. Dæmi frá Rotherham og Manchester á Englandi þar sem glæpahópar múslima stóðu fyrir mannsali og nauðgunum á miklum fjölda af ungum stúlkum óáreittir um árabil, vegna þess að yfirvöld settu kíkinn fyrir blinda augað af ótta við að vera sökuð um rasisma.  

Í kjölfar árása og rána innflytjenda í Þýskalandi á þýskar konur á gamlárskvöld segir Angela Merkel kanslari að sýna verði stillingu og gæta þess að þetta verði ekki til að auka andúð á innflytjendunum. Þessi ummæli eru ámóta og konurnar á Stígamótum mundu segja við konur sem þangað leituðu eftir nauðgun, að þær yrðu að gæta þess sérstaklega að sýna nauðgurunum skilning og velvilja.

Svo virðist sem undansláttarfólkið í innflytjendamálum vilji sveigja reglur réttarríkisins að þeirri innflytjendastefnu fáránleikans, sem er andstæð hagsmunum eigin borgara og ógnar öryggi þeirra. 


Umburðarlyndi, friður og von

Helgisagan um fæðingu Jesú felur í sér boðskap friðar, vináttu og samhyggðar.

Í aldanna rás hefur kristin trú og kristin kirkja gengið í gegn um margvíslega þróun eins og raunar öll þau trúarbrögð sem veita rými fyrir sjálfstæða hugsun. Jesús segir sjálfur, að þú, hver sem þú ert, megir nálgast hann á þínum forsendum. Kirkjan hefur iðulega þrengt kostina, en þar er vikið af þeirri leið sem Jesús sjálfur boðaði.

Kristnir söfnuðir og kristið fólk er ofsótt um víða veröld. Engin trúarhópur þarf að þola jafn miklar ofsóknir og kristnir. 

Kristnir söfnuðir þurfa að gæta þess,sem Jesús boðar í 34 og 35 versi 13.kafla Jóhannesarguðspjalls þegar hann segir:

"Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hvert annað. Á því munu allir þekkja að þið eruð mínir lærisveinar".

Þess vegna ber okkur að koma trúarsystkinum til virkrar hjálpar hvar svo sem er í heiminum þegar að þeim er sótt og leiðtogar kristinna safnaða og kirkjunnar verða að leggja sín lóð á þá vogarskál, að gætt sé hagsmuna og réttinda kristins fólks- með virkum hætti. Þannig að heimurinn sjái að kristið fólk elskar hvert annað og sættir sig ekki við ofsóknir eða harðræði gagnvart öðru kristnu fólki.

Kristin samfélög eru umburðarlyndustu samfélög í heiminum. Þar gilda mannréttindi, grunduð á virðingu fyrir einstaklingnum og réttindum hans. Á viðsjálverðum tímum eins og þeim sem við lifum nú er því mikilvægt að kristni heimurinn villist ekki af leið heldur hafi stöðugt í huga þau grunngildi sem þessi framþróun byggir á og samþykki engan afslátt á mannréttindum en sæki fram til að gera samfélagið betra.

Trú, von og kærleikur er inntak kristinnar boðunar. Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra.

Gleðileg jól.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 200
  • Sl. sólarhring: 322
  • Sl. viku: 3302
  • Frá upphafi: 2516047

Annað

  • Innlit í dag: 187
  • Innlit sl. viku: 3031
  • Gestir í dag: 185
  • IP-tölur í dag: 183

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband