Leita í fréttum mbl.is

Slæm tíðindi

Neyðarfundir Jóhönnu Sigurðardóttur vegna skuldavanda einstaklinga, með forustumönnum fjármálastofnana, lykilráðherrum nokkrum þingnefndum og fulltrúum Hagsmunasamtaka heimila og talsmanni neytenda virðast ekki ætla að skila neinu. Það eru slæmar fréttir.

Stærsti vandinn er sá að ríkisstjórnin hefur enga stefnu, engar tillögur og engar lausnir. Séð utanfrá þá virkar forsætisráðherra eins og aðkeyptur fundarstjóri á almennri helgarráðstefnu og ekki verður annað séð en helsti ráðamaður ríkisstjórnarinnar,  fjármálaráðherra, hafi takmarkaðan áhuga á ráðstefnu forsætisráðherra um skuldavandann.

Ötulasti talsmaður Hagsmunasamtaka heimilanna, Marinó G. Njálsson, segir á bloggi sínu í morgun að ríkisstjórnin bjóði í raun aðeins upp á þrjár leiðir sem allar feli í sér að fólk flytur úr landi með búslóðir sínar. Með því er Marinó í raun að segja að ekkert  hafi gerst á neyðarfundum forsætisráðherra. Ég verð að viðurkenna það að mér fannst slæmt að heyra að svona væri komið því að alltaf held ég í vonina um að forystumenn í íslensku stjórnmála- og fjármálalífs horfist í augu við staðreyndir þeirra vandamála sem venjulegt fólk glímir við í þjóðfélaginu í dag.

Forsenda þjóðarsáttar og nýs upphafs á Íslandi fellst í því að leiðrétta skuldir fólks og fyrirtækja. Hún fellst ekki í því að gefa einhverjum eitthvað heldur leiðrétta það sem ranglega er lagt á fólk eða frá því hefur verið tekið, á grundvelli verðtryggingar eða vegna þeirra fjármálahamfara í þjóðfélaginu sem byrjuðu með gengishruninu.  Annað þarf ekki en ekkert minna dugar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Talk Is Cheap" - hvað vilt þú gera jón. persónulega er ég á móti 'almennri niðurfærslu'

rafn guðmundsson (IP-tala skráð) 16.10.2010 kl. 00:07

2 Smámynd: Jón Magnússon

Rafn ég er alin upp við það að orð séu dýr. En það skoðar hver það með sínum augum. Sjónarmið mín liggja nokkuð ljós fyrir í þessum málum. Í fyrsta lagi hef ég krafist afnáms verðtryggingar meir en í áratug. Verðtryggingin er óréttlát og leiðir óhjákvæmilega til fjöldagjaldþrota og ábyrgðarleysis í útlánum. Í öðru lagi þá vildi ég strax í október 2008 taka verðtrygginguna úr sambandi og tel að það eigi að færa lánin að þeirri vísitölu sem þá var hvað verðtryggingu varðar. Ég lít ekki á það sem almenna niðurfærslu heldur almenna leiðréttingu þar sem að það hefur engin virðisauki verið í þjóðfélaginu frá október 2008 heldur samdráttur í þjóðarframleiðslu og minnkandi kaupmáttur launa.

Hins vegar geri ég mér grein fyrir því að það er erfitt að leiðrétta svona hluti aftur í tímann og þá er spurning um annars konar leiðréttingu sem ég er að skoða, en verðtrygginguna á að taka úr sambandi strax.

Jón Magnússon, 16.10.2010 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 118
  • Sl. viku: 3099
  • Frá upphafi: 2296097

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2851
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband