Leita í fréttum mbl.is

Rannsókn á efnahagshruninu í Bandaríkjunum

Rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings á efnahagshruninu byrjar yfirheyrslur í dag. Allt er það fyrir opnum tjöldum en ekki bak við birgða glugga eins og hér.  Hægt er að komast inn á netsíðu rannsóknarnefndarinnar bandarísku hér:

http://www.fcic.gov/

Það er ljóst að ólíkt höfumst við að. Í fyrsta lagi þá er skilgreining á verkefnum rannsóknarnefndarinnar bandarísku allt annað en hér. Þar gera þingmenn sér grein fyrir því að höfuðástæða efnahagshrunsins liggur hjá leikendum á markaði. Hér var rannsóknarnefndinni því miður sniðinn þrengri stakkur. Nefndin sjálf tók síðan þá vondu ákvörðun að fara með allt í felur í stað þess að hafa allt upp á borðinu og leyfa fólki að fylgjast með frá upphafi.

Á sama tíma og verið er að prenta skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á laun um helgar í prentsmiðju hér í bæ og allt starf rannsóknarnefndarinnar fer fram á laun innan veggja, þá býður rannsóknarnefnfdin bandaríska þjóðinni að fylgjast með rannsókninni frá upphafi.

Ólíkt höfumst við að.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sveinsson

Já og hér er alt upp á borði eins og við sjáum Alt gegnsætt ekkert pukur hér sega Jóhanna og Steingrímur, Þvílík og önnur eins vitleysa er hjá þessari stjórn hverja er hún að reina að bjarga kannski fátækum auðmönnunum sem súpa dauðan úr skel eftir að þeir arðrændu land og lýð og eiga ekki fyrir KÓK.

Jón Sveinsson, 7.4.2010 kl. 17:38

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Jamm, og við munum sjá listflug svína yfir Reykjavík líkt og í Washington  eftir dráp JFK og Hollywoodsjóið 11. sept 2001. Gangi þér vel í draumaheimum Jón, með kveðju gammon.

Baldur Fjölnisson, 7.4.2010 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.3.): 670
  • Sl. sólarhring: 727
  • Sl. viku: 2157
  • Frá upphafi: 2504804

Annað

  • Innlit í dag: 640
  • Innlit sl. viku: 2031
  • Gestir í dag: 614
  • IP-tölur í dag: 602

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband