Leita í fréttum mbl.is

Sigurgangan

Sjálfstæðisflokkurinn hefur haldið um ríkisfjármálin nánast óslitið frá 2013 og jafnan haft það á stefnuskránni að berjast gegn útþennslu ríkisbáknsins. Einu sinni settum við þá ungir Sjálfstæðismenn fram vígorðið "Báknið burt" En það gekk ekki eftir enda báknið orðið svo stórt að það sér um sig sjálft á kostnað skattgreiðenda. 

Nú hefur sá árangur náðst undir traustri efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins undanfarin ár, að stöðugildum hjá ríkinu hefur aðeins fjölgað um 9.3% á síðustu 6 árum eða alls 2.101 starfsmann á tímabilinu.

Þessari hlutfallslegu aukningu í fjölgun ríkisstarfsfólks hefur engin af nágrannaþjóðum okkar náð þrátt fyrir að vondir sósíalistar hafi iðulega verið þar við völd.

Sjálfstæðisflokkurinn getur því horft stoltur til þess að hafa náð þeim árangri í baráttunni við báknið að það skuli hafa vaxið með mesta hraða í okkar heimshluta þann tíma sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað ríkisfjármálunum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Kaldhæðnin lengi lifi.

Jónatan Karlsson, 26.9.2019 kl. 17:47

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Long live our illustrious leaders and O3!

Halldór Jónsson, 27.9.2019 kl. 13:12

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Jóhanna bjó til ótal stöðugildi hjá ríkinu og sendi rest í háskóla til að fela og lækka atvinnuleysistölur á sínum tíma. Hvers vegna sjálfstæðisflokkurinn bætir um betur er erfitt að skilja nema að þeir hafi breyst í miðstjórnarvald sem vill hafa alla tauma í höndum sér eða er orðinn varnarlaust í höndum innræktaðs embættismannakerfis sem vex eins og púkinn á fjósbitanum og engin fær við ráðið.

Kannsski er þetta líka hluti af glóbalískri strategíu hins Orwellíska Björns Bjarnasonar, sem leggur allar línur fyrir stórn flokksleysunnar.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.9.2019 kl. 15:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 15
  • Sl. sólarhring: 146
  • Sl. viku: 4251
  • Frá upphafi: 2291270

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 3918
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband