16.10.2010 | 14:29
Tjáningarfrelsið og Geert Wilders
Formaður hollenska frelsisflokksins Geert Wilders var ákærður fyrir hatursáróður gegn Íslam m.a. að benda á hvað væri líkt með Íslam og nasisma. Í kvikmynd sem Wilders gerði "Fitna" gerir hann ítarlega grein fyrir þeim sjónarmiðum og kenningum Íslam sem hann telur andstæð sjónarmiðum vestrænna lýðræðisríkja um mannréttindi, jafnræði og lýðfrelsi.
Óneitanlega er það sérstakt að tjáningafrelsinu kunni að vera sniðinn svo þröngur stakkur að stjórnmálamenn og aðrir sem benda á staðreyndir eða fjalli um mál á hugmyndafræðilegum grundvelli, þurfi að þola ákærur ríkisins á hendur sér.
Það merkilega við ákærur á hendur Geert Wilders er m.a. það að saksóknarinn vildi ekki ákæra hann og biður nú um það við meðferð málsins fyrir dómi að Wilders verði sýknaður af öllum ákærum og telur ákærurnar byggðar á veikum forsendum. Saksóknarinn bendir m.a. á að ummæli Wilders séu byggð á því að Íslam sé ákveðin hugmyndafræði sem hann gagnrýni sem slíka. Dómararnir geta að sjálfsögðu komist að annarri niðurstöðu.
Annað er líka merkilegt við þetta mál á hendur Wilders. Óháður saksóknari vildi ekki ákæra Wilders en neyddist til að gera það vegna þess að áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að um væri að ræða mikilvægar ávirðingar á hendur áhrifamiklum stjórnmálamanni. Óneitanlega athyglivert það.
Vegna skoðana sinna þarf Geert Wilders að hafa um sig fjölmennt lífvarðalið til að tryggja öryggi sitt gagnvart Íslamistum, en hann er ekki fyrsti hollenski þingmaðurinn sem býr við það. Ayaan Hirsi Ali þingmaður bjó og býr líka við þessa. Hollenska þjóðin gleymir ekki þeim Pim Fortyn sem benti á svipaða hluti og Wilders varðandi Islam og var myrtur og Theo van Gogh sem gerði myndina "Submission" um stöðu kvenna í Íslam, hann var líka myrtur. Skoðað í ljósi þessara staðreynda verður fróðlegt að sjá hver verður niðurstaða dómstólsins sem mun dæma í máli Wilders í næstu viku.
Óneitanlega verður þessi hollensku dómur ákveðinn prófsteinn á gildi tjáningarfrelsis, en hæstiréttur Íslands hefur í það eina skipti sem svona mál var til meðferðar fyrir dóminum fallið á prófinu og dæmt gegn tjáningarfrelsinu þó um ómerkilegt og lítilfjörlegt mál væri að ræða.
Þeir sem tjá sig með svipuðum hætti og Wilders eru almennt brennimerktir sem hægri öfgamenn þó það fari oft víðs fjarri að það sé rétt sbr. vinstri sinnaða blaðakonan Oriana Fallaci heitin, sem hvað harðast hefur gagnrýnt Íslam. Óneitanlega er sérkennilegt að ákafir gangrýnendur mannréttindabrota skuli af vinstra fólki vera kallað "öfgafullt hægra fólk". En það er ein leið til að reyna að þagga niður í gagnrýninni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 220
- Sl. sólarhring: 494
- Sl. viku: 4436
- Frá upphafi: 2450134
Annað
- Innlit í dag: 200
- Innlit sl. viku: 4129
- Gestir í dag: 196
- IP-tölur í dag: 194
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- Adolf Friðriksson
- Jón Þórhallsson
- Ágúst H Bjarnason
- Agný
- Loftur Altice Þorsteinsson
- Andrés Magnússon
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Björg Hjartardóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Jón Þóroddur Jónsson
- Áslaug Friðriksdóttir
- Auðbergur Daníel Gíslason
- Baldur Hermannsson
- Námsmaður bloggar
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Björn Halldórsson
- Björn Júlíus Grímsson
- SVB
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
- Carl Jóhann Granz
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Dominus Sanctus.
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Helga Kristjánsdóttir
- Þórólfur Ingvarsson
- Dögg Pálsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Einar G. Harðarson
- Eiríkur Guðmundsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Erla Margrét Gunnarsdóttir
- ESB og almannahagur
- Ester Sveinbjarnardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Jón Kristjánsson
- Atli Hermannsson.
- Baldur Gautur Baldursson
- Fríða Björk Einarsdóttir
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Frjálshyggjufélagið
- Jakob Þór Haraldsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Georg Eiður Arnarson
- Gestur Halldórsson
- Gísli Kristbjörn Björnsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Grazyna María Okuniewska
- Grétar Pétur Geirsson
- Gunnar Th. Gunnarsson
- Guðmundur Júlíusson
- gudni.is
- Jón Þórhallsson
- Gunnar Freyr Hafsteinsson
- Gústaf Níelsson
- Gústaf Adolf Skúlason
- Guðjón Ólafsson
- Gylfi Þór Þórisson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hannes Hólmsteinn Gissurarson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haukur Baukur
- Birgir Guðjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Heimir Ólafsson
- G Helga Ingadottir
- Helgi Kr. Sigmundsson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Himmalingur
- Hildur Sif Thorarensen
- Eiríkur Harðarson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Haraldur Huginn Guðmundsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Pétur Steinn Sigurðsson
- Einar Ben
- Inga Lára Helgadóttir
- Inga G Halldórsdóttir
- Jakob S Jónsson
- Einar B Bragason
- Jens Guð
- jósep sigurðsson
- Sigurður Einarsson
- Jónas Egilsson
- Jón Pétur Líndal
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir
- Eyþór Jóvinsson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Júlíus Brjánsson
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Eggertsson
- Kjartan Magnússon
- Högni Snær Hauksson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kristján P. Gudmundsson
- Kristján H Theódórsson
- Bjarki Steingrímsson
- Steingrímur Helgason
- Konráð Ragnarsson
- Lífsréttur
- Loncexter
- Guðjón Baldursson
- Lúðvík Júlíusson
- Lúðvík Lúðvíksson
- Margrét St Hafsteinsdóttir
- Magnús Jónsson
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Morgunblaðið
- Natan Kolbeinsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ólafur Sveinsson
- Ólafur Fr Mixa
- Ómar Bjarki Smárason
- Páll Ingi Kvaran
- Pálmi Gunnarsson
- Pjetur Stefánsson
- Rafn Gíslason
- Ragnar G
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnar L Benediktsson
- Rannveig H
- Árni Gunnarsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Rósa Harðardóttir
- ragnar bergsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Samstaða þjóðar
- Sigurður Sigurðsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigrún Jóna Sigurðardóttir
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Skattborgari
- Haraldur Pálsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Stefán Júlíusson
- Þorsteinn Guðnason
- Jóhann Pétur
- Sverrir Stormsker
- Sturla Bragason
- Sumarliði Einar Daðason
- Ólafur Ingi Hrólfsson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Björn Bjarnason
- Óli Björn Kárason
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Þórhallur Heimisson
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Valdimar H Jóhannesson
- Valsarinn
- Valur Arnarson
- Vefritid
- Ingunn Guðnadóttir
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Vilhjálmur Eyþórsson
- Vilhjálmur Sveinn Björnsson
- Kristinn Ingi Jónsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Ívar Pálsson
Athugasemdir
Ég vil taka fram - að ég er ósammála Geert Wilders, þ.e. hans skoðunum.
En, hann hefur rétt til að halda þeim fram.
En, þ.e. áhætta sem hann kaus að taka, sem orsakar þörfina fyrir lýfverði.
Mín samúð með honum er takmörkuð - ég lít á hann sem lítið minni öfgamann en a.m.k. suma Íslamista.
Auðvitað - síðan eru Íslamistar mjög stór og breiður hópur. Allt frá einfaldlega trúuðum múslimum sem teljast hófsamir yfir í argasta ofstæki sem til er í heiminum.
Þ.e. ákveðinn ósiður, að mála alla sama litnum - menn eins og Geert Wilders stunda slíka ósiði.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 16.10.2010 kl. 14:52
Sæll Jón.
Innilega sammála þessari grein þinni.
Þó svo að ég hafi alltaf frekar verið til vinstri í þjóðfélagsskoðunum, þá finnst mér þessi afsláttur af mannréttindum sem sumir á vesturlöndum oft í nafni vinstri mennsku og þessa svokallaða fjólþjóðasamfélags og uppgerðar umburðarlyndis vilja gera sé algerlega útí hött og hreinlega til þess eins að stefna þjóðfélögum vesturlanda og raunverulegu lýðræði og jafnrétti í voða.
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 16.10.2010 kl. 16:20
Mér finnst allt í lagi að Wilders tjáir sig eins og hann gerir. En maðurinn er á villigötu þegar hann sjálfur leggur til að Kóranin verður bannað. Hvers konar rugl er það hjá honum? Sjálf Dansk Folkeparti gengur ekki svo langt.
Jakob Andersen (IP-tala skráð) 16.10.2010 kl. 17:28
Ég verð að viðurkenna Einar Björn að ég þekki ekki skoðanir Geert Wilders í þaula en ég er sammála honum um margt varðandi fjölmenninguna og Islam. Vesturlandabúar hafa almennt ekki áttað sig á að Islam aðskilur ekki stjórnmál og trúarbrögð eins og gert er í kristni. Boðun Islam er því að hluta pólitísk hugmyndafræði sem fer í bág við hugmyndafræði jafnréttis og mannréttinda eins og þau eru skilgreind í okkar heimshluta.
Jón Magnússon, 17.10.2010 kl. 21:20
Þakka þér fyrir Gunnlaugur. Ég er sammála þér um að það skipti ekki máli hvort fólk er til hægri eða vinstri í pólitík hvað varðar afstöðu til þessara mála. Í raun þá hafa margir sósíalistar komið fram upp á síðkastið og bent á að hugmyndin um fjölmenningarþjóðfélagið gangi ekki upp. Þekktasti sósíaldemókratinn og sá sem hefur tjáð sig hvað harðast í þessu sambandi er fyrrverandi seðlabankastjóri í Þýskalandi sem þurfti að taka pokann sinn vegna þessara skoðana sinna.
Jón Magnússon, 17.10.2010 kl. 21:22
Ég er sammála þér um það Jakob að það er of langt gengið að gera kröfu til að Kóraninn sé bannaður. Það skiptir einmitt máli að fólk geti kynnt sér hann af eigin raun eins og raunar aðra þá hugmyndafræði sem fólk vill kynna sér.
Jón Magnússon, 17.10.2010 kl. 21:24
Jón Magnússon, 17.10.2010 kl. 21:20
Ég veit alveg þetta um Islam - en er samt ósammála Wilders.
Þú umbreytir ekki trúarbrögðum milljarðs manna, með því að ráðast að þeira helstu ritum eins og Wilders gerir. Það eina sem þú uppskerð þá, er heift og reiði, og að umkvartanir þínar fá ekki hlustun.
Hann er þ.s. kallað er á ensku "demagogue".
Ég sé fyrir mér lítinn hitler, er hann var að tala á sínum tíma um gyðinga sem hættulega, sem ógnina við hinn syðmenntaða heim.
Ég sé lítinn mun á Wilders og þeim sem tortryggja gyðinga. Sana tóbakið í raun og veru - þ.e. aðferðirnar í áróðrinum svipaðar.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 17.10.2010 kl. 21:42
Við skulum aðeins staldra við Einar. Það er Wilders sem er að líkja hugmyndafræði Islam við hugmyndafræði nasismans. Wilders er ákafur stuðningsmaður Gyðinga þannig að samhengi þessa miðað við það sem þú skrifar gengur ekki upp.
Hins vegar er það alveg rétt sem þú bendir á varðandi trúarbrögðin að það er ekki líklegt til árangurs að ráðast gegn trúarriti þeirra Kóraninum. Ég hef lesið Kóranin oftar en einu sinni og bæði á ensku og íslensku og ég upplifði Kóraninn og það sem þar kemur fram virt heilstætt öðru vísi en þannig að kristni heimurinn og sá Íslamski ætti að geta lifað saman í sátt og samlyndi. Hins vegar hafa ákveðnar og það öflugar trúarhreyfingar í Islam tileinkað sér boðun sem getur aldrei samrýmst hugmyndum okkar um frelsi og jafnrétti.
Jón Magnússon, 17.10.2010 kl. 23:52
Punkturinn er að Wilders beitir svipuðum aðferðum og þeir sem réðust á gyðinga á sínum tíma beittu.
Það er því ekki viðkomandi, að hann styður gyðinga, enda sennilega þá blyndur fyrir þeirri kaldhæðni sem ég var að benda á.
En, þ.s. Wilders gleimir er að kristni á fyrri tíð var ekki heldur sérstaklega friðsöm sbr. 18. öldin. Síðan er ekki lengra síðan en á 7. áratugnum, að kaþólskum var bannað að gegna opinberum störfum í Bretl. af nokkru tagi, og á sama tíma gastu verið handtekinn fyrir að vera hommi.
En í dag sem dæmi, hneyxlast margir á meðferð homma í múslima löndum.
Vandi múslima landa, er einfaldlega sá að þau eru ívið aftar á merinni, hvað varða nútímavæðingu. En, ef maður skoðar sem dæmi Indónesíu, þá er það þjóðfélag til muna fjálslyndara en t.d. Íran.
Nútímavæðing, virðist leiða til fjálslyndi, hið minnsta þ.s. saman fer lýðræði.
Ég er reyndar fremur bjartsýnn um að Tyrkland eigi eftir að vera jákvætt afl fyrir botni Miðjarðarhafs og á múslimalönd á því svæði, sem vaxandi veldi og lýðræðisríki. Einmitt vegna þess, að þar eru íslamista flokkur sem er lýðræðislegur við völd, og þeir eru farnir að hafa mikil áhrif.
Ekki síst vegna þess að þeir eru "success".
Ég hugsa að þessi fasi Íslam sem við erum að upplifa í dag, eigi eftir að líða hjá - sérstaklega þegar þau fara að nútímavæðast.
Tyrkland verður sennilega aftur megniveldi þess svæðis.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 18.10.2010 kl. 01:01
Þessi umræða kallar á langa útfærslu ef svara á því efnislega sem þú kemur með Einar. En í aðalatriðum þá er ég sammála þér. Kristnin var ekki sérlega umburðarlynd á ákveðnum tímum það er vissulega rétt Þá er það líka rétt að það er mjög mismunandi hvernig boðun Íslam er. Raunar eru til fjórir meginskólar meðal Sunni múslima og a.m.k. tveir meðal Shia múslima. Það er ekki tilviljun að íhaldssamasti skólinn skuli vera í Saudi Arabíu ríkinu sem Bandaríkin styðja nánast eins og Ísrael og að þaðan skuli hafa komið flestir sem gerðu árásina á tvíburaturnana 11. september.
Jón Magnússon, 18.10.2010 kl. 08:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.