Leita í fréttum mbl.is

Varnarsveitir Ísrael eru að vinna sigur

Dálkhöfundurinn og hernaðarsérfræðingurinn Richard Kemp segir eftirfarandi í grein í DT í dag: 

Varnarsveitir Ísrael hafi barist á Gasa undanfarnar vikur og náð meiri árangri en þeir sjálfir höfðu þorað að vona. Sótt fram með meiri hraða og eyðilagt mikið af stjórnstöðvum Hamas, náð mikilvægum gögnum og beðið minna manntjón en búist hafði verið við.

Þegar Hamas réðist á Ísrael 7.október vissu þeir, að Ísraelar mundu svara og undirbjuggu sig fyrir það með eins góðum hætti og þeim var unnt m.a. með því að færa allar meiriháttar stjórnstöðvar undir sjúkrahús og skóla til þess að fullkomna þá stefnu sína að óbreyttir borgarar mundu líða og deyja frekar en nauðgarar og barnamorðingjar Hamas.

Varnarsveitir Ísrael hafa sprengt göng Hamas ofan frá með góðum árangri. Þó að varnarsveitir Ísrael hafi ekki náð að staðsetja og drepa æðstu stjórn hryðjuverkasamtaka Hamas þá eru augljós merki þess, að Hamas er undir miklu álagi. Eldflaugaskot frá Gasa eru í algjöru lágmarki og sagt er að leiðtogar Hamas biðji Hisbollah í Líbanon um að gera árásir til að Varnarsveitir Ísrael þurfi að berjast á fleiri vígstöðvum.

Annað merki þess að Hamas sé í vandræðum er að boðum hefur verið komið til Katar um að reyna að ná samningum við Ísrael um vopnahlé. Ísrael hafnar vopnahléi sem felur það í sér, að þeir dragi herlið sitt til baka og gefi Hamas tækifæri til að endurskipuleggja sig, fávísir stjórnmálamenn á Vesturlöndum þ.á.m. Íslandi krejast þessa líka í stað þess að leggja áherslu á mannúðarhlé til að almennir borgarar geti yfirgefið átakasvæði eins og Ísrael hefur gert reglulega.

Tölur um fallna og særða á Gasa koma eingöngu frá heilsugæslu Hamas, sem gerir engan mun á óbreyttum borgurum í þessu efni og stríðsmönnum Hamas.

Varnarsveitirnar fara að alþjóðalögum um hernað og vopnaviðskipti og gera sitt besta til að lágmarka manntjón meðal almennra borgara. Sendar eru út viðvaranir til fólks um að yfirgefa væntanleg átakasvæði, svæði sem varnarsveitirnar ætla að ráðast inn á. Síðan stríðið byrjaði hafa varnarsveitirnar sent yfir 1.5 milljónir dreifimiða úr lofti, sex milljónir talskilaboð, 4 milljónir stafræn skilaboð og hringt og gert mannúðarvopnahlé. Þrátt fyrir þessa viðleitni varnarsveitanna hafa margir óbreyttir borgarar dáið á Gasa. Það er sorglegt, en hjá því verður ekki komist meðan Hamas felur sig meðal óbreyttra borgara og þvingar þá iðulega til að vera um kyrrt á svæðum, sem vitað er að verði næst fyrir árásum.

Joe Biden og Rishi Sunak hafa hingað til staðið í lappirnar og staðið gegn kröfum um vopnahlé (annað en Alþingi Íslendinga), þá hafa þeir jafnan tekið fram, að Ísrael verði að fara eftir reglum og alþjóðalögum, sem gilda um hernað og reyna að komast hjá því svo framast verði við komið að óbreyttir borgarar falli. Þeir vita að það er einmitt það sem varnarsveitir Ísrael eru að gera, en telja þetta pólitískt klókt vegna sumra kjósenda sinna að orða þetta svona á sama tíma og það er með öllu ljóst, að á þessari stundu þá er vopnahlé umfram stutt mannúðarvopnahlé eingöngu til þess fallið að koma nauðgurnum og barnamorðingjum Hamas til góða. Svo mörg voru þau orð dálkahöfundar DT. Gott fyrir þá sem hamast við að tala um stríðsglæpi og útrýmingaherferð að skoða málið miðað við það sem kunnáttumenn segja að sé að gerast í stað þess að taka fréttir frá hryðjuverkafólkinu eins og heilögum sannleik. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Varnarsveitir ?  Sem drepa smákrakka ?
Það er ekkert land til með nafninu Ísrael.

Þórhallur Pálsson, 11.11.2023 kl. 21:25

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Held að þið zíonistar hefðuð efni á kaldri sturtu og smá heimanámi, að ekki sé rætt um smávegis siðfræði.

Annars bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 11.11.2023 kl. 23:36

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Hér er örlítil upprifjun frá uppreisninni í Varsjá í apríl 1943.

Þjóðverjar sendu skriðdreka, stórskotalið og vélbyssusveitir gegn Gyðingunum og beittu eiturgasi til að myrða þá sem leyndust í kjöllurum og undirgöngum. Baráttan var vonlaus frá upphafi en Gyðingarnir vildu fremur „deyja með sæmd“ en láta lífið baráttulaust.

Hver er munurinn nú í dag?

Jónatan Karlsson, 12.11.2023 kl. 10:04

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Reglusystur á Alþingi eru illa pólitískt læsar. 

Helga Kristjánsdóttir, 12.11.2023 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón Magnússon
Jón Magnússon

Síðuritari er Hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi alþingismaður.

 

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 1006
  • Sl. sólarhring: 1249
  • Sl. viku: 6779
  • Frá upphafi: 2304094

Annað

  • Innlit í dag: 934
  • Innlit sl. viku: 6265
  • Gestir í dag: 890
  • IP-tölur í dag: 861

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband