Leita í fréttum mbl.is

Hinn nýi Guđ

Fylgjendur hefđbundinna trúarbragđa nálgast guđdóm sinn af virđingu, auđmýkt og undirgefni. Ţó ţau séu ekki bćnheyrđ ţá fordćma ţau ekki Guđ sinn heldur leita ađ ţví, hvort ţeir hafi ekki rćkt skyldur sínar sem trúađ fólk og ábyrgir einstaklingar og leitast síđan viđ ađ gera betur. Ţví fer fjarri ađ ţau leiti til fjölmiđla til ađ fordćma Guđ sinn fyrir ađ verđa ekki viđ öllum óskum ţeirra.

Hin nýi siđur, sem hefur heltekiđ velferđarríki Vesturlanda í kjölfar sítrylltari neysluhyggju og ábyrgđarleysis einstaklinga er guđdómurinn sem á ađ sjá um hvern einstakling frá vöggu til grafar og tryggja velferđ hans án ţess ađ ţađ skipti máli međ hvađa hćtti einstaklingurinn hegđar sér. Ţessi Guđdómur er Ríkiđ. Sinn nýja Guđ nálgast trúađir međ hroka, yfirlćti og fordćmingu hlutist hann ekki til um ađ verđa viđ öllum óskum ţeirra.

Kvöld eftir kvöld er okkur fluttar fréttir í sjónvarpsstöđvunum af fólki sem ekki hefur fengiđ allar óskir sínar uppfylltar í viđskiptum sínum viđ hinn nýja Guđ. Sögurnar eru ávallt einhliđa og fulltrúar hins nýja Guđs geta ekki boriđ af sér sakir vegna trúnađar. Ţessar fréttir eiga ţađ sammerkt ađ almennt eiga ţćr ekkert erindi viđ almenning í landinu.

Fyrir nokkrum dögum var sagt frá ţví ađ stúlka á unglingsaldri í geđrofi eftir fíkniefnaneyslu hefđi veriđ vistuđ í fangageymslu lögreglu. Fordćming móđurinnar var alger og fulltrúi almannavaldsins, umbođsmađur barna tók undir ţađ og fordćmdi ađ ţví er virđist lögregluna fyrir ađ setja stúlkuna í fangaklefa.

En hvađ átti ađ gera? Á umbođsmanni barna mátti skilja ađ ţađ vćri eitthvađ annađ ţó umbođsmađurinn hefđi sjálf engin úrrćđi.

Fyrir ţađ fyrsta er ţađ skylda foreldra ađ gćta barna sinna. Geti ţau ţađ ekki ţá er nćst ađ leita til heilbrigđisstofnana. Í ţessu tilviki vildi heilbrigđisstofnun ekki taka viđ stúlkunni. Ţess er ekki getiđ í fréttinni af hverju ţađ var, ţó leiđa megi getum ađ ţví. Ţá var ein stofnun hins nýja Guđs eftir lögreglan. Lögreglan hefur ţađ úrrćđi ađ setja fólk sem er til vandrćđa eđa er ógn viđ eigin öryggi í fangaklefa. Ţađ hefur lengi veriđ ljóst. 

Lögreglan er fyrst og fremst til ađ gćta öryggis borgaranna og almannafriđar. Hún hefur ekki sérstakar skyldur gagnvart fíkniefnaneytendum í geđrofi frekar en börnum sem eru sturluđ vegna ofneyslu áfengis. En vandamálin lenda oft á hennar borđi.

Iđulega hafa drukknir sturlađir unglingar veriđ vistađir í fangageymslum án ţess ađ umbođsmađur barna hafi stokkiđ upp á nef sér eđa fréttastofur sjónvarps hafi fundiđ sérstaka hvöt hjá sér til ađ fordćma slíkt athćfi. Gegnir öđru máli um unglinga sem eru sturlađir vegna neyslu ólöglegra fíkniefna?

Ef til vill er til of mikils mćlst ađ fréttafók setji hlutina í eđlilegt samhengi og gćti ţess ađ flytja ekki einhliđa fréttir, sem oftar en ekki eru - fréttir sem eiga ekkert erindi viđ almenning í landinu, en virđast frekar vera hluti helgihalds hinna nýju trúarbragđa sem byggir á  skyldu Ríkisins til ađ sjá fyrir öllum ţörfum fólks frá vöggu til grafar.  


Bloggfćrslur 15. nóvember 2018

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 627
  • Sl. viku: 2959
  • Frá upphafi: 2294578

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 2696
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband